Morgunblaðið - 06.01.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.01.2011, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011 Hans Magnus Enzensberger nýtur mikillar hylli í Þýska- landi. Nú er kom- in út eftir hann bókin Meine Lie- blings-Flops eða Uppáhalds- mistökin mín þar sem hann dregur ýmislegt fram, sem fór úrskeiðis á ferlinum. „Sigrar færa engan lærdóm,“ skrifar hann og bætir við að mis- tökin knýi á um að menn geri sér grein fyrir stöðu mála með ýmsum hætti. Mistök hafi læknandi áhrif: „Þótt þau geti ekki læknað atvinnu- tengda rithöfundasjúkdóma á borð við stjórnunaráráttu og mikil- mennskubrjálæði, geta þau linað þá.“ Í grein um bókina í tímaritinu Focus segir að Enzensberger, sem er 82 ára, geti talið upp mistök á mörgum sviðum, en alltaf læri hann eitthvað af þeim. Uppáhalds- mistökunum hampað Sextán áður óbirtar smásögur eftir bandaríska rithöfundinn Kurt Vonnegut koma út síðar í þessum mánuði. Vonnegut skrif- aði sögurnar í upphafi ferils síns þegar hann sendi mikið af skrifum sínum til birtingar í tímaritum á borð við Collier’s og Saturday Evening Post. Bókin nefnist While Mortals Sleep eða Á meðan hinir dauðlegu sofa. Mun ýmist vera um að ræða sögur, sem hann aldrei sendi til birtingar, eða var hafnað. Rithöfundurinn Dave Eggers skrifar formála að bókinni og kall- ar Vonnegut þar hippaútgáfu af Mark Twain. Kurt Vonnegut, sem gat sér orð með bókunum Sláturhús fimm og Morgunverður meistara, lést árið 2007. Óbirtar smásögur Vonneguts Á morgun, föstudag kl. 16, verður opnuð sýning Kristínar Elvu Rögnvaldsdóttur, Spuni II, í Listasal Mosfellsbæjar. Í listsköpun sinni notast Kristín Elva við blandaða miðla; skúlptúr, ljósmyndir, teikningar og hreyfimyndir. Hún vinnur meðal annars út frá hinu hversdagslega í nátt- úrunni, klisjum í manngerðu umhverfi og sagnahefð. Kristín Elva lauk prófi frá myndhöggvaradeild Myndlista- og handíðaskólans árið 1998 og meist- aragráðu frá Konunglegu Listaakademíunni í Stokkhólmi þremur árum síðar. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis. Myndlist Kristín Elva sýnir í Mosfellsbæ Eitt verka Kristínar Elvu. Matti Saarinen gítarleikari kemur á morgun, föstudag, fram á fyrstu hádegistón- leikum Tónlistarfélags Akur- eyrar á nýju ári. Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 í Ketilhúsinu. Matti Saarinen (1978) nam klassískan gítarleik, við Síbelí- usarakademíuna í Helsinki, við Musikhögskolan í Malmö og Universitet für Musik und dar- stellende Kunst í Vínarborg. Hann hefur komið fram með ýmsum kammer- hópum víða um lönd. Frá haustinu 2006 hefur Saarinen búið á Íslandi og starfar nú við Tónlistarskólann á Akureyri. Súpa og brauð eru innifalin í miðaverðinu. Tónlist Matti Saarinen á hádegistónleikum Matti Saarinen Kvikmyndasýningar félagsins MÍR, að Hverfisgötu 105, hefjast nú að nýju eftir hlé um jól og áramót. Næstkomandi sunnudag kl. 15 verður sýnd sovésk listdansmynd frá 1985: ballettinn Öskubuska við tón- list eftir rússneska tónskáldið Sergei Prokofjev. Ballett- flokkur og hljómsveit Kírov- óperunnar í Leningrad (nú St. Pétursborg) flytja. Á sunnudögum í janúar og febrúar verða sýnd verk frægra sovéskra-rússneskra leikstjóra: Ni- kíta Mikhalkov, Dziga Vertov, Andrej Tarkovskíj og Andrej Kontsjalovskíj. Sýningar hefjast kl. 15 og er aðgangur ókeypis. Kvikmyndir Listdansmynd sýnd hjá MÍR Sergei Prokofjev Listasafn Íslands Þegar sýningu abstraktlista- mannsins Karls Kvaran lýkur í Listasafni Íslands í lok febrúar