Morgunblaðið - 26.01.2011, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011
Hæstiréttur ógildir kosningu til stjórnlagaþings
urnar þrjár komu fram. Það hefði sparað einhvern
pening en hann fengist ekki til baka.
Tveir stjórnarþingmenn voru mun jákvæðari.
Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna,
sagði hugsjónina um stjórnlagaþing enn í fullu
gildi og ákvörðun Alþingis að efna til stjórnlaga-
þings þess þá heldur. Þá ákvörðun hefði Hæsti-
réttur ekkert með að gera. „Við endurtökum bara
kosninguna og stöndum óaðfinnanlega að verki,“
sagði Þráinn en félagi hans í meirihlutanum, Ró-
bert Marshall, formaður allsherjarnefndar, nefndi
að auki annan kost; að Alþingi staðfesti kjörið með
einum eða öðrum hætti, s.s. með því að kjósa þá
sem hefðu þegar verið valdir í sérstaka stjórnlaga-
nefnd. „Að hætta við kemur ekki til greina,“ sagði
Róbert og bætti við að stjórnlagaþingið yrði ekki
af þjóðinni tekið.
Þá velti Margrét Tryggvadóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, fyrir sér áhrifum af pólitískum
skipunum dómara í Hæstarétt. „Við vitum hverjir
voru á móti stjórnlagaþinginu og vildu eyðileggja
það. Við skulum ekki láta það takast.“
Morgunblaðið/Ernir
Alþingi Niðurstaða Hæstaréttar um stjórnlagaþingið varð tilefni sérstakrar umræðu á Alþingi síðdegis í gær. Ögmundur Jónasson reyndi að róa þingheim.
Dæmi um ógöngur
ríkisstjórnarinnar
Fjörugar umræður fóru fram á Alþingi í gær um ákvörðun Hæstaréttar
Stjórnarandstaðan taldi niðurstöðu réttarins vera ríkisstjórninni til vansa
„Ákvörðun Hæstaréttar
er afdráttarlaus, kosn-
ingin var dæmd ógild og
framhjá því verður ekki
horft. Á hitt er á að líta að
þegar málin eru skoðuð í
reynd var ekki gengið á
hlut eins eða neins. Eng-
inn varð fyrir skaða,“ seg-
ir Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra.
Hann segir að niður-
staðan í kosningunum hefði, eftir því sem
best er vitað, ekki orðið önnur þrátt fyrir
breytt skipulag. „Ég tel rétt að við skoðum
málið í þessu samhengi. Þegar menn taka
stórt upp í sig í áfellisdómum þá er ekki inni-
stæða fyrir slíku.“
Ögmundur segir að nú þurfi þingið að taka
ákvörðun um næstu skref. „Mín skoðun er sú
að ekki verði horft framhjá því að kosningin
hefur verið dæmd ógild. Jafnframt segi ég að
stjórnlagaþing verði að ná fram að ganga. Ef
við leggjum þá saman tvo og tvo er niður-
staða mín því að endurtaka eigi kosninguna.
En það er auðvitað Alþingis að ákveða.“
haa@mbl.is
Kosningin verði
endurtekin
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Ögmundur
Jónasson
’
Stjórnlagaþingið tökum við ekki
frá þjóðinni.
Jóhanna Sigurðardóttir
’
Við stöndum nú frammi fyrir því,
að taka ákvarðanir um næstu
skref. Þau geta verið nokkur og mik-
ilvægt er að þingið íhugi nú hvert
næsta skref er í þessari stöðu.
Jóhanna Sigurðardóttir
’
[Kostirnir] geta verið nokkrir. Einn
er að hætta við stjórnlagaþingið,
sem mér finnst alls ekki koma til
greina. Annar að leiðrétta ágallana í
framkvæmdinni og kjósa aftur með
þeim kostnaði sem því fylgir. Hugs-
anlega mætti einnig veita Alþingi heim-
ild með lögum til að kjósa 25 fulltrúa á
stjórnlagaþingið. Mögulega þá sömu og
þjóðin hefur kosið, meti Alþingi lýðræð-
islegt umboð þeirra fullnægjandi.
Jóhanna Sigurðardóttir
’
Þetta er í fyrsta skipti, þetta er í
fyrsta skipti, í sögu þessa lýðræð-
isríkis að Hæstiréttur telur sig knúinn
til þess að ógilda almennar kosningar.
Og það er ekki gert vegna þess að ein-
hver smámál eru athugaverð. [...] Það
er vegna þess að lagasetningin sem
undir þessu hvílir er svo skökk að
Hæstiréttur, æðsti dómstóll þjóð-
arinnar, gat ekki annað en fallist á það
að ógilda kosningarnar.
Ólöf Nordal
’
Það var farið af stað með allt of
miklu offorsi í þessa lagasetningu
og menn eru að fara í tilraunastarfsemi
í grundvallarmáli þegar verið er að
halda almennar kosningar.
