Morgunblaðið - 18.01.2011, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011
✝ Kristinn Odds-son fæddist í
Reykjavík 17. maí
1933. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans við
Hringbraut 7. jan-
úar 2011.
Foreldrar hans
voru Oddur Einar
Kristinsson, f. 22.
september 1905, d.
10. desember 1985
og Stefanía Ósk
Jósafatsdóttir, f. 1.
júní 1906, d. 14.
mars 1986. Bræður Kristins:
Gunnar, f. 20. mars 1932, kvænt-
ur Guðrúnu Ólafsdóttur, Þórir, f.
1. september 1934, d. 9. júní 1993,
kvæntur Guðrúnu Ósk Sigurð-
ardóttur og Hafsteinn, f. 9. októ-
ber 1941, kvæntur Fanneyju
Önnu Reinhardsdóttur.
Kristinn kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni 13. desember
1969, Hansínu Bjarnadóttur, f. 9.
desember 1948. Börn Kristins og
Hansínu eru: 1) Rut Krist-
insdóttir, f. 12. september 1967,
Evy Brittu Kristinsdóttur, f. 10.
maí 1960, börn hennar Arnar
Már Ottósson, f. 12. desember
1978, giftur Bryndísi Jón-
asdóttur, f. 18. september 1980
og dætur þeirra: Lena Rós, f. 6.
júní 1999 og Rakel Ösp, f. 27. des-
ember 2007; Ragnar Örn Ott-
ósson, f. 12. desember 1978, gift-
ur Xileth Patriciu Butamante
Coloné, f. 13. apríl 1980; Christel
Liff Ottósdóttir, f. 8 júní 1990 og
Thelma Karen Ottósdóttir, f. 4.
ágúst 1991, sonur hennar Oliver
Kristinn, f. 12. ágúst 2009.
Kristinn ólst upp í Reykjavík,
fyrst á Laugavegi 143 en síðar að
Grenimel 17 í Reykjavík. Hann
bjó alla tíð í Reykjavík og síðustu
árin á Kristnibraut 77 í Graf-
arholti. Kristinn vann sem bif-
reiðarstjóri hjá Sendibílastöðinni
hf. þar sem hann sá um flutninga
m.a. fyrir Mylluna og Málning-
arverksmiðjuna Hörpu. Kristinn
varð starfsmaður Málning-
arverksmiðjunnar Hörpu 1985 og
starfaði þar til ársins 2000. Krist-
inn gekk í Frímúrararegluna
1959 og var þar virkur félagi.
Kristinn verður jarðsunginn
frá Guðríðarkirkju í Grafarholti
kl. 13 þriðjudaginn 18. janúar
2011.
gift Jóhanni Björg-
vinssyni, f. 3. októ-
ber 1965, börn
þeirra: Ýr, f. 15.
september 1992,
Þrándur, f. 10. des-
ember 1994 og
Kári, f. 7. apríl
1999; 2) Oddur Ein-
ar Kristinsson, f.
14. júní 1969,
kvæntur Sig-
urbjörgu Fjöln-
isdóttur, f. 8. des-
ember 1975, sonur
þeirra Dagur Már,
f. 17. janúar 2003, dætur Sig-
urbjargar eru Hrafnhildur Lára,
f. 17. júní 1992 og Steinunn Lóa,
f. 30. apríl 1996. Fyrir átti Krist-
inn þau a) Alfons Sigurð Krist-
insson, f. 1. mars 1957, börn hans
Gunnhildur Anna, f. 14.11. 1983, í
sambúð með Guðjóni Einari Guð-
mundssyni, börn hennar Tómas
Snær, f. 24. desember 2005, Anna
Guðrún, f. 8. ágúst 2007 og Birna
María, f. 21. nóvember 2010; Árni
Kristinn, f. 18. ágúst 1993 og Sig-
ríður Ása, f. 18. ágúst 1995; b)
Elsku pabbi minn.
Nú hefur það því miður gerst
að vond frétt til manns berst:
Kær faðir er horfinn okkur frá
því lífsklukkan hans hætti að slá.
Rita vil ég niður hvað hann var mér
kær,
pabbi minn góði sem guð nú fær.
Hann gerði svo mikið, hann gerði
svo margt
og því miður get ég ekki nefnt það
allt.
Að tala við hann var svo gaman
á þeim stundum sem við eyddum
saman.
Hann var svo góður, hann var svo
klár,
æ hvað þessi söknuður er svo sár.
En eitt er þó víst,
og það á við mig ekki síst,
að ég sakna hans svo mikið, ég
sakna hans svo sárt,
hann var mér góður faðir, það er
klárt.
En alltaf í huga mínum verður hann
pabbi minn góði, sem ég ann,
í himnaríki fer hann nú,
þar verður hann glaður, það er mín
trú.
