Morgunblaðið - 06.01.2011, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011
✝ Antje BrucknerKortsson fæddist
í bænum Graalmuritz
í Austur-Þýskalandi
6. janúar 1944. Hún
lést á Selfossi þann
12. desember 2010.
Foreldrar Antje
voru Alfred Emil
Bernhard Lorenz og
Ella Frida Anna Mar-
ie Lorenz.
Tvær systur Antje,
þær Rita og Helga,
búa ytra en bróðirinn
Gerhard er látinn.
Antje lærði til sjúkraflutninga
og starfaði um tíma sem sjúkraliði
og á heimili fyrir þroskaheft börn.
Þá vann hún í verksmiðju og síðan
sem aðstoðarkona á
hóteli. Ásamt þessu
annaðist Antje móð-
ur sína sem glímdi
við veikindi nánast
alla sína ævi.
Í ágúst 1993 réð
Antje sig til Karls
Kortssonar til að sjá
um konu hans Car-
men sem átti þá
skammt eftir ólifað.
Kynni takast með
Antje og Karli og
þau gengu í hjóna-
band í nóvember
1997. Þau bjuggu á Freyvangi 11 á
Hellu.
Útför Antje fór fram í kyrrþey
21. desember 2010.
Antje vinkona mín er farin til æðri
heima og hana sé ég ekki oftar hérna
megin í tilverunni. Hún fór hljóðlega
eins og henni var lagið, engir lúðra-
þytir eða tilgerð. Antje kynntist ég
haustið 1996 en þá bað Karl Kortsson
mig að leiðbeina henni með að læra ís-
lensku. Kennslustundirnar gengu nú
ekki mikið út á málfræði og endingar
sagna heldur var tímanum varið í að
spjalla um daginn og veginn á ís-
lensku og þýsku.
Antje kom oft í heimsókn og sér-
staklega eftir að börnin mín fæddust.
Hún hossaði börnunum ávallt, lék við
þau á gólfinu eða leit með þeim í bók.
Hún Antje var mikil barnagæla og oft
passaði hún börnin þegar ég þurfti að
skreppa frá heimilinu. Sumarið 2005
fórum við fjölskyldan til Þýskalands
og heimsóttum þau Antje og Karl í
heimabæ Antje, Graalmuritz. Það var
gaman að koma í heimabæ Antje og
sjá staðinn og fólkið sem henni var
svo kært. Þau hjónin voru búin að
undirbúa komu okkar af kostgæfni og
hver stund var skipulögð til að nýta
tímann sem best. Við áttum þar góð-
an tíma með þeim hjónum, t.d. á
ströndinni, við jarðarberjatínslu,
borðuðum með þeim góðan mat og
spjölluðum um gamla Þýskaland.
Antje hafði unun af mörgu, svo sem
tísku og fallegum fötum og var hún
allra kvenna glæsilegust er hún var
búin að taka sig til og fór á mannamót
með Karli sínum. Hún hafði unun af
að hlusta á klassíska tónlist og horfa á
góðar kvikmyndir. Eitt helsta áhuga-
mál þeirra hjóna var góður matur og
þá lá nú Antje ekki á liði sínu með að
marinera, steikja, baka og útbúa alls-
kyns rétti, sem sannir Þjóðverjar
kunna svo vel. Hversdags- jafnt sem
veislumatur þeirra var ekki af verri
endanum, allur hugur og elja lögð í
verkið og mikið lagt á sig til að nálg-
ast villibráð, sjóbirting eða annað
sem þau völdu til matreiðslu.
Síðasta árið fór Antje ekki til
Þýskalands eins og hún var vön og
var hún oft leið yfir aðskilnaði þeirra
systra og frændfólks. En á því var
unnið með símtölum og pakkasend-
ingum. Einatt fékk Antje pakka frá
systrum sínum og oftar en ekki lenti
það til einhvers annars en hennar
sjálfrar. Börnin mín fjögur fengu allt-
af stóra nammi- og dótapakka á af-
mælum sínum og móðir mín fékk
handavinnuefni. Börnin í hverfinu
komu reglulega við hjá Antje og þáðu
gjarnan nammi í vasann. Antje vék
góðgæti að mörgum á leið sinni hér
um Hellu og þegar hún fór til lækn-
inga í Reykjavík. Hún gætti þess líka
að sorphirðukarlarnir fengju sinn
skammt af góðgerðum þegar þeir
komu sína síðustu ferð fyrir jól.
