Morgunblaðið - 26.01.2011, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 26.01.2011, Qupperneq 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 Bjarni Ólafsson Sigurður Bogi Sævarsson Áætla má að samanlagður kostnaður vegna stjórnlagaþings og undirbún- ings þess nálgist nú um hálfan milljarð króna. Stjórnlagaþinginu, sem hefjast átti eftir þrjár vikur, eru samkvæmt fjárlögum markaðar 248 milljónir króna. Að sögn Þorsteins Sigurðs- sonar, framkvæmdastjóra þingsins, hefur nokkrum fjármunum þegar ver- ið varið til undirbúnings þinghaldinu sem að óbreyttu hefði farið fram í fyrr- verandi húsnæði Háskólans í Reykja- vík við Ofanleiti. Síðustu daga hefur verið unnið að því að koma upp starfsaðstöðu fyrir þingfulltrúa og starfsmenn í Ofanleiti – sem og ýmsum tæknibúnaði sem þinghaldi fylgir. Nokkur fjárútlát hafa fylgt þessu og fleiru en ekki liggur enn fyrir hver sá kostnaður er þegar orð- inn. Kostnaður vegna þjóðfundarins sem haldinn var í Laugardalshöllinni í Reykjavík á haustdögum, og var upp- taktur kosninganna til stjórnlaga- þings, er þegar orðinn um 90 milljónir króna. Sú tala er þó ekki endanleg enda er ekki búið að hnýta alla lausa enda í uppgjöri vegna fundarins, að sögn Berghildar Erlu Bernharðs- dóttur, upplýsingafulltrúa stjórnlaga- þings. Kosningarnar til stjórnlagaþingsins voru á könnu innanríkisráðuneytisins. Kostnaður þess við framkvæmd kosn- inganna, útgáfu margskonar kynning- arefnis og fleiri þátta er nú þegar orð- inn um 220 milljónir króna og eru þó ekki öll kurl komin til grafar. Þar af nam kostnaður vegna útgáfu og prent- unar á kynningarbæklingi tíu millj- ónum króna. Fleiri en ríkissjóður munu þó bera kostnað. Frambjóðendur sem náðu kjöri í kosningunum báru flestir kostn- að af kosningabaráttu sinni sjálfir, þótt kostnaðurinn væri mismikill. Þá hafa þeir nú þegar gert ráðstafanir varð- andi vinnu, enda gerðu þeir ráð fyrir því að starfa við þingið á næstu mán- uðum. „Ég kláraði mína vinnu í des- ember og lét hjá líða að leita mér að nýju starfi vegna þess að ég gerði ráð fyrir því að vormánuðir myndu fara í stjórnlagaþing og ég vildi vera vel undirbúinn,“ sagði Pawel Bartoszek, sem náði kjöri í kosningunum. Loks hafa einhverjir þeirra þurft að tryggja sér húsnæði á höfuðborg- arsvæðinu á þeim tíma sem þingið átti að starfa, en þrír þingfulltrúa komu annars staðar frá en af höfuðborg- arsvæðinu. Erlingur Sigurðarson, sem býr á Akureyri, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri búinn að ganga frá leigu á húsnæði í borginni, en sagði að það sem og aðrir þættir sem að honum sneru væri aukaatriði í samanburði við ákvörðun Hæsta- réttar. Lögfræðingar, sem Morgunblaðið talaði við í gær, segja að ríkið geti klár- lega talist bótaskylt gagnvart þeim þingfulltrúum, sem lagt hafa út í kostnað vegna þeirrar réttmætu trúar að þeir væru réttkjörnir fulltrúar á stjórnlagaþing, en meiri óvissa ríki varðandi rétt á greiðslu þingfar- arkaups. Kostnaður um hálfur milljarður  Kostnaður vegna stjórnlagaþingskosninga og undirbúnings fyrir þær um hálfur milljarður króna  Lögfræðingar segja ríkissjóð klárlega bera ábyrgð á tjóni sem þingfulltrúar hafa orðið fyrir Kostnaður ríkisins vegna stjórnlagaþings *Ekki hefur þessi kostnaður allur komið fram nú þegar, en undir þennan lið fellur meðal annars þingfararkaup. Heildarkostnaður 540milljónir króna Kostnaður við Þjóðfund 92 milljónir króna Annar undirbúning- skostnaður 23 milljónir króna Kosningar til stjórnlagaþings 200 milljónir króna Annar kostnaður við rekstur þingsins* 225 milljónir króna „Stjórnlagaþingið tökum við ekki frá þjóðinni,“ sagði Jóhanna Sigurð- ardóttir, forsætisráðherra, er hún flutti skýrslu um ákvörðun Hæsta- réttar á Alþingi í