Morgunblaðið - 18.01.2011, Page 23

Morgunblaðið - 18.01.2011, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011 ✝ Páldís var fædd áSjávarhólum á Kjalarnesi 22. sept- ember 1921. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 5. janúar 2011. For- eldrar hennar voru Halldóra Pálsdóttir, f. 29.5. 1892, d. 5.6. 1984, og Júlíus Sveinsson, f. 15.8. 1890, d. 26.10. 1969. Páldís ólst upp hjá móðurömmu sinni Elínu Halldórsdóttur á Sjávarhólum en við andlát ömmu sinnar Elínar 1931, fluttist Páldís til móður sinnar, til Reykjavíkur. Bróðir Páldísar sammæðra er Gísli V. Einarsson, f. 14.6. 1931. Hinn 8. maí 1948 giftist hún Konráði Davíð Jóhannessyni, f. 12.11. 1922, d. 21.11. 1985. Hann og Sigurðar eru Sindri Páll, iðn- hönnuður, f. 14.2. 1983, maki: Hanna Birna Geirmundsdóttir, Halldór Smári, háskólanemi, f. 4.10. 1988, og Davíð Steinn, nemi, f. 15.11. 1992. Elín, félagsráðgjafi, 30.3. 1963, maki, Guðni Bergsson, lögmaður. Börn Elínar og Guðna eru Bergur, nemi, f. 6.1. 1992, Pál- dís Björk, f. 10.2. 1998. Páldís kláraði skyldunám við Austurbæjarskóla. Sem ung kona vann hún við bókband hjá Ísafold- arprentsmiðju og eftir að hún gift- ist var hún heimavinnandi hús- móðir. Páldís var mikil hannyrðakona. Heimili Páldísar og Konráðs var á Barónsstig 55, þar fæddust dæturnar og ólust upp. Á efri árum bjó Páldís í Víði- hlíð 38 í sama húsi og Halldóra og Þorvaldur. Síðan flutti hún á Sléttuveg 11 og að síðustu, í tvö og hálft ár, bjó hún á Droplaug- arstöðum. Útför Páldísar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 18. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. var sonur Elísabetar Davíðsdóttur og Jó- hannesar Kr. Jó- hannessonar. Hann starfaði lengst af við eigin heildsölu. Dæt- ur þeirra eru: Hall- dóra, f. 20.1. 1954, fulltrúi, maki, Þor- valdur Sigurbjörns- son, húsasmiður. Synir Halldóru og Þorvaldar eru Kon- ráð Davíð, hagfræð- ingur, f. 28.2. 1978, d. 6.3. 2010, maki, Arna Björk Þorkelsdóttir, þeirra barn Konráð Pétur, Tómas Páll, háskólanemi, f. 4.3. 1985, maki, Edda Þuríður Hauksdóttir, dóttir þeirra Rakel Elísabet. Elísabet, f. 30.8. 1958, barnahjúkrunarfræð- ingur, maki: Sigurður Hall- dórsson, arkitekt. Synir Elísabetar Elsku Páldís mín, það er erfitt að setjast niður og kveðja þig með þessum orðum. Við gátum gantast með þetta þegar þú talaðir um að þú færir nú að fara. Ég var nú ekki ald- eilis á því að þú værir að fara eitt eða neitt. Maður vildi ekki hugsa þá hugsun, enda áttir þú svo stóran sess í hjörtum okkar allra. Ég kom inn í fjölskylduna fyrir 26 árum þeg- ar ég og Ella, dóttir Páldísar, tókum saman og varð strax ljóst hvað mæðgurnar voru allar nánar. Maður giftist eiginlega öllum „pakkanum“ og líkaði það bara vel. Páldís tók líka alltaf málstað tengdasonanna með glettni í augum þegar systurnar voru að skjóta á okkur félagana. Þau voru ótal mörg skiptin sem Páldís kom í heimsókn til Englands með hlýju sína og elsku með í för. Tengdamamma hafði svo einstak- lega góða nærveru. Hún náði vel til allra og hafði þann dýrmæta eigin- leika að draga það besta fram í fólki. Ekki var nú heldur tengdamamma að taka hlutina of alvarlega. Hlátur- mildin og gleðin var aldrei langt undan. Hlátursköstin óteljandi. Ég átti t.d. að skrifa ævisögu hennar og finna einhvern enskan lord fyrir hana svo að hún yrði nú loksins „fín frú“. Páldís átti líka ömmubörnin, Berg og Páldísi Björk, sem elskuðu að fá ömmu Pöllu í heimsókn. Þau voru henni svo náin eins og öll henn- ar barnabörn og eiga eftir að sakna ömmu sinnar mikið. Maður man og rifjar upp allar þessar góðu stundir sem við áttum saman á Englandi og heima á Íslandi. En lífið eins og gengur var ekki bara dans á rósum. Það voru líka tímar þegar veikindi og erfiðleikar steðjuðu að. Sú barátta sem kvaddi stundum dyra náði aldrei að dimma neistann og vilja Páldísar til þess að vera með fólkinu sínu og