Morgunblaðið - 18.01.2011, Síða 9

Morgunblaðið - 18.01.2011, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011 Á næstunni stendur Líf, styrkt- arfélag kvennadeildar Landspítala – háskólasjúkrahúss, fyrir röð há- degisfyrirlestra í Háskólanum í Reykjavík þar sem fjallað verður um málefni sem tengjast heilsu kvenna. Fyrirlestrarnir eru liður í undirbúningi fyrir fjársöfnun Lífs fyrir kvennadeildina, sem haldin verður á landsvísu og lýkur með glæsilegum söfnunarþætti á Stöð 2 í byrjun mars. Fyrsti fundurinn verður haldinn á morgun, miðvikudag, kl. 12-13. Á fundinum verður fjallað um fyrir- hugaða bólusetningu gegn HPK eða vörtuveiru (human papilloma virus) sem er algengasta orsök leg- hálskrabbameins. Lyf Hægt er að bólusetja við algengustu orsök leghálskrabbameins. Leghálskrabbamein Í dag, þriðjudag, kl. 12-13 standa Bændasamtök Íslands fyrir fundi í Bændahöllinni, Hótel Sögu, í saln- um Harvard II, undir yfirskriftinni „Hvernig á að brauðfæða heims- byggðina? – Matvælaframleiðsla á krossgötum“. Frummælandi er Christian Anton Smedshaug, dokt- or í umhverfisfræðum. Hann gaf nýlega út bókina „Feeding the World in the 21st Century“ þar sem m.a. er fjallað um möguleika land- búnaðarins til að mæta erfiðum við- fangsefnum framtíðarinnar. Á eftir erindinu verða umræður undir stjórn fundarstjórans, Áslaugar Helgadóttur, prófessors hjá Land- búnaðarháskóla Íslands. Fundurinn fer fram á ensku. Allir eru vel- komnir. Aðgangur er ókeypis. Hvernig á að fæða heimsbyggðina Skvassmaraþoni Skvassfélags Reykjavíkur lauk í fyrradag kl. 16.00 í Veggsporti. Leikið var skvass í 24 klukkustundir samfleytt í öllum sölum Veggsports, til styrktar Umhyggju, félagi til stuðn- ings langveikum börnum. Rúmlega 100 manns spiluðu skvass, flestir í 40-80 mínútur en þónokkrir spiluðu í kringum 200 mínútur. Markmið Skvassfélagsins var að brenna 100.000 kaloríum og safna einni milljón króna til styrktar Um- hyggju. Það fór svo að lokum að alls var 130.000 kaloríum brennt og 850 þúsund krónur söfnuðust fyrir Umhyggju. Enn er hægt að leggja söfnuninni lið. Skvassmaraþon STUTT Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Enn meiri verðlækkun Verð áður: Verð nú: Gallabuxur 9.900 kr. 3.900 kr. Toppur 8.900 kr. 3.500 kr. Bolero 8.900 kr. 3.500 kr. Kjóll 8.900 kr. 3.500 kr. Kjóll 12.900 kr. 4.900 kr. Siffonbuxur 12.900 kr. 4.900 kr. Gerið góð kaup á útsölunni Verðdæmi: www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Útsala Str. 38-56 Útsala Nýtt kortatímabil Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. Hæðasmára 4 – Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Símar 555 7355 og 553 7355 30-60% afsláttur af völdum vörum Laugavegi 63 • S: 551 4422 NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR ALLT AÐ 50% DÚNÚLPUR - ULLARKÁPUR - VATTJAKKAR skoðið sýnish. á laxdal.is Erlingur B. Thoroddsen „Það er dílaskarfur þarna við staur- inn,“ sagði konan þar sem við ókum rétt austan við Víðigerði í Húnavatns- sýslum. „Hvað, heldurðu að sé skarf- ur hérna,“ svaraði ofanritaður frétta- ritari á móti, en áttaði sig svo á því, að ef konan segir að þarna sé skarfur, þá er