Morgunblaðið - 06.01.2011, Page 26

Morgunblaðið - 06.01.2011, Page 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2011 Sudoku Frumstig 1 3 2 5 6 3 1 9 5 3 2 5 6 8 8 4 1 3 2 1 9 4 8 9 2 9 3 5 5 9 2 4 8 3 1 7 8 2 3 4 2 3 5 1 7 1 9 8 2 7 4 5 2 5 6 1 9 6 8 3 4 5 2 2 8 4 6 6 9 5 1 8 5 3 9 5 7 6 4 8 2 1 3 3 8 2 1 5 7 4 9 6 1 6 4 3 2 9 7 8 5 6 2 1 4 3 5 9 7 8 8 4 9 7 6 2 3 5 1 5 7 3 8 9 1 6 2 4 2 3 8 9 1 4 5 6 7 4 1 5 2 7 6 8 3 9 7 9 6 5 8 3 1 4 2 8 2 4 9 5 7 1 6 3 1 6 5 3 2 4 8 7 9 3 9 7 8 1 6 2 4 5 2 5 3 6 4 1 9 8 7 6 4 8 7 9 5 3 1 2 7 1 9 2 3 8 4 5 6 4 3 1 5 7 9 6 2 8 5 8 2 1 6 3 7 9 4 9 7 6 4 8 2 5 3 1 2 5 7 3 8 1 6 9 4 8 1 4 2 9 6 3 7 5 6 3 9 4 5 7 1 8 2 1 8 2 7 4 3 9 5 6 4 6 5 1 2 9 8 3 7 7 9 3 8 6 5 4 2 1 9 7 8 5 1 4 2 6 3 5 2 1 6 3 8 7 4 9 3 4 6 9 7 2 5 1 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 6. janúar, 6. dag- ur ársins 2011 Orð dagsins: Verið því óhræddir, þér eruð meira verðir en margir spörvar. (Mt. 10,31.) Oscar Wilde sagði að lygarinnværi „hinn eiginlegi grundvöll- ur hins siðmenntaða samfélags“ og hefur þar væntanlega átt við hina hvítu lygi kurteisinnar eins og til dæmis þegar mat er hrósað án þess að eiga hrósið skilið. Því hefur verið haldið fram að maðurinn ljúgi dag- lega, þótt reyndar hafi hann sjaldn- ast einhver myrkraverk í huga. Ein- hvern tímann var meira að segja fullyrt að hann lygi 200 sinnum á dag, en enginn fræðilegur fótur mun vera fyrir því. Lygin er fræðilegt við- fangsefni, en hvað sem öllum rann- sóknum líður ætlar að reynast erfitt að finna óyggjandi leið til að greina lygarann frá þeim, sem segja satt. Staðreyndin mun vera sú að mað- urinn er góður lygari en skelfilega lé- legur í að koma auga á lygina. x x x Í grein í nýjasta tölublaði Der Spie-gel kemur fram að nú kanni vís- indamenn nýjar leiðir til að afhjúpa lygara og hún sé fólgin í að leggja fyrir þá gildrur, til dæmis að rekja atburðarás afturábak, segja hvar þeir sátu nákvæmlega, eða lýsa jafn- vel salarkynnum með teikningu. Sýnt þykir hins vegar að ytri merki á borð við flóttalegt augnaráð og óróleika hafi enga merkingu, þótt slíkt komi iðulega eftirtektarsömum rannsókn- arlögreglumönnum á sporið í bíó- myndum og glæpaþáttum. Ein við- mælandi Der Spiegel reytir hár sitt yfir því að enn skuli fræði- og lög- reglumenn halda að mark sé á slíku takandi og bendir á að lygarinn geri sér fullkomna grein fyrir þessu og þurfi þá aðeins að horfa beint í augun á rannsóknarmanninum og gera sér upp fullkomna ró til að öðlast traust hans. Lygamælirinn svokallaði er enn notaður sums staðar, en er í raun hraðlyginn sjálfur. Kannanir sýna að í 47% tilvika sakfellir hann hina sak- lausu. Lygamælirinn mælir bara púls og jafnvel sannsöglustu menn geta fengið ákafan hjartslátt við að vera settir í samband við slíkt tæki. Menn eru þó mislygnir og samkvæmt Der Spiegel hefur einn fræðimaður kom- ist að því að stjórnendur og leiðtogar virðist fúsari til að ljúga en aðrir. vík- verji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 dúnalogn, 8 lítil tunna, 9 seinka, 10 sjáv- ardýr, 11 kind, 13 hitt, 15 beinpípu, 18 málms, 21 bókstafur, 22 hljómaði, 23 mannsnafns, 24 farangur. Lóðrétt | 2 hljóðfæri, 3 bolf- lík, 4 smáa, 5 spakan, 6 risti, 7 aula, 12 háttur, 14 veiðarfæri, 15 ófögur, 16 týna, 17 seinfæru, 18 borð- að, 19 púkans, 20 sæti. