Morgunblaðið - 26.01.2011, Síða 33

Morgunblaðið - 26.01.2011, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2011 „BREATHTAKING“ - THE PEOPLE HHHHH MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ Í BÍÓ FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA FRANK OG CASPER MUNU FÁ ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI. FYNDNASTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Í BÍÓ LENGI ATH. NÚMERUÐ SÆTI Í KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA ATH. NÚMERUÐ SÆTI Í ÁLFABAKKA (VIP) HHHHH - POLITIKEN HHHHH - EKSTRA BLADET HHHH - H.S.S - MBL EIN MAGNAÐASTA ÞRÍVÍDDARMYND ALLRA TÍMA M A T T D A M O N HHHH „ÞETTA ER MYND FYRIR GÁFAÐ FÓLK SEM ER NÁTTÚRULEGA FOR- VITIÐ UM HVAÐ GERIST ÞEGAR YFIR MÓÐUNA MIKLU ER KOMIÐ.“ - ROGER EBERT HHHH -THE HOLLYWOOD REPORTER H E R E A F T E R NÝJASTA MEISTARVERK CLINT EASTWOOD SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA FBL. - F.B. HHHH MBL. - H.S. HHHH SÝND Í EGILSHÖLL ERU FRÁBÆRAR Í ÞESSARI BRÁÐFYNDNU GAMANMYND MARGT GETUR FARIÐ ÚRSKEIÐIS ÞEGAR GAMLAR ÓVINKONUR ÚR FRAMHALDSKÓLANUM HITTAST Á NÝ H.S. - MORGUNBLAÐIÐ HHHH Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN HHH SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI, SELFOSSI OG KEFLAVÍK Í 3D LÖGIN ERU BROTIN ÞEIM TIL BJARGAR SETH ROGEN JAY CHOU CHRISTOPH WALTZ AND CAMERON DIAZ SÝND Í EGILSHÖLL OG SELFOSSIÍ LFABA KA, EGILSHÖLL, K INGLUNNI OG A UREYRI SPENNANDI ÆVINTÝRI SEM FÆR ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI. FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. HHHHH „SKEMMTILEG, FYNDINN OG SPENNANDI” - S.V BOXOFFICE MAGAZINE SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI „HIN FULLKOMNA STEFNUMÓTAMYND.“ - BONNIE LAUFER, TRIBUTE CANADA „SPRENGHLÆGILEG.“ - ALI GRAY, IVILLAGE.COM HARRY POTTER, HERMIONE GRANGER, RON WEASLEY OG VOLDEMORT ERU KOMIN AFTUR Í MAGNAÐASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA HHHH - BOXOFFICE MAGAZINE HHHH - Time Out New York „IT’S THE BEST FILM IN THE SERIES.“ - ORLANDO SENTINEL HHHH „ÞETTA ER KLASSÍK VORRA TÍMA.“ - Ó.H.T. – RÁS 2 HHHH MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 8 - 10:20 14 KLOVN - THE MOVIE kl. 8 - 10:20 VIP ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D kl. 5:50 ísl. tal L ROKLAND kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 YOU AGAIN kl. 5:50 - 8 - 10:20 L HEREAFTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 12 HARRY POTTER kl. 8 10 LIFE AS WE KNOW IT kl. 10:40 L / ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / AKUREYRI / SELFOSSI THE GREEN HORNET 3D kl. 5:20 - 8 - 10:40 12 KLOVN - THE MOVIE kl. 5:30 - 8 - 10:15 14 ROKLAND kl. 8 - 10:30 12 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D kl. 5:30 ísl. tal L GULLIVER'S TRAVELS 3D kl. 5:30 L HEREAFTER kl. 8 12 TRON: LEGACY 3D kl. 10:40 10 KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 9 - 10:10 14 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D kl. 6:20 ísl. tal L TANGLED 3D enskt tal kl. 8 L YOU AGAIN kl. 8 - 10:20 L MEGAMIND ísl. tal kl. 5:50 L ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI kl. 5:50 ísl. tal L YOU AGAIN kl. 8 L ROKLAND kl. 10:10 12 KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 8 - 10:10 14 THE GREEN HORNET kl. 8 - 10:20 12 KLOVN - THE MOVIE kl. 8 14 ROKLAND kl. 10:10 12 THE TOURIST kl. 8 - 10:10 12 ROKLAND kl. 8 12 PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 10:20 16 / KEFLAVÍK AF MÁNUÐI Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Janúar hefur alltaf veriðleiðinlegasti mánuður árs-ins, að mati undirritaðs, og þessi sem nú er sem betur fer að líða undir lok er svo sannarlega engin undantekning. Sífelld veikindi barna og fullorðinna hafa einkennt mánuðinn, svo virðist sem annar hver maður liggi í flensu eða öðrum óþverra og það jafnvel vikulangt, með tilheyrandi röskun á starfsemi vinnustaða og auknu álagi á þá sem sloppið hafa við pestir. Ný- ársgjöfin frá ríkisstjórninni náði ekki að gleðja undirritaðan eða auka honum bjartsýni, auknar álögur á bensín (217,9 kr. var hæsta verðið á 95 oktana þegar þetta er skrifað) og verð á áfengi og matvælum hækkar bara og hækkar endalaust, að því er virðist. Fólk sem áður náði endum saman nær því ekki lengur, verðtryggðar skuldir eru að sliga stóran hluta þjóð- arinnar og svona mætti áfram telja. Já, þetta er bara allt sam- an eitt helvítis fokking fokk! (svo maður noti nú það ágæta og margnotaða slagorð úr bús- áhaldabyltingunni svonefndu). Og maður fær ekki einu sinni að horfa á HM í handbolta án þess að kaupa sér áskrift hjá Stöð 2. Alveg hrikalega ósanngjarnt, verður að segjast. Vonandi klikkar RÚV ekki aftur á þessu.    