Morgunblaðið - 26.01.2011, Side 31

Morgunblaðið - 26.01.2011, Side 31
12 Úr kvikmyndinni The King’s Speech. Tíu kvikmyndir hafa verið til- nefndar til Óskarsverðlaunanna í ár og verða þau afhent í lok febrúar. Kvikmyndin The King’s Speech hlaut flestar tilnefningar, 12 alls, en næstflestar hlaut True Grit, 10 til- nefningar. Kvikmyndirnar sem tilnefndar eru til verðlaunanna sem besta mynd ársins 2010 eru Inception, The Fighter, Black Swan, The Kids Are All Right, The King’s Speech, 127 hours, The Social Network, Toy Story 3, True Grit og Winter’s Bone. Eftirfarandi leikarar eru til- nefndir fyrir bestan leik í aðal- hlutverki: Javier Bardem, Jeff Bridges, Jesse Eisenberg, Colin Firth og James Franco. Tilnefndar sem besta leikkonan í aðal- hlutverki eru Annette Bening, Ni- cole Kidman, Jennifer Lawrence, Natalie Portman og Michelle Willi- ams. Tilnefningar fyrir leikstjórn hlutu Darren Aronofsky, David O. Russell, Tom Hooper, David Finc- her og Joel Coen og Ethan Coen. The King’s Speech með flestar Óskarsverðlaunatilnefningar MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 Körlum og konum er stund-um uppsigað við risannDisney, sjá í honum allskyns óprúttin bellibrögð til að klófesta barnssálina og maka krókinn eins og hægt sé á sakleysi hennar og ekki síst foreldranna sem láta allt eftir ungunum. En það er nú einu sinni svo að þessar teikni- myndir í fullri lengd sem fyrirtækið sendir frá sér reglubundið (og er Tangled sú fimmtugasta) eru iðu- lega svo skotheldar að allt slíkt verður að hjómi þegar töframáttur bíóupplifunarinnar læsir sig um þig. Og Tangled uppfyllir þau skil- yrði með glans. Disney hefur reynd- ar strítt við smáþurrk á þessum fyrsta áratug aldarinnar (Brother Bear (2003), Home on the Range (2004), Chicken Little (2005) og Meet the Robinsons (2007) voru lítt að gera sig) en komst í fluggírinn á nýjan leik í hittiðfyrra með hinni bráðvel heppnuðu The Princess and the Frog. Bangsímon er svo vænt- anlegur í ár og manni því óhætt að núa saman höndum, sé mið tekið af þessum tveimur síðustu myndum. Tangled segir af Garðabrúðu (Rapunzel) sem lifir einangruðu lífi uppi í turni ásamt stjúpmóður sinni (sem hún heldur að sé alvöru móðir sín). Stjúpan nýtir Garðabrúðu til að viðhalda eilífu lífi en að því kem- ur að Garðabrúða verður óþreyju- full, sleppur úr turninum og heldur í ævintýraför ásamt sjarmerandi bandingja að nafni Flynn. Skemmst frá að segja gengur myndin afskaplega vel upp og það er tilfinnanleg natni í öllu hér, hvort sem er handrit, teikningar eða raddleikur. Handritið er stillt vel af; nægilega mikið af fullorð- insbröndurum til að halda þeim hópi við efnið en um leið er hún rík af sígildum minnum úr ævintýrum þar sem hnykkt er á grundvall- argildum eins og trausti, heið- arleika og ástleitni. Litirnir í mynd- inni eru mjúkir og bjartir og framvindan alger rússibanareið, með gnægð af „Indiana Jones“- köflum eins og ég kalla það. Þá er þetta mynd sem virkar vel í þrívídd- inni, einmitt vegna þessa. Tangled er pottþétt og vel heppn- uð afþreying, ekki tímamótaverk að vísu a la Aladdin eða Lion King, en stendur hins vegar keik og klár með sér – líkt og prinsessan í burðarrull- unni. Æsileg „Litirnir í myndinni eru mjúkir og bjartir og framvindan alger rússíbanareið,“ segir m.a. um teiknimyndina Tangled frá Disney. Ævintýri enn gerast Sambíóin Tangled bbbbn Leikstjórn: Nathan Greno, Byron How- ard. 100 mín. Bandaríkin 2010. ARNAR EGGERT THORODDSEN KVIKMYNDIR Sigurður Eyberg – Finger of God (Toes of Paul McCartney) bbbmn Það nægir að horfa til titils þessarar fyrstu sólóplötu Sig- urðar Eyberg, söngvara Deep Jimi and the Zep Creams, til að sannfærast um að hér er ekkert venjulegt efni á ferðinni. Er það líka svo, en Sigurður framreiðir alveg öldungis heillandi skrítipopp sem minnir á Beck og Jónas Sigurðsson; ekki endilega hljómrænt séð heldur hvað afstöðuna varðar, hér er alls kyns stílum hrært óhikað saman og líkt og í tilfelli áðurnefndra herra- manna gengur bræðingurinn upp að langmestu leyti, er hæfilega til- raunakenndur en um leið hæfilega