sjá það dafna. Það var það sem dreif hana alltaf áfram og eðlislæga gleðin tók við á ný. Það er svo margt sem mann langar að segja frá og deila með öðr- um um hana tengdamömmu. Saga hennar er í raun svo merkileg og fal- leg. Páldís var einstök manneskja, brosið hennar, hláturinn og hlýja mun ávallt lifa með mér í minning- unum. Elsku Páldís mín, ég kveð þig með söknuði en ekki síður þakklæti fyrir að hafa átt þig fyrir tengdamömmu. Hvíl í friði. Þinn tengdasonur, Guðni. Elsku amma mín. Ég trúi ekki að komið sé að kveðjustund. Ég mun aldrei gleyma tímanum sem við átt- um saman úti í Bolton þegar ég svaf í skúffunni við hlið þér. Mér fannst alltaf svo gott að vita af þér fyrir of- an mig. Oftar en einu sinni gekk mér illa að sofna, þá reisti ég mig við og vakti þig. Við spjölluðum lengi vel. Eftir langt spjall sagði þú mér að ímynda mér kindur sem væru að hoppa yfir grindverk einhvers stað- ar uppi í sveit og telja hvað margar kindur kæmust yfir. Ég gerði þetta og sofnaði alltaf á endanum og geri þetta enn þegar ég er andvaka. Alltaf þegar við spjölluðum leið mér eins og við værum jafnaldrar. Það var aldrei langt í húmorinn hjá þér. Ég man sérstaklega eftir einu skipti þegar pabbi kom labbandi upp stigann í Búlandinu, þú sast á rauða bekknum og heyrðir í honum koma upp, þá sagði þú; „kemur aulinn“ og fórst síðan að skellihlæja eftir á. Svo má ekki gleyma öllum jóla- gjöfunum, afmælisgjöfunum og öll- um glaðningunum sem þú gafst okk- ur frændum og Páldísi. Alltaf voru þeir vafðir í álpappír. Okkur barna- börnunum þótti þetta alltaf jafn fyndið og skemmtilegt. Oftar en ekki voru þetta sléttir litlir pakkar með álpappír utan um og alltaf jafn augljóst hvað var í þeim sem okkur þótti mjög skemmtilegt. Ég kveð þig með söknuði amma mín. Þín verður sárt saknað og alls hins góða sem kom frá þér. Góðu stundanna mun ég minnast með gleði í hjarta og með miklu þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum sam- an. Hvíldu í friði elsku amma mín og Guð veri með þér. Þinn Bergur. Elsku amma mín. Þegar ég hugsa um allar skemmti- legu samræðurnar sem við áttum, fallega brosið þitt og smitandi hlát- urinn finn ég fyrir gríðarlegum söknuði. Það var enginn eins og þú, hvar sem þú varst lýstir þú upp um- hverfið í kringum þig með þinni kómísku sýn á lífið. Þú varst alltaf svo góð við okkur barnabörnin og varst tilbúin að gera allt fyrir okkur. Einnig tókstu svo vel á móti henni Eddu minni frá fyrstu kynnum og var það vissulega falleg sjón að fylgjast með þér ljóma þegar þú sást hana litlu Rakel okkar. Jafnvel und- ir það síðasta þegar við komum með Rakel í heimsókn til þín mátti sjá hvernig augun þín lifnuðu við og ást- in og væntumþykjan skein í gegn. Þú varst alltaf langflottasta amman og allir sem voru í kringum þig, fjöl- skylda eða vinir, nutu þess að eyða tíma með þér. Mín fyrsta minning er þegar þú komst og náðir í mig í leikskólann Grænuborg. Þú áttir heima á Bar- ónsstígnum og við röltum saman þangað og gerðum margt skemmti- legt þangað til mamma kom og náði í mig. Síðar meir bjuggum við saman í Víðihlíðinni þar sem við eyddum heilu dögunum saman í leikjum og fíflalátum. Þú varst alltaf til staðar frá því ég man eftir mér og erfitt er að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur. Það er þó vissulega ákveðin huggun að þú sért nú í faðmi Kon- ráðanna okkar. Maður getur reynt að koma því niður á blað hversu ynd- isleg þú varst en öll heimsins orð gætu ekki náð utan um þá ótrúlegu manneskju sem þú hafðir að geyma. Þú varst vissulega langskemmtileg- asta amman og húmorinn var alltaf til staðar og hitti beint í mark. En þegar ég hugsa til baka þá var það þín einstaka hjartahlýja sem ég mun sakna hvað mest. Við börnin þín fundum öll hvað þú varst stolt og montin af okkur og þessi skilyrðis- lausa ást og umhyggja sem þú gafst okkur öllum mun aldrei gleymast. Tómas