Morgunblaðið - 18.01.2011, Page 19

Morgunblaðið - 18.01.2011, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011 ✝ Sigríður Ólafs-dóttir var fædd að Reynisvatni 7. desember 1926. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 11. jan- úar 2011. Sigríður var sjötta barn af níu börnum hjónanna Þóru P. Jónsdóttur frá Breiðholti í Reykja- vík, f. 13. maí 1891, d. 21. september 1987, og Ólafs Jóns- sonar, múrarameist- ara og bónda, f. 15. ágúst 1891 að Stuðlakoti, Bókhlöðustíg í Reykja- vík, d. 25. september 1965. Systk- ini Sigríðar eru: 1) Geirlaug, f. 16.2. 1914, d. 9.7. 1914. 2) Geir- laug, f. 17.8. 1915, d. 1.10. 1994. 3) Björg, f. 3.11. 1917, d. 23.12. 1938. 4) Anna, f. 11.12. 1920, d. 9.3. 1984. 5) Jón, f. 17.2. 1923, 6) Guðríður, f. 28.3. 1929, d. 30.12. maki Jón Óskar Jónsson Wheat, f. 3.2. 1976. Börn þeirra eru Jón Ár- sæll, f. 30.4. 2003, og Eva Lind, f. 31.8. 2005. b) Eyjólfur Brynjar, f. 6.12. 1981, sambýliskona hans er Ásta Mjöll Óskarsdóttir, f. 23.10. 1983. Sonur þeirra er Kristinn Ingi, f. 26.9. 2007. c) Thelma Rut, f. 17.8. 1992. 2) Stefanía, f. 19.2.1954, gift Guðmundi Karli Ólafssyni, f. 19.8. 1948. Dóttir þeirra er Una Kristín, f. 14.5. 1990, unnusti Bergþór Sigurðs- son, f. 28.3. 1990. 3) Þóra, f. 7.11. 1958, sambýlismaður Ragnar Karlsson, f. 6.7. 1959. Dætur þeirra: a) Valgerður, f. 11.9. 1987, b) Sigríður, f. 2.12. 1989. 4) Ólaf- ur Jón, f. 10.5. 1964, giftur K. Svölu Úlfarsdóttur, f. 16.9. 1964 (þau skildu). Börn þeirra: a) Sig- ríður Kristín, f. 21.8. 1983, unn- usti Pétur Darri Sævarsson, f. 5.4. 1983. Dóttir hennar og Stefáns Autrey er Svala Rún, f. 15.6. 2005. b) Arnar Ingi, f. 9.12. 1991. Útför Sigríðar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 18. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. 1998. 7) Jóhanna, f. 21.3. 1931. 8) Krist- inn, f. 16.7. 1932, d. 22. 9. 2006. Sigríður giftist 3. nóvember 1951 Eyj- ólfi Kristinssyni skipstjóra. Hann er fæddur í Gerðum, Garði. Foreldrar hans voru Kristinn Ársæll Árnason, skipstjóri í Gerðum, Garði, f. 7.4. 1905, d. 9.2. 1987, og Kristín Eyjólfsdóttir, f. 8.7. 1900, d. 6.3. 1966. Sigríður og Eyjólfur kynntust í Sandgerði á vertíðarballi. Þau hófu sinn bú- skap í Garðinum en 1960 fluttu þau til Keflavíkur og bjuggu þar þar til þau fluttu á Hrafnistu árið 2007. Börn þeirra eru: 1) Kristinn Ársæll, f. 3.7. 1951, giftur Karítas Bergmann, f. 25.11. 1954. Börn þeirra eru: a) María, f. 2.9. 1977, Elsku amma Sigga. Við trúum ekki að þú sért farin. Þegar við hugsum til þín koma marg- ar indælar minningar upp í hugann. Alltaf munum við muna eftir þér á Kirkjuveginum, að stússast í eldhús- inu, spila við okkur lönguvitleysu, segja okkur sögur og sjá um okkur þegar við vorum svo heppnar að fá að gista hjá ykkur afa. Okkur fannst fátt skemmtilegra en að koma í heimsókn til ykkar í Keflavík. Við eyddum ófáum stundum við að máta háhæluðu skóna þína, klæðast fínu kjólunum, fara í leyfisleysi í málningardótið og í skartgripaskrínið. Þú hafðir þó örugglega jafngaman af því og við. Einnig er okkur minnisstætt þegar við stálumst yfir á kirkjulóðina og tíndum rifsber fyrir þig og báðum þig um að gera úr þeim sultu.Við eigum einnig margar góðar minningar úr Sælukoti, þangað var alltaf gott að