Morgunblaðið - 26.01.2011, Side 28

Morgunblaðið - 26.01.2011, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 Kristín Marja Baldursdóttir mun á morgun, fimmtudag halda fyrirlestur á Há- skólatorgi HÍ, stofu 105, um stórvirki sitt, skáldsögurnar um Karitas. Bækurnar hafa á síðustu árum vakið mikla at- hygli, hér heima og erlendis. Hefst fyrirlesturinn kl.12. Er fyrirlesturinn hluti af fyrirlestraröðinni Hvernig verður bók til? sem er skipu- lögð af ritlist við Íslensku- og menningardeild, í samvinnu við Bókmennta- og listfræðistofnun. Kristín Marja hefur sent frá sér efni af ýmsu tagi, skáldsögur, smásögur og ævisögu. Bækur hennar hafa verið þýddar á mörg tungumál. Bækur Segir frá skáldsög- unum um Karitas Kristín Marja Baldursdóttir Ellen Kristjánsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og Kristjana Stefánsdóttir bjóða upp á tón- leikana Í eldhúskróknum í Salnum, föstudaginn 11. febr- úar kl. 20. Ætla þær að syngja sín uppáhaldslög frá ýmsum tím- um í sínu lífi sem þær syngja ein, tvær eða þrjár, eftir því hvað hentar hverju sinni. Á hljóðfæri spila Eyþór Gunnarsson og Valdimar Kolbeinn. Söngkon- urnar eiga margar skemmtilegar minningar tengdar lögunum og deila þeim með áhorfendum á milli laganna, og að auki verða sýndar myndir úr myndaalbúmum þeirra síðan þær voru táningar. Tónlist Notaleg eldhús- stemning í Salnum Ellen Kristjánsdóttir Einleikurinn Brák eftir Bryn- hildi Guðjónsdóttur hefur verð- ir sýndur undanfarin þrjú ár á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi. Verkið var skrifað til flutnings þar og hefur sýn- ingin, sem Brynhildur leikur sjálf í, í leikstjórn Atla Rafns Sigurðssonar, gengið fyrir fullu húsi. Nú hafa Brynhildur og Landnámssetur þegið boð um að sýna Brák í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu á næst- unni. Sýningar í Kúlunni hefjast sjötta febrúar. Brynhildur hlaut tvenn Grímuverðlaun fyrir verkið, sem leikkona í aðalhlutverki og einnig sem leikskáld ársins 2008. Leiklist Einleikurinn Brák í Þjóðleikhúsið Brynhildur Guðjónsdóttir Tilkynnt var í gær að Hrafnhildur Arnar- dóttir myndlistarkona hljóti Norrænu textíl- verðlaunin í ár. Eru það helstu textílverðlaun Evrópu, en verðlaunaféð er 250.000 sænskar krónur, um 4,5 milljónir króna. Verðlaunin veitir Stiftelsen Fokus Borås-stofnunin í Sví- þjóð og verða þau afhent í Borås í Svíþjóð í nóvember. Um leið verður opnuð sýning á verkum Hrafnhildar í Textílsafninu í Borås. Í tilkynningu segir að Hrafnhildur, sem er þekkt undir listamannsnafninu Shoplifter, hljóti verðlaunin fyrir nýstárlega og hug- myndaríka notkun sína á hári, mannshári og gervihári. Frá Árinu 1994 hefur Hrafnhildur verið búsett í New York, þar sem hún lauk meist- aragráðu frá School of Visual Arts. Hún hef- ur meðal annars sett upp stóra hárinnsetn- ingu í Museum of Modern Art, gert háskúlptúra fyrir Björk Guðmundsdóttur og er einnig sögð hafa haft áhrif á fram- úrstefnulegar hágreiðslur poppsöng- konunnar Lady Gaga. „Hár er hið mannlegasta af öllum text- ílefnum,“ er haft eftir Hrafnhildi sem mun næst sýna hér á landi þegar hún tekur þátt í HönnunarMars hátíðinni með sýningu í Hönnunarsafni Íslands. Þá hefur Norræna húsið í Reykjavík skipað Hrafnhildi næsta sýningarstjóra Nordic Fashion-tvíæringsins sem verður haldinn í Nordic Heritage Mu- seum í Seattle USA síðar á árinu. Á síðustu árum hafa verk Hrafnhildar ver- ið á sýningum víða í Bandaríkjunum, hér á landi, og í fleiri löndum. Í verkunum notast hún við ýmsa miðla, frá vatnslitum að hári, og vinnur oft í samstarfi við aðra listamenn og hönnuði. efi@mbl.is Hrafnhildur vinnur norræn verðlaun  Hrafnhildur Arnardóttir hlýtur helstu textílverðlaun Evrópu fyrir myndverk úr hári Morgunblaðið/RAX Hrafnhildur og hárið Listakonan á sýningu sinni í i8-galleríi fyrir tveimur árum. Á morgun, fimmtudag, klukkan 17 verða árlegir tónleikar á Kjarvals- stöðum í tilefni af fæðingardegi W.A. Mozarts en þessir tónleikar hafa verið haldnir á annan áratug. Að þessu sinni verður píanóið í aðalhlutverki en fluttar verða tvær