Morgunblaðið - 26.01.2011, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 26.01.2011, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 Elsku besta amma mín. Ofboðslega er sárt að þurfa að kveðja þig en ég veit að þér líður betur núna og þú ert laus við allar kvalirnar sem þú þurftir að þola undir lokin. Ég trúi því líka að það hafi verið fagnaðar- fundir þegar Albert fékk loksins að hitta og faðma mömmu sína aftur. Það koma upp ótal margar hugs- anir og yndislegar minningar á þess- ari erfiðu stundu og ég gæti skrifað heila bók um tímana sem við áttum saman. Ég var ekki gömul þegar þú fórst að taka mig alltaf með þér norður á Drangsnes, á Mýrarnar þar sem var yndislegt að vera, öll yatsy- kvöldin, kleinubakstrarnir, berja- ferðirnar, pönnukökubakstrarnir, kaupfélagsferðirnar inn á Hólmavík, bátsferðirnar og margt margt fleira. Biðin í glugganum í stofunni á hverju sumri eftir að heyra bílflautið og sjá mömmu og pabba koma keyr- andi yfir hæðina og varst þú þá alltaf búin að leyfa mér að hjálpa þér að finna kvöldkaffið sem var alltaf haft í sveitinni hjá ömmu Gyðu, rosalega var alltaf gaman hjá okkur í sveitinni og svo seinna meir þegar Sonný fór að koma með, þá var nú ennþá meira fjör á bænum. Elsku amma mín, þú varst ynd- isleg og best og alltaf var gott að koma í heimsókn til ömmu Gyðu og fá pönnukökur og ískalda mjólk og á ég eftir að sakna þess alveg rosalega Gyða Steingrímsdóttir ✝ Gyða Steingríms-dóttir fæddist í Höfðakoti á Skaga- strönd 6. júní 1935. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi 4. janúar 2011. Útför Gyðu fór fram frá Grafar- vogskirkju 13. janúar 2011. mikið að geta ekki komið í heimsókn til þín þegar ég vil. Þann 6. júní 2005 gaf ég þér bestu af- mælisgjöf sem þú hafðir fengið um æv- ina, sagðir þú mér, þá fæddist dóttir mín Emilía Karítas. Þú varst alltaf svo montin að segja fólki frá því þegar þú fékkst Emil- íu Karítas í 70 ára af- mælisgjöf og er Em- ilía mín einstaklega lánsöm að fá að vera þess njótandi að eiga sama afmælisdag og þú og að hafa fengið að kynnast þér, elsku amma mín. Elsku amma mín, allar aðrar minningar sem ég á um þig ætla ég að geyma í hjarta mínu og á ég eftir að nota þær til að segja Emilíu og litla barninu sem kemur í apríl hversu yndisleg og góð langamma þeirra var. Ég er þakklát fyrir það að þú hafir fengið að vera með okkur um jólin og áramótin og að við gátum komið til þín og sprengt fyrir þig nokkrar rakettur en þér fannst það skemmti- legast við áramótin. Þú varst alltaf svo góð við mig, ég fékk athygli þína óskipta, þú lifðir fyrir mig, hlustaðir á mig, talaðir við mig, leiðbeindir mér, lékst við mig, sýndir mér þolinmæði, agaðir mig í kærleika, sagðir mér sögur, fræddir mig og baðst með mér. Þú varst alltaf svo nærgætin og skilningsrík, umhyggjusöm og hjartahlý. Þú varst skjól mitt og varnarþing. Við stóðum saman í blíðu og stríðu, vorum sannir vinir. Mér þótti svo undur vænt um þig, elsku mamma mín. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Elsku amma mín, ég kveð þig núna með sorg í hjarta og ég veit að þú vakir yfir okkur og leiðbeinir okkur áfram í lífinu. Yndislegar minningar um þig munu hjálpa okk- ur að komast yfir mestu sorgina. Rabbi og Emilía Karítas biðja að heilsa Ég elska þig. Þín dótturdóttir, Þórey Gyða Þráinsdóttir. Okkar góða vinkona og samstarfs- kona Gyða Steingrímsdóttir er nú horfin á braut. Gyða var skemmtileg, dugleg og mjög góður félagi í SVD Eykyndli hér í Vestmannaeyjum. Hún var í stjórn deildarinnar frá 1975 og varð formaður 1983, en því embætti gegndi hún í eitt ár. Mjög gott var að starfa með Gyðu, hafði hún mikinn áhuga á slysa- varnamálum og lagði mikla starfs- gleði í málefnið. Þótti okkur leitt er hún flutti upp á fastalandið, en sam- band hafði hún við okkur eftir sem áður. Það var mikil kátína og gleði að vera með Gyðu í sumarferðum okkar Eykyndilskvenna á árum áður og átti hún ekki síst þar hlut að máli. Minningin um Gyðu Steingríms- dóttur mun lifa í hugum okkar Ey- kyndilskvenna með þakklæti fyrir kynni af góðri, glaðri og elskulegri konu, sem vann af heilum hug að slysavörnum í þágu okkar allra. Við sendum ástvinum hennar okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd SVD Eykyndils Vest- mannaeyjum, Nanna Rósa Magnúsdóttir. Elsku besti afi minn. Ég sit og hugsa um þig. Þú komst mér oft til að hlæja. Þegar ég fór með þér á stóra olíubílnum sem lítill aðstoðarmaður við að dæla olíu á tankana við húsin í Halldór Rósmundur Helgason ✝ Halldór Rós-mundur Helgason fæddist í Vest- mannaeyjum 1. júní 1926. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2. janúar 2011. Útför Halldórs fór fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 14. jan- úar 2011. Hafnarfirði. Þegar við töluðum við karlana á bryggjunni í Hafnar- firði um heima og geima eða unnum sam- an á bensínstöðinni og seinna þegar ég flutti til ykkar ömmu Siggu á Hraunbrúnina. Ég minnist ferðalag- anna með þér og ömmu Siggu um landið og hvað það var skemmti- legt að fara með ykkur í heimsóknir. Þú varst mér besti afi í heimi og þessar minningar ylja núna eins og allt annað sem þú gerðir fyrir mig. Ég elska þig, afi minn, og er þér ævinlega þakklátur fyrir umhyggju þína og alla þá gleði sem þú veittir mér. Halldór Rósmundur. Elsku afi. Mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Það fyrsta sem kemur í huga mér er þegar ég fékk að fara til ykkar ömmu inní Hafnarfjörð með rútunni rétt 6-7 ára og ég vissi að ég átti að fara út hjá bensínstöðinni hans afa. Alltaf tókst þú á móti mér í strætó- skýlinu og ég fékk að vera með þér í vinnunni þar til að amma væri búin að vinna, ég man hvað það var gaman á bensínstöðinni, að hjálpa þér að dæla bensíni á bílana, raða olíubrúsum og fleiru í hillurnar, þú passaðir alltaf uppá að mér leiddist aldrei með þér í vinnunni. Það var alltaf gaman að koma til ykkar ömmu á Hraunbrúnina enda var ég svo heppin að fá að vera mikið hjá ykkur þar sem lítil stelpa, svo flytjið þið suður í Njarðvíkurnar til að vera nær börnum ykkar og barna- börnum. Nokkrum árum seinna fellur amma frá og tók það mikið á þig eins og okkur öll. Það tók þig langan tíma að halda áfram en það hafðist loks og þú blómstraðir, varst virkur í kór eldriborgara, lærðir að skera út í tré og skarst út gestabækur, klukkur og fleira. Ég held að þú hafir gert klukk- ur handa öllum, meira að segja eiga börnin mín klukkur eftir