Morgunblaðið - 26.01.2011, Síða 36

Morgunblaðið - 26.01.2011, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 26. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Kosning til stjórnlagaþings ógild 2. Sex marka sigur Frakka 3. 29 ára afi 4. Frægasti rass í heimi? »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Janúarmánuður er óvenjuöflugur hvað tónlistarútgáfu varðar. Gagn- rýnandi fer yfir nokkrar nýjar plötur, m.a. sólóplötu Úlfs Eldjárn og sóló- plötu Sigurðar Eyberg, söngvara Deep Jimi. »31 Morgunblaðið/Golli Rýnt í nýjar íslenskar hljómplötur  Árið 2010 voru seldir 1.560.438 miðar fyrir 1.474.535.620 krónur í kvik- myndahús á Ís- landi, segir í fréttatilkynningu frá Snæbirni Steingrímssyni, framkvæmdastjóra Smáís. Þar segir jafnframt: „Enn og aftur var met slegið og var 2010 stærsta árið í sögu kvikmyndahúsa á Íslandi sem er frábær árangur, sérstaklega í ljósi þess að Bandaríkjamarkaður þurfti að horfa fram á samdrátt frá árinu áður. Avatar var langstærsta mynd ársins og nær þeim einstaka árangri að vera stærsta myndin á Íslandi tvö ár í röð, sem hefur ekki gerst áður í sögunni.“ Með tilkynningunni er birtur topp 20 listi. Í öðru sæti er Inception, Toy Story 3 í því þriðja, Bjarnfreðarson í því fjórða og Harry Potter and the Deathly Hallows er í því fimmta. Þrjár íslenskar myndir eru inni á topp 20 eins og fyrri ár en ásamt Bjarnfreð- arsyni eru það Algjör Sveppi og Dul- arfulla Hótelherbergið og svo Mamma Gógó. „Stærsta“ árið í íslenskri bíósögu Á fimmtudag Suðvestan 10-15, rigning eða slydda og síðar él vestantil en hægari og úr- komulítið austanlands. Hiti 0 til 6 stig en vægt frost inn til landsins N- og A-til. Á föstudag Vestan og suðvestan 8-13 og slydduél eða él en bjartviðri A-lands. Frostlaust með ströndinni en vægt frost inn til landsins. SPÁ KL. 12.00 Í DAG V 3-10 m/s. Þokuloft um vestanvert landið, en annars skýjað að mestu. SV 8-15 og rigning vestast á landinu í kvöld. Allt að 7 stiga hiti í dag. VEÐUR „Ef maður kemst ekki í und- anúrslitin þá getur maður ekki gert betur en að spila um 5. sætið. Það er eigin- lega ótrúlegt að við séum að fara að spila um það sæti, og eigum möguleika á því að jafna besta árangur Íslands á HM, í ljósi þess að við höfum tapað þremur leikjum í röð,“ sagði Sverre Jakobsson við Morgun- blaðið eftir leikinn við Frakka í gærkvöld. »2-3 Getum jafnað besta árangurinn Það verða hin sögufrægu lið Pitts- burgh Steelers og Green Bay Packers sem leika til úrslita um Ofurskálina í bandaríska ruðningnum um aðra helgi. Gunnar Valgeirsson, sérfræð- ingur Morgunblaðsins, skrifar um undanúrslitin þar sem Green Bay vann enn á útivelli, nú gegn Chicago Bears. Pittsburgh komst í 24:0 í leik sínum við New York Jets en vann nauman sigur þegar upp var staðið. »4 Sögufræg lið spila til úrslita um Ofurskálina Sigurður Sveinn Sigurðarson, hinn reyndi leikmaður Skautafélags Akureyrar, skoraði skrautlegt mark af 35 metra færi þegar SA Víkingar unnu Skautafélag Reykjavíkur, 6:1, á Íslandsmótinu í íshokkí í gærkvöld. Með sigrinum náðu Akureyringarnir þriggja stiga forskoti á SR en liðin eiga