Morgunblaðið - 26.01.2011, Side 10

Morgunblaðið - 26.01.2011, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ að hafa orðið mjög svo róttækar breytingar á matarvenjum Íslendinga á síðustu öld, frá því við lifðum mest á fiski, smjöri og skyri og fram á daginn í dag,“ segir Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur sem á morgun verður með erindi á Læknadögum um breytingar á fæðuvenjum land- ans á síðustu öld. „Það eru margir þættir sem hafa áhrif á það hvað við leggjum okkur til munns, til dæmis verðlag og aðgengi að vöru. Skömmt- unin á kreppuárunum hafði sín áhrif og eins þegar verslun var gefin frjáls. Þegar Hagkaup opnaði í Skeifunni um 1970, þá jókst aðgengi að vöruúr- vali í matvöru mikið í Reykjavík. Fleiri stórverslanir fylgdu í kjölfarið. Frystikistubyltingin hafði svo þau áhrif að saltkjöt og saltfiskur varð ekki lengur dagleg fæða í afskekkt- ari sveitum, og svo mætti lengi telja. Það hefur líka haft mikil áhrif á hvað við borðum, og ekki síður hvað við borðum mikið, að seinustu áratugina hefur skyndibitastöðum fjölgað gríð- arlega. Fljótfengin orka er alls stað- ar nálæg.“ Harðfiskur í hvert mál Þó margt hafi breyst til batn- aðar þá er það ekki einvörðungu svo, til dæmis hefur fiskneysla Íslendinga hrapað. „Við borðuðum gríðarlegt magn af fiski hér áður, harðfiskur var nánast borðaður eins og brauð í flest mál. Annað sem hefur hrapað og er mjög miður er gamla kornteg- undin rúgur sem við borðuðum mikið af, enda var hún ráðandi í því korni sem flutt var inn. Þegar byrjað var að flytja inn hveiti, tók það stuttan tíma að bola burt rúgnum. Rúgur er gamla norræna korntegundin sem við ættum að líta aftur til því hún er ákaflega holl og heilsusamleg, við getum jafnað honum við grænmeti og ávexti hvað það varðar.“ Minna af smjörlíki En sem betur fer hefur margt gott gerst í matarmálum og ekki vilj- um við hverfa til baka til þess þegar við lifðum á hertum þorskhausum og margaríni. „Smjörlíkið kom fram á sjónarsviðið í byrjun tuttugustu ald- ar og var haft í staðinn fyrir smjör, ódýrari vara. Smjörlíkið varð mjög áberandi í mataræðinu hjá okkur og fólk notaði það ofan á brauð og með mat. En það hefur gjörbreyst undan- farna áratugi, smjörlíkisneyslan hef- ur minnkað úr 13 kílóum á mann á ári niður í 3 kíló, sem er gott, því okkur veitti ekki af að minnka hörðu fituna í fæðunni og þessi vara innhélt líka mikið af transfitusýrum. Nú notar fólk meira mýkri fitu í stað smjörlíkis eða smjörs, eins og matarolíu eða ólífuolíu.“ Landsmenn eru nú með- vitaðri um hollustu og meira er rætt um þá hluti. „Margar brauðgerðir eru líka farnar að vanda meira fram- leiðsluna, nota annarskonar fitu í stað hertu fitunnar sem inniheldur mikið af transfitusýrum. Í það minnsta eru miklu meiri möguleikar á að nálgast heilsusamlegri vöru en nokkurntíma áður í sögu þjóðar- innar. Við höfum valið, er okkur sagt, en það blasir samt við að verðlag á hollustuvörum og aðstæður fólks eru þannig að það búa ekki allir við sömu valmöguleikana í þessu efni.