Morgunblaðið - 18.01.2011, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 8. J A N Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 14. tölublað 99. árgangur
HLJÓP
AF SÉR TÆP
FJÖRUTÍU KÍLÓ
SKEFUR Í
SKULDA-
SKAFLA
STJÖRNURNAR
Í HOLLYWOOD
BERUÐU BAKIÐ
BORGIR Í
ÞROT? 15 GOLDEN GLOBE-HÁTÍÐIN 33HREYFING OG ÚTIVIST 10
Morgunblaðið/Ernir
Seðlabanki Íslands Hefur ekki opnað á
fjárfestingu með aflandskrónum á Íslandi.
Það eina sem hindrar nýtingu
aflandskróna til langtímafjárfest-
inga hér á landi eru ákvarðanir
stjórnvalda í þá veru. Þetta segir
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins, í samtali við
Morgunblaðið. Í október á síðasta
ári kynntu samtökin samvinnuverk-
efni sitt með Seðlabanka Íslands og
efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.
Tilgangur þess verkefnis var að
gera eigendum aflandskróna kleift
að fjárfesta fé sitt til langtímaverk-
efna hér á landi. Upphaflega bundu
Samtök iðnaðarins vonir við að
ljúka ákveðnu prófmáli í þeim efn-
um fyrir áramót. „Ég verð að við-
urkenna að ég er orðinn langeygur
eftir því að klára þetta mál,“ segir
Orri Hauksson. »14
Orðinn langeygur
eftir viðbrögðum
stjórnvalda
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Eyraroddi hf. á Flateyri var lýstur
gjaldþrota í gær. Héraðsdómur
Vestfjarða samþykkti þá beiðni
stjórnar og umsjónarmanns nauða-
samninga félagsins um gjaldþrot.
Stjórn Eyrarodda hafði unnið að
fjárhagslegri endurskipulagningu í
samvinnu við kröfuhafa.
„Í morgun voru kröfuhafar búnir
að samþykkja nauðasamning fé-
lagsins á grundvelli rekstraráætl-
unar og 300 tonna byggðakvóta,“
sagði Teitur Björn Einarsson,
stjórnarformaður Eyrarodda hf., í
gær. Ekki tókst hins vegar að út-
vega nægt fjármagn til að halda
áfram rekstri og mæta áföllnum
skuldbindingum fram að úthlutun
byggðakvótans, sem verður í fyrsta
lagi í lok febrúar. Teitur taldi að fé-
lagið hefði þurft að lágmarki 15-20
milljónir til að koma fyrirliggjandi
aðgerðaáætlun og rekstri af stað.
„Ég hef fulla trú á að þarna komi
fiskvinnsla aftur, en veit ekki hvað
hún skapar mörg störf,“ sagði
Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar. Hann var á fundi með
hluta bæjarstjórnar og stjórnar
Íbúasamtakanna á Flateyri í gær-
kvöldi. „Við verðum að vinna að því
með Íbúasamtökunum og ríkinu að
tryggja þarna varanleg störf,“ sagði
Daníel.
„Þetta er mikið reiðarslag,“ sagði
Guðmundur Björgvinsson, formað-
ur Íbúasamtaka Flateyrar.
„Þetta er mikið reiðarslag“
Flateyri
» Eyraroddi sagði upp 42
starfsmönnum 29. október.
» Öldrunarheimilinu Sól-
borg verður lokað 1. apríl og
þá tapast 7 hlutastörf.
» Á Flateyri búa um 250
manns og meira en 1⁄3 vinnu-
færra er án atvinnu.
