Morgunblaðið - 18.01.2011, Síða 29

Morgunblaðið - 18.01.2011, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Ofviðrið - „Langþráður draumur“ E.B. Fbl Ofviðrið (Stóra sviðið) Þri 18/1 kl. 20:00 Mið 26/1 kl. 20:00 Sun 20/2 kl. 20:00 Mið 19/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 8.k Fim 3/3 kl. 20:00 Fös 21/1 kl. 20:00 7.k Fim 3/2 kl. 20:00 9.k Fim 10/3 kl. 20:00 Þri 25/1 kl. 20:00 Fim 10/2 kl. 20:00 10.k Ástir, átök og leiftrandi húmor Fjölskyldan (Stóra svið) Sun 23/1 kl. 19:00 Lau 5/2 kl. 19:00 aukas Sun 27/2 kl. 19:00 Lau 29/1 kl. 19:00 Fös 11/2 kl. 19:00 aukas Fös 4/2 kl. 19:00 auka Lau 19/2 kl. 19:00 aukas "Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu", BS, pressan.is Jesús litli - leikferð (Hof - Hamraborg) Þri 18/1 kl. 21:00 Mið 19/1 kl. 21:00 Fim 20/1 kl. 21:00 Mið 19/1 kl. 19:00 Fim 20/1 kl. 19:00 Sýnt í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í samstarfi við LA Faust (Stóra svið) Fim 20/1 kl. 20:00 Fös 28/1 kl. 20:00 aukas Sun 13/2 kl. 20:00 aukas Lau 22/1 kl. 20:00 Sun 6/2 kl. 20:00 aukas Fös 18/2 kl. 20:00 aukas Fim 27/1 kl. 20:00 aukas Lau 12/2 kl. 20:00 aukas Aukasýningar vegna fjölda áskorana Elsku Barn (Nýja Sviðið) Fös 21/1 kl. 20:00 3.k Sun 30/1 kl. 20:00 6.k Mið 9/2 kl. 20:00 Þri 25/1 kl. 20:00 4.k Mið 2/2 kl. 20:00 Fim 10/2 kl. 20:00 Mið 26/1 kl. 20:00 5.k Fim 3/2 kl. 20:00 Nístandi saga um sannleika og lygi Afinn (Litla sviðið) Mið 19/1 kl. 20:00 4.k Lau 22/1 kl. 22:00 aukas Fös 28/1 kl. 22:00 aukas Fim 20/1 kl. 20:00 5.k Sun 23/1 kl. 20:00 8.k Lau 29/1 kl. 19:00 Fös 21/1 kl. 19:00 6.k Mið 26/1 kl. 20:00 9.k Lau 29/1 kl. 22:00 Fös 21/1 kl. 22:00 aukas Fim 27/1 kl. 20:00 10.k Sun 30/1 kl. 20:00 Lau 22/1 kl. 19:00 7.k Fös 28/1 kl. 19:00 11.k Óumflýjanlegt framhald Pabbans Nýdönsk í nánd (Litla svið) Mið 9/2 kl. 20:00 frums Mið 16/2 kl. 20:00 3.k Fim 24/2 kl. 20:00 5.k Fim 10/2 kl. 20:00 2.k Mið 23/2 kl. 20:00 4.k Fös 25/2 kl. 20:00 6.k Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Lau 22/1 kl. 14:00 Sun 30/1 kl. 14:00 Sun 23/1 kl. 14:00 Lau 5/2 kl. 14:00 Bestu vinkonur allra barna ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ HÆNU UNGARNIR Mbl., GB Fbl., EB ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF ÞESSARI! leikhusid.is / 551 1200 ÓSKABARN SÝNING Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU OPIN DAGLEGA 11-17 LEIÐSÖGN FYRIR SKÓLAHÓPA ÆSKAN OG JÓN SIGURÐSSON Menningarsjóður Hlaðvarpans út- hlutaði á föstudag rúmlega 10 millj- ónum króna til menningarmála kvenna. Í þessari fjórðu úthlutun úr sjóðnum voru veittir 19 styrkir en alls bárust yfir sjötíu umsóknir. Við úthlutun var þess gætt að styrk- irnir nýttust sem flestum konum og haft var í huga að sem flest svið menningar nytu stuðnings. Hæsta styrkinn í ár hlaut Kvennakórinn Vox feminae, eina milljón króna. Vox feminae hlýtur styrkinn til að fela Báru Gríms- dóttur tónskáldi að semja hátíð- armessu fyrir kvennakór og til að flytja messuna, hljóðrita hana og