Morgunblaðið - 18.01.2011, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011
Andri Karl
andri@mbl.is
Karlmaður og kona á þrítugsaldri voru í gær úr-
skurðuð í gæsluvarðhald til föstudags vegna að-
ildar að fólskulegri líkamsárás í Kópavogi aðfara-
nótt sunnudags. Þá réðst hópur fólks á karlmann
á fimmtugsaldri og var meðal annars sparkað
ítrekað í hann þegar hann lá í götunni. Maðurinn
er alvarlega slasaður og liggur á Landspítalanum.
Árásin er ein margra alvarlegra sem gerðar hafa
verið að undanförnu. Afbrotafræðingur segir
hrinur ljótra ofbeldismála oft hafa komið upp í ár-
anna rás og virðist sem ein slík standi yfir.
Það sem af er ári hafa þrír karlmenn verið lagð-
ir inn á gjörgæsludeild Landspítala vegna alvar-
legra höfuðáverka sem þeir hlutu í líkamsárásum.
Tveir mannanna voru um tíma í lífshættu. Allar
voru árásirnar gerðar í tengslum við skemmt-
analíf og um helgi. Helgi Gunnlaugsson, afbrota-
fræðingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla
Íslands, segir fullt tilefni til að fara ítarlega yfir
nýleg árásarmál og athuga hvort eitthvað sam-
merkt sé með þeim; hvort ytri aðstæður hafi
áhrif. „Menn hljóta að spyrja sig hvort ölvunin sé
meiri en áður, hvort dýrari veigar á öldurhúsum
og versnandi efnahagur hafi einhver áhrif. Að
menn drekki meira heima hjá sér og mæti ölv-
aðari en ella á skemmtistaði. Þetta er þó aðeins
einn þáttur. Það eru alls kyns hlutir sem þarf að
horfa í, s.s. í sambandi við fyrirkomulag skemmt-
analífs, og athuga hvort þeir geti ýtt undir þessa
hrinu.“
Engin sýnileg aukning á ofbeldi
Engin sýnileg aukning hefur orðið á ofbeldis-
málum undanfarin ár en tilfinning manna þó að
ofbeldið sé harðara. Helgi segir alvarleg ofbeldis-
mál ekki nýtt vandamál en frekar viðvarandi.
„Þegar við förum fimm, tíu og jafnvel tuttugu ár
aftur í tímann má sjá að alltaf koma upp hrinur
ljótra ofbeldismála. Það koma svona toppar.“
Spurður hvort tilviljun ráði því hvenær slíkir
toppar komi segir Helgi það eitthvað sem velta
þurfi fyrir sér. „Full ástæða er að líta í aðstæð-
urnar, eins og núna, hvort ytri aðstæður ýti undir,
ástandið í samfélaginu, fyrirkomulag skemmtana-
lífsins. Hvernig þetta allt spilar saman. Hvort að-
stæður séu til þess fallnar að skapa slíkar hrinur.“
Umburðarlyndi fyrir ofbeldi minnkað
Fyrir utan ytri aðstæður þarf einnig að kanna
tildrög árásanna. En upplýsingar um tildrögin
liggja ekki enn á lausu í öllum málunum. „Auðvit-
að á maður alltaf að staldra við, skoða þessi alvar-
legu mál sem koma upp, m.a. lögregluskýrslur.
Hvernig málin bar að, hvort um vana ofbeldis-
menn var að ræða eða nýja. Ef upp koma mörg
mál þar sem árásin er tilefnislaus er eitthvað að
breytast hjá okkur.“
En þrátt fyrir allt er Helgi á þeirri skoðun að
umburðarlyndi fyrir ofbeldi hafi minnkað með ár-
unum hjá þorra fólks. Fyrir tuttugu, þrjátíu eða
jafnvel fjörutíu árum hafi vera meira umburð-
arlyndi gagnvart deilum á öldurhúsum. Í dag sé
hins vegar ekki talið réttlætanlegt að beita of-
beldi til að leysa ágreining. „En það er engu að
síður ákveðin hugmyndafræði sem manni finnst
varhugaverð innan ákveðinna þröngra hópa. Þar
er það talið fullkomlega eðlilegt að beita ofbeldi
við vissar aðstæður.“
Í hrinu alvarlegra ofbeldisbrota
Afbrotafræðingur segir hrinur ljótra ofbeldismála alltaf hafa komið upp öðru hverju í gegnum árin
Full ástæða sé til að skoða einstök mál vandlega og reyna að finna út hvort ytri aðstæður hafi áhrif
Það eru alls kyns hlutir
sem þarf að horfa í og at-
huga og hvort þeir geti ýtt
undir þessa hrinu.