Því þar getur hann vakað yfir okkur
dag og nótt,
svo við getum sofið vært og rótt.
Hann mun ávallt okkur vernda,
vináttu og hlýju mun hann okkur
senda.
Elsku pabbi, guð mun þig geyma,
yfir okkur muntu sveima,
en eitt vil ég þó að þú vitir nú,
minn allra besti vinur, það varst þú.
(K.R.Þ.)
Blessuð sé minning þín, elsku
yndislegi, góði pabbi minn, ég kveð
þig með sárum söknuði.
Þín dóttir,
Evy Britta.
Haustið 1998 hlotnaðist mér sá
heiður að fá nýja fjölskyldu inn í
mitt líf. Þessi fjölskylda hefur
reynst mér og mínum ótrúlega vel,
en hún samanstendur að mestu
leyti af manninum mínum honum
Oddi, Hansínu tengdamömmu og
Didda tengdapabba, ásamt slatta
af börnum, barnabörnum, tengda-
börnum og ýmsu fleiru sem ég
kann varla að nefna. Það hefur ver-
ið helsta vandamálið hjá mér að
vita nákvæmlega hver er tengdur
hverjum í þessari stóru fjölskyldu
og þá sérstaklega hver er systir
hverrar og hvað þær heita nú allar.
Það er ótrúlega mikill missir að
missa höfuð þessarar stóru fjöl-
skyldu sem hann Diddi var. Það er
ekki hægt að minnast Didda öðru-
vísi en með hlýju, virðingu og
þakklæti. Hann var alltaf klettur-
inn sem allir reiddu sig á. Hann var
vel inni í flestum ef ekki öllum mál-
um, enda um atvinnumann í
áhyggjum í garð annarra að ræða.
Áhyggjurnar komu ekki til af kvíða
eða óöryggi, heldur af umhyggju.
Við fjölskyldan mín förum mikið í
ferðalög út fyrir borgarmörkin, og
þá brást það ekki að Diddi hringdi
áður en við fórum og hafði áhyggj-
ur af hvernig við værum dekkjuð,
hvort við værum búin að láta
smyrja bílinn, hvort bíllinn væri
nokkuð að fara drulluskítugur út
úr bænum, hvernig bremsurnar
væru og fleira í þeim dúr.
Sumt ákváðum við hjónin að
segja Didda ekki, eins og ef það
var búið að skrölta í bílnum í ein-
hvern tíma en við vorum samt á
leiðinni út á land á honum. Svo
ákváðum við líka að segja honum
ekkert frá því að við værum að
gera tilboð í hús, vildum ekki valda
honum óþarfa áhyggjum af því í
langan tíma. Við vildum helst ekki
segja honum að þetta væri gamalt
timburhús í Hafnarfirðinum, því
auðvitað fór hann að tala um
veggjatítlur um leið og hann vissi
hvenær húsið var byggt og úr
hverju.
Diddi tók yndislega á móti dætr-
um mínum sem ég átti af fyrra
sambandi. Þær voru 2ja og 6 ára
þegar við kynntumst Didda og ég
man að um leið og þær hittu hann
fyrst fóru þær beint í afastól þar
sem hann fagnaði þeim innilega.
Þær kölluðu hann afa um leið og
hafa alltaf litið á hann sem slíkan.
Diddi og Hansína hafa alltaf komið
fram við stelpurnar mínar sem sín
eigin barnabörn, þær hafa aldrei
fengið öðruvísi móttökur frá þeim.
Diddi var með skemmtilegan
húmor og léttur í skapinu. Eina
yndislega og lýsandi sögu fyrir
hann sagði Rut mágkona mín í
brúðkaupi mínu og fjallar um
hvernig Diddi lagði nöfn dætra
minna á minnið. „Þetta er mjög
einfalt: S (Steinunn) fyrir small og
L (Lára) fyrir large.“ Flóknara
þurfti það ekki að vera.
Ég vil þakka Didda fyrir allan
tímann sem við fengum saman, en
okkur fannst gaman að sitja tvö að
spjalli. Dagur Már, litli vinur hans,
á eftir að sakna hans mikið enda
voru þeir yndislegir félagar. Dagur
fékk oft að gista hjá afa og ömmu
og þá var skemmtilegast að labba
með ömmu út í sjoppu að kaupa
bland í poka, sem afi þurfti svo að
telja litla kút á að gefa sér mola af.
Dagur á örugglega oft eftir að setj-
ast í afastól og finna fyrir góðri
nærveru afa síns. Þetta er skrifað
fyrir hönd allra sem minnast Didda
á sama hátt og ég.
Sigurbjörg Fjölnisdóttir.
