Morgunblaðið - 18.01.2011, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011
ódýrt alla daga
Gríms plokkfiskur, 400 g
399kr.pk.
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Óvenjumikið álag hefur verið á
Landspítalanum að undanförnu
vegna mikilla veikinda fólks. Hvert
tiltækt sjúkrarými og skúmaskot
hefur verið nýtt og sjúklingar orðið
að liggja á göngum spítalans í ein-
hverjum tilvikum. Hefur spítalinn
einnig þurft að leita á náðir sjúkra-
hótels RKÍ til að koma sjúklingum
fyrir. Verst var þetta í síðustu viku
þegar um 730 sjúklingar lágu inni en
venjulega hefur Landaspítalinn yfir
að ráða um 650 rúmum. Eitthvað
færri lágu inni í gær en álagið engu
að síður áfram mikið á starfsfólk
spítalans.
Ólafur Baldursson, fram-
kvæmdastjóri lækninga, segir
ástandið hafa verið óvenjulegt að því
leyti að árstíðabundnar umgangs-
pestir hafi verið að herja á fólk á
sama tíma. Um er að ræða þrjár
gerðir af inflúensu og til viðbótar
svonefnda noro-veiki; skæða vírus-
pest með niðurgangi og magakvill-
um, sem einnig getur lýst sér eins og
flensuslappleiki. Tvær gerðir inflú-
ensunnar eru af A-stofni; svínaflens-
an og árleg inflúensa, og ein af B-
stofni sem kemur alltaf upp annað
slagið.
„Við teljum þetta vera helstu
skýringuna á meiri veikindum í sam-
félaginu en oft áður á þessum árs-
tíma,“ segir Ólafur.
Þessir sjúkdómar hafa verið að
herja á fólk á öllum aldri en þeir sem
hafa aðra sjúkdóma fyrir hafa verið
viðkvæmari fyrir veirupestum, eink-
um eldra fólk.
„Hjá okkur hafa legið talsvert
fleiri en við höfum legurúm fyrir.
Það hefur hjálpað okkur að geta
breytt dagdeildum tímabundið yfir í
legudeildir. Þessi sveigjanleiki hefur
komið sér vel til að bregðast við
auknu álagi,“ segir Ólafur og bætir
því við að starfsfólk spítalans hafi
staðið vaktina með miklum sóma.
Deildum lokað
Hildur Helgadóttir, innlagnastjóri
Landspítalans, segir í samtali við
Morgunblaðið að lítið lát virðast
ætla að verða á þessu þó að eitthvað
hafi gengið betur að koma fólki fyrir
í gær. Þá voru svonefndar fimm
daga deildir opnaðar en þær voru
fljótar að fyllast af veiku fólki.
„Við þekkjum svona toppa á þess-
um árstíma, janúar og febrúar hafa
alltaf verið okkur erfiðir en noro-
veiran hefur verið að valda okkur
óvenjumiklum vandræðum. Þetta er
mjög skæð pest og virðist vera
dreifð um allt samfélagið. Við fáum
fólk til okkar á hverjum degi út af
þessu og svo er það að smitast inni á
spítalanum,“ segir Hildur en eins og
kemur fram hér til hliðar hefur þurft
að loka deildum vegna noro-
veirunnar.
Þannig hefur ein deild á Landa-
koti verið lokuð í einar þrjár vikur.
Þá hefur spítalinn þurft að bregðast
við lokun deilda á öðrum sjúkra-
stofnunun, eins og á Suðurnesjum,
annaðhvort með því að taka við sjúk-
lingum annars staðar frá eða að ekki
hefur verið hægt að útskrifa sjúk-
linga annað vegna lokana, t.d. á
hjúkrunarheimilum. Hefur þetta
ástand þrengt að möguleikum Land-
spítalans á að koma sjúklingum fyr-
ir, á sama tíma og sjúkrarýmum hef-
ur fækkað vegna niðurskurðar í
heilbrigðisþjónustunni. Ekkert hef-
ur mátt út af bregða.
Setustofurnar nýttar
Að sögn Hildar hefur í einhverjum
tilvikum þurft að hafa sjúklinga á
göngum, hafa þrjá í tvíbýli og tvo í
einbýli, leggja fólk inn á skoð-
unarherbergi og einnig þurft að nota
setustofurnar.
„Við höfum þurft að nota öll skot
sem við finnum á spítalanum. Einnig
höfum við haft greiðan aðgang að
sjúkrahótelinu og allir sem geta eru
sendir þangað. Ef loka þarf fleiri
deildum gæti málið farið að flækjast
fyrir okkur enn frekar,“ segir Hildur
innlagnastjóri.
Skæðar umgangspestir
herja á fólk á sama tíma
Morgunblaðið/Ómar
Álag Hvert rými hefur verið notað á Landspítalanum að undanförnu og t.d. þrír sjúklingar verið í tvíbýli.
Álag á Landspítalanum óvenjumikið undanfarið Hvert skúmaskot nýtt
Fjármálaeftir-
litið auglýsti um
liðna helgi eftir
fullbúnu skrif-
stofuhúsnæði á
leigu fyrir starf-
semi sína. Gunn-
ar Þ. Andersen,
forstjóri stofn-
unarinnar, segir
að um hundrað
starfsmenn séu
nú hjá FME og eigi þeim eftir að
fjölga aðeins vegna yfirstandandi
rannsókna. „Þannig að við erum
búin að sprengja núverandi hús-
næði utan af okkur.“ Gunnar tekur
reyndar fram að fyrsta hæðin á nú-
verandi húsnæði sé laus og því geti
komið tilboð um hana.