taka við tvær sýningar, annars vegar stór innsetning eftir Magnús Pálsson sem kallast Samtöl um dauðann en sýn- ingin byggist á samtölum hans við dauðvona fólk. Hins vegar verður opnuð samsýningin Hljóðheimar sem varpar ljósi á hvernig ungir lista- menn nota hljóð í myndlist. Í lok maí hefst sýning á verkum listakonunnar Louise Bourgeois sem lést í fyrra, 99 ára að aldri og hefði því orðið 100 ára í ár. Bourgeois er ákaflega virt en sýningin hér ber yfirskriftina Kona og barn og er sérstaklega sett upp fyrir Listasafn Íslands í samvinnu við einkasafnið Hauser und Wirth í Sviss. Haustið verður svo tileinkað Íslenskri listasögu sem þá kemur út í fimm bindum og spannar alla 20. öld- ina sem og opnunarsýningu hinna norrænu listaverðlauna Carnegie Art Award. Listasafn Reykjavíkur Ýmissa grasa kennir í Listasafni Reykjavíkur að sögn Soffíu Karls- dóttur markaðs- og kynningarstjóra. 20. janúar verður opnuð í Hafnarhús- inu sýningin Án áfangastaðar en á henni verða verk eftir íslenska og erlenda lista- menn sem ganga út frá ferðahug og upplifun ferða- mannsins á um- hverfinu. Á Kjarvalsstöðum hefst Sýning sýninganna 5. febrúar en þar eru í fyrsta sinn sýnd á einum stað verk þeirra 22 ís- lensku listamanna sem sýnt hafa á Feneyjatvíæringnum frá því að Ís- land hóf þátttöku í honum fyrir hálfri öld. Viðfangsefni stóru sumarsýn- ingar Hafnarhússins eru listaverk „sem afhjúpa bresti í viðteknum skil- greiningum á list og hlutverki henn- ar, verk sem kveikja heimspekilega umræðu og túlka má sem innlegg í hana,“ eins og Soffía orðar það en markmið sýningarinnar er að skapa umræður um myndlist og listheim- speki. Í haust verður sjöundi áratug- ur síðustu aldar í sviðsljósinu á Kjar- valsstöðum í sýningunni Ný list verður til, sem hefst 10. september, en áratugurinn var tími mikilla um- breytinga og tilrauna í íslensku menningarlífi. 14. nóvember verður svo opnuð einkasýning Daða Guð- björnssonar undir yfirskriftinni Ódysseifskviða, en hún saman- stendur af stórum flekum sem Daði hefur málað á síðastliðnum árum. Í Hafnarhúsinu verður einka- sýning Óskar Vilhjálmsdóttur opnuð 15. sept- ember en hún tekur fyrir tengsl safnsins og almennings- rýmsins með áherslu á um- hverfismál, en umhverfismál verða einnig ofarlega á baugi í sam- sýningunni Remediate/Re-vision sem verður í gangi í Hafnarhúsinu á sama tíma. Gerðarsafn 15. janúar hefst sýningin Ásýnd landsins, vatnið, jörðin, hafið og him- inninn sem Guðbergur Bergsson stýrir en um er að ræða samsýningu Daða Guðbjörnssonar, Gunnlaugs Scheving, Jóhannesar Kjarval, Rúrí- ar og Vilhjálms Þorbergs Bergs- sonar. Í lok febrúar verður svo opnuð árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands, Mynd ársins 2010, sem sett hefur verið upp árlega í húsinu frá árinu 1995. 19. apríl, á afmælisdegi Barböru Árnason, hefst svo yfirlits- sýning á verkum hennar en hún hefði orðið 100 ára í ár. Hafnarborg Um helgina verða tvær sýningar opnaðar í Hafnarborg, annars vegar sýning á verkum Eiríks Smith frá ár- unum 1957-1963 en verk eftir Eirík eru stór hluti af safneign Hafnar- borgar. Samhliða verður opnuð sýn- ing á verkum Stefáns Jónssonar sem nefnist Kjarvalar. Í febrúar verður svo sýningin Stjórnarskrá lýðveld- isins Íslands, sem er eins konar svanasöngur íslensku stjórnarskrár- innar í aðdraganda stjórnlagaþings. Að sögn Ólafar K. Sigurðardóttur forstöðumanns er um að ræða gjörning eftir Ólaf Ólafsson og Libiu Castro sem verða fulltrúar Ís- lands á næsta Feneyjatvíæringi. „Verkið, sem er kórflutningur á núverandi stjórn- arskrá, vinna þau í samvinnu við Karólínu Lárusdóttur tónskáld en í framhaldi af gjörningnum verður uppi vídeóinnsetning í safninu í nokkrar vikur á eftir.