Fiskvinnslufyrirtækið Eyraroddi hf. á Flateyri var lýst gjaldþrota í gær
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar trúir að fiskvinnsla hefjist aftur á Flateyri
MMargir hafa áhuga »2
Átakastaðan sem verið hefur innan
þingflokks Vinstri grænna virðist
ekki vera í rénun og bendir ýmislegt
til að átökin séu að harðna. Dag-
urinn í gær var erfiður flokknum
þegar Karólína Einarsdóttir, for-
maður VG Kópavogi, sagði sig úr
flokknum og frá öllum trún-
aðarstörfum sem hún hefur gegnt
innan eða á vegum hans. Í kjölfar úr-
sagnarinnar hvatti hún alla VG-liða
sem hafa misst trú á flokknum að
segja skilið við hann og finna nýjan
vettvang fyrir baráttuna. Einnig var
fundi hjá
þingflokki
VG sem
átti að
vera í
gærmorg-
un frestað
vegna forfalla
hjá þingmönn-
um. Þar átti að
ræða þau ágreiningsefni sem eru í
flokknum. Kurr virðist vera í fé-
lagsmönnum úti á landi, mæting á
fundi Steingríms J. Sigfússonar um
landið hefur ekki verið góð og and-
staða við aðild að Evrópusamband-
inu færist í vöxt innan VG, ekki síst
úti á landi. »4
Átök í VG ekki í rénun
Andstaða við
ESB eykst hjá VG
Íslenska landsliðið í handknattleik er nánast
öruggt með sæti í milliriðli heimsmeistara-
keppninnar í Svíþjóð eftir stórsigur á Japönum í
Linköping í gærkvöld, 36:22. Íslenska liðið hélt
hreinlega flugeldasýningu í fyrri hálfleik en
staðan að honum loknum var 22:8 og úrslitin í
raun ráðin. Guðjón Valur Sigurðsson, sem fagn-
ar á myndinni, skoraði 9 mörk og er markahæsti
leikmaður keppninnar með 24 mörk. Ísland er
með 6 stig eftir þrjá fyrstu leikina og á fyrir
höndum geysilega þýðingarmikinn leik gegn
Austurríki í kvöld. » Íþróttir
Reuters
Flugeldasýning
íslenska liðsins
Mannafli á
vinnumarkaði
var áætlaður um
159.846 í desem-
ber og hefur
fækkað í þeim
hópi um rúm
7.000 miðað við
áætlun í árslok
2009. Atvinnu-
leysi var 8,0% í desember og hefur
lítið breyst frá árslokum 2009.
Langtímaatvinnuleysi er alvarlegt
vandamál, en 52% atvinnulausra
hafa verið án vinnu í 6 mánuði eða
lengur og 4.696 í ár eða lengur. »16
52% atvinnulausra
lengi án vinnu
Alvarlegar líkamsárásir hafa verið
áberandi það sem af er ári. Þrír
karlmenn hafa verið lagðir inn á
gjörgæsludeild Landspítala með
alvarlega höfuðáverka og var tví-
sýnt um líf tveggja þeirra. Nú síð-
ast réðst hópur fólks á karlmann á
fimmtugsaldri og leikur grunur á
að sparkað hafi verið í höfuð hans
ítrekað þar sem hann lá í jörðinni.
Afbrotafræðingur telur hrinu al-
varlegra ofbeldisbrota standa yfir.
Tvennt sætir gæsluvarðhaldi
vegna árásarinnar og í gær voru
þrír til viðbótar
handteknir.
Helgi Gunn-
laugsson, af-
brotafræðingur
og prófessor í
félagsfræði við
Háskóla Íslands,
segir slíkar hrin-
ur alvarlegs of-
beldis hafa kom-
ið upp endrum
og eins í áranna rás. Hann telur
þó fullt tilefni til að fara ítarlega
yfir nýleg árásarmál og athuga
hvort eitthvað sé sammerkt með
þeim; hvort ytri aðstæður hafi
áhrif. »12
Skoða ætti ofbeldismálin
Helgi
Gunnlaugsson
Hrina alvar-
legra líkamsárása
Hvert tiltækt
sjúkrarými og
skúmaskot hefur
verið nýtt á
Landspítalanum
að undanförnu
vegna mikilla
veikinda fólks. Í
síðustu viku lágu
um 730 sjúkling-
ar inni en venjulega hefur spítalinn
yfir að ráða um 650 rúmum. Árs-
tíðabundnar umgangspestir hafa
verið að herja á fólk; þrjár gerðir af
inflúensu og noro-veiki. Biðstofa
slysadeildarinnar í Fossvogi var
full í allan gærdag vegna hálku-
slysa og enn biðu margir á tíunda
tímanum í gærkvöldi eftir umönn-
un. »6
Mikið álag vegna
pesta og hálkuslysa