Morgunblaðið - 18.01.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta byrjaði allt á því að égbyggði hús haustið 2007 ogléttist um nokkur kíló viðþá vinnu,“ segir Tyrfingur
Þorsteinsson flugmaður, sem eina
andvökunótt fyrir þremur árum
ákvað að taka sig á og gera eitthvað í
því að létta sig, en þá var hann 32 ára
og 123 kíló. „Það er feimnismál að
tala um að maður sé allt of feitur en
þetta var orðið bæði andlegt og lík-
amlegt vandamál hjá mér. Þegar ég
loksins kom mér af stað náði ég af
mér um 40 kílóum, en það tók um eitt
og hálft ár. Ég byrjaði á því að
hlaupa en fór svo líka í tae-kwon-do
og keppti í því og ég er líka í crossfit.
Núna er ég búinn að bæta við þrí-
þrautinni og ætla að keppa í henni í
vor. Þríþrautaræfingarnar einar og
sér eru 14 tímar á viku,“ segir Tyrf-
ingur og bætir við að í síðustu viku
hafi hann hlaupið 50 kílómetra, synt
10 kílómetra og hjólað 200 kílómetra.
Eins og rúllupylsa í gallanum
„Ég er orðinn algjör íþrótta-
fíkill, sækist eftir endorfínvímunni.
Ég verð ómögulegur og geðvondur ef
ég hreyfi mig ekki í meira en tvo
daga. Mér finnst nauðsynlegt að fest-
ast ekki í því sama og það er gaman
hvernig nýir heimar opnast við það
að fara að æfa nýja grein. Maður þarf
að læra alveg nýja tækni og kynnist
fullt af nýju fólki. Og það er hvetjandi
að ná árangri á nýjum sviðum. Ég
var til dæmis í mjög góðu hlaupa-
formi þegar ég fór að æfa sund en ég
hafði samt ekkert úthald í sundinu.
En nú syndi ég tvo kílómetra án þess
að stoppa.“
Hljóp af sér tæp
fjörutíu kíló
Hann var tvö ár að koma sér að því að losa sig við yfirþyngdina og önnur tvö ár
að ná af sér kílóunum. Hann var 123 kíló fyrir þremur árum en er nú 85 kíló og
óstöðvandi í hverskonar hreyfingu, stundar tae-kwon-do, crossfit og ætlar að taka
þátt í þríþraut í vor þar sem er hlaupið, synt og hjólað.
Liðin tíð Svona leit Tyrfingur út haustið 2007, skömmu áður en hann tók sig
til og breytti alfarið um lífsstíl, fór að hreyfa sig og breytti mataræðinu.
Vefsíðan 101greatgoals.com er til-
einkuð alvörufótboltaáhugamönnum
og þeim sem vilja vita enn meira. Á
vefnum má yfirleitt finna nýjustu
mörkin sem skoruð eru í deildum um
allan heim. Jafnvel í deildum sem
hörðustu knattspyrnuáhugamenn
hafa aldrei heyrt af. Einnig eru valin
úr flottustu mörkin og skrautlegustu,
mestu mistökin og leikmönnum fylgt
eftir í gegnum leiki. Efst á forsíðu eru
tenglar á ýmis lönd svo að þeir sem
vilja fylgjast með úrslitum t.d. á
Spáni eða í Þýskalandi, geta valið sér
þau lönd og séð helstu fréttir um úr-
slit þaðan. Fyrir þá sem hafa svo
óheppilega misst af mikilvægum leik
er líka hægt að horfa á helstu mörk
nýliðinna leikja. Svo og að lesa nýj-
ustu fréttir af fótboltamönnum, sigr-
um, ósigrum og uppátækjum þeirra.
Loks má skrá sig inn á síðuna og velja
sér þau lið sem maður vill fylgjast
með. Þannig fær maður nýjustu úrslit
beint í æð, það er að segja tilkynn-
ingar á tölvupósti. Þessi síða ætti því
bæði að geta veitt mikinn fróðleik og
verið fótboltaáhugamönnum hin
besta skemmtun. Tilvalið ef þú vilt
halda þér á tánum í fótboltaheim-
inum eða vita meira til að geta slegið
um þig í vinahópnum.
Vefsíðan www.101greatgoals.com
Ljósmynd/SNS Group 0141 221 3602
Nýjustu mörkin Vefsíðan 101greatgoals.com er stútfull af fótboltafróðleik.
