Morgunblaðið - 26.01.2011, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011
Hæstiréttur ógildir kosningu til stjórnlagaþings
FRÉTTASKÝRING
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Tekist var á í þingsölum í aðdraganda
samþykktar laga 90/2010 um stjórn-
lagaþing. Frumvarpi til laga um
stjórnlagaþing var upphaflega dreift
á Alþingi hinn 4. nóvember 2009, en
varð loks að lögum 16. júní 2010. Eitt
þeirra skilyrða sem Framsóknar-
flokkurinn setti fram gegn því að
verja minnihlutastjórn Samfylkingar
og Vinstri-grænna vantrausti var að
efna skyldi til stjórnlagaþings. Til
marks um þá staðreynd má líta til
ummæla Eyglóar Harðardóttur,
þingmanns Framsóknar, á þingi hinn
12. júní síðastliðinn: „Við settum fram
þrjú skilyrði og eitt af þeim var
stjórnlagaþingið þannig að nú, rúmu
ári seinna, getum við sagt að minni-
hlutastjórnin sé að standa við loforð
sitt gagnvart Framsóknarflokknum.
Til hamingju, Ísland og til hamingju,
þingmenn.“
Snemma sett á oddinn
Forystumenn minnihlutastjórnar-
innar hófu fljótlega í kjölfar mynd-
unar stjórnarinnar að vekja máls á
því að stjórnlagaþing væri það sem
koma skyldi. Í aðsendri grein í Morg-
unblaðinu hinn 7. mars 2009, um sjö
vikum fyrir alþingiskosningar, skrif-
aði Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra að virkja þyrfti þann kraft,
sem fælist í þeirri umræðu sem fram
hefði farið um framtíðarskipan sam-
félagsins. Stjórnlagaþing skyldi verða
að veruleika: „Loks er gert ráð fyrir
því að ákvæði um stjórnlagaþing bæt-
ist í stjórnarskrána. Slíkt ákvæði
verður stjórnskipuleg heimild eða
grundvöllur fyrir því að efna til
stjórnlagaþings, en nánari útfærsla á
störfum og skipulagi þingsins verður
sett með almennum lögum. […] Ég vil
leggja áherslu á að gert er ráð fyrir
nánu samráði milli stjórnlagaþingsins
og Alþingis um gerð frumvarps til
nýrrar stjórnarskrár, ekki síst til að
tryggja eins og framast er kostur
vandaða meðferð málsins.“
Rætt um að kjósa strax
Upphaflega var rætt um að kosið
skyldi til stjórnlagaþings samfara
kosningum til Alþingis, sem fóru fram
25. apríl 2009. Ekki tókst að afgreiða
málið frá Alþingi í tæka tíð, svo það
væri mögulegt. Ný framboð settu
stjórnlagaþing í kjölfarið í forgrunn
sem eitt baráttumála sinna. Þannig
skrifaði Þráinn Bertelsson, efsti mað-
ur á lista Borgarahreyfingarinnar í
Reykjavíkurkjördæmi norður, í
Morgunblaðið í apríl 2009, að þáver-
andi flokkar á Alþingi væru ekki færir
um að knýja fram nauðsynlegar lýð-
ræðisumbætur: „Takmark Borgara-
hreyfingarinnar er að færa völdin frá
flokksræði til lýðræðis. Ef sá sem
þetta les treystir í raun og sannleika
Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki
og Samfylkingu til að rannsaka hrun-
ið ofan í kjölinn getur viðkomandi í
góðri trú haldið áfram að kjósa þá yfir
sig og búið sig undir frekari hörm-
ungar. Ef sá sem þetta les telur að VG
muni með Samfylkingunni sigla okk-
ur heilu og höldnu út úr kreppunni þá
hefur viðkomandi gleymt því að þess-
ir flokkar eru nú andstæðir pólar.“
Sem kunnugt er hefur Þráinn Bert-
elsson nú gengið til liðs við Vinstri-
græna.
Fáum bara eitt tækifæri
Margrét Tryggvadóttir, þingmað-
ur Hreyfingarinnar, sagði í annarri
umræðu um málið á þingi að aðeins
gæfist eitt tækifæri til að ráðast í
breytingu á stjórnarskránni: „Því
kalla ég eftir stjórnlagaþingi fólksins í
landinu, stjórnlagaþingi, sem öllum
íslenskum þegnum finnst koma sér
við. Við fáum bara þetta eina tækifæri
til að eiga þetta samtal. Landsmenn
allir: Gerum þetta vel og göngum alla
leið,“ sagði hún.