Maður hélt um stund aðhægt yrði að orna sér í janúarnepjunni yfir góðu gengi íslenska handboltalandsliðsins og að það kæmist jafnvel á verð- launapall. Að þjóðarstoltið myndi láta á sér kræla og auka bjartsýni og dug í leiðindamán- uðinum janúar. Framan af var útlitið gott, hver þjóðin sigruð á fætur annarri en svo kom stóri skellurinn, Þýskaland og Spánn völtuðu yfir „strákana okkar“ og verðlaunadraumurinn varð að engu. Myndin af Guðjóni Vali Sigurðssyni á forsíðu Morg- unblaðsins í gær segir meira en þúsund orð. Guðjón Valur styð- ur sig við stærðarinnar ljósa- skilti sem á stendur „HAND- BALL“, hokinn af vonbrigðum að loknum Spánarleiknum. 24:32. Fjárans Spánverjarnir! Fjárans Þjóðverjarnir! Helvítis fokking fokk!!!    En hvaða fjandans væl erþetta eiginlega í blaða- manni? Á að drepa lesandann úr leiðindum? Er blaðamaður ekki ungur, sæmilegur til heilsunnar, í fastri vinnu, góðu hjónabandi, ríkur af börnum og bara í ágæt- ismálum? Á hann ekki til hnífs og skeiðar? Fer hann ekki í bíó og í leikhús og lyftir sér upp á tyllidögum? Dreypir hann ekki af og til á góðu rauðvíni og kaupir sér safaríkt nautakjöt þegar buddan leyfir? Þótt allt sé að fara til fjandans? Jú, vissu- lega er það svo. Er ekki íslenskt menningarlíf í blóma og fleiri freistandi viðburðir í janúar- mánuði en nokkur maður nær að sækja? Jú, vissulega. Og hvað er þá verið að væla? Er janúar kannski bara hugarástand, timb- urmenn að loknu jólasvalli? Maður ætti bara að vera feginn að fá að borða aftur grjónagraut eftir allt brjálæðið og einbeita sér að því að slátra Visa- reikningnum.    Vesalings janúar, það áekki af þér að ganga. Það er ekki gaman að vera hataðasti mánuðurinn. Fyrirgefðu, janúar, ég skal reyna að vera betri við þig næst. Svo ert þú nú einu sinni mánuður þorrablótanna! Mánuður mæðunnar » Það er ekki gam-an að vera hat- aðasti mánuðurinn. Fyrirgefðu, janúar, ég skal reyna að vera betri við þig næst. Morgunblaðið/Golli Vonbrigði Guðjón Valur Sigurðsson að lokinni viðureign Spánar og Íslands. Ísland 24, Spánn 32. Morgunblaðið/Ernir Gleði Menn voru hressir á þorrablóti Stjörnunnar í janúarmánuði. Leikarinn James Franco íhugar þessa dag- ana að fara með hlutverk klámmyndagerð- armannsins Chuck Traynor í væntanlegri kvikmynd um Lindu Lovelace sem lék í klám- myndinni Deep Throat frá árinu 1972. Leik- konunni Kate Hudson hefur verið boðið hlut- verk Lovelace í myndinni. Handrit kvik- myndarinnar er byggt á bók Erics Danville, The Complete Linda Lovelace. Lovelace var gift Traynor og hefur hún greint frá því að hann hafi misþyrmt henni, þvingað hana út í vændi og að leika í klámmyndum. Önnur kvikmynd um Lovelace er í bígerð, Inferno, og mun Malin Akerman fara með hlutverk Lovelace í henni. Hudson Linda Lovelace? James FrancoKate Hudson Bandaríski leik- arinn Keanu Ree- ves ræddi við nem- endur sviðslista- skólans London International Scho- ol of Performing Arts á dögunum og kom m.a. fram í máli hans að Wac- howski-bræður, leikstjórar Matrix- kvikmyndanna, ætluðu sér að gera tvær Mat- rix-myndir í viðbót og að þær yrðu í þrívídd. Ástæðan fyrir því að Reeves ræddi við nem- endur var þó kvikmyndin Henry’s Crime sem hann fer með aðalhlutverk í. Wachowski- bræður greindu Reeves einnig frá því að þeir hefðu rætt við leikstjórann James Cameron til að kynna sér þrívíddarbíótæknina betur. Þá sagði Reeves nemendum að hann væri spenntur fyrir því að leika aftur Neo. Matrix 4 og 5 á leiðinni Neo Keanu Reeves er til í að endurtaka leikinn. Í gagnrýni um kvikmyndina The Green Hor- net sem birt var í blaðinu í gær kom fram að myndin væri sýnd í Sambíóunum. Hið rétta er þó að hún er sýnd víðar, í Laugarásbíói, Smárabíói og Borgarbíói. Sena dreifir kvik- myndinni. Þá voru þau mistök gerð í grein um ballettverk Snorra Ásmundssonar og Rakelar McMahon að segja að það yrði sýnt 22. janúar. Hið rétta er að verkið verður sýnt 22. febrúar í Þjóðleikhúskjallaranum. Beðist er velvirð- ingar á þessu. LEIÐRÉTT Fleiri bíó, röng dagsetning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.