“ Af öðrum sýn- ingum síðar á árinu má nefna verk Einars Þorsteins Ásgeirssonar arki- tekts sem starfar í Berlín og er m.a. einn af samstarfsmönnum Ólafs Elí- assonar. „Hann er mikill hugvits- maður og hefur merkar hugmyndir um sjálfbærni í arkitektúr.“ Í haust verður svo sýning sem er afrakstur þess að safnið kallaði eftir hug- myndum frá sýningarstjórum að sýn- ingum, en tilkynnt verður nú um helgina hvaða sýning varð fyrir val- inu. Listasafnið á Akureyri Samsýning Þorra Hringssonar og Sigtryggs Baldvinssonar, Varanlegt augnablik, verður opnuð 15. janúar í Listasafninu á Akureyri en báðir tengjast þeir Norðurlandi sterkum böndum. Í mars hefst svo samsýning ljósmyndaranna Katrínar Elvars- dóttur og Péturs Thomsen. Í maí verður einkasýning Akureyringsins Kristínar Gunnlaugsdóttur en sum- arsýning safnsins verður í samstarfi við Safnasafnið á Svalbarðsströnd. Í haust mun norðlenski listamaðurinn Gústav Geir Bollason leggja undir sig safnið en hann nýtir sér ólík listform til að koma sköpun sinni á framfæri. Í október verður svo yfirlitssýning yfir sýningar safnsins undanfarin ár. Listasafn Reykjanesbæjar Í Listasafni Reykjanesbæjar verð- ur opnuð sýningin Augastaðir á nýj- um verkum eftir Óla G. Jóhannsson. Í mars hefst svo yfirlits- sýning á ís- lenskri grafík en að sögn Valgerðar Guðmunds- dóttur for- stöðumanns er stefna safnsins að vera með eina sýningu á ári sem hugsuð er fyrir skólafólk á svæðinu. Í maí verður svo sett upp stór samsýn- ing í það minnsta 15 sýnenda sem fjallar um kortagerð, vegvísa og stað- setningar. Á Ljósanótt í september verður sýning á verkum Valgerðar Guðlaugsdóttur sem býr í Höfnum og í október málverkasýning Guðnýjar Kristmannsdóttur. Listasafn Árnesinga Sýningin Þjóðleg fagurfræði held- ur áfram í Listasafni Árnesinga þeg- ar það verður opnað aftur eftir ára- mót, 15. janúar. Í framhaldi af henni verður sett upp sýning frá pólskum ljósmyndurum sem nýlega ferðuðust um Ísland en íslenskir rithöfundar skrifa texta við myndirnar. Sýningin er sett upp í samstarfi við Gerðuberg og hefst um miðjan mars. Síðar á árinu verður sýning í umsjón Einars Garibalda þar sem sýn listamanna á Þingvelli verður í forgrunni. ben@mbl.is Gróska framundan í sýningarhaldi listasafnanna Skúlptúr Maman eftir Louise Bourgeois er í London en sýning á verkum hennar opnar í Listasafni Íslands í vor.  Fjölmargt í boði fyrir augu og eyru í sýningarsölum á árinu You’ve got a face with a view. Þor- gerður Ólafsdóttir. Verk eftir Óla G. Jóhannsson. Jón Gunnar Árnason. Cosmos. Ólafur Ólafsson og Libía Castro Myndin hefst á bibl- íulegum tilvísunum um verund djöfulsins í mann- heimum32 » Austurríski skál- inn sem Karl Schwanzer hann- aði fyrir heims- sýninguna í Brussel árið 1958, hefur verið fluttur til Vínar- borgar þar sem hann verður sýn- ingarsalur fyrir samtíma- myndlist. Við hlið byggingarinnar, sem kallastast 20er Haus, hyggst safnarinn Francesca von Habsburg, sem hefur sýnt og safnað verkum íslenskra listamanna, setja niður bygginguna sem hýst hefur Tem- porare Kunsthalle í Berlín, en verið er að taka hana niður. Hún mun hýsa samtímalistasafn von Habs- burg þar í framtíðinni. Ný en gömul myndlistar- hús í Vín Francesca von Habsburg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.