gær. Hún bætti við að forsætisnefnd Alþingis yrði nú að fjalla um málið og leita yrði allra leiða til að tryggja að stjórnlaga- þingið yrði haldið. Ýmislegt kæmi til greina, svo sem að setja lög sem heimiluðu Alþingi að kjósa 25 full- trúa á stjórnlagaþing. Þeir fulltrúar yrðu hugsanlega þeir sömu og kosn- ir voru í nóvember yrði umboð þeirra metið fullnægjandi af Alþingi. Nokkuð hvassari tónn var í seinni ræðu Jóhönnu, lokaræðunni sem flutt var um málið á Alþingi í gær. Í henni sagði Jóhanna að fráleitt væri að vísa ábyrgð á málinu á hend- ur forsætisráðherra og ríkisstjórn- inni. Athugasemdir Hæstaréttar hefðu ekki lotið að upphaflegu laga- frumvarpi ríkisstjórnarinnar heldur framkvæmd kosninganna. „Við hljótum að leita allra leiða til að stjórnlagaþingið verði haldið og það mikilvæga verkefni sem því var falið með lögum verði klárað. Um það höfum við verið að mestu sam- mála hingað til og sú samstaða vona ég að haldi áfram. Menn eiga ekki að nýta þessa uppákomu til að slá póli- tískar keilur. Stjórnlagaþingið var tæki þjóðarinnar til að móta nýja stjórnarskrá og við tökum það ekki frá henni. Mikilvægt er að menn horfi fram á við og leiti leiða til að leysa málið.“ haa@mbl.is Jóhanna Sigurðardóttir „Við hljótum að leita allra leiða til að stjórnlagaþingið verði haldið og það mikilvæga verkefni sem því var falið með lögum verði klárað.“ Leitað verði leiða til að halda þingið „Ég tel nærtækasta kostinn að menn gangi til kosninga að nýju. Væntanlega þarf nýja lagasetningu. Ég tel mikilvægt að menn láti þetta ekki slá sig út af laginu heldur stefni að því kosningin verði algjörlega skotheld og ekki verði hægt að benda á neina annmarka,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Aðspurður hver beri ábyrgð á því að kosning til stjórnlagaþings mis- fórst segir Steingrímur að hún dreif- ist á herðar löggjafans og þeirra sem fóru með framkvæmd kosninganna, þ.e. landskjörstjórnar og innanrík- isráðuneytis. „Það er ekki ásetningsbrot að ekki hafi tekist nægilega vel upp. Enginn efast um að viljinn stóð til þess að gera þetta eins vel og mögu- legt var og láta kosningarnar takast vel. Þetta var hins vegar afar vanda- samt verk vegna fjölda frambjóð- enda og óvenjulegrar kosn- ingaaðferðar – það skýrir að niðurstöðurnar voru ekki hafnar yfir allan vafa. Það var verið að kjósa með þessum hætti í fyrsta skipti.“ Steingrímur segir ennfremur afar leitt að svona skyldi fara og þá ekki síst fyrir frambjóðendur. „Það verður einfaldlega að vinna úr þessari ákvörðun og við getum ekki bognað við þetta. Það var búið að ákveða að halda stjórnlagaþing og ég tel að vilji standi til þess að endurtaka þessar kosningar.“ haa@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon „Það var búið að ákveða að halda stjórnlagaþing og ég tel að vilji standi til þess að endurtaka þessar kosningar.“ Kosningarnar voru vanda- samt verk „Forsætisráðherra þarf að íhuga sína stöðu í kjölfar þessarar ákvörð- unar Hæstaréttar og hefði ég talið að minna tilefni þyrfti til,“ segir Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæð- isflokksins. Hún segir það mjög alvarleg tíð- indi að Hæstiréttur komist að þeirri niðurstöðu að ógilda þurfi kosn- ingar. „Maður hefði haldið að í öllum heilbrigðum lýðræðisríkjum yrði slík ákvörðun tekin alvarlega. Við- brögð forsætisráðherra bera þess ekki merki að hún taki ákvörðun Hæstaréttar af nægum þunga.“ Ólöf segir að þeir sem standi að baki frumvarpinu verði að axla ábyrgð á málinu. „Þetta er sér- staklega alvarlegt þegar um er að ræða jafnmikilvægt mál og stjórn- arskrárbreytingar.