Elsku afi minn. Ég mun aldrei
gleyma þeim stundum sem við átt-
um saman og ég er svo þakklát að
hafa kynnst þér. Kristinn Oddsson
eða Diddi eins og hann var alltaf
kallaður af fólkinu sínu var elsku-
legur og yndislegur í alla staði og
ég fékk þau forréttindi að þekkja
hann í 20 ár. Ég ólst upp í Breið-
holtinu og afi og amma áttu heima í
hverfinu við hliðina á okkur á þeim
tíma. Á hverjum degi kom afi labb-
andi í heimsókn til okkar og ég
beið oft út í glugga að bíða eftir
honum. Afi á stóran þátt í því hver
ég er í dag, allur sá stuðningur sem
hann og amma hafa sýnt mér og
gefið mér í gegnum árin er ólýs-
anlegur og hefur skipt mig miklu
máli.
Mér finnst sárt að kveðja þig,
elsku afi minn, en ég er þakklát að
hafa fengið að lifa með þér og ég
fagna þeim minningum sem við
höfum skapað saman. Hvíldu í
friði, elsku afi minn, og Guð veri
með þér.
Þín,
Christel.
Elskulegi afi, njóttu
eilíflega Guði hjá,
umbunar þess, er við hlutum,
ávallt þinni hendi frá;
þú varst okkar ungu hjörtum,
eins og þegar sólin hlý,
vorblómin með vorsins geislum
vefur sumarfegurð í.
Líkt og sól að liðnum degi,
laugar kvöldið unaðsblæ,
gyllir skýin gullnum roða,
geislum slær á lönd og sæ.
Þannig burtför þín í ljósi,
þinnar ástar, fögur skín.
Okkur fluttu ótal gæði
elskuríku störfin þín.
Hjartkær afi, far í friði,
föðurlandið himneskt á,
þúsundfaldar þakkir hljóttu
þínum litlu vinum frá.
Vertu sæll um allar aldir,
alvaldshendi falin ver;
inn á landið unaðsbjarta,
englar Drottins fylgi þér.
(Höfundur ókunnur.)
F.h. afa- og langafabarna,
Ragnar Örn og Arnar Már.
Kristinn Oddsson
HINSTA KVEÐJA
Kveðja frá dóttur og tengda-
syni.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Rut og Jóhann.
Fleiri minningargreinar um Krist-
inn Oddsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN Ö. STEPHENSEN,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn
19. janúar kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ás
styrktarfélag.
Jón Torfi Jónasson, Bryndís Ísaksdóttir,
Ögmundur Jónasson, Valgerður Andrésdóttir,
Ingibjörg Jónasdóttir, Guðmundur Gíslason,
Björn Jónasson, Elísabet Guðbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN M. BJARNASON
rafvirkjameistari,
Kríuási 15,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 19. janúar kl. 13.00.
Kristín Árnadóttir,
Arna H. Jónsdóttir, Guðmundur Vignir Óskarsson,
Guðríður Jónsdóttir, Konráð Jónsson,
Katrín Jónsdóttir, Björn J. Brandsson,
Kolbrún Jónsdóttir, Þorgeir Haraldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGIMAR ÞORLÁKSSON,
Skálarhlíð,
Siglufirði,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar
fimmtudaginn 13. janúar.
Útför fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
22. janúar kl. 11.00.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Kvenfélagið Von.
Erla Ingimarsdóttir, Konráð Baldvinsson,
Guðfinna Ingimarsdóttir,
Þórdís Ingimarsdóttir, Ragnar Ragnarsson,
Jóhanna Ingimarsdóttir, Sveinn Einarsson,
Sólrún Ingimarsdóttir, Oddur Óskarsson,
Björn Ingimarsson, Lukrecija Bokan Daníelsdóttir,
Birgir Ingimarsson, Pálína Kristinsdóttir,
Bylgja Ingimarsdóttir, Guðbrandur Skúlason,
Rakel Björnsdóttir, Thomas Fleckenstein,
Baldvin Kristjánsson, Jóna Heiðdal.
✝
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi,
RALPH THOMAS HANNAM,
lést laugardaginn 15. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn
25. janúar kl. 15.00.
Vilhjálmur Leifur Tómasson,
Sólveig Hannam, Árni Ólafur Lárusson,
Júlía Hannam, Ragnar Þ. Ragnarsson,
Elísabet Hannam, Örn Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og frænka,
HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést í Boston sunnudaginn 2. janúar.
Bálför hefur farið fram.
Erna Íris Ólafsdóttir, Frank Scalero,
Jón Páll Ólafsson, Brooke Lombardy,
Andrew Jens Scalero,
Nikolas Rimond Scalero,
Tómás Helgason frá Hnífsdal.