Morgunblaðið - 26.01.2011, Page 29

Morgunblaðið - 26.01.2011, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 Það var troðfullt í Lang-holtskirkju á djass-tónleikum Eyvarar Páls-dóttur og fjögurra frækinna djassleikara. Hætt er við að fámennara hefði verið hefði fær- eyska dívan ekki sungið. Það kom þó ekki á óvart að hún skyldi efna til djasstónleika. Á Jazzhátíð Reykjavíkur 2007 flutti hún eigin verk með Stórsveit Reykjavíkur, en þau hafði hún hljóðritað áður með Stórsveit danska ríkisútvarps- ins. „Tröllaslagur“ hét sú plata og var aldeilis frábær einsog nýja platan hennar „Lavra“ sem er á stundum myrk og dulúðug einsog „Tröllaslagur“ en á sér líka blíða tóna. Eitt hinna blíðu laga „All blue“ flutti hún frábærlega í Lang- holtskirkju – eins og flest annað, færeysk lög og barnagælur, klass- íska söngdansa og síðast en ekki síst verk eftir félaga sína í hljóm- sveit kvöldsins. Eyvør er voldugur sópran og „Vocalless“ eftir Kjartan Valdi- marsson, sem tónleikarnir hófust á er mögnuð textalaus lína, síðan tók „Einhvers staðar“ Sigurðar Flosa- sonar og Aðalsteins Ásbergs við. Tvö önnur verk þeirra félaga flutti hún: „Ástand“ og „Vináttu okkar“. Eyvør er dramatísk söngkona og sýndi það vel þarna. Sólóar Kjart- ans voru flottir, dálítill samstígandi í „Ástandinu“ áður en Einar Valur greip á lofti trillur hans og sló óvenju vel uppbyggðan trommu- sóló. Eins má nefna frábæran textalausan söng Eyvarar við altó- leik Sigurðar. Einar Valur hefur samið fallegt sönglag við ljóð Guð- mundar Bjarnasonar landlæknis, sem orti undir dulnefninu „Gest- ur“. „Sorgardans“ nefnist það og var flutningurinn hnökralaus. Þá er að geta þess sem Eyvør er óvönust að gera: syngja klassíska söngdansa. Þeir voru fjórir á dag- skránni. „Laufblöð falla (Autum leaves)“ hinn franski, „Cry me a ri- ver“ sem til er hljóðrituð með einni helstu djasssöngkonu Íslands- ögunnar, Sigrúnu Jónsdóttur. Þar örlaði eilítið á tilgerð í flutningi Eyvarar af þeirri ætt sem stundum kemur við sögu hjá Ellen, Röggu Gröndal og Önnu Mjöll. Sem betur fer var engu slíku til að dreifa í flugeldasýningunni í lok snilld- arsöngdans Cole Porters „Night and day“ og í uppklappinu, „Sum- mertime“ eftir þá Gershwin- bræður, fór Eyvör á kostum ásamt kvartettinum. Þessi vögguvísa úr „Porgy and Bess“ er flestum lög- um oftar á efnisskrá söngvara og því skemmtilegt hvernig fimm- menningarnir, með þykka hljóma og karabískan, hryn umbyltu arí- unni og svo var raddbeiting Eyv- arar einstök – ekki síst er hún renndi sér í átt til himna eins og Alice Babs með Ellington-bandinu. Stórbrotin rödd Langholtskirkja Eyvør og landsliðiðbbbbn Eyvør Pálsdóttir söngur og gítar, Sig- urður Flosason altósaxófón, Kjartan Valdimansson píanó, Þorgrímur Jóns- son bassa og Einar Valur Scheving trommur. Sunnudagskvöldið 23.1. 2011. VERNHARÐUR LINNET TÓNLIST Eivör Raddbeiting hennar er einstök að mati gagnrýnanda. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ce qu’il faut pour vivre,eða Lífslöngun, er fram-lag sendiráðs Kanada áÍslandi til Franskrar kvikmyndahátíðar þetta árið og er það býsna mögnuð kvikmynd, átakanleg að mestu en þó brosleg á köflum. Kvikmyndin gerist árið 1952 og er sögusviðið Baffinsland og Que- bec-borg í Kanada. Í kvikmyndinni segir af inúítanum Tivii sem grein- ist með berkla, þarf að yfirgefa eiginkonu og börn á Baffinslandi án nokkurs fyrirvara og dvelja í tvö ár á sjúkrahúsi í Quebec. Tivii óttast mjög um fjölskyldu sína þar sem hann hefur séð um að veiða henni til matar en enginn virðist skeyta nokkru um það. Tivii er ekki frönskumælandi, getur því ekki tjáð sig við nokkurn mann á sjúkrahúsinu og er auk þess lítils- virtur af lækni og sjúklingi sem dvelur á sömu stofu og hann. Hann grípur til þess örþrifaráðs að yfirgefa sjúkrahúsið og reyna að komast aftur heim en sú strokutilraun fer út um þúfur. Fljótlega missir Tivii lífsviljann og hyggst svelta sig