Morgunblaðið - 18.01.2011, Síða 22

Morgunblaðið - 18.01.2011, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011 HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Helgi MarkúsKristófersson fæddist í Reykjavík 9. ágúst 1918, hann lést á Landspít- alanum í Reykjavík 31.desember 2010. Foreldrar hans voru hjónin Krist- ófer Grímsson, fyrrverandi ráðu- nautur, f. 12. apríl 1893, d. 13. nóv- ember 1969 og Guðný Jónína Jóns- dóttir, f. 12. júní 1883, d. 19. júlí 1971. Bræður Helga eru Haukur, f. 5. nóvember 1919 og Björgvin, f. 20. maí 1921, d. 30. júlí 2009. Uppeldissystir hans var Guðný Pétursdóttir, f. 15. mars 1927, d. 27. mars 2004, en hún var bróðurdóttir Guðnýjar móður Helga. Helgi kvæntist 21.október 1944 Önnu Margréti Jensdóttur, f. 14.júlí 1921. For- eldrar hennar voru hjónin Jens Ebeneser Eiríksson, f. 27.sept- ember 1885, d. 12.maí 1923 og Ása Sigurðardóttir, f. 26. janúar 1895, d. 12. apríl 1984. Börn Helga og Önnu eru: 1) Guðný Ár- dís, f. 1. janúar 1946. Maki: Karl Laugarvatni 1933-1935. Hann vann jarðyrkjustörf hjá Jarð- ræktarfélagi Reykjavíkur með dráttarvélum og jarðýtum á ár- unum 1934-1964. Hann er einn sá fyrsti sem vinnur land í Fossvogi með beltavélum. Síðar vann hann við skrifstofu- og lagerstörf og þá lengst af hjá Ford-umboði Sveins Egilssonar um tuttugu ára skeið. Þegar starfsævi hans lauk áttu áhugamálin hug hans allan, en þau voru mörg og fjölbreytt. Fyr- ir rúmum 50 árum fékk hann út- hlutað land við Úlfarsfell, þar sem þau hjónin breyttu hrjóstrugum mel í gróinn trjálund. Þar byggðu þau lítið hús og ræktuðu ýmsar trjátegundir og blóm ásamt mat- jurtum. Í „Landinu“ dvöldu þau flesta daga yfir sumartímann. Helgi var félagi í Ferðafélagi Ís- lands í um 70 ár og ferðaðist mik- ið á þeirra vegum á sínum yngri árum. Hann hafði mikinn áhuga á ljósmyndun. Eftir hann liggur mikið safn góðra ljósmynda. Hann lærði bókband og batt inn mikinn fjölda bóka og tímarita. Hélt dagbók og las mikið alla tíð, fylgdist vel með þjóðmálunum, al- veg fram á síðasta dag. Á Silfur- teigi 4 bjó Helgi síðustu 63 árin, en það hús byggði hann ásamt bræðrum sínum, föður og föð- urbróður, og var hann því meðal frumbyggja hverfisins. Útför Helga fer fram frá Laugarneskirkju í dag, 18. janúar 2011 kl. 13. Ragnarsson, f. 1948. Búsett í Vík. Börn þeirra: Helgi Már, f. 1970, Guð- ríður Linda, f. 1972, Margrét Ása, f. 1973, Ragnar Freyr, f. 1976. 2) Áslaug, f. 15. febr- úar 1949. Maki: Carl Kjettrup, f. 1943. Búsett í Dan- mörku. Börn þeirra: Anja, f. 1974, Robert, f. 1977. 3) Hulda, f. 22.nóvember 1950. Maki: Hjálmar Sigurðsson, f. 1949. Búsett í Hnífsdal. Börn þeirra: Ólafur Ragnar, f. 1972, Anna Elín, f. 1975, Hallgrímur, f. 1977, Helga Sigríður, f. 1984. 4) Jens Björg- vin, f. 2.j úní 1952. Maki: Guðrún Ragnars, f. 1953. Búsett í Reykja- vík. Synir þeirra eru Arnar Þór, f. 1976, Ólafur Ágúst, f. 1981, Helgi Ragnar, f. 1991. Barnabarnabörn- in eru 16 talsins. Helgi ólst upp með foreldrum sínum í Reykjavík og fluttist með þeim á nýbýli þeirra Sogahlíð við Reykjavík árið 1925. Hann stund- aði nám við Héraðsskólann á Elskulegur tengdafaðir minn Helgi M. Kristófersson er látinn 92 ára að aldri eftir skamma sjúkra- húslegu. Á þessum tímamótum er gott að staldra við og hugsa um lið- inn tíma. Það kemur söknuður og væntumþykja upp í hugann. Það sem einkenndi Helga var hversu dagsfarsprúður hann var, skapgóð- ur og öðlingsmaður á allan hátt. Helgi átti gott líf með konu sinni Önnu Jensdóttur. Þau bjuggu sam- an á Silfurteignum í rúm 60 ár. Það var ekki að sjá að aldurinn færðist yfir, heimilið