Helgi Gunnlaugsson
Það er á misskilningi byggt að Ríkis-
útvarpið fái greiðslur frá íþrótta-
félögum fyrir umfjöllun um viðburði
á þeirra vegum. Þetta segir Páll
Magnússon útvarpsstjóri. Tveir
íþróttamenn héldu því fram á blogg-
síðum sínum í gær að sérsambönd
hefðu greitt fyrir útsendingar á
íþróttaviðburðum.
Þannig hélt Gunnlaugur Júlíusson
langhlaupari því fram á bloggi sínu
að þau íþróttafélög sem stóðu að
íþróttamótinu Reykjavík Inter-
national Games sem fram fór um
helgina hefðu greitt RÚV þrjú
hundruð þúsund krónur fyrir
tveggja tíma útsendingu.
Páll segir að um venjulega kostun
fyrirtækja hafi verið að ræða eins og
verið hefur við lýði við útsendingar
frá íþróttaviðburðum og öðrum dag-
skrárliðum í áratugi. Í tilfelli fyrr-
nefnds íþróttamóts hafi það verið
Síminn, Egils kristall og Orkuveita
Reykjavíkur sem kostuðu útsend-
inguna.
Stundum sé það þó þannig að
kostunin fari fram í gegnum sér-
samböndin. „Stundum óska fyr-
irtækin eftir því eða sérsamböndin
sjálf að kostunin fari fram í gegnum
sérsambandið en ekki beint frá fyr-
irtækinu og þá verðum við við því.
Þetta skiptir okkur engu máli. Að
baki þessu liggur bara venjulegur
kostunarsamningur eins og hefur
tíðkast við alls konar viðburði,“ segir
Páll. kjartan@mbl.is
Venjuleg
kostun út-
sendinga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leikar Frá Reykjavík International
Games sem fram fór um helgina.
RÚV fær ekki greitt
frá íþróttafélögum
Björk Guðmundsdóttir fór fyrir hópi einstaklinga sem
hafa afhent íslenskum stjórnvöldum tæplega 50.000
undirskriftir þar sem er skorað á stjórnvöld að koma í
veg fyrir söluna á orkufyrirtækinu HS Orku til sænska
fyrirtækisins Magma Energy í stjórnarráðinu í gær.
Hefur hópurinn staðið fyrir karókímaraþoni til að vekja
athygli á undirskriftasöfnuninni.
Þá funduðu Björk og nokkrir fulltrúar hópsins með
þeim Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og
Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra. Sagði Jó-
hanna að tillögur hópsins væru í miklu samræmi við
stefnu ríkisstjórnarinnar.
„Það er eins og að í grundvallaratriðum séum við sam-
mála en það er spurning um aðferðir,“ sagði Björk við
mbl.is að fundi loknum sem hún sagði hafa gengið vel.
„Mér fannst þetta nú á mannamáli vera svolítið kerfið,
hvernig á að díla við kerfið,“ sagði hún spurð að því hvort
tekið hefði verið undir sjónarmið hópsins á fundinum.