Þó að lítið hafi farið fyrir tilveru
Antje á Hellu er hópur málleysingja
sem saknar hennar sárt. Það eru
fuglarnir. Antje var vön að gauka að
þeim allskyns kræsingum í bakgarð-
inum á Freyvangi 11. Þar komu
margar tegundir fugla sem fundu
skjól í háum trjánum og áttu mat vís-
an frá henni.
Ég vil þakka Antje samveruna og
allan hlýhuginn sem hún bar til mín
og minnar fjölskyldu. Minningin um
hana mun lifa með okkur. Ég og fjöl-
skylda mín sendum Karli, systrum
Antje, Kristjönu og fjölskyldu okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Þórhalla Sigmundsdóttir.
Antje Bruckner
Kortson
✝ Sigurbjörn Krist-ján Hákonarson
fæddist á Húsavík 24.
desember 1949. Hann
lést á heimili sínu á
Seltjarnarnesi þann
14. desember 2010.
Foreldrar hans
voru Guðbjörg Sig-
urðardóttir fædd 3.
apríl 1922 í Njarðvík
í Norður-Múlasýslu
og Hákon Að-
alsteinsson fæddur
14. apríl 1921 á Ís-
ólfsstöðum á Tjör-
nesi, dáinn 26. september 1961.
Sigurbjörn Kristján var næst-
yngstur af fimm börnum foreldra
sinna. Systkini hans eru: 1) Ólína
Ingibjörg fædd 27. apríl 1945, maki
Gunnar J. Magnússon fæddur 29.
apríl 1942. Þau eiga einn son, Há-
kon. 2) Sigurður Aðalsteinn, fædd-
ur 5. september 1946, maki Ruth S.
Jónsdóttir fædd 31. mars 1950. Þau
eiga tvö börn, Helgu Björgu og Há-
kon Hrafn. Barnabörnin eru sex. 3)
Aðalheiður Laufey fædd 31. júlí
1948, maki Valur B. Sigurðsson
fæddur 11. júlí 1949.
Þau eiga tvo syni, Há-
kon og Sigurð Bjart-
mar. Barnabörnin
eru tíu. 4) Halldór
fæddur 8. september
1951, maki (skilin)
Anna Björg Stef-
ánsdóttir fædd 16.júlí
1957. Þau eiga þrjú
börn, Eygló Sif, Einar
Daða og Eyþór Mar.
Barnabörnin eru
fjögur. Sambýliskona
hans er Zofia Was-
iewicz fædd 18. nóv-
ember 1956.
Sigurbjörn Kristján ólst upp á
Húsavík og bjó þar lengst af. Hann
stundaði störf við fiskvinnslu, sjó-
mennsku, sláturhúsvinnu og vinnu
í gróðurhúsi, sem honum líkaði
mjög vel. Árið 2000 varð hann fyrir
slysi í umferðinni í Reykjavík og
var lítið vinnufær eftir það.
Útför Sigurbjörns Kristjáns fer
fram í dag, 6. janúar 2011, frá Sel-
tjarnarneskirkju og hefst athöfnin
kl 13. Jarðsett verður í Húsavík-
urkirkjugarði.
Ástkær sonur minn og besti vin-
ur.
Nú kveð ég þig með miklum sökn-
uði og bið Guð um styrk til mín.
Minningarnar eru svo margar og
ljúfar, heil ævi af samveru og um-
hyggju sem ég ylja mér nú við.
Þú varst alltaf svo duglegur við að
hafa alla hluti í lagi og bæta og
breyta ef á þurfti.
Aldrei mátti sjá á neinu, þá leið
þér ekki vel og varst strax genginn í
málið til þess að laga það.
