Morgunblaðið - 18.01.2011, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Þingflokkur VG átti að koma saman
til fundar kl. 9 í gærmorgun, þar
sem reyna átti að ræða til lykta þau
ágreiningsefni sem eru í flokknum
um innra starf í flokknum og störf
forystunnar, auk þess sem átti að
ræða stefnuna í Evrópusambands-
málum, gjaldmiðils-, orkumál og
fleira. Eins og kunnugt er náði þing-
flokkurinn ekki að ljúka umræðu um
helstu ágreiningsefni innan flokks-
ins á sjö og hálfs tíma fundi hinn 10.
janúar sl. og var frekari umræðum
frestað til fundarins sem halda átti í
gær.
Vegna þess hversu mikið var um
forföll hjá þingmönnum var morg-
unfundurinn í gærmorgun sleginn
af.
Þingflokkurinn kom svo saman kl.
13 í gær en samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var þar einungis
um hefðbundinn þingflokksfund að
ræða.
Karólína Einarsdóttir, formaður
VV Kópavogi, sagði sig úr VG og frá
öllum trúnaðarstörfum sem hún hef-
ur gegnt innan eða á vegum flokks-
ins í gær. Þetta kemur fram í bréfi
sem hún hefur sent framkvæmda-
stýru VG, samkvæmt mbl.is, þar
sem hún hvetur „alla VG-liða sem
misst hafa trú á flokknum að segja
skilið við hann og finna nýjan vett-
vang fyrir baráttuna“. Þetta er talið
til marks um aukin og harðari átök
innan flokksins.
Af samtölum við félaga í VG úti á
landi er óhætt að fullyrða að umtals-
verður kurr er í mörgum félögum.
Þeir segja að fundaherferð Stein-
gríms J. Sigfússonar, formanns
flokksins, með völdu föruneyti, eins
og Árna Þór Sigurðssyni og Þuríði
Backman sé augljóslega fyrst og
fremst gerð með það fyrir augum að
styrkja Steingríms-arm flokksins.
Ekki sé endilega þar með sagt að
það muni takast. Mæting á fundina
hafi alls ekki verið góð; hún hafi ver-
ið viðunandi á Egilsstöðum og Ak-
ureyri, en fjölmargir félagar í VG
hafi þó kosið að hunsa fundina. Í
Norðausturkjördæmi segja VG-fé-
lagar að þeir muni krefjast þess af
forystunni að hún haldi einnig fund
á Húsavík. Á félagsfundinn á Sauð-
árkróki mættu einungis 9 félagar og
á almenna stjórnmálafundinn sem
haldinn var í kjölfarið voru einungis
12 manns mættir. Félagar í Norð-
vesturkjördæmi segjast ekkert hafa
að sækja á fund til þess að hlýða ein-
ungis á Steingrím og Árna Þór. Þeir
vilji heyra hvað Jón Bjarnason,
þeirra þingmaður, og Ásmundur
Einar Daðason, Atli Gíslason og
Lilja Mósesdóttir hafa fram að færa,
en augsýnilega standi þeim ekki til
boða af hálfu flokksforystunnar að
taka þátt í fundunum. Þá var hald-
inn fundur VG á Selfossi í fyrra-
kvöld og samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins var
málflutningi Atla Gísla-
sonar tekið hvað best af
fundarmönnum, en hann
var þvert á það sem kom
fram í máli Steingríms J.
Átakafundi hjá
VG slegið á frest
Engin niðurstaða í ágreiningsmálum innan þingflokksins
Morgunblaðið/RAX
Átök Umtalsverður kurr er í mörgum félögum í Vinstrihreyfingunni-grænu framboði. Ágreiningsmálin eru óleyst.
Andri Karl
andri@mbl.is
Dæmi eru um að Íslendingum við
nám í Svíþjóð hafi verið synjað um
aðgang að almannatryggingakerfinu
sænska. Námsmanni sem leitaði
skýringa á þessu var sagt að um
stefnubreytingu
væri að ræða sem
tekið hefði gildi
síðasta vor, og ís-
lenskir nemendur
ættu ekki rétt á
að vera skráðir í
kerfið. Sendi-
herra Íslands í
Svíþjóð segir
skýringarnar
ekki eiga sér stoð
í raunveruleik-
anum. Málið sé tekið mjög alvarlega
og leitað er lausna í samvinnu við
Tryggingastofnun og Norður-
landaráð. Gengur það hins vegar
hægt.