þig í her- bergjum sínum enda kölluðu þau þig klukku-afa sem þú hafðir nú gaman af. Þú varst alltaf mikill snyrtipinni, hvort sem var með heimilið, bílskúr- inn eða bílinn þinn, allt var í röð og reglu svo ekki sé minnst á klæðnað- inn, alltaf flottur í tauinu. Sorgin er eigingjörn, en ég veit að þú ert kominn á góðan stað og þið amma eruð saman á ný eftir tæpan 18 ára aðskilnað og eruð ábyggilega stolt af börnum ykkar og afkomendum. Ég veit við munum hittast á ný, þakka þér fyrir samveruna, elsku afi, þín verður sárt saknað. Hvíldu í friði. Kveðja, Bjarklind Alda. „Stirðnuð er haga höndin þín, gjörð til að laga allt úr öllu“ (Jónas Hallgrímsson) Hörður Þorvaldsson vinur og starfsfélagi er fallinn frá eftir harða baráttu við krabbamein. Þótt stórt skarð sé hoggið í hópinn er þakklæti fyrir samveruna okkur efst í huga. Hörður var einstakur starfsfélagi, Hörður Þorvaldsson ✝ Hörður Þorvalds-son fæddist á Deplum í Fljótum, Skagafirði, 12. nóv- ember 1942. Hann andaðist á heimili sínu 4. janúar 2011. Útför Harðar var gerð frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 13. janúar 2011. ljúfur í lund og hjálp- samur. Hann bar með sér andblæ liðinna tíma inn í síhvikult borgarlífið enda var hann fæddur og uppal- inn í einni fegurstu sveit landsins, Fljót- um í Skagafirði. Það einkenndi hann því að hafa dálítið annað sjónarhorn á málefni líðandi stundar en flest okkar, fátt kom honum úr jafnvægi – þó vottaði fyrir óþoli um hábjargræðistímann. Við kveðjum elskulegan félaga og sendum innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu hans. F.h. samstarfsfólks hjá framkvæmda- og tæknisviði í Háskóla Íslands, Sigríður Björnsdóttir. Ég sé mig knúna til að gera at- hugasemdir við Ljósvakapistil Sigtryggs Sigtryggssonar sem birtist í blaðinu í gær. Þar sér Sigtryggur ástæðu til að hnýta í störf mín sem upplýs- ingafulltrúi Ís- landsbanka und- ir fyrirsögninni „Gat ekki veitt upplýsingar“. Gagnrýni Sig- tryggs snýr að því að ég hafi ekki „getað“ veitt upplýsingar um hversu miklar fjárhæðir væri að tefla í Byr lán- unum svokölluðu. Í pistlinum virðist Sigtryggur gefa sér að bankinn hafi þessar tölur á reiðum höndum og að ég hafi staðið í vegi fyrir því að fjöl- miðlar fengju upplýsingarnar. Þetta er rangt og virðist ein- göngu byggjast á getgátum pistlahöfundar. Hið rétta er að blaðamaður Morgunblaðsins, Þórður Gunn- arsson, hafði samband við mig síðla föstudags, skömmu eftir að dómar féllu í héraðsdómi, og spurði um uppreiknað virði lán- anna. Uppreiknað virði um- ræddra lána var ekki fyrirliggj- andi svo skömmu eftir að niðurstöður dómstóla lágu fyrir enda um að ræða mörg lán, ýmist í erlendum gjaldmiðlum eða verð- tryggð í íslenskum krónum. Ég benti Þórði hinsvegar á að áður hefði komið fram í fjölmiðlum að um væri að ræða í kringum 10 milljarða króna. Í pistlinum fjallar Sigtryggur einnig um störf upplýsingafull- trúa í fyrirtækjum og finnur þeim flest til foráttu. Ég hef sjálf ekki átt í samskiptum við Sigtrygg og tek því gagnrýni hans ekki til mín. Íslandsbanki hefur skýra stefnu varðandi upplýsingagjöf til fjölmiðla og leggur áherslu á að veita þeim góða þjónustu. Vissu- lega má þó alltaf gera betur. Íslandsbanki