koma og dvelja. Þar höfðum við margt að fást við, hjálpuðum þér að setja niður kartöflur og rabbabara, óðum í ánni, lékum okkur í álfakofanum og jörðuðum smáfugla, þresti og sól- skríkjur, sem flogið höfðu á rúðuna. Amma, þú varst svo góð kona, alltaf tókst þér að líta á björtu hliðarnar í líf- inu og brosið þitt var svo blítt. Í okkar augum varstu alltaf svo glæsileg og vel til höfð, enda aðeins 27 ára eins þú sagðir sjálf. Þú munt ávallt lifa í minn- ingu okkar og við söknum þín svo sárt. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þínar ömmustelpur, Valgerður (Vala), Sigríður og Una Kristín. Elsku besta amma Sigga mín, nú kveð ég þig í hinsta sinn, það er erfitt að hugsa til þess að nú sértu ekki lengur á meðal okkar. Þú varst ein- stök og áttir alltaf stóran stað í hjarta mínu. Mér þótti alltaf gaman að heim- sækja ykkur afa á Kirkjuteiginn og eiga með ykkur góða stund. Þú nýttir tíma þinn vel á meðan þú varst við góða heilsu og varst dugleg í hann- yrðum og föndri, þú prjónaðir á okkur krakkana, saumaðir jafnvel heilu íþróttagallana svo ekki sé talað um heimilisstörfin sem þú sinntir alltaf vel. Sláturtíðin er mér minnisstæð og það var alltaf hátíð í bæ þegar þú hó- aðir allri fjölskyldunni saman, kven- peningurinn sat og saumaði keppi og tróð í á meðan karlarnir skáru mörinn samviskusamlega. Það toppaði svo sláturgerðina á lokakveldinu þar sem allir fengu sér fullkomna sláturmáltíð. Í dag tek ég slátur og hugsa til þess- ara góðu stunda. Þau voru ófá símtöl- in á milli okkar þegar ég var að hræra saman og útbúa slátrið eins og þú hafðir gert það. Ég vildi hafa þetta eins og þitt slátur var. Það er gaman að segja frá því hversu nútímaleg amma þú varst, þegar ég var í Fjölbraut, þá bauðstu mér oft í mat í hádeginu, í pítsu sem þú hafðir eldað frá grunni. Vinkonum mínum þótti þú ótrúlega nýmóðins. Ég var ekki há í loftinu þegar ég fór að sýna áhuga á bakstri. Mér er sér- staklega minnisstætt þegar þú lofaðir mér að baka fyrir þig skúffuköku, þú ætlaðir að horfa á og leiðbeina mér en ég mátti gera allt sjálf. Ég var gríð- arlega stolt þegar kakan fór í ofninn og beið spennt eftir að smakka fyrstu kökuna mína sem við bökuðum sam- an. Þú sagðir að hún hefði heppnast vel og væri mjög góð, ég komst hins vegar að öðru þegar ég smakkaði hana, hún var römm og vond, ég hafði gleymt að setja sykurinn í hana. Þú varst ekkert að hafa orð á því við mig og sagðir að kakan væri samt sem áð- ur æðislega góð. Alltaf jafn hvetjandi og hlýtt viðmót. Ég fékk oft að gista hjá ykkur á teignum og það var alltaf gaman. Ég átti góða æsku með ykkur afa og það get ég aldrei þakkað nóg. Ég er þér afskaplega þakklát fyrir allt. Þú varst góður mannþekkjari og hafðir orð á því þegar ég kynnti Jón Óskar fyrir þér að þetta væri mikið góðmenni og ég skyldi halda í þennan strák. Þarna hefði ég hitt naglann á höfuðið. Þú varst ákaflega stolt þegar Jón Ársæll fæddist sem gerði þig að langömmu. Þú hafðir orð á því hversu rík þér fyndist þú vera að eiga lang- ömmubarn. Ég man þegar Eva Lind fæddist, þá varst þú orðin veik og fórst lítið út á meðal fólks. Ég bauð þér til okkar, þú gistir nokkrar nætur og við föndruðum jólaglerkrukku saman og ekki þótti þér það leiðinlegt, þessar kvöldstundir voru