í hel. Þá kemur hjúkrunarkona að nafni Carole honum til bjargar og hefur upp á munaðarlausum dreng, inúíta að nafni Kaki, sem talar sama mál og Tivii og verður þeim vel til vina. Tivii finnur aftur tilgang með lífi sínu og gengur drengnum í föður stað. Lífslöngun er fyrir margra hluta sakir merkileg og vönduð kvik- mynd. Sagan er færð fram af miklu raunsæi og heillandi túlkun leikarans Natar Ungalaaq á hinum þjáða Tivii og ekki er hinn ungi Paul-André Brasseur síðri í hlut- verki berklaveika drengsins Kaki. Fordómar koma við sögu, litið er niður á „eskimóann“ og hann með- höndlaður sem annars flokks manneskja á köflum en einnig veitt forvitnileg innsýn í menning- arheim inúíta með þeim sögum af heimaslóðunum sem Tivii segir hinum unga Kaki. Myndin er einn- ig á köflum brosleg og þá er ekki síður hlegið á kostnað okkar Vest- urlandabúa, að okkar venjum sem okkur þykja oft og tíðum vera þær einu réttu. Má þar t.d. nefna atriði þar sem Tivii er færður diskur með spagettí, hann hefur ekki hugmynd um hvernig á að borða þennan furðulega mat og reynir að skófla honum upp í sig með skeið. Þá er ekki síður skondið atriði þar sem Tivii fær loksins almennilegan mat, hráan fisk. Sorgin knýr einn- ig dyra sem og ástin. Í þessari frásögn er ekki dregin upp svart-hvít mynd af heiminum og samskiptum fólks af ólíkum menningarsamfélögum, enginn er algóður eða alvondur, við erum fyrst og fremst manneskjur með alla okkar kosti og galla. Maður þakkar fyrir að fá kvikmyndir á borð við þessa til landsins, Holly- wood tröllríður jú kvikmynda- húsum megnið af árinu og lítið um kvikmyndir á öðru tungumáli en ensku. Frönsk kvikmyndahátíð er því hvalreki fyrir þá sem vilja til- breytingu. Saga inúíta Frönsk kvikmyndahátíð Ce qu’il faut pour vivre bbbbn Leikstjóri: Benoit Pilon. Aðahlutverk: Natar Ungalaaq, Paul-André Brasseur og Éveline Gélinas. 102 mín. Kanada, 2008. Sýnd í Háskólabíó. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYND Vinir Tivii kennir Kaki að tálga út dýr og segir honum veiðisögur frá Baffinslandi. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Ofviðrið (Stóra sviðið) Mið 26/1 kl. 20:00 Fim 10/2 kl. 20:00 10.k Fim 3/3 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 8.k Fim 17/2 kl. 20:00 7.k Fim 10/3 kl. 20:00 Fim 3/2 kl. 20:00 9.k Sun 20/2 kl. 20:00 Sun 13/3 kl. 20:00 Ástir, átök og leiftrandi húmor Fjölskyldan (Stóra svið) Lau 29/1 kl. 19:00 Lau 5/2 kl. 19:00 aukas Lau 19/2 kl. 19:00 aukas Fös 4/2 kl. 19:00 auka Fös 11/2 kl. 19:00 aukas Sun 27/2 kl. 19:00 aukas Síðustu sýningar Faust (Stóra svið) Fös 28/1 kl. 20:00 aukas Lau 12/2 kl. 20:00 aukas Fös 18/2 kl. 20:00 aukas Sun 6/2 kl. 20:00 aukas Sun 13/2 kl. 20:00 aukas Aukasýningar vegna fjölda áskorana Elsku Barn (Nýja Sviðið) Mið 26/1 kl. 20:00 5.k Fim 3/2 kl. 20:00 Mið 16/2 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 6.k Mið 9/2 kl. 20:00 Fim 17/2 kl. 20:00 Mið 2/2 kl. 20:00 Fim 10/2 kl. 20:00 Sýningum lýkur í febrúar! Afinn (Litla sviðið) Mið 26/1 kl. 20:00 9.k Sun 30/1 kl. 20:00 Lau 12/2 kl. 19:00 Fim 27/1 kl. 20:00 10.k Fim 3/2 kl. 20:00 Sun 13/2 kl. 20:00 Fös 28/1 kl. 19:00 11.k Fös 4/2 kl. 19:00 Fim 17/2 kl. 20:00 Fös 28/1 kl. 22:00 aukas Lau 5/2 kl. 19:00 Fös 18/2 kl. 19:00 Lau 29/1 kl. 19:00 Sun 6/2 kl. 20:00 Lau 19/2 kl. 19:00 Lau 29/1 kl. 22:00 Fös 11/2 kl. 19:00 Sun 20/2 kl. 20:00 Óumflýjanlegt framhald Pabbans Nýdönsk í nánd (Litla svið) Mið 9/2 kl. 20:00 frums Mið 23/2 kl. 20:00 4.k Fös 25/2 kl. 22:00 Fim 10/2 kl. 20:00 2.k Fim 24/2 kl. 20:00 5.k Mið 16/2 kl. 20:00 3.k Fös 25/2 kl. 20:00 6.k Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Sun 30/1 kl. 14:00 Lau 12/2 kl. 14:00 Sun 20/2 kl. 14:00 Lau 5/2 kl. 14:00 Sun 13/2 kl. 14:00 Lau 26/2 kl. 14:00 Sun 6/2 kl. 14:00 Lau 19/2 kl. 14:00 Sun 27/2 kl. 14:00 Bestu vinkonur allra barna Afinn – HHHH J.V. DV Fíasól ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.