Morgunblaðið - 26.01.2011, Side 32

Morgunblaðið - 26.01.2011, Side 32
Sundance-kvikmyndahátíðin hófst í Park City í Utah í Bandaríkjunum 20. janúar sl. og lýkur 30. janúar. Að venju hefur mikið stjörnustóð verið á götum borgarinnar og ljós- myndarar elt kvikmyndastjörnur á röndum, eins og sjá má af meðfylgjandi myndum. Hátíðin er helguð verkum sjálfstæðra kvikmyndagerðarmanna, bæði bandarískra og alþjóðlegra, og er sú umfangsmesta sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Hátíðin er því mikilvæg kvikmyndagerðarmönnum sem vilja komast á kortið og koma verkum sínum víða í sýningar. Hátíðin hóf göngu sína árið 1978 og var einn stofnenda hennar Hollywood-stjarnan Robert Redford. Svalur Leikarinn Dominic Cooper. Ljósmyndarar Leikarinn Tobey Maguire umsetinn af ljósmyndurum. Reuters Áritanir Leikkonan Anne Heche varð við óskum aðdáenda á götum úti um eiginhandaráritanir. Harðir Rapparinn 50 Cent með hnefaleikakappanum Floyd Mayweather Jr. Púkó Paul Rudd, ekki í sparifötum. Ha? Jeremy Irons virðist hissa. Bros Kate Bosworth leikkona. Koss Leik- arinn Ed Helms kyssir pappamynd af sjálfum sér. Glæsileg Leikkonan Eva Green. Líf og fjör í Park City Teiti Söngvarinn Cee-Lo Green. 32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 Kvikmyndaleikstjórinn Kevin Smith frum- sýndi nýjustu kvikmynd sína, Red State, á Sundance-hátíðinni sunnudaginn sl. Smith hafði áður auglýst að hann myndi velja sér dreifingaraðila fyrir myndina í bíósalnum að lokinni frumsýningu myndarinnar en kom mönnum á óvart með því að segjast ætla að dreifa myndinni sjálfur. Fyrirtæki hans og fé- laga hans Jon Gordon, SModcast Pictures, myndi sjá um dreifinguna. Reuters Óvænt Kevin Smith ætlar að dreifa mynd sinni sjálfur. Hér sést hann í miklu stuði á Sundance. Smith kom mönnum á óvart The Devil’s Double er ein fjölda kvikmynda sem vakið hafa athygli á Sundance- hátíðinni. Í myndinni er fjallað um Uday, eldri son Saddams Hussein, og hans hroða- verk í stjórnartíð föður hans í Írak. Í umfjöllun um myndina á kvikmynda- vefnum The Wrap segir að áhorfendur trúi því varla að Uday hafi verið jafn hryllileg persóna og sést á hvíta tjaldinu en sú sé hins vegar staðreyndin. Uday hafi haldið ungum stúlkum föngnum og nauðgað sem og nýgiftum konum, pyntað íþróttamenn eftir tapleiki og einnig sigurleiki, þar sem honum þótti þeir fá fullmikla athygli. Þá hafi hann neytt eiturlyfja og notið þess að pynta fólk. Í myndinni sé dregin upp stór- brotin mynd af skelfilegum glæpamanni og leikarinn Dominic Cooper, sem fari í fyrsta sinn með aðalhlutverk í kvikmynd, túlki Uday með sannfærandi og oft á tíðum heillandi hætti. Sagan er sögð frá sjónarhóli tvífara Uday, Latif Ahmed, sem þurfti tilneyddur að horfa upp á voðaverk þessa skrímslis. Cooper leikur báða mennina, þ.e. Uday og tvífara hans. Uday og bróðir hans Qusay voru myrtir árið 2003. Skrímslið Uday og tvífari þess Illmenni Cooper í hlutverki Uday Hussein. Sundance kvikmyndahátíðin í fullum gangi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.