yndislegar og ylja mér um hjartarætur. Elsku amma mín þakka þér fyrir allt og allt, ég kveð þig með söknuð í hjarta en á svo ótal margar góðar minningar um þig sem ég mun halda á lofti. Ég hefði ekki getað eignast betri ömmu en þig. María Kristinsdóttir. Elskuleg móðursystir okkar, Sigga í Keflavík, er látin eftir langvarandi veikindi. Lausn fyrir hana en sökn- uður þeirra sem eftir lifa. Minningar okkar um Siggu frænku eru fallegar og skemmtilegar því þannig var hún við alla. Hún var með stórt hjarta, var ávallt tilbúin að rétta hjálparhönd, sérstaklega gestrisin og hafði einlæg- an áhuga á hvernig okkur gekk í líf- inu. Okkur var alltaf fagnað og við boðin velkomin. Systrasamband þeirra Siggu og Gauju móður okkar var sterkt alla tíð enda áttu þær margt sameiginlegt. Það voru saum- aðir kjólar, talað um krakkana, karl- ana sína, spáð í bolla, hlegið og flissað, hárlitanir og permanett, kökuupp- skriftir og slátur. Systur þeirra, Lauga, Anna og Hanna komu við eða fylgdust með. Sigga var stórglæsileg kona. Tignarleg með dökkt hár og prakkarablik í augum. Hún elskaði að vera í fallegum kjólum með perlufest- ar og palíettur og í silkikjólum í öllum litum. Sigga og Eyfi hefðu átt 60 ára brúðkaupsafmæli á næsta ári sem er langur tími fyrir manneskjur að deila lífinu í blíðu og stríðu. Heimili þeirra bar merki um myndarskap og sköp- unargleði sem alls staðar sást, út- saumur, bróderingar, saumaskapur og prjón. Börnin hennar, barnabörn og tengdabörn voru hennar fjársjóður í lífinu. Hagur þeirra skipti Siggu öllu máli. Minningar um jóladag á Reyn- isvatni eru líka yndislegar. Þá komu allir sem gátu þegar fært var upp af- leggjarann að Reynisvatni. Stórfjöl- skyldan hittist, farið var í leiki, amma gekk um húsið og passaði að allir hefðu það gott, Eyfi, Kiddi, Þórir, Nonni, Geiri og Tryggvi að spila í norðurstofunni og vindlalykt komin í húsið. Afi náði í jólasveininn á Engi og konurnar hjálpuðust að við veiting- arnar niðri í eldhúsi, hlátur þeirra barst upp. Fjölskyldan stækkaði ört og oft var mikill fjöldi samankominn. Það fór ekki á milli mála þegar Sigga og Eyfi voru að koma með hópinn sinn, það heyrðist í Siggu hlæjandi úti á hlaði og fótatakið hennar í háhæluðu skón- um barst niður. Þá fór að færast fjör í hópinn. Nú er komið fjör í himnasal, syst- urnar komnar saman aftur og endur- fundirnir ábyggilega gleðilegir. Jó- hanna og Jón eru eftirlifandi systkinin frá Reynisvatni. Það er komin kveðjustund og með virðingu þökkum við Gaujubörn elsku Siggu fyrir allt og sendum fjölskyld- unni okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Þóra Björg, Rósa, Reynir, Valdimar, Ólöf Jóna og Björgvin. Sigríður Ólafsdóttir ✝ Kristinn AntonGíslason fæddist í Steinholti í Fáskrúðs- firði 16. janúar 1920. Hann andaðist á Fjórðungssjúkrahús- inu í Neskaupstað 10. janúar 2011. For- eldrar hans voru Guð- rún Ólafsdóttir fædd á Þiljuvöllum í Beru- firði 28. mars 1882, d. 7. nóvember 1964. Gísli Eiríksson fæddur á Starmýri í Álftafirði 11. nóvember 1866, d. 26. janúar 1935. Systkini Kristins voru Sigurbjörn, f. 1904, d. 1986, maki Valborg B. Jónasdóttir, f. 1911, d. 1993. Guðjón, f. 1908, d. 1988, maki Guðrún Katrín Jóns- dóttir, f. 1919, d. 1947. Seinni kona Guðjóns, Karen E. Gísladóttir, f. 