Morgunblaðið - 18.01.2011, Page 26

Morgunblaðið - 18.01.2011, Page 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011 Smáauglýsingar 569 1100 Spádómar ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI – Spámiðill Spái í spil og kristalskúlu Heilunartímar Fyrirbænir Algjör trúnaður Sími 618 3525 www.engill.is Dýrahald Pomeranian hvolpar Til sölu pomeranian hvolpar (rakkar), tilbúnir til afhendingar. Ættbók. Upplýsingar í s. 861-0460. Veitingastaðir Frystiskápar fyrir veitingastaði og matvælaframleiðendur Stærð: H: 2010 x B: 1340 x D: 800 mm. 1200 ltr. 42cu.ft. Verð 449.500.- m/vsk. Senson s. 511 1616, Skútuvogi 12b. Sumarhús Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratugareynsla. Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald C.P. þjónusta. Veiti bókhalds-, eftirlits- og rannsóknarvinnu alls- konar. Hafið samband í síma 893 7733. Bókhaldsstofan ehf. Reykja- víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi, launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl, stofnun fyrirtækja. Magnús Waage, viðurkenndur bókari, s. 863 2275, www.bokhaldsstofan.is. Þjónusta Tek að mér ýmis smærri verk Upplýsingar í síma 847 8704 eða manninn@hotmail.com. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Ódýr gæðablekhylki og tonerar í prentarann þinn. Öll blekhylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is Fjarðargötu 11, Hafnarfirði Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Tilboð - þessa viku 20% afsláttur á öllum skóm Sími 588 8050, Facebook - vertu vinur. Teg. 790, vetrarskór, fóðraðir og úr mjúku leðri. Litur: Svart. Stærðir: 37 - 42. Verð: 15.785. Teg. 5204, vetrarskór, fóðraðir, úr mjúku leðri og með rennilás. Litur: Svart. Stærðir: 37 - 42. Verð: 17.500. Teg: 5103, vetrarskór, fóðraðir, úr mjúku leðri og með rennilás. Litur: Svart. Stærðir: 37 - 42. Verð: 17.500. Sími: 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18, laugardaga 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílaþjónusta                       !       "                        Hjólbarðar 14“ vetrardekk – tilboð 185/65 R 14 kr. 9800 175/70 R 14 kr. 8900 175/80 R 14 kr. 7900 195/80 R 14 kr. 8500 Einnig útsala á 13”. Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði, Dalvegur 16 b, Kópavogur, sími 544 4333. Byssur SJÓFUGLASKOT ISLANDIA 34 gr, 36 gr og 42 gr sjófuglaskotin komin. Topp gæði - botn verð. Send- um um allt land. Sportvörugerðin, sími 660-8383. www.sportveidi.is Atvinnuauglýsingar Bakari eða konditor óskast til starfa hjá Bernhöftsbakaríi ehf. Eingöngu fagmenntað fólk með sveins- eða meistararéttindi kemur til greina. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Allar frekari upplýsingar veitir Sigurður Már í síma 551-3083 eða 898-0550. Einnig má senda póst á netfangið info@bernhoftsbakari.is. Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, þriðjudaginn 25. janúar nk., sem hér segir: Aðalstræti 15, fnr. 211-9041, Ísafirði, þingl. eig. Brynjar Þór Ólafsson, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., kl. 11:00. Brimnesvegur 14, fnr. 212-6343, Flateyri, þingl. eig. Adam Pogorzelski, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 13:30. Eyrarhjallar, fnr. 212-6599, Flateyri, hesthús, þingl. eig. db. Snorra Snorrasonar, gerðarbeiðandi db. Snorra Snorrasonar, kl. 13:20. Hlíðargata 42, fnr. 212-5595, Þingeyri, þingl. eig. Konráð Kristinn Konráðsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 14:20. Langeyrarvegur 19, fnr. 229-1039, Súðavík, þingl. eig. Ari ehf., gerðarbeiðandi Súðavíkurhreppur, kl. 11:35. Langeyrarvegur 19, fnr. 229-1040, Súðavík, þingl. eig. Ari ehf., gerðarbeiðandi Súðavíkurhreppur, kl. 11:30. Suðurtangi 2, fnr. 212-0525, Ísafirði, þingl. eig. Sæfari, fél. áhugam. um sjósp. Ísaf., gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., kl. 10:30. Suðurtangi 2, fnr. 222-9261, Ísafirði, þingl. eig. Sæfari, fél. áhugam. um sjósp. Ísaf., gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., kl. 10:35. Suðurtangi 2, fnr. 222-9263, Ísafirði, þingl. eig. Sæfari, fél. áhugam. um sjósp. Ísaf., gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., kl. 10:40. Suðurtangi 2, fnr. 225-2110, Ísafirði, þingl. eig. Sæfari, fél. áhugam. um sjósp. Ísaf., gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., kl. 10:45. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrif- stofu embættisins að Hafnarstræti 1, Ísafirði, þriðju- daginn 25. janúar 2011, sem hér segir: Valur ÍS-20, skipaskr.nr. 1440, þingl. eig. Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf., gerðarbeiðandi Byggðastofnun, kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 17. janúar 2011, Bryndís Ósk Jónsdóttir, fulltrúi sýslumanns. Félagslíf  FJÖLNIR 6011011819 III  EDDA 6011011819 I  HLÍN 6011011819 IV/V I.O.O.F. Ob.1, Petrus 1911188 Á.S.MTW Ég er nú barna- barn Alla í Ási. Þetta sagði ég með stolti í hvert sinn sem ég var spurð að því hverra manna ég væri. Já, ég er sko stolt af því að hafa átt Alla sem afa, enda er Ásættin númer 1, eða það sagði afi allavega. En hann vissi það samt svo vel að hann var bara gestur og útlend- ingur á þessari jörð því föðurland hans var á himnum og hann beið þess með mikilli eftirvæntingu að fá að komast heim, sérstaklega þessa síðustu daga. Ég er svo glöð að vita það að nú sé afi komin heim, heim í himnaríki, heim til Jesú, heim þar sem við munum hittast aftur. En þegar það verður veit bara Guð og þangað til rifja Stefán Aðalsteinn Sigurðsson ✝ Stefán AðalsteinnSigurðsson fædd- ist á Ási í Vopnafirði 12. júní 1925. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Sundabúð á Vopnafirði 24. desem- ber 2010. Útför Stefáns Að- alsteins fór fram frá Vopnafjarðarkirkju 30. desember 2010. ég bara upp allar góðu minningarnar sem ég á af besta afa í heimi. Það var alltaf gam- an að fá að fara með afa á bátnum hans. Svo voru nú ófá skiptin þegar við systurnar sáum hann koma heim og hlup- um niður á bryggju til að taka á móti afa og sjá hvað hann hefði nú veitt. Ég man líka vel eftir því þegar þeir Sveinn komu lallandi upp hallann eftir að hafa landað aflanum. Ummm, fiskibollurnar hans afa voru líka þær bestu sem ég hef smakkað. Ég get ekki með nokkru móti keypt mér frosnar fiskibollur og hvað þá fiskibollur úr dós því þær komast ekki í hálf- kvisti við þær sem afi bjó til. Afi var nú aldrei þekktur fyrir mikinn söng, en ég man þó eftir því þegar ég var lítil að oft lá hann í rúminu sínu og fór fyrir mig með vísuna „Við skulum róa á selabát svo við verðum stórir. Það eru bæði þú og ég, stýrimaður og stjóri.