þeirra ein- staklega fallegt og hlýlegt, umvafið ástúð og umhyggju. Hann fylgdist manna best með, las mikið og vissi upp á hár hvað var að gerast í þjóðmálaumræð- unni fram á síðustu stund. Áhugi hans var mikill á bókum og lærði hann bókband eftir að hann hætti að vinna. Hann batt inn blöð og tímarit sem hann hafði safnað að sér í áratugi sem innhalda ým- iskonar fróðleik um menn og mál- efni. Hann var sáttur við lífið og til- veruna, hann naut hverrar stundar, sérlega þegar þau hjónin gátu ver- ið í Landinu sínu þar sem þau ræktuðu af alúð plönturnar sínar sem voru orðnar að sígrænum skógi. Fjölskyldan öll naut þess að vera hjá þeim, hvort sem var í Landinu eða við kaffiborðið heima á Silfurteig. Helgi var einstaklega ljúfur maður, hlýr og umhyggjusamur. Ég minnist hans með virðingu og þakklæti og bið guð að blessa minningu hans. Guðrún Ragnars. Elsku afi minn. Mikið er ég feg- inn að hafa verið á Íslandi síðustu vikurnar. Verið hjá þér bæði á Silf- urteignum og svo eftir að þú varst fluttur upp á Landspítalann. Þarna gafst okkur tækifæri til að tala saman og fara yfir liðna tíð. Við töluðum lengi saman um þau atriði sem þér þóttu minnisstæð. Ferðalög og gamla tíma þegar þú varst ungur maður. Hvað þú hefðir viljað geta gert betur. Þú sagðist líka ekki sjá eftir neinu. Þessi sam- töl kenndu mér mikið. Margt er minnisstætt þegar ég hugsa til þín. Þú varst besti afi sem hugsast getur. Traustur, góð- ur maður, góð fyrirmynd. Allar stundirnar sem ég lék mér sem lít- ill krakki uppi í Landinu sem þið amma sköpuðuð svo listavel. Einna minnisstæðastur var litli kofinn, útsýnisturninn sem við byggðum. Þarna hafði ég lítill strákur háar hugmyndir um að geta búið í fram- tíðinni. Byggja við og hækka kof- ann og svo setja hitaveitu og sjón- varp. Þú tókst þátt í að búa til þessar skýjaborgir með mér. Uppi í Landinu kenndirðu mér líka fyrstu tökin að rækta, setja niður og taka upp kartöflur, planta trjám og klippa. Þetta eru ómetanlegar minningar og það gefur mikið að fara yfir þær í huganum þegar ég skrifa þessi fáu orð við skrifborðið þitt. Þegar pabbi hringdi í mig á að- faranótt gamlársdags og sagði mér að þú værir látinn þá varð ég hryggur og leiður en ég var tilbú- inn undir þetta, sérstaklega þar sem við áttum svo góða fundi dag- ana áður. Það komu tár en samt bros þegar ég hélt í höndina þína á spítalanum og þú hvíslaðir að mér: „Ég er sáttur“ í gegnum andartök- in sem voru þér erfið. Ég veit svo vel að þú hefur átt yndislegt líf. Þetta verður varla betra. Ég veit líka að þú ert nú kominn á góðan stað. Annars væri þetta líf of ómerkilegt eins og við töluðum oft um. Hvar sem þú ert nú þá munu hugsanir mínar oft reika til þín í framtíðinni eins og þær hafa gert sérstaklega á síðari árum þar sem ég er búsettur erlendis. Hvíl í friði, afi. Ég mun ávallt hugsa hátt til þín. Arnar. Helgi Markús Kristófersson HINSTA KVEÐJA Elsku afi. Okkur langar að þakka þér fyrir allar þær samverustundir sem við áttum saman, þá sér- staklega tímann okkar í kjall- aranum á Silfurteignum. Hann var okkur ómetanlegur. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Minning þín lifir í hjörtum okkar. Ólafur, Ester og Tinna Karitas.  Fleiri minningargreinar um Helga Markús Kristófersson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Vilberg Kjart-an Þorgeirsson fæddist í Keflavík á lýðveldisdaginn 17. júní 1944. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut í Reykjavík 8. janúar 2011. Foreldrar hans voru Þorgeir Ósk- ar Karlsson, f. 5. mars 1917, d. 26. október 1995, og Helga Ingibjörg Magnúsdóttir, f. 22. október 1918, d. 23. maí 1995. Systkini Vilbergs sam- mæðra voru: 1) Gunnar Karl, f. 25. mars 1940, d. 8. mars 2001. Hann átti fjögur börn. 2) Sig- urður Þorgeirsson, f. 30. janúar 1946, d. 13. júlí 2010. Hann átti fimm börn og eina fósturdóttur. 3) Magnea Vilborg Þórsdóttir, f. 7. júlí 1956, gift Jóni Kristni Guðmundssyni, þau eiga tvö börn. 4) Hólmfríður Jósefína Þórsdóttir, f. 11. nóvember 1958, d. 9. febrúar 1966. Systkini Vil- bergs samfeðra eru: 5) Margeir, kvæntist Vilberg eftirlifandi eig- inkonu sinni, Guðrúnu Björk Jó- hannesdóttur, f. 4. nóvember 1946. Börn Vilbergs og Guð- rúnar eru: 2) Erla Dröfn Vil- bergsdóttir, f. 8. febrúar 1965, maki hennar er Magnús Krist- insson f. 15. febrúar 1965. Þau eiga fjögur börn, Kristófer Arn- ar, f. 1. september 1989, Vilberg Andri, f. 28. nóvember 1993, Sara Birgitta, f. 4. september 1995, og Viktoría Erla, f. 26. des- ember 2006. 3) Helga Jóhanna Vilbergsdóttir, f. 14. maí 1969, sonur hennar er Sævar Ingi Þór- hallsson, f. 29. október 1997. 4) Birgitta María Vilbergsdóttir, f. 9. desember 1975, unnusti henn- ar er Þorsteinn Hannesson, f. 15. september 1978. Sonur Birgittu Maríu er Nói Sebastían Gunn- arsson, f. 27. maí 2006. Vilberg var félagi í Verkstjórafélagi Suðurnesja, Golfklúbbi Suðurnesja og Stang- veiðifélagi Keflavíkur. Hann vann hjá Esso í fjörutíu ár við flugvélaafgreiðslu á Keflavík- urflugvelli en hafði áður unnið ýmis önnur störf. Jarðarför Vilbergs fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 18. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. f. 24. september 1955, kvæntur Ástríði Lilju Guð- jónsdóttur, f. 15. nóvember 1955, þau eiga fjögur börn. 6) Katrín Ósk, f. 20. nóv- ember 1957, gift Guðmundi Gesti Þórissyni, f. 3. ágúst 1960, þau eiga tvo syni. Katr- ín átti einn son áð- ur. 7) Ingibergur, f. 2. mars 1963, kvæntur Málfríði Baldvins- dóttur, f. 23.4. 1966, þau eiga tvö börn. Vilberg eignaðist soninn 1) Magnús Þór, f. 19. janúar 1964. Barnsmóðir hans er Hrönn Þor- móðsdóttir, f. 3. júní 1946. Eig- inkona Magnúsar er Harpa Jak- obína Sæþórsdóttir f. 7. mars 1968. Þau eiga þrjú börn: 1) Har- aldur Bjarni, f. 17. maí 1989. 2) Eyrún Ósk, f. 13. maí 1991. 3) Marta Hrönn, f. 27. febrúar 1996. Þann 18. apríl árið 1965 Elsku pabbi minn, ég á í erf- iðleikum með að trúa að þú sért farinn. Þetta er allt saman svo óraunverulegt. Þú barðist eins og hetja í veikindum þínum. Ég var svo vongóð allt síðasta ár að þú myndir sigrast á sjúkdómnum sem hrjáði þig. Þú komst vel út úr skoðunum, en áttir auðvitað mis- jafna daga eftir lyfjagjafirnar. Þú reyndir eftir fremsta megni að halda áfram að lifa eðlilegu lífi, nýbúinn að fara átján holur í Leir- unni. Svo ertu allt í einu farinn. Þetta bar svo skjótt að, þess vegna er allt enn erfiðara. Eins og þú sagðir á sjúkrahúsinu: „Þetta er bara leikrit“. Mér líður nákvæm- lega þannig, eins og ég sé stödd í einhverju átakanlegu leikriti eða eins og við systurnar og mamma höfum oft sagt undanfarna daga að það sé engu líkara en að við séum fastar í einhverju „Twilight Zone“. En svo vakna ég á morgnana og raunveruleikinn blasir við mér. Elsku pabbi, þú varst alltaf kletturinn minn, alltaf boðinn og búinn að hjálpa mér, sama hvað. Það var svo gaman þegar ég var lítil, þegar þið mamma fóruð með okkur systurnar í öll ferðalögin. Stundum vorum við í tjöldum og það þótti mér rosalega gaman. Síð- an fórum við óteljandi sumur í sumarbústað hjá Esso við Laug- arvatn, en sá staður á alveg sér- stakan sess í hjarta mínu. Árið 2005 fóruð þið mamma til Mal- lorca, eins og stundum á sumrin, og