1916, d. 2007. Sigurrós, f. 1915, d. 1998, maki Oddur Stefánsson, f. 1911, d. 1983. Kristinn kvæntist Láru Þórlinds- dóttur, f. 1. maí 1924, d. 22.apríl 1991, frá Hvammi í Fáskrúðsfirði 20.september 1944. Foreldrar henn- ar voru Guðlaug Sig- ríður Magnúsdóttir, f. 31. mars 1897, d. 2 .júlí 1974, og Þórl- indur Jóhannsson, f. 10. júní 1896, d. 27. september 1958. Börn Kristins og Láru eru Snjólaug, maki Gísli Sæmundsson, þau eignuðust 4 börn, 3 þeirra eru á lífi. Guð- rún, maki Þórarinn Baldursson, þau eiga 1 dóttur. Guðrún var gift Helga Guðmunds- syni, f. 22. apríl 1950, d. 30. nóv- ember 1984, þau eiga 3 syni. Fanney Linda, maki Árni Sæbjörn Ólason, þau eiga 2 syni. Guðlaugur Svanur, f. 27. febrúar 1963, d. 10. apríl 1994, hann eignaðist 3 börn. Kristinn var fæddur og uppalinn á Fáskrúðsfirði og bjó þar allt sitt líf. Hann stundaði sjómennsku lengst af og vann síðar í landi við fisk- vinnslustörf. Útför Kristins fer fram frá Fá- skrúðsfjarðarkirkju í dag, 18. jan- úar 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Elsku pabbi okkar. Nú ert þú horfinn úr þessum heimi. Alltaf er jafnsárt að sjá á eftir þeim sem mað- ur elskar. Þú varst okkur alltaf svo góður og indæll faðir, sama hvað á gekk. Alltaf varst þú sá sem stóðst af þér allar raunir og ekki fórst þú var- hluta af sorg og missi í gegnum lífs- gönguna. Nú rétt fyrir jólahátíðina veiktist þú og varst mikið veikur, en samt héldum við að þú myndir ná þér á strik aftur eins og svo oft áður. En svo varð ekki. Þú kvaddir þennan heim 10. janúar, rétt fyrir níutíu og eins árs afmælið þitt. Við vitum elsku pabbi að nú líður þér vel og ert kominn til mömmu okkar og bróður. Þau hafa nú tekið á móti þér opnum örmum og umvafið þig. Söknuður okkar er mikill og stórt verður skarðið sem þú skilur eftir þig. Megir þú hvíla í friði elsku pabbi. Þínar dætur, Snjólaug, Guðrún og Linda. Mánudagskvöldið þegar amma mín hringdi í mig og sagði mér að langafi minn væri dáinn, var það fyrsta sem ég hugsaði að það gæti ekki verið, hann afi var svo hress þegar ég hitti hann síðast. Mig langar að kveðja þig, elsku afi, minn með þessu ljóði: Þú sæla heimsins svalalind ó, silfurskæra tár, er allri svalar ýtakind og ótal læknar sár. Æ, hverf þú ei af auga mér, þú ástarblíða tár, er sorgir heims í burtu ber, þótt blæði hjartans sár. Mér himneskt ljós í hjarta skín í hvert sinn, er ég græt, en drottinn telur tárin mín – ég trúi’ og huggast læt. (Kristján Jónsson.) Hvíldu í friði, elsku afi minn. Þín, Íris Ósk. Þá ert þú búinn að kveðja okkur í síðasta sinn, elsku afi. Það er alltaf jafn erfitt að þurfa að kveðja þá sem manni þykir vænt um, en aldrei bjuggumst við við því að þurfa að kveðja þig. Þú sem alltaf varst svo heilsuhraustur og hress. Við vitum að þú átt eftir að labba nokkrar ferð- ar upp í Skólabrekku og kíkja á okk- ur, þú varst nú vanur að ganga til okkar á hverju kvöldi og það hefði verið hægt að stilla klukku eftir þér. Einnig munum við alltaf minnast þess hve glaður þú varðst og ljóm- aðir í hvert skipti sem við komum og heimsóttum þig upp á elliheimili. Þú hafðir alltaf jafngaman af því að hlusta á það sem við höfðum að segja og hvað á daga okkar hafði drifið, hvernig gengi í vinnu, skóla, fótbolta og svo framvegis. Þó þú