Morgunblaðið - 26.01.2011, Page 2

Morgunblaðið - 26.01.2011, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 A T A R N A Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is Þvottavél og þurrkari frá Siemens. Einstök gæði. Góð þjónusta. Þetta eru tækin handa þér! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Stjórnlaganefnd mun ljúka öllum sínum verkefnum  Starfsmenn undirbúningsnefndar mæta til vinnu í dag en óvissa um framhaldið Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Samkvæmt lögum um stjórnlagaþing stóð til að þingið kæmi saman eigi síðar en 15. febrúar næstkomandi. Fátt bendir nú til þess að þingið verði sett þann dag en að vonum er undirbúnings- vinna á lokastigi. Tvær nefndir hafa unnið að undirbúningi stjórnlagaþingsins. Annars vegar er það stjórnlaganefnd, sem skipuð var af Alþingi sama dag og lög um stjórnlagaþing voru sam- þykkt, hinn 16. júní 2010. Nefndin annast söfnun og úrvinnslu fyrirliggjandi gagna og upplýsinga um stjórnarskrármálefni sem nýst geta stjórn- lagaþingi. Hins vegar var skipuð undirbúnings- nefnd um stjórnlagaþing af forsætisnefnd Alþing- is. Hlutverk hennar er að undirbúa stofnun og starfsemi stjórnlagaþings ásamt undirbúningi þjóðfundarins. Undirbúningsnefnd sér einnig um húsnæðis- og kynningarmál. Þessar nefndir gegndu engu hlutverki við framkvæmd kosning- anna heldur var sú vinna á hendi landskjörstjórn- ar. Stolt af vinnu stjórnlaganefndar Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnlaga- nefndar, segir vinnu nefndarinnar á lokastigi. Hún segir að nefndin muni ljúka þeim verkefnum sem gert sé ráð fyrir í lögum. „Við erum stolt af okkar þætti, sem meðal ann- ars er þjóðfundurinn, sem tókst mjög vel og okk- ur tókst að skila meginniðurstöðum strax daginn eftir fund. Auk þess höfum við sett saman viða- mesta gagnasafn sem til er á landinu um stjórn- arskrármál sem er aðgengilegt almenningi á heimasíðu stjórnlagaþingsins.“ Guðrún segir seinasta liðinn í vinnu stjórnlaga- nefndar að skila inn hugmyndum að stjórnar- skrárbreytingu. Sú vinna sé nú á lokastigi. „Við munum halda vinnunni áfram en það er á hendi annarra að ákveða hvert framhald stjórn- lagaþingsins verður. Við reiknum með að fundin verði lausn á þessu máli.“ Aðspurð segir Guðrún að möguleg niðurstaða Hæstaréttar í kærumálinu hafi ekki verið rædd sérstaklega innan stjórnlaganefndar. Nefndin hafi einfaldlega haft nóg á sinni könnu. „Við vissum að málið væri í þessum farvegi hjá Hæstarétti og að ekki yrði deilt við dómarann þegar úrskurðurinn lægi fyrir. Það hefði því lítið upp á sig að velta niðurstöðunni fyrir sér.“ Nið- urstaða Hæstaréttar liggi nú fyrir og því þurfi bara að bregðast við henni. Framkvæmdir í Ofanleiti í biðstöðu Til stóð að stjórnlagaþingið kæmi saman í Of- anleiti 2 þar sem Háskólinn í Reykjavík var áður til húsa. Fjöldi fólks hefur unnið að því að laga húsnæðið að þörfum þingsins. Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri undirbúningsnefndar stjórnlagaþings, segir und- irbúningsvinnu við stjórnlagaþingið í ákveðinni biðstöðu eftir ákvörðun Hæstaréttar. „Við bíðum bara eftir því hvað tekur við. Það mun að líkindum hægja á undirbúningi við stjórn- lagaþingið og þær framkvæmdir sem hægt er að stöðva verða stöðvaðar. Við bíðum bara eftir að niðurstaða komist í málið, lítið annað að gera.“ Þorsteinn segir að starfsmenn undirbúnings- nefndarinnar muni mæta til starfa í dag en ekki hafi verið tekin ákvörðun um framhaldið. „Þetta er bara enn eitt verkefnið sem tekur við og maður bara bregst við og vinnur það af heiðarleika og kostgæfni.“ „Við munum halda vinnunni áfram en það er á hendi ann- arra að ákveða hvert framhald stjórnlagaþingsins verður.