Þú vildir að ég fengi allt það
besta, elsku vinur.
Þetta allt og margt, margt fleira
sem þú hefur gefið mér geymi ég í
mínu hjarta.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt
þig og mun aldrei hætta að elska
þig.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
Hafðu gát á hjarta mínu
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf, Jesús, vertu hjá mér.
(Ásmundur Eiríksson.)
Þín,
mamma.
Elsku besti bróðir minn.
Ég er með fullt fang af minning-
um sem rifjast nú upp og mig langar
til að kveðja þig með.
Þú varst einstakur maður og um-
hyggja þín fyrir mér og fjölskyldu
minni var engu lík.
Allar stundir okkar á Húsavík og
úti á Unnarbraut í gegnum árin eru
svo dýrmætar í minningunni og
verða nú minn fjársjóður um þig.
Alltaf varst þú tilbúinn að hjálpa
mér ef þú gast.
Með bros á vör mættir þú og lagð-
ir þig allan fram.
Einlægni þín var ómetanleg og
yljaði okkur öllum í hjartastað.
Þín verður sárt saknað og engum
mun takast að fylla tómarúmið sem
nú er í hjörtum okkar.
Ég hefði viljað geta gert mikið,
mikið meira fyrir þig, elsku vinur
minn.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Þín elskandi systir,
Aðalheiður og fjölskylda.
Ver sterk, mín sál, í þungri þraut,
sem þú átt nú að bera,
og vit, að þessi þyrnibraut
skal þér til reynslu vera,
sem ávöxt ber. Guð ætlar þér
í sinni framtíð sigur.
Þín trú og von ei visna má,
þó virðist kraftur þrotinn.
því Guð þér ann og er þér hjá,
hann elskar reyrinn brotinn,
og Kristur vann og veg þér fann,
þinn kross á honum hvílir.
Sjá, nóttin verður náðartíð
og nýr mun dagur skína.
Lát hverfa víl og hugarstríð,
því hag og vegu þína
þinn Drottinn sér. Hann fyrir fer
og sigrar allt um síðir.
(Ellingsen/Sigurbjörn Einarsson.)
Hvíl í friði, elsku vinur.
Hafðu kæra þökk fyrir allar okkar
samverustundir í gegnum tíðina.
Ingibjörg systir og fjölskylda.
Elsku frændi.
Það er alltaf erfitt að kveðja þá
sem manni þykir vænt um.
Ég vil þakka þér fyrir að hafa ver-
ið mér einstakur vinur og eru minn-
ingarnar óteljndi frá því að ég var
gutti sem eyddi öllum sumrum hjá
þér og ömmu á Húsavík.
Oft var mikið hlegið og haft gam-
an, og var ég ekki eina barnabarn
ömmu sem dvaldi hjá ykkur löngum
stundum í góðu yfirlæti.
Þú varst mér og mínum ævinlega
góður og hlýr og þín verður sárt
saknað.
Þinn frændi,
Hákon Valsson og fjölskylda.
Sigurbjörn Kristján
Hákonarson
Einn þeirra manna, sem settu
sterkan svip á bæjarlíf Akureyrar á
öldinni sem leið, var Björgvin Guð-
mundsson tónskáld og söngstjóri. Í
þrjátíu ár, 1931-1961, var hann bú-
settur á Akureyri, leiðandi maður í
menningarlífinu, einkum á sviði tón-
listar og leiklistar. Hann var sannur
listamaður að náttúrugáfum og saga
hans um margt einstæð.
Björgvin var þar á ofan minnis-
stæður persónuleiki, stór í sniðum,
vörpulegur maður, býsna örgeðja
svo að hann átti það til að þjóta upp
og ofan skapsmunaskalann, þegar
svo stóð á. Í list sinni sem skapandi
skáld í tónum var hann boðberi friðar
og fagurs mannlífs. Sönglög Björg-
vins eru áhrifamikil, oft tregabland-
in, eins konar íslenskur „blues“.