gefa út á geisladisk. Meðal annarra sem hlutu styrki eru Alma Joensen og Lovísa Arn- ardóttir, Anna Þorvaldsdóttir tón- skáld, leikhópurinn Annað svið, Bókasafn Dalvíkurbyggðar, Bryn- dís Björgvinsdóttir, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir og Jórukórinn á Selfossi. Styrkþegarnir Veittir voru 19 styrkir að upphæð um 10 milljónir króna. Styrkir Menningar- sjóðs Hlaðvarpans Út eru komin tvö hefti af Ritinu, tímariti Hugvís- indastofnunar. Þema fyrra heft- isins er heimsbíó, eða þjóð- arkvikmyndir, og eru þau Björn Ægir Norðfjörð og Úlfhildur Dagsdóttir gestarit- stjórar. Í þeim átta frumsömdu greinum sem eru í Ritinu er m.a. fjallað um hugtakið heimsbíó, arf- leifðarmyndir og hrollvekjur. Sagt er frá höfundarverki Almodóvars og myndum eftir Inarritu og Cuarón. Þema seinna heftisins er heim- speki og bókmenntir. Í því eru níu frumsandar greinar, auk þýddra texta. Lesendur eru m.a. leiddir um ranghala merkingarfræðinnar, fjallað er um togstreituna milli heimspeki og bókmennta, hug- myndir daóista um sambúð manns og náttúru, og sitthvað fleira. Um heims- bíó og heim- speki Um þessar mundir stendur yfir í Minjasafninu á Akureyri sýningin Fjársjóðir, en hún var opnuð í fyrra og lýkur í febrúar. Hugmyndin að baki sýningunni var að sýna verk ljósmyndara sem höfðu gert ljósmyndun að atvinnu og starfað í Eyjafirði í tvö ár hið minnsta. Myndir áhugamanna voru því ekki gjaldgengar. Sýningarstjóri er Hörður Geirs- son, umsjónarmaður myndasafns Minjasafnsins. Eftir hálfs árs rann- sókn var hann búinn að finna til um 250 myndir 20 ljósmyndara frá ár- unum 1858 til 1965. Hörður reyndi eftir fremstu getu að finna frum- prent þeirra að sýna en ef þau fund- ust ekki voru gerðar nýjar kópíur eftir glerplötum þeirra og filmum. Við undirbúning sýningarinnar fór Hörður vandlega gegnum myndasafn Minjasafnsins og leitaði einnig fanga í ljósmyndasafni Ís- lands innan Þjóðminjasafns, en það er stærsta ljósmyndasafn landsins. Auk þess leitaði hann á öðrum söfn- um. Ýmislegt forvitnilegt kom í ljós. Til að mynda fannst ljósmynd af Vil- helminu Lever sem var fyrst kvenna til að kjósa í kosningum hér á landi, árið 1846. Þá má leiða líkum að því að fundist hafi elstu myndir teknar af Íslendingi, árið 1858, en þær sýna menn á fundi um fjárkláðann á Ak- ureyri. Einnig er á sýningunni elsta útimynd úr Eyjafirði sem þekkt er, mynd Tryggva Gunnarssonar af Laufáskirkju. Í myndasafni Minjasafnsins á Ak- ureyri eru um þrjár milljónir ljós- mynda, og er það þriðja stærsta ljós- myndasafn landsins. efi@mbl.is Af ísnum Bakarí Höepfner verslunar. Myndina tók Önna Schiöth 28. ágúst árið 1882. Hún fór með myndvél á landfastan ísjaka og tók myndina á 18x24 sm glerplötu sem varðveitt er á Minjasafninu á Akureyri. Alls kyns myndir úr Eyjafirði  Verk 20 ljósmyndara í Minjasafninu Ljósmyndarinn Jón Júlíus Árnason á Laugalandi í Hörgárbyggð, við myndavél sína fyrir aldamótin 1900.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.