“ Ólöf segir að einungis tveir mögu- leikar séu fyrir hendi – hlíta nið- urstöðunni og aðhafast ekkert meira eða leggja fram nýtt frumvarp og byrja að nýju á byrjunarreit. „Ég hef ekki verið stuðningsmaður stjórnlagaþings og það hefur ekki breyst. Hér er um að ræða hvernig á að breyta stjórnarskránni. Ég tel að alþingismenn eigi og verði að axla ábyrgð á slíkum breytingum.“ Ólöf segir ennfremur að vinnu- brögð ríkisstjórnarinnar hafi valdið stórtjóni. „Ríkisstjórnin hlýtur að hugsa sinn gang eftir þetta. Það verður að setja áhersluna á það sem mestu máli skiptir á Íslandi í dag.“ haa@mbl.is Ólöf Nordal „Viðbrögð forsætisráðherra í þessu máli bera þess ekki merki að hún taki ákvörðun Hæstaréttar af næg- um þunga.“ Forsætis- ráðherra íhugi stöðu sína „Þetta er mikill áfellisdómur yfir þeim sem höfðu umsjón með fram- kvæmd þessara kosninga. Og í því samhengi er athyglisvert að for- sætisráðherra hefur lagt áherslu á það að mistökin hafi falist í fram- kvæmdinni en ekki í lögunum. Það þýðir að ábyrgðin liggur ekki síst hjá henni, að minnsta kosti ríkis- stjórninni, samkvæmt hennar eigin mati. Spurningin er þá: Hver ætlar að axla ábyrgðina?“ segir Sigmund- ur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Hann bætir við að Alþingi þurfi að velta fyrir sér hvort það hafi unnið málið nægilega vel. „Það er spurn- ing hvort Alþingi lét stjórnast af ríkjandi tíðaranda og gaf sér því ekki nægan tíma í gagnrýna um- ræðu um hvernig að málinu skyldi staðið.“ Hvað næstu skref varðar telur Sigmundur mikilvægast að for- gangsraða á þann hátt að atvinnu- og kjaramál verði í forgrunni hjá ríkisstjórninni næstu misserin. „Við höfum nægan tíma til að vinna að stjórnarskrárbreytingum og fólk á ekki að eyða öllum tíma sínum og kröftum í þetta mál á þessari stundu.“ Ennfremur telur Sigmund- ur að ákvörðun Hæstaréttar sé enn eitt áfallið fyrir ríkisstjórnina. „Það er orðið tímabært að ríkisstjórnin öll íhugi stöðu sína eftir tvö ár af klúðri sem er toppað með þessu. Þetta er þrjóska við að halda völdum.“ haa@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson „Það er orðið tímabært að rík- isstjórnin öll íhugi stöðu sína eftir tvö ár af klúðri sem er toppað með þessu.“ Ákvörðunin mikill áfell- isdómur „Aðalatriðið er að halda stjórnlaga- þing. Það gæti vissulega tafist með þessari ákvörðun Hæstaréttar en engu að síður verður að finna leið til að halda það,“ segir Margrét Tryggvadóttir, formaður þingflokks Hreyfingarinnar. Hún segir jafnframt að lausnin gæti falist í því að endurtaka kosn- ingarnar til þingsins. „Það gæti ver- ið að við þurfum að endurtaka kosn- ingarnar svo þingið geti starfað og þá einfaldlega gerum við það. Í svona kosningum verður að vera hafið yfir allan vafa að framkvæmd þeirra sé lögleg og réttmæt. Mér virðast þessi atriði, sem tekin voru fyrir í ákvörðun Hæstaréttar, ekki hafa haft úrslitaáhrif á niðurstöðu kosninganna. Kosningar eru hins vegar allt að því heilagar og því má enginn vafi vera fyrir hendi – allt verður að vera alveg hundrað pró- sent.“ Margrét segir að þingið verði nú að leggjast yfir málið og taka ákvörðun um næstu skref. „Helst myndi ég sjálf vilja endurtaka kosn- inguna. Það mun auðvitað kosta pen- inga en hins vegar er margvíslegur kostnaður sem ekki þarf að end- urtaka, t.d. kynningarefnið sem var gefið út. Taka tvö myndi ekki kosta jafnmikið og taka eitt.“ Margrét telur jafnframt að ábyrgðin á málinu hvíli ekki á rík- isstjórninni. „Það voru framkvæmd- arleg atriði sem stóðu í vegi. Hug- myndafræðin að baki þinginu er góð og gild.“ haa@mbl.is Margrét Tryggvadóttir „Það gæti verið að við þurfum að endurtaka kosningarnar svo þingið geti starfað og þá einfaldlega ger- um við það.“ Kosningar til þingsins verði endurteknar Hvað segja forystumenn flokkanna um niðurstöðu Hæstaréttar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.