Sæki Íslendingar nám á Norður-
löndum taka þeir yfirleitt upp bú-
setu þar og eiga samkvæmt samn-
ingum að falla undir almanna-
tryggingareglur. Hefur þetta gengið
snurðulaust fyrir sig hingað til.
Morgunblaðið veit hins vegar um tvö
dæmi þess að íslenskum fjölskyldum
sem sótt hafa um aðgang að al-
mannatryggingakerfinu hefur verið
hafnað, og hugsanlegt er að fleiri
hafi lent í því sama en ekki kvartað
við sendiráðið í Stokkhólmi.
Ekki greitt fyrir fæðingarorlof
Ungum karlmanni sem sækir nám
í Lundi, ásamt unnustu og barni, var
synjað um skráningu í kerfið. Hann
segir höfnunina byggða á Evrópu-
reglum og honum var tjáð að hann
þyrfti að hafa vinnu til að komast inn
í tryggingakerfið. Hann veit bæði
um nemendur sem komist hafa inn í
kerfið og aðra sem fengu höfnun. Þá
hafi honum verið tjáð hjá Trygg-
ingastofnuninni sænsku að öllum ís-
lenskum nemum eigi að hafna og því
verði framfylgt héðan í frá.
Fjölskyldan sem fékk höfnun hef-
ur verið í Svíþjóð í tvö ár. Þau eign-
uðust barn úti en hafa hvorki fengið
fæðingarorlof greitt í Svíþjóð né á
Íslandi.
Nemunum hefur verið ráðlagt að
kæra höfnunina og áfrýja ef hún er
staðfest. Hins vegar hefur enn ekk-
ert komið út úr málum þeirra, þann-
ig að óvíst er hvort um verður að
ræða endanlega niðurstöðu, þ.e. að
þeir komist ekki inn í kerfið.
Samkvæmt upplýsingum frá
sendiráðinu í Svíþjóð er ekki vitað
hvers vegna nemarnir lenda í þessu
en hugsanlega sé um að ræða mis-
skilning innan Tryggingastofnunar-
innar sænsku.
Ekki má draga
of víðtækar ályktanir
Guðmundur Árni Stefánsson,
sendiherra Íslands í Svíþjóð, segir
um undarleg mál að ræða. Hins veg-
ar hafi aðeins komið upp mál í Lundi
og ekki megi draga of víðtækar
ályktanir af þeim. „En við höfum
verulegar áhyggjur af þessu og tök-
um þetta mjög alvarlega. Við viljum
að Norðurlandasamningurinn standi
upp á punkt og prik, og það hefur
hann gert. Þess vegna höfum við far-
ið mjög ákveðið í þetta mál og reynt
að hjálpa til eins og hægt er.“
Meðal annars hefur verið haft
samband við Tryggingastofnun hér
á landi sem vinnur í málinu, auk þess
sem málið hefur verið tekið upp á
vettvangi Norðurlandaráðs. Þrátt
fyrir það hefur ekki enn tekist að
greiða úr málum nemanna.
Guðmundur Árni segist skilja
gremju fólksins fullkomlega og
áréttar að það hafi fullan stuðning
sendiráðsins. „Tryggingastofnun
hefur verið í viðræðum við systur-
stofnun sína, farið þar í efstu lög, og
vill að það sé undið ofan af þessari
vitleysu.“
Hann segir að áhersla hafi verið
lögð á að færa málin úr þeim farvegi
sem þau eru í og til þeirra sem ein-
hverju ráða. Það hafi hins vegar
gengið erfiðlega.
Nemum synjað
um skráningu í
tryggingakerfið
Tekið mjög alvarlega í sendiráðinu
Tryggingakerfið
» Á vef TR segir að námsmenn
sem stunda nám í löndum utan
EES geti haldið lögheimili sínu
hér á landi meðan á námi
stendur og haldið rétti sínum
til almannatrygginga.
» Þeir sem hins vegar fara í
nám til Norðurlanda taka yf-
irleitt upp búsetu þar og falla
undir almannatryggingareglur
viðkomandi lands.