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 vilpa, 4 þvarg, 7 gaufa, 8 ræðin, 9 rás, 11 rönd, 13 unna, 14 íbúar, 15 þjöl, 17 tagl, 20 eir, 22 koddi, 23 jaðar, 24 iðn- að, 25 lamin. Lóðrétt: 1 Vigur, 2 lausn, 3 afar, 4 þurs, 5 arðan, 6 gunga, 10 álúti, 12 díl, 13 urt, 15 þokki, 16 öldin, 18 auðum, 19 lóran, 20 eirð, 21 rjól. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. b3 c5 2. Bb2 b6 3. Rf3 Bb7 4. e3 Rf6 5. d4 g6 6. Rbd2 Bg7 7. Bd3 O-O 8. O-O d6 9. c4 cxd4 10. exd4 d5 11. Hc1 Re4 12. He1 Rxd2 13. Rxd2 dxc4 14. Rxc4 Ra6 15. Re5 Rb4 16. Bb1 Hc8 17. Hxc8 Dxc8 18. Dd2 Rd5 19. Be4 Da8 20. f3 Hd8 21. Df2 Hc8 22. Bd3 Rf4 23. Bb1 Hd8 24. Dh4 Rd5 25. Be4 Bf6 26. Df2 Bg5 27. h4 Bf6 28. h5 Rf4 29. hxg6 hxg6 30. Bb1 Kg7 31. Rg4 Hh8 Staðan kom upp í fyrstu deild Ís- landsmóts skákfélaga en fyrri hluti mótsins fór fram í Rimaskóla sl. októ- ber. Erlingur Þorsteinsson (2102) hafði hvítt gegn Magnúsi Erni Úlfars- syni (2388). 32. d5! Rxd5 33. Hxe7 He8 34. Rxf6 Rxf6 35. Dh4! og svart- ur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Hin óljósu mörk. S-Allir. Norður ♠ÁDG5 ♥964 ♦ÁG64 ♣74 Vestur Austur ♠1082 ♠963 ♥ÁD ♥K32 ♦1098 ♦KD75 ♣106532 ♣DG9 Suður ♠K74 ♥G10875 ♦32 ♣ÁK8 Suður spilar 4♥. Á suður opnun? Það er nú það. Hvenær drepur maður mann og hve- nær drepur maður ekki mann? Alls staðar eru óljósar markalínur. En ef suður byrjar á 1♥ þá verður ekki und- an því vikist að spila 4♥, enda veit norður sem er að „opnun plús opnun er samasem geim“. Útspilið vesturs er ♦10. Hvað þarf að koma til? Spilamennskan er í sjálfu sér ein- föld: Upp með ♦Á, spaða spilað fjór- um sinnum og tígli hent heima. Tvennt þarf að gerast til að þessi leið skili árangri: (1) spaðinn verður að falla 3-3, (2) annar mótherjinn þarf að vera með tvö háspil stök í trompi. Ef þessi skilyrði eru til staðar mun það kosta vörnina slag að trompa þrett- ánda spaðann. Líkur á þessu? Ekki miklar. Í kringum 8%. 6. janúar 1887 Íslendingafélagið í Kaup- mannahöfn minntist þess að öld var liðin síðan Bjarni Thorarensen skáld og amt- maður fæddist. „Þetta er víst fyrsta 100 ára minningarhátíð sem haldin hefur verið eftir ís- lenskan mann,“ sagði Norður- ljósið. 6. janúar 1923 Halldór Kiljan Marie Pierre Laxness var „skírður og fermdur og gerðist meðlimur hinnar heilögu kaþólsku kirkju,“ eins og Halldór sagði sjálfur, en hann var þá í Cler- vaux-klaustri í Lúxemborg. 6. janúar 1967 Þátturinn „Munir og minjar“ var á dagskrá Sjónvarpsins í fyrsta sinn. Hann naut mikilla vinsælda. Umsjónarmaðurinn, Kristján Eldjárn þjóðminja- vörður, var kosinn forseti Ís- lands árið eftir. 6. janúar 2003 Mánudagsútgáfa Morgun- blaðsins hófst „til þess að bæta mjög þjónustu blaðsins við les- endur þess,“ eins og sagði í rit- stjórnargrein. 6. janúar 2004 Mikill viðbúnaður var þegar breiðþota frá United Airlines lenti á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í öðrum hreyfl- inum. Lendingin gekk vel. Í flugvélinni var 231 farþegi og 14 manna áhöfn. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Í dag fagnar Anton Björn Markússon hæstaréttar- lögmaður 40 ára afmæli sínu. Hann segir blendnar tilfinningar bærast í brjósti á þessum tímamótum. Í fyrsta lagi hafi hann ekki náð öllum þeim mark- miðum sem hann hafi sett sér að ná fyrir þennan tíma en á móti komi að hann sé mjög hress á lík- ama og sál. „Ég hefði helst kosið að þetta færi lágt,“ segir hann um áfangann og bætir við að hann sé ekki mikið afmælisbarn í sér. Bálgöngur og álfasamkomur við hátíðarbrennur hafi nægt sér á þessum degi. Í tilefni afmælisins tekur Anton sér frí frá vinnu í dag. „Ég ætla að leyfa konunni, Helen Ólafsdóttur, aðeins að dekra við mig,“ segir hann og sér daginn fyrir sér í ræktinni, góðan hádegisverð og ljúfan kvöldverð. „En ég ætla að bíða með öll veisluhöld þar til seinna á árinu.