Morgunblaðið - 18.01.2011, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 18. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Hryggbrotnaði í handboltaleik
2. Ísland – Japan, bein lýsing
3. Einhleypar í flottustu kjólunum
4. Flugmaður undir læknishendur
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Leikskáldið og handritahöfund-
urinn Jón Atli Jónasson stendur fyrir
námskeiði í kvikmyndahandritun
næstu helgi á Grand hóteli. Segir
hann handrit Akillesarhæl íslenskra
kvikmynda. »32
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Atli Jónasson
kennir handritagerð
Þriðja Fuglabúr
vetrarins verður
haldið á Café Rós-
enberg í kvöld.
Að þessu sinni
eru það lista-
mennirnir Lay Low
og Magnús Kjart-
ansson sem leggja
saman í púkkið,
leika undir hvort hjá öðru og bjóða upp
á sannkallað eyrnakonfekt. Spjallað
verður á milli laga og samstarfið er í
alla staði hið forvitnilegasta.
Lay Low og Maggi
Kjartans á Rósenberg
Hlustendur og starfsmenn Rásar 2
völdu bestu íslensku plötur ársins
2010 og úrslitin voru tilkynnt sl.
föstudag. Jónsi tók toppsætið með
trompi með fyrstu
sólóplötunni
sinni, Go. Jónas
Sigurðsson er í 2.
sæti með plötuna
Allt er eitthvað og
Moses Hightower
náði 3. sæti með
frumburði sínum,
Búum til börn.
Jónsi með bestu
plötuna á Rás 2
Á miðvikudag Sunnan 10-18 m/s og víða rigning eða slydda, einkum sunnan og vestan
til. Suðvestlægari um kvöldið. Hiti 1 til 7 stig.
Á fimmtudag Suðvestan 8-15 m/s með slydduéljum eða skúrum sunnan og vestan til,
en vestlægari um kvöldið. Hiti 0 til 4 stig, en vægt frost til landsins.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 10-18 m/s með slyddu síðdegis, fyrst suðvest-
anlands. Frost yfirleitt 0 til 8 stig, kaldast norðaustanlands. Hlýnar suðvestan til síðdegis.
VEÐUR
Keflvíkingar gerðu sér lítið
fyrir og unnu stórsigur á Ís-
landsmeisturum Snæfells,
112:89, í úrvalsdeild karla í
körfubolta í gærkvöld. Á
meðan náðu Grindvíkingar
að knýja fram sigur gegn
KFÍ á Ísafirði og eru komnir
að hlið Snæfells á toppnum.
„Það er ekkert flókið, við
stefnum ótrauðir á stóra
titilinn þetta árið,“ sagði
Keflvíkingurinn Gunnar Ein-
arsson. »4
Keflvíkingar léku
meistarana grátt
„Varnarleikurinn var frábær og í raun
alveg stórbrotinn, að mínu mati mjög
vel útfærður og við unnum boltann
hvað eftir annað. Þannig fengum við
mörg hraðaupphlaup og gerðum okk-
ur þetta auðvelt með því. Þetta kom
hins vegar ekki af
sjálfu sér, við
þurftum að
hafa fyrir
því,“ sagði
Guðmundur Þ.
Guðmundsson,
landsliðsþjálf-
ari Íslands,
eftir sigurinn
á Japan. »2
Varnarleikurinn var
í raun stórbrotinn
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, knatt-
spyrnumaður frá Vestmannaeyjum,
er í Edinborg og vonast til þess að fá
þar samning við hið kunna félag Hib-
ernian. „Ég vona svo sannarlega að
mér bjóðist samningur hjá Hibernian.
Mig langar að spila á Bretlandseyjum
aftur og mér líst vel á þetta félag,“
sagði Gunnar Heiðar við Morg-
unblaðið í gær. »4
Gunnar vonast eftir
samningi í Edinborg
ÍÞRÓTTIR
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Fóturinn á mér var alveg skakkur,
boginn 80 gráður. Sársaukinn var
rosalegur og ég þurfti að hafa mig
allan við, bara við að stjórna önd-
uninni og einbeita mér,“ segir Mart-
in Swift, sem varð fyrir því að fót-
brotna á sunnudaginn var þegar 32
manna hópur úr Hjálparsveit skáta
var í æfingaferð á Heiðarhorni á
Skarðsheiði.