Raunar var einnig auglýst eftir
húsnæði síðastliðið vor en engin
viðunandi tilboð bárust. Í auglýs-
ingunni segir að húsnæðisþörf
stofnunarinnar sé áætluð um 2.410
fermetrar fyrstu tvö ár leigutímans
en um 2.000 fermetrar að þeim
tíma liðnum. Gunnar segir það
helgast af því að Fjármálaeftirlitið
muni dragast saman eftir að rann-
sóknum ljúki, en ráðgert sé að það
verði í árslok 2012. Þá verði fækk-
að líklega um tuttugu starfsmenn.
Leigutilboðum ber að skila til
Ríkiskaupa eigi síðar en 7. febrúar
nk. andri@mbl.is
Fjármálaeftirlitið
búið að sprengja ut-
an af sér húsnæðið
Gunnar Þ.
Andersen
Landssamband
eldri borgara
mótmælir
þeirri ákvörðun
stjórnvalda að
verja allt að
700 milljónum
króna úr Fram-
kvæmdasjóði
aldraðra til
reksturs hjúkr-
unarheimila og
sjúkrastofnana árið 2011. Í til-
kynningu frá LEB segir að fram-
kvæmdasjóður aldraðra sé til
uppbyggingar hjúkrunarheimila
en ekki til rekstrar.
Þá mótmælir LEB því að verð-
bætur á grunn ellilífeyris og ör-
orkulífeyris sem samþykktar
voru á Alþingi eru einungis
greiddar að fullu þeim sem fá
lágmarksgreiðslur frá Trygg-
ingastofnun ríkisins. Aðeins 400
eldri borgarar fá fullar lág-
marksbætur frá TR. Eldri borg-
arar eru alls um 30 þúsund og er
hæpið að það standist ákvæði
stjórnarskrár að hækka einungis
lágmarksframfærslubætur.
Féð er til uppbygg-
ingar en ekki rekstrar
Rölt Eldri borgari.
Vandinn við noro-veikina er sá að
hún getur truflað starfsemi spít-
alans verulega, enda hefur stund-
um þurft að grípa til þess ráðs að
loka deildum vegna smithætt-
unnar.
„Þess vegna er afar brýnt að
fólk sem hefur flensueinkenni úti í
þjóðfélaginu, hvort sem það er
kvef, hiti eða niðurgangur, tak-
marki heimsóknir sínar til sjúk-
linga eins mikið og mögulegt er.
Miðað er við að
fólk þurfi að
vera ein-
kennalaust í 48
tíma áður en
það fer af
stað,“ segir
Ólafur Bald-
ursson, fram-
kvæmdastjóri
lækninga á Landspítalanum, við
Morgunblaðið.
Fólk takmarki heimsóknir
NORO-VEIKIN TRUFLAR STARFSEMI LANDSPÍTALANS
Ólafur Baldursson
Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
Skýrslutökur stóðu yfir allan dag-
inn í gær hjá embætti sérstaks sak-
sóknara og lauk ekki fyrr en laust
fyrir klukkan 20.00 í gærkvöldi.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, sagði að rannsókn á
meintri markaðsmisnotkun Lands-
bankans miðaði ágætlega, en hann
gat að öðru leyti ekki tjáð sig um
málið. Hann sagði að 5-7 teymi
ynnu við skýrslutökur og því væri
hægt að yfirheyra allt að sjö í senn
vegna málsins.
„Það er töluverð vinna við að fara
í gegnum þetta. Og vegna þess
hversu umfangsmikið þetta er þá
taka yfirheyrslurnar yfir hverjum
og einum yfirleitt nokkuð langan
tíma,“ sagði Ólafur. Aðspurður
sagði hann rannsóknina mjakast
áfram og að við yfirheyrslur kæmu
fram upplýsingar sem þyrfti svo að
rannsaka frekar.
„Þetta er upp-
hafið að þónokk-
uð löngu ferli.
En þetta hefur
gengið mjög vel,“
sagði Ólafur.
Hann vildi
ekki gefa upp
hversu marga
embættið hefði
þurft að kalla
heim til skýrslu-
töku vegna rannsóknarinnar á mál-
efnum Landsbankans sem og öðr-
um málum, en hann sagði að
langflestir sem kallað hefði verið
eftir hefðu hlýtt kallinu.
„Þetta fólk sem við köllum eftir
skilar sér strax,“ sagði Ólafur. Fólk
vildi síður lenda í því að Interpol
lýsti eftir því.
Nú starfa rúmlega 60 manns hjá
embættinu. Starfsmönnum fjölgar
um 12 í þessum mánuði og í þeim
næsta að sögn Ólafs. Sjö bætast við
í janúar og fimm í febrúar.
Skýrslutökur
fram á kvöld
Ólafur Þór
Hauksson
Óvenjuhá
sjávarstaða
verður dagana
eftir fullt tungl
í janúar, febr-
úar og mars í ár
samkvæmt
flóðaspá fyrir
Reykjavík.
Landhelgis-
gæslan vekur
athygli á þessu
á vef sínum og þar segir að
ástæða sé til að fylgjast vel með
veðurspá og loftþrýstingi þessa
daga og jafnframt dagana fyrir
og eftir fullt tungl.
Ennfremur segir á vef Gæsl-
unnar að ástæða óvenjuhárrar
sjávarstöðu nú sé að tunglið verði
eins nálægt jörðu og það geti
orðið þann 19. mars. Þá verði það
í um 357.000 km fjarlægð frá
jörðu. Tunglið sé að meðaltali um
384.400 km frá jörðu en mest geti
fjarlægðin verið um 407 þúsund
km. Breytileg fjarlægð tungls frá
jörðu hafi áhrif á sjávarhæð.
Tunglið eins nálægt
jörðu og það getur
orðið þann 19. mars
Fullt tungl Hefur
áhrif á sjávarstöðu.