Morgunblaðið - 06.01.2011, Side 11

Morgunblaðið - 06.01.2011, Side 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011 vinsæll hjá eldri notendum, því hann gerir ánægjulegt áhugamál auðveld- ara með því að skipta út þungum bók- um í létta tölvu. Kindle er líka snið- ugur fyrir þá sem ferðast mikið og vilja taka meira en eina bók með. Rétti búnaðurinn getur látið eldra fólk kom- ast yfir efasemdir og kvíða gagnvart því að prófa nýjan tæknibúnað. Þeir sem hanna tæknibúnað hafa lítið hugsað út í að þróa búnað fyrir eldri notendur, líklega vegna þeirrar mýtu að eldra fólk hafi ekki áhuga á nýrri tækni. En það virðist vera að breytast með einfaldari sjónvörpum og einfaldari tölvunotkun, t.d er Skype farið að bjóða upp á einfaldari spjall- leiðir fyrir eldra fólk. Reuters Gömul og ný Það má margt á milli vera í tækniheiminum. Það er flest kjöt notað í ítalskar pastasósur og á mörgum svæðum er mjög vinsælt að nota andarkjöt og gera pasta con l’anatra. Oft- ast er gert ráð fyrir heilum öndum í uppskriftunum en það má vel nota andar- bringur, sem fáanlegar eru í flestum stórmörkuðum. 500 g spaghetti 2 andarbringur eða ein heil önd 100 g beikon, niðurskorið 2 sellerístilkar, grófsaxaðir 2 gulrætur grófsaxaðar 1 stór laukur saxaður búnt steinselja lúka fersk salvía lúka ferskt timjan 2 lárviðarlauf 4 dl rauðvín 500 dl tómata passata (tóm- atamauk) ólívuolía Parmesan-ostur Hitið olíuna í þykkum potti. Steikið beikonið og bætið öndinni/and- arbringunum út í pottinn. Brúnið vel. Bætið lauk, gulrótum, selleríi og kryddjurtum saman við og steikið í 3-4 mínútur. Bætið tómata passata saman við og látið malla í 5 mínútur. Bætið rauðvíninu saman við og leyf- ið að malla áfram á miðlungshita í um 30-40 mínútur ef þið notið andar- bringur en helmingi lengur ef þið notið heila önd. Takið andarbringurnar/öndina upp úr pottinum og leyfið að kólna aðeins. Ef þið notið bringur þá saxið þið þær síðan í litla bita. Ef þið notið heila önd þá reytið þið allt kjötið af henni. Skilj- ið skinnið eftir. Þrýstið sósunni í gegnum sigti og setjið aftur í pottinn. Hitið sósuna og bætið andarkjötinu saman við. Bragð- ið til og saltið og piprið ef þarf. Leyfið sósunni að malla í 5-10 mínútur í við- bót. Eins og með margar ítalskar upp- skriftir eru tímasetningar til viðmið- unar. Ef ykkur finnst sósan þurfa lengri tíma þá leyfið þið henni að malla lengur. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbein- ingum. Blandið saman við kjötsósuna. Berið fram með nýrifnum Parmesan- osti og góðu norður-ítölsku rauðvíni. Steingrímur Sigurgeirsson Uppskriftin Pasta con l’anatra Fleiri uppskriftir má finna á Matur og vín-vef Morgunblaðsins: mbl.is/ matur og á www.vinotek.is NÝTT ÁR - NÝ MARKMIÐ FUNDIR - MÓTTÖKUR - VE ISLUR Ef halda á fund, móttöku, veislu, námskeið eða hópefli eru fáir staðir skemmtilegri en Grímsá sveitasetur og veiðihúsið við Laxá í Kjós. Við tökum að okkur allar tegundir af veislum og uppákomum.Bæði húsin taka allt að 40manns í gistingu sem leigjastmeðeðaán þjónustu. Veiðihúsið í Kjós Í Veiðihúsinu við Laxá í Kjós er stór og vandaður veislu- salur sem tekur allt að 100 manns í sæti og með gistingu fyrir allt að 40 manns. Grímsá Veiðihús Í veiðihúsinu við Grímsá er glæsilegur salur sem tekur allt að 70 manns í sæti og gisting fyrir allt að 36 manns. Í húsinu er gufubað og heitur pottur svo hægt er að slaka vel á eftir góðan dag. Pöntunarsímar: 618 0083 & 437 0083 - www.hreggnasi.is Veiðifélagið HREGGNASI Morgunblaðið/Eggert Eigendurnir Ólöf Erna Adamsdóttir og Þóra Þórisdóttir kynntust á brautargengisnámskeiði Impru. tökur, það eru allir mjög ánægðir. Það tekur smástund að ná fram- leiðslugetunni en við vinnum að því. Við erum a.m.k. mjög bjartsýnar á að þetta muni ganga vel.“ Sælkerar stór markhópur Þóra segir búðina vera með þrjá markhópa. „Ég hélt fyrst að við yrðum aðallega með ferðamenn og heilsuunnendur. Svo hefur komið í ljós að sælkerar eru líka stór markhópur hjá okkur. Við erum að selja t.d. kryddsulturnar og sírópin í sælkerabúðir eins og Ostabúðina og Búrið en allt sem við framleiðum seljum við líka annars staðar, t.d. í Melabúðinni og í ferðamannaversl- unum. Okkur finnst það að vera með þrjá góða markhópa gefa okkur ákveðinn sveigjanleika,“ segir Þóra. Aðalbláberjate Þær framleiða te úr þurrkuðum íslenskum jurtum Sultur „Við erum að selja t.d. kryddsulturnar og sírópin í sæl- kerabúðir,“ segir Þóra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.