hafir farið frá okkur vitum við að amma og Gulli munu taka þér opnum örmum þar sem þú ert núna, svo við þurfum ekki að hafa áhyggj- ur af því að það fari ekki vel um þig þar. Þökkum fyrir seinustu og góðu stundirnar yfir jólatímann þar sem við gátum eytt miklum tíma saman. Þó svo manni finnist að maður hafi ekki kvatt þig nógu vel þá veistu að við munum alltaf elska þig. Við minnumst allra góðu stund- anna sem við höfum átt saman. Söknum þín, elsku afi. Svanur Freyr og Óli Heiðar. Þær hörmulegu fréttir bárust mér mánudaginn 10. janúar að afi hefði yfirgefið þennan heim. Elskulegi afi, sem alltaf hefur verið stoð og stytta fjölskyldunnar. Það er þyngra en tárum taki að átta sig á því að heimsóknirnar verði ekki fleiri, ekki fleiri ullarsokkar, ekki fleiri göngutúrar. Minningarnar eru margar og góð- ar, ég minnist þess þegar ég fékk að segja nokkur orð við hann í símann og bað hann um að prjóna ullarsokka handa vini mínum, afi tók því mjög vel og sendi mér ullarsokkana og svo aðra handa dúkkunni minni. Ég minnist þess hversu gaman var að hlusta á afa segja frá, hann var nefnilega snillingur í að koma fyrir sig orði, maður lá stundum í krampa eftir brandarana, sem voru jú mis- jafnir, en alltaf jafnfyndnir í frásagn- argleði hans. Afi var með endemum gjafmildur og það sýndi sig best þegar fjöl- skyldan kom saman á Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði, þá þótti hon- um ekkert skemmtilegra en að halda stóra og veglega veislu og var auðvit- að hrókur alls fagnaðar. Ég er ekki enn farin að trúa að afi sé farinn, það er mér svo fjarlægt á þessari stundu. Hann var hress síð- ast þegar ég sá hann, labbaði upp stigann og var harður á því að ná fram bata í fætinum, fannst það al- gjört formsatriði að hlýða sjúkra- þjálfaranum í einu og öllu. Hann fylgdi líka öllum reglum sem honum voru settar sem sýndi sig best þegar hann greindist með sykursýkina og tók sig verulega á og ég man hvað við vorum öll ánægð með hann. Elsku afi, núna ertu horfinn yfir móðuna miklu og ég veit að þú ert kominn til ömmu og Gulla, þér líður vel á meðal ástvina, þar hafa orðið miklir fagnaðarfundir. Nú andar suðrið sæla vindum þýðum; á sjónum allar bárur smáar rísa og flykkjast heim að fögru landi ísa, að fósturjarðar minnar strönd og hlíð- um. Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum um hæð og sund í drottins ást og friði; kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði; blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríð- um. Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer með fjaðrabliki háa vegaleysu í sumardal, að kveða kvæðin þín, heilsaðu einkum, ef að fyrir ber engil, með húfu og rauðan skúf, í peysu; þröstur minn góður, það er stúlkan mín. (Jónas Hallgrímsson.) Þín, Jóhanna Ásta. Elsku afi, takk fyrir þennan tíma sem ég átti með þér. Þótt ég hafi ekki þekkt þig lengi þá þykir mér svakalega vænt um þig og hefði vilj- að hafa þig lengur hjá mér. Þrjú til 4 ár er ekki langur tími en ég naut þess alltaf þegar ég kom til þín, þú varst alltaf svo hress að sjá og alltaf tilbúinn að taka á móti mér. Núna ertu kominn á betri stað. Ég mun alltaf sakna þín. Valur Freyr Guðlaugsson. Kristinn Anton Gíslason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.