Stjórnarliðar tjáðu sig vitanlega
líka um frumvarpið á þingi, þegar
unnið var að afgreiðslu þess til laga.
Eins og áður sagði tók frumvarpið
miklum breytingum í meðförum
þingsins, og af því tilefni sagði Val-
gerður Bjarnadóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar: „Ég vil hins veg-
ar mótmæla því sem ég las eða heyrði
einhvers staðar í gær eða í morgun að
búið væri að útvatna stjórnlagaþing-
ið. Svo er hreint ekki. En ef vel tekst
til getur vel verið að við fáum krydd-
legið stjórnlagaþing.“ Ólína Þorvarð-
ardóttir, Samfylkingunni, hafði uppi
þessi orð: „Ég tel að málið hafi tekið
farsælum breytingum í meðförum
nefndarinnar. Þar hefur tekist að
sætta andstæð sjónarmið og setja þau
í lausnamiðaðan farveg, vandaðan
farveg. Málið verður unnið að viturra
manna ráði og þess jafnframt gætt að
íslenskur almenningur eigi aðkomu
að vinnunni með þjóðfundi og síðan
fulltrúa á sjálfu stjórnlagaþinginu.“
Allsherjarnefnd hafði frumvarp til
laga um stjórnlagaþing til umfjöllun-
ar. Formaður nefndarinnar, Róbert
Marshall, fullyrti við lokaafgreiðslu
málsins að allsherjarnefnd hefði aldr-
ei nokkurn tímann tekið sér eins lang-
an tíma í afgreiðslu einstaks máls:
„[É]g skynja það jafnframt í um-
ræðunni að veruleg ánægja er með
hvernig til hefur tekist hjá allsherj-
arnefnd í þessu máli.“
Fáar hliðstæður
„Það eru miklar væntingar til þess
úti í þjóðfélaginu að þjóðin sjálf fái að
fjalla um nýja stjórnarskrá og það er
löngu tímabært að við komumst eitt-
hvað áleiðis með þetta mál,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon skömmu
fyrir afgreiðslu frumvarpsins. Jó-
hanna Sigurðardóttir ritaði síðan á
vefsíðu sína tveimur dögum fyrir
kosningar til stjórnlagaþings: „Lög
um stjórnlagaþing nr. 90/2010 sem
samþykkt voru 16. júní 2010 eiga sér
fáar hliðstæður í heiminum og munu
þau væntanlega hafa áhrif á lýðræð-
isþróun og aðferðafræði við mótun
stjórnarskráa. […] Með kosningun-
um er gerð tilraun með nýtt kosn-
ingafyrirkomulag þar sem atkvæði
kjósenda nýtast mun betur en í hefð-
bundnum listakosningum.“
Morgunblaðið/Eggert
Stjórnlagaþing Létt var yfir þeim 25 fulltrúum sem kosnir voru á stjórnlagaþing, er þeir komu saman í Þjóðmenningarhúsinu skömmu eftir kosningarnar í nóvember sl.
Stjórnlagaþing verið þrætu-
epli flokkanna frá upphafi
Forsætisráðherra vildi virkja kraftinn sem fælist í umræðunni um framtíðarskipan samfélagsins
Þingmenn sögðu miklum tíma varið í málið og mærðu vandaðan og lausnamiðaðan farveg þess
Stjórnlagaþing
» Framsóknarflokkurinn setti
fram kröfu um boðun stjórn-
lagaþings gegn því að verja
minnihlutastjórn VG og Sam-
fylkingar falli í febrúar 2009.
» Jóhanna Sigurðardóttir, for-
maður Samfylkingarinnar og
forsætisráðherra, ritaði grein í
Morgunblaðið nokkrum vikum
fyrir kosningarnar í apríl 2009
um mikilvægi stjórnlagaþings.
Jóhanna hefur áður knúið á um
boðun stjórnlagaþings, en hún
lagði fram tillögu þess efnis á
Alþingi árið 1995.
» Eitt helsta baráttumál nýs
framboðs, Borgarahreyfing-
arinnar, í kosningunum í apríl
2009 var að stjórnlagaþing
skyldi haldið.
» Formaður allsherjarnefndar,
Róbert Marshall, sagði þing-
heimi að líklegast hefði nefnd-
in aldrei eytt jafnmiklum tíma í
einstakt mál og gert var í til-
felli stjórnlagaþingskosning-
anna.
» Ólína Þorvarðardóttir benti
á í umræðum á Alþingi að loks
hefði tekist að koma stjórn-
lagaþingsmálinu í vandaðan og
lausnamiðaðan farveg.