við Sævar minn komum til ykk- ar í eina viku. Það var yndislegt; sól, sumar og engar áhyggjur. Sú minning og tilfinning er dýrmæt- ari en svo margt. Þú varst alltaf svo góður við Sævar Inga minn, hann hefur alltaf verið svo mikið hjá ykkur á Smáratúninu þannig að hann hefur misst miklu meira en afa sinn, hann missti líka klett- inn sinn. Elsku fallegi pabbi minn, ég kveð þig með þessum orðum. Ég veit að þér líður betur núna, þján- ingarlaus og frjáls, með Fríðu systur þinni, Sigga og Gunna Kalla bræðrum þínum, Helgu ömmu og Geira afa. Við systurnar munum passa mömmu og hún okkur. Þín dóttir og afastrákur, Helga og Sævar Ingi. Elsku hjartans pabbi minn. Nú er komið að leiðarlokum, í bili. Ég vakna við vondan draum á hverj- um degi eftir að þú fórst. Fyrir ekki svo löngu varstu hérna hjá mér en ekki lengur. Þar sem áður var hnútur í maganum á mér er bara tómarúm. Við ætluðum að ná tökum á sjúkdómnum en með tím- anum gengu lyfjameðferðirnar nærri þér. Þig verkjaði í hendur og fætur en þú kvartaðir samt aldrei en á einum tímapunkti fann ég fyrir vissri uppgjöf. Það var margt sem þú gast ekki lengur gert og þótti þér það miður enda laghentur maður. Þá kom hjálpin oftast óumbeðin og voru Maggi tengdasonur þinn og Gunnar Þór afar ötulir við að aðstoða þig og verð ég þeim ævinlega þakklát. Stutt er stórra högga á milli þar sem það er einungis hálft ár síðan Siggi, litli bróðir þinn, lést. Það fékk mjög mikið á þig og fannst þér virkilega erfitt að fylgja hon- um til grafar. Þrátt fyrir allt sem gekk á varstu svo duglegur og sterkur enda varstu hetjan okkar allra. Ég er afar þakklát fyrir margt sem við gerðum saman og þar standa góðar minningar eftir. Öll ferðlögin, eins og síðastliðið vor þegar við tvö fórum saman í feðg- inaferð til Toronto, en einnig öll ferðalögin með fjölskyldunni hérna áður fyrr og ekki síst undanfarin ár eftir að Nói minn fæddist. Þú varst mikill fjölskyldumaður og afabörnin áttu afar sérstakan sess hjá þér. Nói var ekki orðinn gamall þegar hann lærði að segja afi Lilli. Þá var oft í koti kátt á Smáratúninu og þinn einstaki eig- inleiki, sem faðir og svo afi, skein í gegn enda varstu ætíð reiðubúinn að bregða á leik; að fara á róló, sitja og byggja úr kubbum eða fara í göngutúra þar sem styrk afahöndin hélt fast í lítinn lófa. Ég mun gera allt mitt besta til þess að Nói Sebastían muni eftir þér, bæði með sögum og myndum. Það er huggun í harmi að nú ertu ekki kvalinn lengur og sé ég þig fyrir mér önnun kafinn eins og í lifanda lífi, í golfi, blaki eða í veiði í góðum félagsskap. Okkar missir er mikill, elsku hetjan mín, og munum við í fjöl- skyldunni styðja hvert annað á þessum erfiðu tímum. Takk fyrir allt, elsku pabbi, þú ert bestur. Hjartans knús og koss. Ég veit af lind, er líður fram sem ljúfur blær. Hún hvíslar lágt við klettastall sem kristall tær. Hún svalar mér um sumardag, er sólin skín. Ég teyga af þeirri lífsins lind, þá ljósið dvín. Og þegar sjónin myrkvast mín og máttur þver, ég veit, að ljóssins draumadís mér drykkinn ber. Svo berst ég inn í bjartan sal og blessað vor. Þá verður jarðlífs gatan gleymd og gengin spor. En lindin streymir, streymir fram, ei stöðvast kann, og áfram læknar þunga þjáðan, þyrstan mann. (Hugrún.) Þín dóttir og afastrákur, Birgitta María. Vilberg K. Þorgeirsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi Villi. Ég mun sakna þín rosalega mikið og alltaf elska þig, elsku afi. Kveðja. Þinn litli strákur, Nói Sebastían Gunnarsson.  Fleiri minningargreinar um Vil- berg K. Þorgeirsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.