Morgunblaðið - 18.01.2011, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á
gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar
eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í
eindaga til og með 17. janúar 2011, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og
með 5. janúar 2011 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið
hafa í eindaga til og með 17. janúar 2011, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og
tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á
gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi,
launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, viðbótar- og
aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar
sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af
ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir,
fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi,
sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi
Fjármálaeftirlitsins og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar,
sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur,
fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald,
búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í
framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði,
ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu
skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan
kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert
fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk
útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til
að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds,
vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við
því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af
ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem
lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir
gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði
þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki
í þessum tilvikum.
Reykjavík, 18. janúar 2011
Tollstjóri
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í
Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í
Bolungarvík
Sýslumaðurinn á
Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á
Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
ÚR BÆJARLÍFINU
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Nýja árið gekk í garð með kulda-
tíð og norðanáhlaupi en ekkert tjón
varð af völdum veðurs hér um slóð-
ir. Skammta þurfti rafmagn um
tíma vegna bilunar og skóla var af-
lýst vegna ófærðar en íbúar eru
slíkum uppákomum ekki óvanir og
taka öllu með ró. Í skammdegi og
stórhríð er fátt betra en að sitja
inni með spil og bækur við kerta-
ljós.
Rólegt er við höfnina en
tveir smábátar hafa verið á línu-
veiðum í rysjóttri tíð og aflinn hef-
ur verið í samræmi við það. Trillu-
karlar nýta gjarnan tímann til að
dytta að bátum sínum vegna kom-
andi grásleppuvertíðar í mars og
síðan taka strandveiðarnar við. Hjá
Ísfélaginu er nú bolfiskvinnsla í
gangi en skip félagsins, Suðurey,
landaði fyrsta farminum á nýja
árinu fyrir skömmu. Loðnan er
væntanleg til Þórshafnar í dag en
Júpíter og Álsey hafa verið á veið-
um norðaustur af landinu. Aflinn
fer í bræðslu en betra verð er núna
á mjöli en frystum afurðum.
Fræðsla og símenntun í
heimabyggð hefur verið í boði á
Þórshöfn síðan Þekkingarnet Þing-
eyinga fékk hér aðsetur. Það er til
húsa á Menntasetrinu en það hefur
boðið upp á margvísleg námskeið.
Á næstu mánuðum er úr mörgu að
velja; tungumálanám, silfursmíði,
saumanámskeið og fleira. Veður-
fræðingurinn Einar Sveinbjörnsson
verður með veðurnámskeið, þar
sem einkum er farið í einkenni
veðurlags hér í byggðarlaginu og
má búast við að útivistarfólk nýti
sér það, einnig verður námskeið
um skotfimi og skotveiðar. Það er
mikilvægt að fólk á landsbyggðinni
eigi kost á símenntun í heimabyggð
og reynslan hefur sýnt að fólk hef-
ur tekið þessum þekkingarbrunni
fagnandi og nýtt sér vel námskeið
og annað sem er í boði.
Árlegt þorrablót verður í febr-
úarbyrjun en það er jafnan fjöl-
menn samkoma, þar sem heimafólk
og brottfluttir gleðjast saman yfir
þorratroginu. Dansnámskeið er
einnig á döfinni, svo enginn þarf að
sitja heima vegna fákunnáttu í
dansi, þegar hátíðin rennur upp.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Rólegheit Sjómaðurinn Halldór Jóhannsson var mættur um borð til að
dytta að útgerðinni en rólegt er í smábátahöfninni yfir háveturinn.
Spilað og spjallað við
kertaljós í stórhríðinni
Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti
Íslands, segir í
samtali við
bandaríska blaðið
Wall Street
Journal, að Gord-
on Brown, fyrr-
verandi forsætis-
ráðherra Bret-
lands, ætti að
biðja Íslendinga
afsökunar á framkomu sinni í garð
þeirra í bankahruninu í október
2008.
„Vilji Gordon Brown vera heið-
virður maður ætti hann að biðjast
afsökunar á því að segja umheim-
inum að Ísland væri gjaldþrota
land,“ hefur blaðið eftir Ólafi.
