Morgunblaðið - 26.01.2011, Page 4

Morgunblaðið - 26.01.2011, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 kreditkort.is Hafðu samband. Við hjálpum þér að velja rétta kortið. MASTERCARD KREDITKORTA BJÓÐUM ALLAR TEGUNDIR Flestum fullorðnum finnst best að taka nokkra sundspretti og slaka því næst á í heitu pottunum í sundlaugum landsins en krökkunum finnst yf- irleitt skemmtilegra að busla og leika sér, hvort sem það er að kafa eftir ímynduðum fjársjóðum eða leika í boltaleikjum. Bregða á leik með bolta í lauginni Morgunblaðið/Ernir Sjö ára drengur í Rimaskóla skar í gærmorgun bekkj- arbróður sinn á háls með glerbroti sem hann fann á skólalóðinni. Að sögn Helga Árnasonar skólastjóra var sárið grunnt en sauma þurfti þrjú spor. Hann segir for- eldrum og starfsmönnum skólans brugðið en að fáir nem- endur hafi orðið vitni að atburðinum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem drengurinn veitist að samnemendum sínum. Í síðustu viku beitti hann blýanti sem vopni. Hann á við geðræn vandamál að stríða en hef- ur ekki fengið greiningu þar sem langur biðlisti er á BUGL, barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Að sögn Helga hefur skólinn ákveðin úrræði fyrir börn sem eiga við hegðunarvandamál að stríða, m.a. er námsver í skólanum þar sem börnin fá sérhæfðan stuðning. „Drengurinn sem um ræðir kom til okkar úr öðrum skóla og flutti um leið inn á nýtt heimili. Þetta er barn sem við höfum verið að vinna mikið með en hann hefur bara ekki komist að,“ segir Helgi og vísar þar til biðlist- anna hjá BUGL. Hann segir mikla mildi að ekki fór verr, en tilvikið verði til þess að enn frekar verði þrýst á að drengurinn fái þá hjálp sem hann þurfi. Báðir drengirnir muni mæta í skólann á morgun og hafi sú ákvörðun verið tekin í samráði við foreldra beggja. Drengurinn sem réðst á bekkjarbróður sinn mun þó eyða kennslustundum í námsveri og fær ekki að fara út í frímínútum. holmfridur@mbl.is Skar bekkjarbróður sinn á háls í frímínútum Morgunblaðið/Ómar BUGL Biðlistar eru á barna- og unglingageðdeild.  Hefur ekki fengið grein- ingu vegna biðlista hjá BUGL Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing- maður Sjálfstæð- isflokks, sagði á Alþingi í gær að erlend fjármögn- unarfyrirtæki færu nú fram á að pólitískt óþæg- indaálag væri lagt ofan á fjár- mögnun sem ís- lensk fyrirtæki væru að leita eftir. Sagði Ragnheiður þetta hafa komið fram í máli forstjóra Norðuráls og forstjóra Magma á fjölmennum fundi í Stapanum í fyrradag. Að mati Ragnheiðar er þetta vegna pólitískrar óvissu og óstöð- ugleika hér á landi. „Hér eru í fyrsta sinn erlendir fjárfestar sem eru að skoða fjárfestingu á Íslandi að hugsa um að kaupa sér tryggingu vegna pólitískrar óvissu á Íslandi.“ Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagðist hafa rætt við marga sem væru áhugasamir um að koma til Íslands og þeir óttuðust það ekki. „Ég tel þar af leiðandi alveg hægt að segja að sá þáttur málsins sé ýktur upp. Ég efast ekkert um það.