þarna skarfur, hvernig í ósköp- unum sem á því stendur. Svo nösk er hún á fugla. Fréttaritari hægði á bifreiðinni og sneri við. Það fór ekki á milli mála. Þarna stóð dílaskarfur við rafmagns- staur, rétt við veginn, og horfði eins undrandi á okkur og við á hann. Fréttaritari gekk að honum og spurði hvert hann væri að fara og hvort hann vildi far. Hann gekk nokkur skref í þá átt, sem við vorum að fara, og stoppaði og horfði á bílinn. Það fór ekki á milli mála að hann ætlaði í sömu átt. Konan tók við akstrinum, en fréttaritari spennti beltin og sat undir skarfinum, þar sem barnastóll var ekki í bílnum. Eftir samtal við fuglafræðing var ákveðið að sleppa skarfinum í næstu á eða í sjó. Þar sem allar ár í vestursýslunni voru ísilagð- ar var ákveðið að taka hann með til Blönduóss. Við renndum að enda Aðalgötu, þar sem ísryðjandi áin og ólgandi hafið mætast. Kveðjustundin rann upp. Skarfurinn nartaði nett í hönd ofanritaðs í kveðjuskyni og rölti að ísskör á árbakkanum, þar sem hann mat stöðuna í nokkrar mínútur áður en hann renndi sér út í vatnið. Ljósmynd/Erlingur B Thoroddsen Kveðjustund Fréttaritarinn og dílaskarfurinn á Blönduósi. Dílaskarfur í villum Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, stendur að mál- þingi um skýrsluna „The children left behind“ eða „Börn skilin út- undan“ í samstarfi við Rann- sóknastofnun í barna- og fjöl- skylduvernd og félagsráð- gjafardeild Háskóla Íslands í dag kl. 12-13 í Odda stofu 201. „Í skýrslunni er misskipting í heilbrigðisþjónustu, menntun og fá- tækt borin saman milli OECD- landa,“ segir í fréttatilkynningu. Frummælendur verða Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Halldór S. Guð- mundsson, lektor við félagsráðgjaf- ardeild Háskóla Íslands, Júlíus Björnsson, forstöðumaður Náms- matsstofnunar, og Anna Björg Ara- dóttir, yfirhjúkrunarfræðingur og sviðsstjóri hjá Landlækni. Börnin sem heltast úr lestinni Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, gagn- rýnir stjórnvöld fyrir að draga lapp- irnar í aðgerðum til að bæta hag Suðurnesja sem boðaðar voru í byrj- un nóvember. Stóri bitinn á þeim að- gerðalista hafi verið hugsanlegur flutningur Landhelgisgæslunnar á öryggissvæðið á Miðnesheiði. Var samþykkt að framkvæma hag- kvæmniathugun á þeim kosti og átti henni að vera lokið fyrir 1. febrúar. „Á samráðsfundi sveitarstjórnar- fólks og Suðurnesjamanna með fulltrúum stjórnvalda fyrir helgi kemur svo í ljós að þessi vinna við flutning Gæslunnar er alls ekkert hafin. Það er ekkert búið að gera. Þá eru farnir þarna tveir mánuðir í súg- inn. Ég gagnrýni það að það sé verið að veifa þessu á hátíðarstundum fyr- ir framan Suðurnesjamenn og svo er ekkert gert til að fylgja þessu eftir,“ segir Ragnheiður Elín. Hafist handa við Hersetusafn Hjá innanríkisráðuneytinu feng- ust þær upplýsingar að vinna væri hafin við athugunina innan ráðu- neytisins en eftir því sem Morgun- blaðið kemst næst er sú vinna komin skammt á veg. Á aðgerðalista stjórn- valda var einnig að fela Þróunar- félagi Keflavíkur að setja á stofn Hersetusafn á gamla varnarsvæð- inu. Að sögn Kjartans Þórs Eiríksson- ar, framkvæmdastjóra félagsins, er sú vinna farin vel af stað og byrjað er að gera hús klárt fyrir safnið. „Við erum líka að setja saman undirbún- ingshóp sem hefur það markmið að kortleggja hvaða aðilar þurfa að koma að þessu, bæði hér á svæðinu og í menntamálaráðuneytinu.