Hann segir að rætt hafi verið um
það á þeim tíma hvort Ísland ætti að
höfða mál gegn breskum stjórnvöld-
um. „En nú gengur okkur betur,
efnahagslega, en mörgum Evr-
ópuríkjum,“ segir Ólafur.
Viðtalið fjallar að stórum hluta
um Icesave-málið og þá ákvörðun
Ólafs að synja Icesave-lögunum
staðfestingar í janúar 2010. Segir
Ólafur að frá pólitískum og stjórn-
skipunarlegum sjónarhóli sé það
mikilvægasta ákvörðun, sem hann
hafi tekið á forsetaferli sínum, og
hún hafi sparað Íslendingum mikið
fé.
Hann segist ekki vilja tjá sig um
nýtt Icesave-samkomulag, sem nú
er til meðferðar á Alþingi. Þingið
eigi rétt á að ræða málið án þess að
forsetinn skipti sér af því.
Í viðtalinu er einnig fjallað um að-
ildarviðræður Íslands við Evrópu-
sambandið. Haft er eftir Ólafi Ragn-
ari, að það muni á endanum ráðast
af niðurstöðu í sjávarútvegsmálum
hvort Íslendingar samþykkja að
ganga í ESB.
Hann segir einnig, að helsta
ástæða þess að Ísland sótti um aðild
hafi verið að svo virtist sem Íslend-
ingar gætu ekki lengur haft sjálf-
stæðan gjaldmiðil. Gengisfall ís-
lensku krónunnar hafi hins vegar
greinilega stutt við útflutningsgrein-
arnar og því séu nú heitar umræður
um réttmæti aðildarviðræðnanna.
„Við höfum séð ríki á evrusvæðinu
lenda í hverjum vandræðunum á
fætur öðrum. Þetta hefur breytt
myndinni,“ segir Ólafur. Hann segir
að það hljóti að vera mögulegt að Ís-
lendingar gangi í Evrópusambandið
án þess að taka upp evru og vísar til
Póllands og Danmerkur í því sam-
bandi.
Brown á að
biðjast afsökunar
„Ríki á evrusvæðinu lenda í hverjum
vandræðunum á fætur öðrum“
Ólafur Ragnar
Grímsson
Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar
Álftaness fimmtudaginn sl. tillaga
bæjarráðs þess efnis að óska upplýs-
inga frá stjórn Strætó bs. um hvaða
fjárhagslegu áhrif það hefði á sveit-
arfélagið ef það tæki ákvörðun um að
segja sig úr byggðasamlaginu, þ.e.
hætta samstarfi við fyrirtækið um
strætisvagnaferðir til og frá Álfta-
nesi. Ástæða þessa er óánægja bæj-
arstjórnar með strætisvagnaferðir
um Álftanes. Strætisvagnar koma
þar við sex sinnum á virkum dögum,
á klukkustundarfresti milli kl. 9 og
12 og 14 og 17, en engar ferðir eru
farnar um helgar.
Kjartan Örn Sigurðsson, fulltrúi
Álftaness í stjórn Strætó bs., segir
sveitarfélagið greiða rúmar 20 millj-
ónir króna á ári inn í fyrirtækið og
þyki það heldur mikið fyrir svo fáar
ferðir. Álftanesbær vilji því skoða
fleiri möguleika, hvort hægt sé að fá
betri þjónustu fyrir sömu upphæð
frá öðrum. Áður en farið sé í slíkar
aðgerðir verði að komast að því
hvort Strætó bs. sé með neikvæða
eiginfjárstöðu. Ef svo væri þyrfti
sveitarfélagið að borga sig út úr
samstarfinu við fyrirtækið en annars
ekki. Því hafi tillagan verið lögð
fram. helgisnaer@mbl.is
Dýrar en fáar
Álftanes íhugar úrsögn úr Strætó bs.
Ljósmynd/Hafsteinn Ingi Gunnars
Strætó Ferðir eru fáar á Álftanesi.