Morgunblaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 Á Alþingi Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra var íbyggin á svip í gær þegar stjórnlagaþingsumræður fóru fram en öllu þyngra var yfir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra. Ernir Samið hefur verið „Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 44/ 1999, með síðari breyt- ingum.“(Lagt fyrir Al- þingi á 139. löggjaf- arþingi 2010-2011.) Ég vil hvetja fólk til að lesa frumvarpið í núverandi mynd sem má finna á vef umhverfisráðuneyt- isins. Það er áhugavert fyrir alla að skynja þar þann nýja tón sem sleginn er í viðhorfum til ræktunarstarfs í landinu. Titillinn lætur lítið yfir sér já – en 1. grein býr lesandann strax undir það sem koma skal. „Ágeng framandi lífvera“ er nefnd strax í fyrstu línu. Manni dettur ósjálfrátt í hug leikritið Innrásin frá Mars. En gamanlaust þá er þetta hugtak rauði þráðurinn í hrollvekju frumvarpsins sem boðar afnám frelsis ein- staklingsins til gróð- ursetningar og rækt- unarstarfa á Íslandi. Það eru boðuð áður óþekkt höft á ræktun í landinu, þar sem mið- stýring ráðuneytis og hugmyndafræði um „ágengar framandi líf- verur“ skal taka við af grasrótarstarfi almenn- ings sem hefur skilað okkur óendanlega mikl- um lífsgæðum. Í staðinn skal umhverfisráðherra taka sér allt vald til að ákveða hvaða plöntur eru óvinir ríkisins og hvar þær þarf að uppræta hvar sem þær finnast. Það er algerlega ný hugsun að setja rækt- unarstarfi skorður með handafli en við þekkjum vel skorður vegna van- kunnáttu, veðurfars og norðlægrar legu landsins. Tímamót urðu á Íslandi á fyrri hluta síðustu aldar í viðhorfum til uppgræðslu og ræktunar almennings í kjölfarið á frumkvöðlastarfi fram- sýnna manna og aðstoð vinaþjóða. Það sannaðist að unnt væri að rækta fleira en áður var talið gerlegt hér á landi. Fáir tóku sér þá í munn orðið skógur en litlir kantaðir skógarreitir sem við þekkjum öll af ferðum okkar um landið eru til vitnis um þann áhuga sem ríkti þrátt fyrir margs konar mótdrægni. Birkiskógarnir gömlu hafa alltaf verið okkar stolt og þeim höfum við Íslendingar sinnt æ betur með vaxandi áhuga og þekk- ingu í skógrækt. Eftir a.m.k. 50 ára lærdóm af rækt- unarstarfi í landinu hafa augu okkar lokist upp fyrir því að fjöldi tegunda á sér líf í íslenskri mold ef rétt er að staðið og nýlega heyrum við af rækt- un ávaxtatrjáa sem kom öllum gleði- lega á óvart. Ræktun á Íslandi hefur alfarið byggst á framtaki almennings, áhugasamtaka og bænda með sér- fræðinga sér við hlið. Þekking hefur aukist til muna allra síðustu áratugi og ekki síður áræðni í að prófa nýjar tegundir samfara batnandi loftslagi a.m.k í bili. Sú ræktunargleði sem ríkir hér á landi og hið góða veðurfar á enga samleið með hugmyndafræði umhverfisráðuneytisins sem vill skil- greina margar okkar helstu trjáteg- undir sem „ágengar framandi líf- verur“ og gefur tóninn um hvað þeirra bíður í framtíðinni. Þetta frumvarp í núverandi mynd gengur í berhögg við og ógnar ræktunarstarfi almennings. Það leggur einfaldlega dauða hönd kerfisins á margra ára- tuga þrotlausa vinnu við að græða upp landið og finna nýjar tegundir sem geta þrifist hér. Það er fleira hrollvekjandi í frum- varpinu en