hinsvegar eftir að mætast tvisvar í Reykjavík. »4 Skrautlegt mark Sigurðar gegn SR ÍÞRÓTTIR Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Smalamót Harðar verður haldið í annað sinn í reiðhöll Harðar í Mos- fellsbæ laugardaginn 5. febrúar næstkomandi og er eins og sambæri- leg hestamannamót en það sem er óvenjulegt er að skipuleggjendurnir eru tvær ungar stúlkur í Mosfellsbæ. Harpa Sigríður Bjarnadóttir, 12 ára, og Súsanna Katarína Guð- mundsdóttir, 14 ára, segjast hafa fengið hugmyndina eftir að hafa fylgst með meistaradeild VÍS í hestaíþróttum í Ölfusi 2009. Styrkja krabbameinssjúk börn „Við vildum gera eins hérna,“ segja þær í kór. Þær létu ekki sitja við orðin tóm heldur hófu strax að skipuleggja keppni, pöntuðu tíma í reiðhöllinni í byrjun febrúar í fyrra, smíðuðu verðlaunagripi, réðu fólk til starfa við mótið og stjórnuðu því. „Það var full höll, fullt af keppendum og ókeypis inn en nú ætlum við að styrkja krabbameinssjúk börn og því kostar 500 krónur fyrir kepp- endur í unglingaflokki og upp úr en áfram verður frítt fyrir börn,“ segir Katarína. Stelpurnar skelltu sér í reiðtúr eftir að hafa gefið sér tíma með Morgunblaðinu að loknum skóla í gær. Þær segjast ríða út fimm til sex sinnum í viku og taka reglulega þátt í mótum. „Það hefur gengið rosalega vel,“ segir Harpa. „Ég var í A- og B- úrslitum á Íslandsmótinu í fyrra,“ segir hún. „Ég keppti til dæmis í úr- slitum á stórmóti Geysis í fyrrasum- ar,“ segir Katarína. Þess má geta að stelpurnar hafa sótt leiðtoga- námskeið hjá Hestamennt og að- stoðuðu við kennslu þar í fyrra- sumar. Þeir bestu með Í Smalamótinu er keppt í því að fara ákveðna braut á sem stystum tíma og fella sem fæstar keilur. Vin- konurnar vilja ná til sem flestra og hafa haft samband við Sigurbjörn Bárðarson, þekktasta knapa Ís- lands, í þeim tilgangi að fá þá bestu í keppni. „Hugmyndin er að fá knapa úr meistaradeildinni og láta þá keppa á móti okkar bestu knöpum,“ segir Harpa. Skipulagningin hefur tekið sinn tíma og því hafa þær ekki mátt vera að því að auglýsa mótið en það er næst á dagskrá. Að sjálfsögðu hafa þær tilkynnt gang mála á fésbókinni en næst á dagskrá er að koma til- kynningu um mótið í Eiðfaxa og Hestafréttir. Ungir frumkvöðlar skipu- leggja hestamannamót  Skipuleggja og stjórna Smala- móti Harðar í Mosó Morgunblaðið/Árni Sæberg Leiðtogar Harpa Sigríður Bjarnadóttir, 12 ára, og Súsanna Katarína Guðmundsdóttir, 14 ára. Eins og á flestum hestamannamótum verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki á Smalamóti Harðar auk annarra verðlauna. Í stað þess að kaupa verðlaunagripi ákváðu Harpa Sigríður Bjarnadóttir og Súsanna Katarína Guðmunds- dóttir að búa þá til sjálfar og hafa verið á fullu að ganga frá þeim, en hugmyndin er að hafa verðlaunin tilbúin í dag. „Við vildum hafa þetta öðruvísi og búa til okkar verðlaun sjálfar,“ segir Súsanna Katarína. „Við erum eiginlega alveg búnar,“ bætir Harpa Sig- ríður við, en þær hafa skorið út hesta í kross- við og merkt með tilheyrandi merkingum. Stelpurnar búa til listaverkin VERÐLAUN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.