Martin Swift, sem er 31 árs gam-
all, var á leið niður nokkurn bratta á
Heiðarhorni en þar sem mikill ís var
í klettunum var allur hópurinn á
broddum. „Það var dálítið hátt þar
sem ég var að fara niður og ég mat
þetta vitlaust – hoppa dálítið og
broddarnir stingast ofan í ísinn en
líkaminn heldur áfram og ökklinn
gefur sig. Síðan renn ég þarna að-
eins niður en næ svo að staðnæmast
og tek eftir því að fóturinn er alveg
skakkur,“ segir hann.
Hópurinn beið ekki boðanna held-
ur var hafist handa við að höggva
skör í íshelluna til að Martin gæti
legið á jafnsléttu. Undir hann voru
settar frauðdýnur og hann færður í
eins margar flíkur og mögulegt var
til að halda á honum hita.
„Rosaleg heppni“
Það varð Martin til happs að í
hópnum var Jón Baldursson læknir
sem skoðaði fótinn og sá strax hvað
gera þurfti.
„Síðan tekur Jón þarna um og set-
ur mig í lið en það er líklegast sárs-
aukafyllsta upplifun sem ég hef
gengið í gegnum,“ segir Martin en
bætir því við að honum hafi þó strax
liðið betur eftir á.
Hann segir aldrei að vita hvernig
hefði farið fyrir fætinum ef hann
hefði verið úr lið þær sex klukku-
stundir sem það tók að koma honum
niður og er afar þakklátur Jóni
lækni. „Þetta var rosaleg heppni,
það er ekki á allra manna færi að
setja fótinn rétt í þegar svona er
komið. En ef maður ætlar að velja
einhvern í þannig verk þá er það lík-
legast hann Jón.“
Ökklinn reyndist óbrotinn
Hópurinn hjálpaðist að við að
koma Martin niður með því að leggja
hann á dúk og draga hann smám
saman niður en hann var allan tím-
ann bundinn og tryggður í línu. Að
lokum komu undanfarar úr Björg-
unarfélagi Akraness á móti hópnum
með börur og var Martin borinn nið-
ur í jeppa sem hafði verið keyrt upp í
fjall, sem keyrði hann svo niður að
sjúkrabíl frá Akranesi.
Það kom Martin talsvert á óvart
að ökklinn reyndist óbrotinn en
dálkurinn hafði snúist í sundur.
„Beinbrotið á eftir að gróa í gifsinu
en hins vegar rifnuðu liðböndin þeg-
ar ökklinn fór og það er verra,“ segir
hann.
Sýndu mikla fagmennsku
Martin Swift er afar þakklátur
þeim sem tóku þátt í björgunar-
aðgerðunum á sunnudag og segir
þetta þrátt fyrir allt alls ekki hafa
verið vonda lífsreynslu.
„Mér leið vel allan tímann. Það var
stöðugt passað upp á það að ég kóln-
aði ekki og ég fann að ég var alveg
öruggur. Við vorum 32 í hópnum og
mikið af nýliðum og þetta fólk sýndi
af sér mikla fagmennsku. Það er
þeim að þakka hvað ég var rólegur.“
Sársaukinn var rosalegur
Martin Swift
fótbrotnaði á
Heiðarhorni
Morgunblaðið/Golli
Sprækur Martin gekkst undir aðgerð á fætinum á Borgarspítalanum í gær og var hinn brattasti að henni lokinni.
Erfitt færi
» A.m.k. 80 björgunarsveitar-
menn frá Akranesi, Borgarnesi
og af höfuðborgarsvæðinu
tóku þátt í björgun Martins
Swift eftir að hann fótbrotnaði
á Heiðarhorni á Skarðsheiði.
» Mikil hálka var á leiðinni og
það tók björgunarmennina sex
klukkustundir að koma slasaða
manninum niður af fjallinu.
» Sjúkrabíll tók á móti honum
við Efra-Skarð og flutti hann á
sjúkrahús.