“ Ekki sé komið á hreint hvenær safnið verði opnað en það gæti jafnvel gerst síðla á þessu ári. Gagnrýnir seinagang í aðgerðum á Suðurnesjum Vinstrihreyfingin – grænt framboð skuldaði rúmar 122 milljónir í lok árs- ins 2009 samkvæmt útdrætti úr sam- stæðureikningi stjórnmálaflokkanna 2009 sem Ríkisendurskoðun birtir. Tekjur flokksins í árslok 2009 voru rúmar 97 milljónir. Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, sem sett voru árið 2006, skulu stjórnmála- samtök árlega skila Ríkisendurskoð- un reikningum sínum sem í kjölfarið skal birta útdrátt úr þeim. Ríkisend- urskoðun hefur birt útdrátt úr reikn- ingum fyrir árið 2009 frá Vinstri grænum, Sjálfstæðisflokknum og Hreyfingunni. Þar koma meðal ann- ars fram tekjur og skuldir og upplýs- ingar um fjárframlög til þeirra frá lögaðilum og sveitarfélögum. Enn vantar reikninga Framsóknarflokks- ins og Samfylkingarinnar. Alþingiskosningar voru haldnar í apríl 2009 og því hefur rekstur flokk- anna verið dýr það ár, eins og rekstur VG ber með sér, skuldir hans jukust um 45 milljónir frá 2008 en tekjurnar aðeins um 13 milljónir. Sjálfstæðisflokkurinn stendur bet- ur að vígi en tekjur hans árið 2009 voru 242 milljónir, þar af voru rík- isframlög tæplega 159 milljónir. Tekjurnar voru svipaðar og 2008. Skuldir flokksins námu í lok árs um 78 milljónum og höfðu aukist um 35 milljónir frá árinu á undan. Þingflokkur Hreyfingarinnar var með 200.000 kr. skuldir í árslok 2009 og tekjurnar voru milljón eða því sem ríkisframlögunum nam. ingveldur@mbl.is Skuldir VG mikl- ar eftir 2009  Ríkisendurskoðun birtir bókhald flokkanna Í dag, þriðjudag, mun Freydís Vigfúsdóttir, líffræð- ingur og doktorsnemi í dýravistfræði, halda erindi á fræðslufundi Fuglaverndar undir yfirskriftinni „Krían og kreppan“. Doktorsverkefni Freydísar lýtur að varp- vistfræði kríunnar á Snæfellsnesi og þeim varpbresti sem þar hefur verið. Hún mun kynna þær niðurstöður sem liggja fyrir. Fundurinn fer fram í húsakynnum Ar- ion banka, Borgartúni 19 og hefst kl. 20.30. Fundurinn er öllum opinn en aðgangseyrir er 500 kr. fyrir aðra en félagsmenn í Fuglavernd. Fundur um kríuvarp á Snæfellsnesi Vegna mistaka við frágang féll niður lokamáls- grein aðsendrar greinar Ögmund- ar Jónassonar innanrík- isráðherra, „Meint tregða innanríkisráðuneytisins“, sem birt- ist í blaðinu sl. laugardag. Í greininni fjallaði Ögmundur um mál drengs sem fæddist á Indlandi og stað- göngumæðrun. Málsgreinin sem féll niður fer hér á eftir: „Í Kastljósi fyrir fáeinum dögum bar Sigurður Kári mig þungum sök- um. Minn glæpur er þá væntanlega sá að vilja búa svo um hnúta að farið sé að lögum og reglum sem settar eru til varnar mannréttindum. Ég óska fjölskyldunni á Indlandi alls góðs og vonast til að hún verði komin heim til Íslands sem allra fyrst.“ Leiðrétt Lokamálsgrein féll niður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.