leggur metnað sinn í að upplýsa eins fljótt og auðið er um þá hluti sem leyfilegt er að upplýsa. Það er hins vegar ekki gerlegt að upplýsa um þætti sem ekki liggja fyrir enda stefna bankans að veita fjölmiðlum rétt- ar og áreiðanlegar upplýsingar sem byggjast á staðreyndum en ekki ágiskunum. GUÐNÝ HELGA HERBERTSDÓTTIR, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka. Rétt skal vera rétt Frá Guðnýju Helgu Herbertsdóttur Guðný Helga Herbertsdóttir Bréf til blaðsins Fyrr í mán- uðinum lagði Sjálf- stæðisflokkurinn fram svohljóðandi tillögu í bæjarstjórn Kópavogs: „Bæj- arstjórn skorar á ráðherra samgöngu- mála að draga til baka allar hug- myndir um vegtoll á akstur bifreiða til og frá höfuðborg- arsvæðinu“. Pétur Ólafsson, fulltrúi Samfylking- arinnar, sagði þá orðrétt þegar til- lagan var til um- ræðu „Ég tel að bæjarstjórn Kópa- vogs sé ekki vett- vangur fyrir þessa umræðu,“ og lagði svo til að bæj- arstjórn hætti að tala um þetta. Þá sagðist hann einnig vera mikið á móti vegtollum og ekki sjá af hverju þetta ætti að vera póli- tískt mál. Sagðist jafnframt vera í flokki sem væri í ríkisstjórn sem stæði frammi fyrir mörgum erfiðum ákvörðunum. Hjálmar Hjálmarsson, fulltrúi Næstbesta flokksins, steig einnig í pontu og sagði: „Mér finnst þessi vegatollahugmynd glötuð.“ Síðan sagðist hann taka undir með hugmyndafræðinni í bók- uninni. Í kjölfarið var svo gengið til atkvæðagreiðslu og þessir tveir bæjarfulltrúar, ásamt fjór- flokkameirihlutanum, vísuðu til- lögunni sem þeir voru efnislega sammála frá og komu þannig í veg fyrir að bæjarstjórn Kópa- vogs gæti komið skoðun sem meirihluti var fyrir á framfæri við ráðherra samgöngumála og bæjarbúa. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks studdu hins vegar allir tillöguna. Hamskipti Samfylk- ingarinnar í Kópavogi Afstaða Samfylking- arinnar í þá veru að bæjarstjórn sé ekki rétti vettvangurinn til að fjalla um sam- göngur til og frá höf- uðborgarsvæðinu er sérstök í sögulegu samhengi, eins og sjá má á eftirfarandi til- lögu, sem lögð var fram af bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarstjórn 9. janúar árið 2007: „Bæjarstjórn Kópa- vogs skorar á sam- gönguráðherra að ráð- ast þegar í tvöföldun Suðurlandsvegar frá höfuðborginni að Hveragerði.“ Greinargerð: Tvö- földun Suðurlands- vegar varðar Íslend- inga alla og þá ekki síst íbúa höfuðborgarsvæðisins. Málið á sérstakt erindi við íbúa Kópavogs, þar sem stór hluti Suðurlandsvegar frá Hafravatns- vegi að Hveragerði liggur um land Kópavogsbæjar. Það væri synd að segja að Samfylkingin væri samkvæm sjálfri sér og hvað varðar ákvæði laga um að sveitastjórnarmenn skuli fylgja eigin sannfæringu skiptir það fjórflokkameirihlut- ann í Kópavogi engu máli. Þeir ná þó allavega saman um það að kasta sannfæringu sinni fyrir róða. Það eru ekki góð tíðindi fyrir Kópavogsbúa. Samfylking í Kópavogi ver vegtollana Eftir Ármann Kr. Ólafsson Ármann Kr. Ólafsson » Það væri synd að segja að Sam- fylkingin væri samkvæm sjálfri sér og hvað varðar ákvæði laga um að sveitastjórn- armenn skuli fylgja eigin sannfæringu … Höfundur er oddviti Sjálfstæð- isflokksins í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.