“ Minna af mör í slátri Víða sést viðleitni til meiri holl- ustu, sykurþrungnum hnallþórum hefur fækkað á veisluborðum og skólarnir leitast við að bjóða börn- unum upp á hollari mat. „Og nú þeg- ar fólk er aftur farið að taka slátur þá hafa uppskriftirnar breyst, gömlu uppskriftirnar innihéldu mun meiri mör. Sömuleiðis er áhersla á að minnka salt í mat, sem er mjög mik- ilvægt. Mesta saltið sem við fáum er reyndar í tilbúnum vörum, svo það er matvælaframleiðandinn sem ræður þessu gjarnan. En víða er verið að gera góða hluti og það er til dæmis algengara að fólk drekki vatn í stað gosdrykkja.“ Hollt þarf ekki að vera dýrt Laufey segir að þó svo að Ís- lendingar hafi aukið grænmetisátið þá séum við með einna minnstu grænmetisneyslu Evrópuþjóða. „Við erum á réttri leið, en þó hafa komið afturkippir. Eftir bankahrunið minnkaði neysla á grænmeti og ávöxtum í fyrsta sinn eftir að mæl- ingar hófust hjá Manneldisráði upp úr 1950. Fram að því hafði þetta auk- ist jafnt og þétt. Væntanlega hefur Hertir þorskshausar ekki lengur á borðum Við upphaf tuttugustu aldar var fæðuúrval lítið hér á landi en gífurlegar breyt- ingar hafa orðið, flestar til góðs en þó ekki allar. Íslendingar hafa nú meiri mögu- leika á að nálgast heilsusamlegri vöru en nokkurntíma áður í sögu þjóðarinnar. Næringarfræðingur Laufey segir flest hafa breyst til batnaðar. Heimilisiðnaðarfélag Íslands hefur opnað nýja heimasíðu, Heimilisidnad- ur.is. Síðan er hin myndarlegasta og þar má finna allar upplýsingar um starfsemi félagsins. HFÍ býður upp á fjölda námskeiða og á síðunni má sjá yfirlit yfir námskeið á vorönn 2011, þá má til dæmis læra að prjóna, hekla, sauma út, gera þjóðbúninga, vefa, sauma úr leðri og endurhanna úr gömlum fötum. Á forsíðu síðunnar má sjá fréttir og upplýsingar um prjónakaffihús, hannyrðakvöld og fleira tengt hand- verki sem félagið stendur fyrir. Heimilisiðnaðarfélag Íslands er stofnað 12. júlí 1913. Hlutverk þess er að vernda þjóðlegan íslenskan heim- ilisiðnað, auka hann og efla, stuðla að vöndun hans og fegurð og vekja áhuga landsmanna á því að framleiða fallega og nytsama hluti, er hæfi kröfum nýs tíma með rætur í þjóð- legum menningararfi. Heimilisiðnaðarfélagið rekur einn- ig verslun í Nethyl 2e og þar er hægt að fá allt efni og tillegg fyrir íslenska þjóðbúninga, úrval af íslensku bandi, léttlopa, kambgarni, einbandi og lopa, ýmislegt til vefnaðar og flest það sem þarf af efnum og verkfærum í tengslum við námskeið HFÍ. Vefsíðan www.heimilisidnadur.is Morgunblaðið/Arnaldur Heimilisiðnaður Það má læra að prjóna og sauma þjóðbúninga hjá HFÍ. Þjóðlegur heimilisiðnaður Gleðileikurinn Síðasti dagur Sveins skotta verður sýndur í Tjarnarbíói á morgun, fimmtudag, og föstudaginn 28. janúar. Það er svört kómedía sem gerist á 17. öld og fjallar um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdra- mann sem var hengdur í Rauðu- skörðum á Barðaströnd 1648. Síðasti dagur Sveins skotta gerist á síðasta ævidegi Sveins þar sem hann bíður aftöku sinnar og rifjar upp líf sitt og ástæður þess að svona er komið fyrir honum. Uppsetningin er í samstarfi Lýð- veldisleikhússins í Reykjavík og Kómedíuleikhússins á Ísafirði. Endilega … … sjáið síðasta dag Sveins skotta Leikverkið Síðasti dagur Sveins skotta er sýnt í Tjarnarbíói á morgun og hinn. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Afríkudagar standa nú yfir ávegum Barnaheilla-Savethe Children á Íslandi ogAfríka 20:20-félag áhuga- fólks um málefni Afríku sunnan Sa- hara. Meðal þess sem boðið er upp á er ljósmyndagjörningur þar sem myndir Páls Stefánssonar ljósmynd- ara frá Afríku eru settar upp á sýn- ingarstöðum víða um bæinn, boðið er upp á tvær málstofur um málefni Afr- íku, Bíó Paradís sýnir myndir um lífið í Gíneu-Bissá auk þess sem börn og unglingar hér og þar um borgina setja sig í einn dag í spor ungviðis í Afríku. Markmiðið með Afríkudögunum er að vekja athygli á málefnum Afr- íku og afla fjár til stuðnings mennt- unarverkefni Barnaheilla í Pader- héraði Norður-Úganda. „Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum þessa daga. Hugmyndin að þeim kviknaði út frá bókinni Áfram Afríka eftir Pál Stefánsson ljósmynd- ara sem kom út í fyrra. Páll hafði ferðast um Afríku og tekið myndir og hann, og þeir sem gáfu út bókina, vildu styrkja menntaverkefni okkar í Norður-Úganda með uppboði á myndunum. Við ákváðum að gera meira úr því og hafa Afríkudaga og erum í samstarfi við Afríku 20:20, “ segir Petrína Ás- geirsdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaheilla. Páll Stef- ánsson gefur ljós- myndir sínar sem seldar verða á uppboði í lok Afr- íkudaganna, hinn 28. janúar, í húsakynnum Barna- heilla. Um er að ræða þögult uppboð og ágóðinn rennur til menntunar- verkefnisins. Börn bera vatnsfötur á höfðinu „Það er margt í gangi á Afr- íkudögum, t.d. eru myndirnar hans Páls sýndar víða um borg. Við erum að vinna með Snælandsskóla þar sem krakkar í áttunda bekk taka þátt. Í dag ætla stelpurnar að bera vatn á höfðinu marga kílómetra og strák- arnir ganga í skólann, þau hafa verið að kynna sér aðstæður barna í Afríku og þau ætla að prófa að setja sig í spor sumra jafnaldra sinna í álfunni. Börn í 6. flokki Breiðabliks settu sig í spor barna í Afríku í gær með því að spila án hefðbundins skóbúnaðar með fótbolta sem þau gerðu sjálf. Svo eru málstofur, í dag í Há- skólanum í Reykjavík þar sem ég mun meðal annars segja frá mennta- verkefni okkar í Úganda og á morgun er málstofa í HÍ þar sem er verið að fjalla um fleiri lönd í álfunni,“ segir Petrína. Hún vonast til að með Afr- íkudögum náist að vekja athygli á álf- unni, margbreytileika hennar og mannlífi. „Við vonumst líka til að vekja at- hygli á menntaverkefni okkar í Norð- ur-Úganda og við vonum að ljós- myndauppboðið gefi okkur eitthvert fjármagn svo við getum haldið áfram að styrkja það.“ Samfélag í miklum sárum Petrína er tiltölulega nýkomin frá Úganda þar sem hún hitti börn og foreldra, samstarfsaðila Barnaheilla og skólayfirvöld. „Við erum búin að leggja 53 milljónir í uppbyggingar menntastarfsins í norðurhluta lands- ins frá árinu 2007 og við fórum út til að fylgja eftir þessum stuðningi og meta stöðuna,“ segir Petrína. Spurð hvað hafi áunnist segir Petrína það vera margt en enn sé langt í land. „Það var þarna stríð í tuttugu ár, því lauk fyrir þremur árum. Það skortir allan innviði í samfélaginu, það var allt eyðilagt. Þetta er sam- félag í miklum sárum og það er eig- inlega ekkert þarna. Við sáum að Petrína Ásgeirsdóttir Afríkudagar í Reykjavík Á föstudaginn verður haldið þögult uppboð á Afríkumyndum Páls Stefánssonar til styrktar menntunarverkefni Barnaheilla í Pader-héraði í Norður-Úganda. ÞORRINN 2 011 Þorrahlaðborð – fyrir 10 eða fleiri – 1.990 kr. á mann www.noatun.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.