Um þessar mundir eru 50 ár liðin
frá andláti Björgvins Guðmundsson-
ar. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 5. janúar 1961, á 70.
aldursári. Hann hvílir í Akureyrar-
kirkjugarði og við hlið hans eigin-
kona hans Hólmfríður Guðmundsson
(Fríða Freeman) vestur-íslensk
kona af þingeyskum ættum, svo og
einkadóttir þeirra Margrét Björg-
vinsdóttir. – Þess er líka að minnast
að 80 ár eru síðan Björgvin og fjöl-
skylda hans settust að á Akureyri,
eftir að hafa búið lengi í Kanada.
Björgvin Guðmundsson
✝ Björgvin Guðmundsson tón-skáld var fæddur í Vopnafirði
26. apríl 1891. Hann lést 5. janúar
1961.
Þangað fluttist Björgvin tvítugur að
aldri. Og ekki er það síður minnis-
vert að 120 ár eru liðin frá fæðingu
Björgvins, hann fæddist að Rjúpna-
felli í Vopnafirði 26. apríl 1891.
Þessi upptalning ártala sýnir að
Akureyringar hafa ástæðu til að gera
árið 2011 að sérstöku minningarári
um Björgvin. Skal í því sambandi
leggja áherslu á að Akureyringar
hafa ætíð sýnt lífi, starfi og minningu
hans sóma með því að efna til afmæl-
istónleika á merkisafmælum hans.
Út af því verður ekki brugðið að
þessu sinni.
Í undirbúningi er vegleg Björg-
vinshátíð, sem haldin verður í Menn-
ingarhúsinu Hofi 10. apríl nk. Tón-
listarstjóri er Roar Kvam. María
Sigurðardóttir leikstjóri sér um
flutning þáttar úr Skrúðsbóndanum,
vinsælu leikriti Björgvins frá 1940.
Að framkvæmd hátíðarinnar vinnur
starfshópur, sem skipaður er Har-
aldi Sigurðssyni fv. bankafulltrúa,
Sverri Pálssyni fv. skólastjóra, Þor-
steini Gunnarssyni fv. háskólarektor
og undirrituðum.
Barnabörn Björgvins, Björgvin
Richard Andersen, Fríða B. Ander-
sen og Karl Konráð Andersen, hafa
lagt undirbúningi Björgvinshátíðar
mikið lið. Þá er þess að geta að
Haukur Ágústsson rithöfundur og
fyrrverandi sóknarprestur á Hofi í
Vopnafirði hefur ritað ævisögu
Björgvins. Hún bíður þess að verða
gefin út. Sýningar eru ráðgerðar á
Akureyri, Egilsstöðum og Vopna-
firði á munum, myndum og handrit-
um úr fórum Björgvins. Standa vonir
til að kvikmynd eftir Vigfús Sigur-
geirsson frá Norðurlandaför Kant-
ötukórsins 1951 geti orðið til sýning-
ar.
Það er einlæg von okkar fyrir-
svarsmanna Björgvinshátíðar að hún
verði vel sótt, enda merkur menning-
arviðburður. Við höfum tekið að okk-
ur fjárfrekt verkefni og væntum
stuðnings í því sambandi frá ýmsum
atvinnufyrirtækjum og menningar-
sjóðum, sem til verður leitað.
Ingvar Gíslason.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir,
afi og langafi,
RAGNAR KRISTJÁNSSON
kennari,
Hjarðarhaga 28,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn
3. janúar.
Arndís Eyjólfsdóttir,
Kristín Margrét Ragnarsdóttir, Birgir Gunnsteinsson,
Oddbjörg Ragnarsdóttir, Kristján Ragnarsson,
Björgólfur Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Faðir minn, tengdafaðir og afi okkar,
GUÐMUNDUR GUÐLAUGSSON,
Gvendur Eyja,
Hamraborg 26,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 30. desember.
Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju mánudag-
inn 10. janúar kl. 13.00.
Björgvin Valur Guðmundsson, Þóra Björk Nikulásdóttir,
Erna Valborg Björgvinsdóttir,
Haukur Árni Björgvinsson,
Axel Þór Björgvinsson,
Jesse Myree McGoldrick.