“ Þorkell Diego, æskufélagi Antons, varð fertugur í gær, en þeir hafa haldið saman upp á afmæli sín í gegnum tíðina. „Ég eftirlæt honum að sjá um veisluhöld um helgina,“ segir Anton. Hann var í fótboltanum en hætti að leika í efstu deild 1999. Nú lætur hann sér nægja að spila fótbolta með gömlum félögum í Fífunni á þriðjudögum. „Þar koma allir þeir gömlu góðu saman,“ segir hann. steinthor@mbl.is Anton Björn Markússon fertugur Með þeim gömlu og góðu Hlutavelta  Bræðurnir Andri Benedikt Egilsson og Daniel Ingi Egilsson héldu tombólu við Samkaup í Miðvangi í Hafnarfirði og söfnuðu 2000 krónum sem þeir færðu Rauða kross- inum til styrktar börnum. Flóðogfjara 6. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 4.16 0,6 10.31 3,9 16.49 0,6 23.05 3,5 11.13 15.55 Ísafjörður 0.15 2,0 6.21 0,4 12.28 2,2 18.59 0,4 11.52 15.25 Siglufjörður 2.53 1,2 8.32 0,3 14.57 1,3 21.13 0,2 11.37 15.07 Djúpivogur 1.19 0,3 7.33 2,1 13.46 0,5 19.56 1,9 10.51 15.16 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Einhver gefur sig á tal við þig og þú heyrir fljótt að þið búið að svipaðri reynslu. Leggðu þitt af mörkum með því að sýna skilning og umburðarlyndi. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þarfir þínar eru mikilvægar og þú ættir að splæsa því á þig sem þig langar í. Nú er ekki rétti tíminn til þess að liggja í leti. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er lítið gaman að svífa í svo lausu lofti að þú missir af öllu því sem mark- vert er. Gakktu fram fyrir skjöldu og græddu sárin þannig að allt falli í ljúfa löð. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að hafa mannaforráð og það vald er vand- meðfarið. Mundu að engin manneskja er annars eign. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Maður þarf ekki alla þessa hluti sem maður heldur sig þurfa. Reyndu að vera í sem minnstum samskiptum við neikvætt fólk . (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Margir möguleikar eru enn í stöðunni varðandi samband sem enginn botnar í. Hvaða eigur þínar veita þér vellíðan? (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þig langar mest til að gera uppreisn og brjóta allar brýr að baki þér. Sannleikurinn er sá að besta leiðin til að eignast vini er ein- faldlega að vera vinalegur. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Fjárhagurinn gæti vænkast á næstu vikum ef rétt er á málum haldið. Ást- vinur er 50 árum á undan sinni samtíð. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú tekur stórt skref fram á við í verkefni sem hefur of lengi legið í skúffunni. Einhver sýnir þér áhuga – en þú ert ekki upp- rifin/n. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Einhverjar breytingar standa fyrir dyrum sem gefa þér tækifæri til að sýna hvers þú ert megnug/ur. Sláðu á létta strengi. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Ein aðferð til að fá það sem þú vilt, er að útiloka þann möguleika úr hug- anum að þú fáir það ekki. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Tækifæri til ferðalaga, sem virtust gengin þér úr greipum, gefast á ný. Láttu það eftir þér að skemmta þér og borða góðan mat í góðra vina hópi. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.