Jón Þórisson arkitekt, einn af fulltrúum hópsins sem
sat fundinn, segir skilaboð hans skýr. „Við viljum að það
verði undið ofan af einkavæðingunni á HS Orku og að
nýting orkuauðlindanna komist aftur í almannaeigu.“
Fyrir utan stjórnarráðið söng hópurinn keðjusöngva
eins og „Sá ég spóa“. Á meðal söngvaranna sem þar voru
samankomnir til að leggja málefninu lið var Ómar Ragn-
arsson, sjónvapsmaður og skemmtikraftur. „Við vitum
að einhvern tímann ber þetta árangur. Við eigum ekki
alltaf að hugsa um hvort þetta ber árangur í dag eða á
morgun. Þið sjáið kannski ekki neitt núna nema að við
erum að leggjast á stýrið, en skipið er að byrja að beygja
og það er aðalatriðið,“ sagði Ómar.
Eru sammála í grunninn
en kerfið þvælist fyrir
Vilja að undið verði ofan af einkavæðingu HS Orku
og að nýting orkuauðlinda komist aftur í almannaeigu
Morgunblaðið/Ómar
Undirskriftir Þau Steingrímur og Jóhanna tóku á móti hópnum í Stjórnarráðinu og bauð fulltrúum hans til fundar.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í
gærmorgun kröfu Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar og Lárusar Welding
um að kyrrsetningargerðir verði
felldar úr gildi hér á landi til trygg-
ingar sex milljarða króna skaðabóta-
kröfu Glitnis banka á hendur þeim
og fleirum.
Þá er Jóni og Lárusi gert að
greiða Glitni 500.000 í málskostnað
hvor. Sigrún Guðmundsdóttir hér-
aðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Lögmaður Lárusar Welding sagði
niðurstöðuna hafa komið sér á óvart.
Telur hann líklegt að málinu verði
áfrýjað til Hæstaréttar.
Kyrrsetning
verður ekki
felld úr gildi
Dýpkunarskipið Scandia frá Ís-
lenska gámafélaginu kemur að öll-
um líkindum til landsins um mán-
aðamótin, samkvæmt upplýsingum
frá Siglingastofnun. Scandia átti
upphaflega að hefja vinnu við dýpk-
un í Landeyjahöfn í byrjun janúar.
Næstu daga mun Herjólfur sigla
tvær ferðir á dag á milli Vest-
mannaeyja og Þorlákshafnar. Útlit
er fyrir mikla ölduhæð við suður-
strönd landsins sem mun hamla
siglingum í Landeyjahöfn, sagði á
heimasíðu Siglingastofnunar í gær.
Aldan hefur snúist í suðvestanátt
og dýptarmæling á laugardag sýndi
að farið væri að grynnka utan við
hafnarmynnið vestanmegin, eink-
um vestan við innsiglingarrennuna.
Um leið og aldan gengur niður
verður Perlan til taks eins og áður.
Til þess að Perlan geti athafnað sig
þarf aldan að vera undir einum
metra. aij@mbl.is
Herjólfur Siglt til Þorlákshafnar í
stað Landaeyjahafnar næstu daga.
Skipið vænt-
anlegt um
mánaðamót
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra fundaði með
Björk Guðmundsdóttur og
fulltrúum hópsins í gær í
stjórnarráðinu um málefni
HS Orku. Hún vildi hins veg-
ar ekki veita fjölmiðlum
kost á viðtölum að fundi
loknum þegar eftir því var
leitað.
Jóhanna vildi ekki
veita fjölmiðlum viðtöl
FORSÆTISRÁÐHERRA
Óvenjumargir eru í gæslu-
varðhaldi um þessar mundir en
í gær voru þeir 24. Ekki er
pláss fyrir þá alla á Litla-
Hrauni og því er brugðið á það
ráð að vista menn í fangaklef-
um lögreglunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fangelsismálastofnun hafa þó
fleiri setið í gæsluvarðhaldi á
sama tíma, eða allt að þrjátíu
einstaklingar. Þó svo að full-
setið sé, og sumir klefar tví-
setnir, hefur stofnunin þó ekki
teljandi áhyggjur af því að
geta ekki vistað fleiri, ef þörf
krefur.
Óvenjumargir í
varðhaldi
ALLT FULLT Í FANGELSUM