Páll Þorvaldsson, Edda Þuríður Hauksdóttir og Rakel Elísabet Tómasdóttir. Þegar ég kynntist honum Konráði mínum fyrir tæpum ellefu árum fékk ég í kaupbæti hana Páldísi ömmu. Þau Konráð voru miklir vinir og hann heimsótti hana oft meðan honum entist heilsa til. Páldís og Konráð voru lík í sér, bæði sérvisku- full. Eitt dæmi um það var álpappír, Páldís var mjög hrifin af honum og notaði hann gjarnan sem gjafapapp- ír. Eitt sinn kom hún í heimsókn til okkar Konráðs og gaf okkur fallega kristalsskál sem Halldóra móðir hennar hafði átt. Með skálinni fylgdi dós af niðursoðnum ferskjum og rjómi. Ferskjurnar fóru í skálina og Páldís fékk sér þær með rjómanum. Hún skildi ekkert í okkur Konráði að þiggja ekki svona fínar veitingar, hvað þá að við borðuðum hvorugt rjóma. En skálin var svo falleg að eina tækifærið sem við þorðum að nota hana við, var skírn sonar okkar Konráðs Péturs. Kristalsskálin var skírnarskálin hans og verður hans þegar hann hefur aldur til að meta slíka gersemi. Þegar Konráð var að ljúka lífi sínu upp á Líknardeild kom hún Páldís að heimsækja hann, þrátt fyrir að heils- an hennar væri ekki uppá sitt besta. Einnig mætti hún í kistulagningu hans og útför og sýndi þar styrk sinn og þrótt. Núna er Páldís farin til ömmustráksins síns og það er gott að hugsa til þeirra einhvers staðar hlæjandi saman. Við Konráð Pétur sendum, Dóru ömmu, Betu frænku og Ellu frænku, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Einnig tengdasonunum og barna- börnunum, Páldísi yngri og öllum strákunum. Arna. Bestu bestu frænku kallaði ég hana Páldísi ætíð og ekki að tilefn- islausu enda orð að sönnu. Fyrstu tólf ár ævi minnar bjuggum við í sama húsi, Barónsstíg 55 sem var hús fjölskyldna okkar. Ég barnið og hún táningurinn og mikið óskaplega reyndist hún mér vel, ekki bara þá sem barni heldur alla tíð. Það er margs að minnast og ekki síst þeirra mörgu gleðistunda sem við áttum saman en það var ekki með nokkru móti hægt að standast smitandi hlátur hennar þegar því var að skipta. Ég vil þakka sam- fylgdina og votta hennar yndislegu börnum, barnabörnum og ættingj- um samúð mína. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Margrét Árnadóttir og fjölskylda. Páldís Eyjólfs ✝ Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN EINAR BJARNASON húsgagnabólstrari, Hvassaleiti 56, lést á Landspítala Landakoti mánudaginn 3. janúar. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð. Þökkum starfsfólki á Landakoti fyrir frábæra umönnun og hlýtt viðmót í veikindum hans. Una G. Aradóttir, Helgi Örn Jóhannsson, Jónína Hörgdal, Magnea Jóhannsdóttir, Jón Ólafsson, Einar Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, HELGA ÞORSTEINSDÓTTIR, andaðist á Hrafnistu Hafnarfirði miðvikudaginn 12. janúar. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju miðviku- daginn 19. janúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Arthur Stefánsson, Áslaug Arthursdóttir, Oddgeir Þór Árnason, Nanna Arthursdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Þorsteinn Arthursson, Guðrún Petra Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SÓLVEIG KARVELSDÓTTIR, lést á heimili sínu laugardaginn 15. janúar. Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 28. janúar kl. 13.00. Sigurður Pálsson, Páll Daníel Sigurðsson, Linda Sjöfn Þórisdóttir, Edda Huld Sigurðardóttir, Þorlákur Már Árnason, Eggert Sigurðsson, Ásta Björk Lundbergsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, AÐALHEIÐUR FINNBOGADÓTTIR, Brattholti 3, Mosfellsbæ, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugar- daginn 15. janúar. Svavar T. Óskarsson, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNDÍS TÓMASDÓTTIR, Jökulgrunn 7, Reykjavík, lést laugardaginn 15. janúar. Eiríkur Eiríksson, Marie M. Eiríksson, Auðunn Eiríksson, María Sighvatsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.