Meira en allt um fótbolta
Það er ekkert sem segir að þrátt fyrir
smásnjóföl, ja eða sæmilega háa
skafla sums staðar, sé nokkuð því til
fyrirstöðu að fá sér hressandi göngu-
túr. Skelltu á þig góðum skóm, dúð-
aðu þig í úlpu, húfu og vettlinga og
þá ættirðu að vera fær í flestan sjó.
Það er jú ekkert til sem heitir vont
veður, heldur bara að vera ekki nógu
vel klæddur eins og þar stóð. Það er
líka skemmtilegt við gönguferðir í
snjó að til að hvíla sig má bregða á
leik, búa til einn góðan snjókall eða
engla í snjóinn. Það ætti nú engum
að leiðast að fá góða hreyfingu við
slíkar aðstæður.
Endilega …
… njótið snjó-
gönguferða
Morgunblaðið/Skapti
Ganga Snjór þarf engan að stöðva.
Það er oft ótrúlegt hvað þessar Holly-wood-stjörnur og fræga fólk eru í góðuformi. Við hin erum jú kannski í
ágætisformi en ekki endilega tveimur vikum
eftir fæðingu eða þremur dögum eftir jól. Þar
greinir ef til vill á milli að þetta er jú má segja
hluti af starfi fræga fólksins og það hefur í
kringum sig her þjálfara til að koma sér í form
einn, tveir og bingó. Enda vill helst enginn láta
birta af sér myndir í heimspressunni með laf-
andi bumbu í bikiníi.
Ef þú vilt reyna að verða eins og stjörnurnar
eru hér nokkur skotheld ráð frá þjálfurum
þeirra.
1. Harley Pasternak, þjálfari Megan Fox Harley
leggur áherslu á grjótharða magavöðva. Ár-
angursríkasta leiðin samkvæmt honum eru
nóg fjölbreyttar magaæfingar sem þjálfa
magavöðvana á ólíkan hátt.
2. Tracy Anderson, þjálfari Gwyneth Paltrow
Tracy leggur áherslu á staðfestu og samfellu
í æfingum. Sama hversu mikið er að gera,
finndu tíma til að æfa og gleymdu öllum afsök-
unum!
3. Jay Cardiello, þjálfari 50 cent
Skilaboð Cardiellos eru stutt og laggóð:
Sofðu í æfingagallanum. Þá ertu líklegast
tilbúin/n hvenær sem æfingaandinn kemur yf-
ir þig.
4. Ramona Braganza, þjálfari Jessicu Alba Hollt
og gott snarl segir Ramona vera mikilvægast.
Möndlur og perur eða mozarella-ostur og epli.
Stærri máltíðir ættu síðan að vera samsettar
úr mögru kjöti og sósur sem innihalda smjör
setur hún á bannlista.
5. David Barton, þjálfari Fergie
David segir líkamsrækt aðeins skila tilætl-
uðum árangri þegar líkaminn eykur við vöðva-
massa sinn. Þannig heldur líkaminn áfram að
brenna kaloríum jafnvel þótt þú sért lögst/
lagstur á sófann.
6. Gunnar Peterson, þjálfari Kim Kardashian
Til að léttast án þess að missa kvenlegan
vöxt mælir Gunnar með því fyrir konur að
leggja áherslu á að þjálfa stóru vöðvahópana.
Framstig og allt sem æfir læri, leggi og rass er
málið. Á móti skal lyfta þannig að efri líkaminn
verði hæfilega mótaður en blási ekki út.
8. Nicky Holender, þjálfari Kendru Wilkinson
Nicky segir mikilvægt að borða líka hollt
þótt við förum út að borða og sérstaklega að
velja sér ekki eitthvað með tómum kaloríum.
Hún mælir með að sleppa snakkinu og salsaí-
dýfunni en fá sér frekar grillaða kjúklinga-
strimla með grænmeti. maria@mbl.is
Í toppformi eins og stjörnurnar
Líkamsrækt Þjálfari söngkonunnar Fergie
lætur hana lyfta en greinilega hlaupa líka.
Mjóna Megan Fox hefur greinilega tekið ráð-
um þjálfarans og gert fleira en magaæfingar.
Staðfesta Gwyneth Paltrow finnur sér tíma í
líkamsræktina þótt nóg sé að gera.
Sofðu í æfingagallanum
og slepptu snakki