hlustendavænn. Stórgóður frum- burður hjá Sigurði. Darknote – Walk into Your Night- mare bbbmn Darknote hefur verið starfandi giska lengi en þetta er fyrsta al- vöruafurðin, sjö laga stuttskífa. Hér er höggvið í knérunn sem er kirfilega merktur amerískum nýþungarokksböndum eins og Lamb of God en í ævin- týralegri köflum reka Svíarnir í Opeth inn nefið. Frumlegt er það ekki en úrvinnsla öll er til fyrir- myndar, hvort heldur í tilfelli um- slags eða hljóms. Spilamennskan er þétt, ástríðan tilfinnanleg og hver veit, kannski fáum við að heyra meira af „Darknote“ í næstu umferð. The Heavy Experience – The Heavy Experience bbbnn Tvö lög, drunga- leg og drafandi og það á forláta tíu tommu. Ég tek of- an fyrir Kimi Re- cords og piltunum sem bandið skipa að ráðast í svona útgáfu, þetta lífgar sannarlega upp á annars spræka flóruna í þeim efnum. Tónlistin er drunurokk að hætti Earth og ámóta sveita, sker sig ekki mikið frá þeim geiranum en maður nýtur vel og innilega á meðan varir. Ferlegheit – You can be as Bad as you can be Good bbbnn Þessi fyrsta plata blússveitarinnar Ferlegheita kemur skemmtilega á óvart. Meðlimir eru velflestir ungir að árum en af hljóminum að dæma mætti halda að þeir hefðu hist í Chi- cago á sjötta áratugnum. Fyrri helm- ingur plötunnar einkennist af fremur hefðbundnum rafblús en flutt- um af mikilli orku og spilagleði. Margrét Guðrún- ardóttir syngur þá eins og hún eigi lífið að leysa. Undir endann á plötunni leyfir sveit- in sér hins vegar að stíga út fyrir blúsrammann og þá fara spennandi hlutir að gerast. Frábær byrjun hjá þessari ungu sveit. Úlfur Eldjárn – Field Recordings: Music from the Ether bbbbn Þessi fyrsta eig- inlega sólóplata Úlfs Eldjárns er afskaplega vel heppnuð. Hún á sér rætur í þremur ólíkum listaverkum en stendur keik og klár ein og sér. Ekki bara að Úlfur vinni skemmtilega með möguleika hljóðfæranna, hann leikur á gömul og „útdauð“ hljóð- færi, sérsmíðar þau o.s.frv., heldur er sjálf tónlistin – innihaldið – heillandi. Þetta er falleg tónlist og viðkvæmnisleg á stundum en dökk og ágeng þegar því er að skipta. Á öðrum köflum fléttar Úlfur svo þess- um andstæðum listavel saman og eyrun eru vel sperrt frá fyrsta tóni til hins síðasta. Úr staflanum Arnar Eggert Thoroddssen arnart@mbl.is Nýútkomnar íslenskar plötur LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar THE GREEN HORNET 3D Sýnd kl. 8 og 10:20 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D Sýnd kl. 6 ísl. tal SAW 3D Sýnd kl. 8 og 10 ótextuð ALFA OG ÓMEGA Í 3D Sýnd kl. 6 ísl. tal LITTLE FOCKERS Sýnd kl. 6, 8 og 10 HROTTALEG SPENNA Í ÞVÍVÍDD HHHHH „SKEMMTILEG, FYNDINN OG SPENNANDI” - S.V BOXOFFICE MAGAZINE SPENNANDI ÆVINTÝRI SEM FÆR ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI. FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. SÝND Í 3D LÖGIN ERU BROTIN ÞEIM TIL BJARGAR í3D Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is VINSÆLA STA MYND V ERALDAR TVÆR VI KUR Í RÖ Ð! NÁNARI UPPL. Á AF.IS OG MIDI.IS -H.S, MBL-K.G, FBL SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ THE GREEN HORNET 3D kl. 8 - 10.10 BURLESQUE kl. 8 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 6 THE TOURIST kl. 10.10 GAURAGANGUR KL. 6 12 L L 12 7 Nánar á Miði.is THE GREEN HORNET 3D kl. 5.25 - 8 - 10.35 THE GREEN HORNET 3D LÚXUS kl. 5.20 - 8 - 10.35 BURLESQUE kl. 8 - 10.35 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 3.30 THE TOURIST kl. 5.40 - 8 - 10.20 GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 GAURAGANGUR KL. 5.50 MEGAMIND 3D ÍSL. TAL KL. 3.40 NARNIA 3 3D KL. 3.30 12 12 L L 12 L 7 L 7 BURLESQUE KL. 10.30 GAURAGANGUR KL. 5.50 - 8 LÍFSLÖNGUN kl. 10.10 Enskur texti BARA HÚSMÓÐIR kl. 8 Enskur texti HVÍTAR LYGAR kl. 10 Íslenskur texti ÆVINTÝRI ADÉLE BLANC-SEC kl. 6 Íslenskur texti LAFMÓÐUR KL. 8 Enskur texti LEYNDARMÁL KL. 10 Enskur texti EINS OG HINIR KL. 6 Enskur texti STÚLKAN Í LESTINNI KL. 6 Enskur texti L 7 L L L L L L L L HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR 5% 5% /haskolabio/smarabio

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.