ofuráherslur á hömlur s.s. eftirlits- og skattheimtukerfi á rækt- un almennings í landinu. Eða hvernig stóð á því að garð- og skógræktarfólk um allt land hafði ekki aðkomu að samningu þessa frumvarps en fær eingöngu að gefa umsögn undir óvið- unandi tímapressu. Hvers vegna fær maður það á tilfinninguna að hópur „sérfræðinga“, sem óttast ekkert meir en „ágengar framandi lífverur“ í náttúru Íslands, hafi viljað sitja óá- reittur við samningu frumvarpsins, með sína hugmyndafræði vitandi það að ræktendur á öllum sviðum eru þessum hugmyndum algerlega and- snúnir. Og enn fremur vitandi það að almennt er engin sátt um það í land- inu hvenær skal telja lífveru „fram- andi“. Ég spyr: Er vilji fyrir því í ráðuneytinu að þröngva þessari hug- myndafræði upp á ræktunarstarf al- mennings á Íslandi? Nú er þetta frumvarp til umsagnar m.a. hjá aðild- arfélögum Skógræktarfélags Íslands í nokkra næstu daga og hvet ég alla sem bera hag garð- og skógræktar á Íslandi fyrir brjósti að kynna sér frumvarpið og láta sig málið varða. Eftir Kristjönu Bergsdóttur » Það er algerlega ný hugsun að setja ræktunarstarfi skorður með handafli en við þekkjum vel skorður vegna van- kunnáttu, veðurfars og norðlægrar legu landsins. Kristjana Bergsdóttir Höfundur er kerfisfræðingur og er stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Reykjavíkur. (www.heidmork.is) Ágengar framandi lífverur Öllum má vera ljóst að mikið þarf til að koma til að Hæstiréttur ógildi almennar kosningar í landinu. Það hef- ur nú gerst og fram hjá þeirri niðurstöðu verður ekki komist. Lögin um stjórnlaga- þing, sem meiri hluti Alþingis samþykkti síðastliðið sumar, fela Hæstarétti að úrskurða í kærumálum vegna kosning- anna. Sú niðurstaða liggur nú fyrir og ákvörðun réttarins er bæði samhljóða og skýr. Þar kemur fram að þeir fjölmörgu annmarkar, sem bent hefur verið á í sambandi við kosningarnar, leiði til ógildingar þeirra. Ógilding kosn- inganna verður til þess að óbreyttu, að ekki verður af því stjórnlagaþingi, sem gert var ráð fyrir að tæki til starfa í næsta mánuði. Næstu daga þurfa menn innan þings og utan auðvitað að fara yfir hvað fór úr- skeiðis. Við fyrstu sýn virðist ljóst að ræt- ur vandans liggja í þeirri lagasetningu, sem ríkisstjórnin hafði frumkvæði að og þingið samþykkti, með atkvæðum stjórn- arflokkanna og hluta stjórnarandstöð- unnar. Þar var um að ræða tilraunastarf- semi, sem leiddi til ótal vandamála í framkvæmd. Það er ekki stórmannlegt af einstaka ráðherrum og þingmönnum að reyna að varpa allri ábyrgðinni í því sam- bandi á þá sem þurftu að framfylgja lög- unum, hvort sem um var að ræða lands- kjörstjórn eða embættismenn. Hvað sem öðru líður hlýtur ábyrgðin að hvíla þyngst á þeim, sem komu málinu af stað og linntu ekki látunum á þingi fyrr en það var á end- anum afgreitt. Þar var for- sætisráðherra fremstur í flokki. Óháð forsögu málsins stendur Alþingi nú frammi fyrir tveimur valkostum. Ann- ars vegar væri hugsanlegt að setja málið á ís, um sinn að minnsta kosti. Þá gæfist kost- ur á að fara yfir allan grundvöll málsins, hvort og þá hvernig ætti að efna til stjórn- lagaþings, hvenær og með hvaða hætti ætti að kjósa, og svo framvegis. Vonandi gæti sú umræða orðið yfirvegaðri og