Guðmundur
Árni Stefánsson
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á
Alþingi í gær að breytingar á fiskveiðistjórn-
arkerfinu yrðu meðal stórra verkefna rík-
isstjórnar og Alþingis á þessu ári. Hún taldi ekki
boðlegt að blanda saman og setja fram sem úr-
slitaatriði í kjarasamningum að lausn fengist á
fiskveiðistjórnarmálinu. Þótti forsætisráðherra
„algerlega ófært og ólíðandi“ að tengja þessi mál.
Jóhanna var að svara fyrirspurn frá Bjarna
Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokks, í fyr-
irspurnartíma. Bjarni benti á að viðræður vegna
nýrra kjarasamninga væru að hefjast. Þar væri
m.a. horft til þess sem ríkisvaldið legði til til að
tryggja samninga. Hann benti á að flokkur for-
sætisráðherra hefði talað fyrir samningaleið í
orkunýtingarmálum. Hins vegar ríkti óvissa um
fiskveiðistjórnun og forsætisráherra hefði ekki
tekið af skarið varðandi stuðning við niðurstöðu
sáttanefndar um sjávarútveg. „Það er algjör veru-
leikafirring hjá hæstvirtum forsætisráðherra að
telja að hægt sé að halda grundvallaratvinnugrein
okkar Íslendinga, sjávarútveginum, í einhverri
óvissu og uppnámi en fara síðan fram á það af að-
ilum vinnumarkaðarins að þeir gangi frá kjara-
samningum við þær aðstæður. Þetta er fullkomin
veruleikafirring,“ sagði Bjarni.
„Ófært og ólíðandi“ að tengja
kjaramál og fiskveiðistjórnun
„Veruleikafirring,“ sagði Bjarni Benediktsson
Morgunblaðið/Kristinn
Í gang Alþingi kom saman í gær eftir jólaleyfi.
Ólíkar leiðir
» Starfshópur um endurskoðun á stjórn
fiskveiða skilaði skýrslu í september 2010.
» Skoðaðar voru ólíkar tillögur um úthlutun
aflaheimilda, þ.e. tilboðsleið, samningaleið
og „pottaleið“. Þær fólu m.a. í sér endur-
úthlutun aflaheimilda.
Almennir félagar í VG eru
margir þeirrar skoðunar að
andstaðan við aðild að Evr-
ópusambandinu færist bara í
vöxt innan VG, ekki síst úti á
landi.
„Ég veit ekki um nokkurn
kjaft sem er þessu fylgjandi,“
segir VG-félagi í Norðaustur-
kjördæmi. Annar segir að
tvær grímur séu að renna á
marga í ESB-afstöðu.
VG-félagar sem rætt var við
um helgina og í gær eru flest-
ir þeirrar skoðunar að funda-
herferð flokksforystunnar sé
ekki endilega að skila Stein-
grími J. og félögum því sem
að var stefnt, því
mæting á fundina
sé ekki góð og æ
fleiri lýsi yfir
andstöðu
við það að-
lögunarferli
sem Ísland
sé komið í
varðandi
regluverk
ESB.
Andstaðan í
VG að aukast
EVRÓPUSAMBANDIÐ
Steingrímur J.
Sigfússon.
Samninganefnd Starfsgreina-
sambandsins (SGS) ákvað í gær að
vísa kjaradeilu við Samtök atvinnu-
lífsins (SA) til ríkissáttasemjara.
Þetta var ákveðið á fundi samn-
inganefndar SGS fyrir hönd aðild-
arfélaga sinna, annarra en svo-
nefndra „Flóafélaga“, það er
Eflingar stéttarfélags, Verkalýðs-
félagsins Hlífar og Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur.
„Að mati samninganefndarinnar
hefur hægt miðað og því er mikil-
vægt að þrýsta á um markvissari
viðræður sem leiddar verði af ríkis-
sáttasemjara ef það gæti orðið til
þess að skila kjarasamningi aðila í
höfn frekar fyrr en síðar,“ segir í til-
kynningu á heimasíðu SGS.
Samningaviðræður SGS og SA
hófust 7. janúar. gudni@mbl.is
SGS og SA
til ríkissátta-
semjara