Ólöf Nordal
’
Ég hygg að í hefðbundnum lýðræð-
isríkjum, og það ætti Ísland heldur
betur að vera, myndi hæstvirtur for-
sætisráðherra íhuga vandlega þá stöðu
sem upp er komin í þessu efni. Ég vil
hvetja hæstvirtan forsætisráðherra til
að gera einmitt það. Að nýta þennan
dag til þess að íhuga þá stöðu sem upp
er komin, þegar að vegna vinnubragða
þessarar ríkisstjórnar er nauðsynlegt
að ógilda almennar kosningar.
Ólöf Nordal
’
Ég vek athygli á því, að í engu til-
viki telur nokkur maður að á sér
hafi verið brotið eða að niðurstaðan
hefði orðið önnur ef aðfinnsluatriði
Hæstaréttar hefðu ekki verið fyrir
hendi.
Ögmundur Jónasson
’
Til hamingju með daginn, rík-
isstjórn. Það mistekst allt hjá ykk-
ur sem þið komið nálægt.
Vigdís Hauksdóttir
’
Ég lýsi ábyrgð þessa úrskurðar [...]
beint heim til föðurhúsanna. Beint
heim til barnsmóður stjórnlagaþings-
ins, hæstvirts forsætisráðherra, Jó-
hönnu Sigurðardóttur.
Vigdís Hauksdóttir
’
Með lagakrókum hefur tekist að
leggja stein í götu stjórnlagaþings
[...] Við endurtökum bara kosninguna
og stöndum óaðfinnanlega að verki.
Þráinn Bertelsson
’
Á hvaða braut erum við komin þeg-
ar við ætlum ekki aðeins að láta
þjóðþing Íslendinga stjórnast af ótta
heldur ætlumst til þess að dómstól-
arnir geri það líka. Þess vegna segi ég:
Guði sé lof fyrir Hæstarétt og Guði sé
lof fyrir það, að dómstólarnir hafa sýnt
það að þeir hafa ekki látið etja sér út í
að elta tíðarandann á röndum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
’
Að hætta við kemur ekki til greina.
Það kemur ekki til greina að taka
stjórnlagaþingið frá þjóðinni. Það verð-
ur ekki frá þjóðinni tekið.
Róbert Marshall
’
Ég veit það að íhaldið er órólegt, af
því þeir vilja ekki stjórnlagaþing.
Þeir eru skíthræddir um það að þá
komi inn ákvæði sem þjóðin hefur lengi
kallað eftir og barist fyrir. Það er að
auðlindirnar verði í þjóðareign.
Jóhanna Sigurðardóttir
Orðrétt
á Alþingi
Tíðindin af niðurstöðu Hæstaréttar um stjórn-
lagaþing bárust inn í þingsal um þrjúleytið í gær,
í miðri umræðu um brunavarnir. Sigurður Kári
Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki, kvaddi sér hljóðs
um fundarstjórn forseta og fór fram á að Alþingi
tæki málið tafarlaust á dagskrá og forsætisráð-
herra yrði fenginn í þingsal. Tóku nokkrir þing-
menn til máls um fundarstjórn og að endingu
gerði forseti Alþingis hlé á dagskránni. Síðar var
boðað til formlegrar umræðu í þinginu.
Kom inn í miðja umræðuBAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
Umræðurnar á Alþingi í gærdag um ákvörðun
Hæstaréttar að ógilda kosningu til stjórnlaga-
þings voru fjörugar. Fyrir utan ræðu Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra, sem fjallað er
um á öðrum stað á þessari opnu, tóku til máls
varaformaður Sjálfstæðisflokks, formaður Fram-
sóknarflokks, innanríkisráðherra og formaður
allsherjarnefndar Alþingis svo einhverjir séu
nefndir. Líkt og iðulega skipti í tvö horn með
stjórn og stjórnarandstöðu.
Svo stiklað sé á stóru má nefna að Ólöf Nordal,
varaformaður Sjálfstæðisflokks, vandaði ríkis-
stjórninni og meirihluta þingsins ekki kveðjurnar.
Hún sagði allt þetta mál, þ.e. stjórnlagaþingið,
meirihlutanum til vansa og stjórnlagaþing ekki
haldið miðað við ákvörðun Hæstaréttar. Hún
sagði pólitíska óvissu á Íslandi mikla og nú bættist
við að vinnubrögð ríkisstjórnarinnar hefðu fengið
áfellisdóm Hæstaréttar. „Þetta er enn eitt dæmið
um þær ógöngur sem stjórn þessa lands er komin
í,“ sagði Ólöf.
Á sömu línu var Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks, sem lýsti ábyrgð á hendur for-
sætisráðherra sem hún nefndi svo pent „barns-
móður stjórnlagaþingsins“. Hún sagði allt mistak-
ast sem ríkisstjórnin kæmi nálægt og tók fram að
ekki væri séð fyrir endann á þessu máli. Hugs-
anlega myndu jafnvel einhverjir stjórnlagaþings-
menn fara í skaðabótamál „gegn þessari vesölu
ríkisstjórn“. Ennfremur lýsti Vigdís furðu sinni á
því að ríkisstjórnin skyldi ekki grípa í taumana og
stöðva undirbúning stjórnlagaþings þegar kær-