skyn- samlegri en þegar málið kom síðast til kasta þingsins. Hins vegar er auðvitað hægt að fara þá leið að fara strax í nýja lagasetningu, þar sem reynt yrði að takast á við vandamálin, sem upp komu í kosningunum í nóvember og færa til betri vegar þau atriði sem Hæstiréttur taldi að leiða ættu til ógild- ingar. Þá þyrfti að sjálfsögðu að kjósa að nýju til stjórnlagaþings og fresta öllum tímasetningum í samræmi við það. Væri reynt að fara þessa leið er hins vegar rétt að hafa í huga, að alls ekki er víst að málið nyti sama stuðnings á Alþingi og á síðasta ári. Þar kemur margt til, auk þeirra vandamála sem í ljós hafa komið varðandi sjálft kosningafyrirkomulagið. Í fyrsta lagi er alltaf að verða skýrara og skýrara að ekkert samhengi var milli ákvæða stjórn- arskrárinnar og þeirra vandamála sem leiddu til bankahrunsins 2008. Stjórnlaga- þing og breytingar á stjórnarskrá í ein- hverju bráðræði eru ekki heldur með nein- um hætti svar við þeim vandamálum sem hrunið olli. Þá hefur komið í ljós að kostn- aður við stjórnlagaþing verður fyr- irsjáanlega miklu meiri en gert var ráð fyrir á síðasta ári. Síðast en ekki síst er áhugi almennings á stjórnlagaþingi mun minni en nokkurn grunaði. Kjörsóknin í nóvember sýndi svo ekki verður um villst að hugmyndir um stjórnlagaþing eiga ekki neinn sérstakan hljómgrunn hjá miklum meiri hluta landsmanna. Fleira mætti nefna, en allt þetta hlýtur að vera þing- mönnum verulegt umhugsunarefni. Um þetta verður auðvitað fjallað á næstu dögum. Boltinn er augljóslega hjá ríkisstjórninni og stjórnarmeirihlutanum á þingi. Sennilega mun forsætisráðherra skipa nefnd til að fjalla um málið og að svo stöddu er ekki ástæða til að amast við því. Ríkisstjórnin getur ekki vikist undan ábyrgð Eftir Birgi Ármannsson »Hvað sem öðru líður hlýt- ur ábyrgðin að hvíla þyngst á þeim, sem komu málinu af stað og linntu ekki látunum á þingi fyrr en það var á endanum afgreitt. Birgir Ármannsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Það var ekki þingflokkur Sjálfstæðisflokks- ins sem ógilti kosningar til stjórnlagaþings. Það var Hæstiréttur Íslands sem komst að þeirri niðurstöðu að ekki yrði hjá því komist að ógilda lýðræðislegar kosningar í þessu landi vegna annmarka sem á þeim voru. Ef ríkisstjórn Íslands og þingmeirihluti hennar hefði staðið rétt að málum væri stjórnlaga- þing að hefja störf eftir þrjár vikur. Rík- isstjórnin vandaði sig ekki við lagasetninguna og framkvæmd kosninganna var í ólagi. Úr- skurður Hæstaréttar snýst um það og ekkert annað. Málatilbúnaður forsætisráðherra á Alþingi var ráðherranum til skammar. Dómur Hæsta- réttar snýst ekki um afstöðu „íhaldsins“ né nokkurra annarra í neinu því álitamáli sem stjórnlagaþingi var ætlað að fjalla um. Ekki er það heldur stórmannlegt af æðsta fulltrúa framkvæmdavaldsins að skýla sér á bak við undirmenn sína og embættismenn og varpa ábyrgðinni á eigin klúðri frá sér til þeirra. Sá forsætisráðherra sem nú situr hefur gengið hvað harðast fram í því að kalla eftir ábyrgð ráðherra í þeim málum sem að þeim snýr. En það á víst bara við um aðra ráðherra. Og aðr- ar ríkisstjórnir. Ragnheiður Elín Árnadóttir Kosninga- klúður verkstjórans Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.