“ Afi hafði yndi af því að vera „norður í garði“. Þetta var hans jarðneska paradís. Hann gat þó ómögulega verið kyrr heldur varð að gróðursetja tré eða reyta frá einhverju tré eða eitthvað annað að laga. Já, hann afi var atorku- mikill, það vantaði sko ekki og fékk snjórinn oft að kenna á því. Það brást ekki að það var aldrei snjór eða svell fyrir framan Ás. En þótt afi hafi eytt miklum tíma úti á sjó og í skógræktinni veit ég samt að það var ekki fisk- urinn, báturinn eða trén sem voru honum kærust. Það sem stóð hjarta hans næst var Jesú. Ég fylltist alltaf virðingu og lotningu þegar afi las úr Biblíunni. Lífið hans var einn stór vitnisburður fyrir Guð. Afi fór ekki í felur með trú sína heldur vissu allir hvar hann stóð og hverju hann trúði. Þótt auðvitað hafi afi verið mann- legur eins og við hin þá sleppti hann aldrei Jesú. Í gegnum súrt og sætt þá var Jesú alltaf hellu- bjargið hans, örugg borg. Afi var staðfastur allt til enda. Hann gafst ekki upp þó að á móti blési heldur hélt áfram og nú hefur hann fengið kórónuna sína og verðlaun erfiðisins. Ef ég mætti biðja einhvers úr fari afa þá mundi ég vilja þessa staðföstu trú. Takk, Jesús, fyrir að ég hafi fengið að vera svo lánsöm að eiga svona góðan afa. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman og fyrir allt sem afi kenndi mér. Takk, Jesús, fyrir að við getum öll farið til himins og hitt þig, að þú leiðir okkur inn í him- insdýrðarsal. Ég hef augu mín til fjallanna; hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. (Sálmur 121:1-2) Katrín Stefanía Pálsdóttir. Kæri Alli, nú þegar þú hefur kvatt þennan heim er einu gull- hjartanu færra hér á jörð. Þú varst alltaf boðinn og búinn að að- stoða og þegar þrjú lítil skott vantaði afa varstu tilbúinn að taka að þér það mikilvæga hlutverk. Þegar ég var lítil fannst mér þú eitt það flottasta sem til var. Rauðu kinnarnar, rauða hárið og stóru hendurnar, sem alltaf voru tilbúnar að hugga litla hnátu. Þeg- ar ég eltist áttaði ég mig á að rauðu kinnarnar komu til af mikilli útiveru við vinnu og stóru hend- urnar voru vinnulúnar, og því svona hrjúfar. Rauða hárið gránaði en alltaf varstu tilbúinn að hugga og gleðjast með mér. Þú tókst að þér það mikilvæga hlutverk að blessa frumburðinn minn, hann Gabríel Sólon, þó svo að þér hafi þótt bónin vera stór, þá gerðir þú það fyrir mig. Enda fannst mér enginn annar koma til greina í þetta verkefni. Fór þér það vel úr hendi eins og annað sem þú gerðir. Þú sýndir sanna vináttu þegar þó stóðst með pabba, hann talaði oft um það og mat það mikils. Það geri ég einnig. Nú tekur hann á móti sínum kæra vini. Í minningunni eru ferðir á Fuglanesinu, við veiðar og jafnvel við stýrið, spjall í stofunni í Fagra- hjallanum eða Hafnarbyggðinni, mjólkurkex með smjöri eða kavíar, ég að sniglast á bryggjunni, þar sem fylgst var af áhuga með vinnu þinni. Sjaldan sastu með hendur í skauti enda ber bærinn merki af vinnusemi þinni og ykkar bræðra. Í mínum huga hefur öðrum (karl- mönnum) reynst erfitt að feta í þín spor (sem og pabba) þar sem ég hef alltaf talið það vera hluta af verkefnum karlmanna að geta gert „allt“, því það gátuð þið. Það er einkennilegt að kveðja svo stóran part af lífi mínu, þó svo við höfum bæði elst, þá leið mér alltaf eins, og í huga mínum varstu alltaf eins. Brosandi, rauðhærður/ gráhærður, með stóru hendurnar, gullhjartað, röltandi niður á bryggju í stígvélum og bláa regn- jakkanum. Alltaf var þar eitthvað sem þurfti að huga að. Merkur maður er genginn en minning hans og verk lifa. Nú hefur þér verið fagnað á nýjum stað, af eiginkonu, bræðrum og vinum. Við hittumst að nýju, á öðrum stað. Þín, Sonja Dröfn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.