“ Guðrún Pétursdóttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Tómt Þessi mynd var tekin í Ofanleiti 2 í gær í sal sem útbúinn hefur verið á 5. hæð fyrir þá 25 einstaklinga sem kjörnir voru á stjórnlagaþing. Forsætisnefnd Al- þingis mun að öll- um líkindum funda með lands- kjörstjórn um þá ákvörðun Hæsta- réttar að kosn- ingar til stjórn- lagaþings hafi verið ógildar. Kristján Möller, þingmaður Sam- fylkingarinnar, sem situr í forsæt- isnefnd, segir að enn hafi ekki verið boðað til fundarins en hann geri ráð fyrir því að svo verði gert innan skamms tíma. Hann segir mikilvægt að nefndarmenn fái tíma til að kynna sér málið til hlítar. Sem kunnugt er var framkvæmd stjórnlagaþingskosninganna á hendi landskjörstjórnar í samræmi við lög um stjórnlagaþing sem og lög um kosningar til Alþingis. Í samtali við Morgunblaðið vildi Ástráður Haraldsson, formaður lands- kjörstjórnar, ekki tjá sig um ákvörðun Hæstaréttar. Aðrir meðlimir lands- kjörstjórnar vildu sömuleiðis ekki tjá sig um málið og vísuðu öllum spurn- ingum til formanns. Í landskjörstjórn sitja, auk Ástráðs, Bryndís Hlöðversdóttir, Hervör Lilja Þorvaldsdóttir, Þórður Bogason og Þuríður Jónsdóttir. hjaltigeir@mbl.is Funda með for- sætisnefnd Ástráður Haraldsson  Landskjörstjórn tjáir sig ekki Þeir þingmenn sem hlutu flest at- kvæði til stjórnlagaþings, Þorvaldur Gylfason og Salvör Nordal, vildu ekki tjá sig um niðurstöðu Hæsta- réttar um kosningarnar. Þegar Morgunblaðið leitaði viðbragða þeirra Þorvaldar og Salvarar í gær sagðist hvorugt þeirra vilja segja neitt um málið að svo stöddu. Tvö efstu vildu ekki tjá sig Þorvaldur Gylfason Salvör Nordal „Niðurstaða Hæstaréttar, sem ógilt hefur kosningu til stjórnlagaþingsins, er að mínum dómi sannfærandi,“ seg- ir Róbert R. Spanó, prófessor og for- seti lagadeildar HÍ. Hann segir að af niðurstöðu Hæstaréttar megi draga þá ályktun að Alþingi eitt hafi vald til að ákveða hvaða reglur gildi um fram- kvæmd kosninga hér á landi. Annmarkar á framkvæmd „Í lögum um stjórnlagaþing er, að slepptum sérreglum um ákveðin at- riði, byggt á því að efnisreglur al- mennra laga um kosningar til Alþing- is skuli gilda um ýmis framkvæmdar- atriði. Stjórnvöld gátu því ekki skv. forsendum Hæstaréttar ákveðið að haga framkvæmdinni með þeim hætti sem ekki sam- rýmdist því sem Alþingi hafði ákveðið,“ segir Ró- bert. „Stjórnvöld verða að fara að gildandi lögum, en sé framkvæmd laga fyrirsjáanlega verulegum vand- kvæðum bundin er Alþingis að gera breytingar. Niðurstaða Hæstaréttar er að þessu leyti vel rökstudd sýnist mér.“ Sex dómarar Hæstaréttar komust að þeirri niðurstöðu að kosningin til stjórnlagaþings væri ógild, þótt ágreiningur hefði verið um ákveðin atriði. Athygli vekur að fjöldi dómara sem sinntu þessu máli stendur á sléttri tölu en þegar t.d. hefðbundnir dómar eru kveðnir upp eru dóm- ararnir þrír eða fimm – það er odda- tala. Sá háttur sem hafður var á í kosn- ingamálinu skýrist af því að sam- kvæmt dómstólalögum skulu allir níu dómarar réttarins koma að úrlausn máls þegar rétturinn tekur skv. lögum ákvörðun sem ekki er liður í meðferð máls fyrir dómi. Í máli gærdagsins hagaði svo til að dómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Markús Sigur- björnsson og Ólafur Börkur Þorvalds- son töldu sig vanhæf og þá stóðu eftir sex sem komust að þeirri niðurstöðu sem fyrr er getið. sbs@mbl.is Niðurstaðan vel rökstudd  Alþingi breyti lögum sé framkvæmd kosninga vand- kvæðum bundin, segir Róbert R. Spanó hjá lagadeild HÍ Róbert R. Spanó Hæstiréttur ógildir kosningu til stjórnlagaþings

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.