píanósónötur, í D-dúr KV 211 og í a-moll KV 310, auk Du- pont-tilbrigðanna. Flytjendur eru píanóleikararnir Ástríður Alda Sigurðardóttir, Birna Hallgríms- dóttir og Aladár Rácz. Þá flytja Krystyna Cortes og Laufey Sig- urðardóttir tvær sónötur fyrir pí- anó og fiðlu. Altli Heimir Sveinsson mun spjalla um tónlistina sem flutt verður, sem og um tónskáldið. Velgjörðarmaður mannkyns „Við lítum á tónskáldið sem einn af velgjörðarmönnum mannkyns og það er full ástæða til að minn- ast hans árlega á þennan hátt,“ segir Laufey Sigurðardóttir fiðlu- leikari þegar hún er spurð út í til- efni tónleikanna. „Þótt Mozart verði aldrei gerð nægilega góð skil, þá má reyna.“ Að þessu sinni verður píanóið í forgrunni og Laufey segir að það sé hægt að raða allskyns efnis- skrám saman þegar leitað er í smiðju Mozarts, en á liðnum árum hefur sama verkið aldrei verið flutt tvisvar á þessum tónleikum á Kjarvalsstöðum. „Við höfum átt afskaplega gott samstarf við Listasafn Reykjavík- ur á þessum tíma,“ segir hún. „Flygillinn þar hljómar svo ein- staklega vel að það er gaman að fá að heyra þessi verk flutt með hon- um. Mér finnst hann vera einhver hljómfegursti flygill á Reykjavík- ursvæðinu.“ Tónleikar á afmæli Mozarts  Píanóið verður í aðalhlutverkinu Birna Hallgrímsdóttir Aladár Rácz Ég var líklega alltaf á leiðinni. Hrunið var svo lokahnykkurinn30 » Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Myrkir músíkdagar hefjast á morgun, fimmtudag og standa fram á sunnudag. Að vanda er efnisskráin æði fjölbreytileg. Sem dæmi má nefna að á fimmtudag leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Daníels Bjarnasonar, meðal annars verk eftir hann; á föstudag er Tríó VEI í Norræna húsinu og Missa Pacis – Hljóm- eyki flytur verk eftir Sigurð Sæv- arsson í Neskirkju; á laugardag leika Íslenski saxófónkvartettinn á Kjarvalsstöðum og Kira Kira í Norðurpólnum; og á sunnudag má meðal annars heyra Samuli Kosm- inen á fjölskyldutónleikum, sjá Caput-hópinn og Pars Pro Toto og hlýða á Nínu Margréti Gríms- dóttur kynna í tali og tónum dokt- orsverkefni sitt um Pál Ísólfsson. Mikil gróska í frumsköpun „Eins og ætíð er dagskráin mjög fjölbreytileg – fjölbreytileik- inn er eitt af aðalsmerkjum Myrkra músíkdaga,“ segir Pétur Jónasson sem er ásamt Kjartani Ólafssyni listrænn stjórnandi há- tíðarinnar. „Á efnisskránni eru meðal ann- ars tónverk eftir allra yngstu tón- skáldin, nýútskrifuð úr Listahá- skólanum, og allt upp í þau elstu. Ekki er minna frumflutt af verk- um í ár en venjulega, í rauninni er stór hluti verkanna frumfluttur – við gætum verið að slá met í ár hvað það varðar.“ Tónleikarnir eru haldnir víða á Reykjavíkursvæðinu og segir Pét- ur þá aldrei hafa dreifst svo víða. „Í ljósi árferðis og óvissu í pen- ingamálum, þar sem ekkert heyr- ist frá opinberum aðilum varðandi styrki fyrir 2011, þá þurftum við að finna staði þar sem hægt væri að leika gegn vægu gjaldi. Þannig verða tónleikar í Hugmyndahúsi Háskólanna og í Ásmundarsal Listasafns ASÍ. Við njótum líka frábærs viðmóts ráðamanna í Listasafni Reykjavíkur, Hafn- arborg, Norræna húsinu og Listaháskólanum.“ En er þörf fyrir hátíð sem þessa, með framsækinni nútíma- tónlist? „Án efa, gróskan í frumsköpun er svo mikil hér, ekki síst í tónlist. Tónsmíðar eru vaxandi listgrein og vegur Listaháskólinn þar þungt en þaðan er að koma ný kynslóð fólks sem getur allt.“ Pétur segir að aðsókn á Myrka músíkdaga hafi aukist ár frá ári. Hátíðin er snörp að þessu sinni, sautján tónleikar á fjórum dögum. „Menn verða að hafa sig alla við en það er nægur tími til að kom- ast á milli staða,“ segir Pétur og brosir. Fjölbreytileikinn eitt af aðals- merkjum Myrkra músíkdaga  Sautján tón- leikar á dag- skránni næstu fjóra daga Morgunblaðið/Brynjar Gauti Caput-hópurinn Á sunnudaginn kemur Caput fram ásamt Pas Pro Toto í Norðurpólnum. Flutt verður „5-hjóladrif“ eftir Atla Heimi Sveinsson. Íslenski saxófónkvartettinn. Daníel Bjarnason Nína Margrét Grímsdóttir Tríó VEI leikur í Norræna húsinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.