“ Krefjast óþæginda- álags Ragnheiður Elín Árnadóttir  Óttast óstöðug- leikann hér á landi Verð á bensíni fór í 217,9 krónur lítr- inn í fyrradag en það var N1 sem reið á vaðið og hækkaði lítrann um fimm krónur. N1 lækkaði hins vegar verðið aftur í gær og í gærkvöldi stóð verðið á lítranum í 215,80 hjá Orkunni, 215,90 hjá N1, 217,10 hjá Atlantsolíu, 217,60 hjá ÓB og 217,90 hjá Olís og Shell. Verðhækkanir á eldsneyti komu upp í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær og sagði Sigurður Kári Krist- jánsson, þingmaður Sjálfstæð- isflokks, að lítraverðið stefndi í „hreina sturlun“. Krafði hann fjár- málaráðherra svara um til hvaða að- gerða ríkisstjórnin hygðist grípa til að lækka eldsneytisverð. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagði verðið óvenju- hátt um þessar mundir vegna að- stæðna á heimsmarkaði og styrkingar Bandaríkjadals. Sagði hann líklegt að verðið myndi lækka þegar árstíðasveiflunni lyki. Engin áform væru uppi um að breyta skattlagningunni. Síhækkandi bensínverð Héraðsdómur Austurlands hef- ur komist að þeirri niðurstöðu, að staðfesta beri niðurstöðu sér- stakrar mats- nefndar sem lagði mat á verðmæti vatnsréttinda vegna Kárahnjúkavirkjunar. Mats- nefndin komst að þeirri niðurstöðu að réttindin yrðu metin á 1,6 millj- arða króna. Héraðsdómur kvað í gær upp dóm í máli, sem flestir eigendur vatnsréttinda við Jökulsá á Dal, eða 61 að tölu, höfðuðu gegn Lands- virkjun. Fram kemur í greinargerð Landsvirkjunar, að landeigendurnir hafi á sínum tíma gert kröfu um að samtals yrðu greiddir tæpir 96 millj- arðar króna vegna vatnsréttinda virkjunarinnar í heild sinni. Vatnsrétt- indi upp á 1,6 milljarða Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Vegna óvissunnar sem komin er upp í kjaramálum er sú hugmynd nú rædd innan forystu verkalýðshreyfingar- innar hvort skynsamlegt sé að reyna að ná skammtímasamningi við SA til 1. júní. Við það yrði til svigrúm á næstu mánuðum sem notað yrði til að finna lausnir á stærri málum sem leysa þarf í tengslum við endurnýjun kjarasamninga. Það var Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, sem varpaði fyrstur þessari hugmynd fram og eftir að slitnaði upp úr við- ræðum ASÍ og SA í fyrradag vegna kröfu SA í sjávarútvegsmálum, hefur þessi hugmynd aftur skotið upp koll- inum. Var hún rædd á fundi forsvars- manna iðnaðarmannafélaganna í gærmorgun og voru uppi áform í gær um að reyna að koma á fundi samn- inganefnda ASÍ og SA næstkomandi föstudag til að fara yfir þetta. For- ystumenn SA hafa til þessa ekki léð máls á gerð skammtímasamnings. Hugmynd Guðmundar er sú að samið yrði núna um krónutöluhækk- un sem gengi jafnt til allra. Sam- komulagið gilti til 1. júní og jafnframt yrði hægt að ganga frá samningum um einfaldari sérmál sambanda og fé- laga. Næstu mánuðir yrði síðan not- aðir til að koma í höfn stærri málum á borð við samræmingu lífeyrisréttinda sem er þýðingarmikil krafa verka- lýðshreyfingarinnar og SA myndi með sama hætti reyna að leysa ágreining sinn við stjórnvöld um sjáv- arútvegsmálin. Starfsgreinasambandið átti sátta- fund með SA hjá ríkissáttasemjara í gær. Björn Snæbjörnsson, formaður samninganefndar SGS, segir að menn hafi farið yfir stöðuna eftir að strandaði í fyrradag á kröfu SA um sjávarútvegsmálin. SGS hefur viljað ræða gerð styttri samnings. Spurður hvort honum lítist á þá hugmynd að ganga frá skammtímasamningi til vors segir Björn að það geti vel komið til greina að skoða það. Hugmyndir um stuttan samning og eingreiðslu  Semja um krónutöluhækkun sem gengi jafnt til allra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.