Eyjablaðið - 29.03.1984, Side 4
4
EYJABLAÐIÐ
Viðtalið
Umsjón: Ragnar Óskarsson
Orlofsferðir
aldraðra
Langur vinnudagur
— Lítill Mtími
Um fátt hefur verið meira rætt undanfarið en kaup og kjör.
Nýlokið er kjaradeilu milli verkalýðsfélaganna hér og vinnu-
veitenda, deilu sem lauk með því að verkalýðsfélögin náðu fram
nokkru umfram það sem ASÍ og VSÍ sömdu um á sínum tíma.
Eftir að búið er að gera kjarasamninga vakna ávallt ýmsar
spurningar um kjörin og af því tilefni snéri Eyjablaðið sér til Odds
Júlíussonar verkamanns og ræddi við hann um þessi mál. Auk þess
bar bæjarmálin örlítið á góma.
— Við hvernig kjör hýr verka-
fólk í dag?
— Kjörin eru léleg. Bak viö þær
krónur sem maður fær liggur
langur vinnudagur og lítill frí-
tími. Letta er auðvitað óeðlilegt
og þessu þarf að breyta.
— Hvers vegna eru kjörin ekki
betri?
— Hvað fiskvinnslufólk snertir
er óhætt að fullyrða að hin
stóru samflot innan ASÍ hafa
haldið kjörunum niðri. Auk
þess virðast allt of margir sætta
sig við langan vinnudag til að ná
sæmilegum kjörum. Þess má
líka geta í þessu sambandi að
verkafólk er ekki nógu sam-
stillt. það hefur t.d. ekki að-
stöðu eins og læknar og tlug-
menn til að ná fram bættum
kjörum.
— Hvað er unnt að gera til þess
að breyta þessu ástandi?
— Eg tek undir þær hugmyndir
sem fram hafa kornið um að
fiskvinnslufólk eigi að vera sér
á báti þegar samið er um kjörin.
Eg er ekki í nokkrum vafa unt
að það fyrirkomulag mundi
leiða til betri kjara til handa
fiskverkafólki.
— Hvernig gekk að eiga við
atvinnurekendur hér í kjara-
deilunni sem nú er nýlokið?
— I þeirri stöðu sem uppi var
var ekki við miklu að búast.
Samningarnir voru gerðir undir
mikill pressu frá fjölmiðlum og
þar að auki var ASÍ forystan
dragbítur á félögunum hér.
Atvinnurekendur hér eins og
annars staðar hafa alltaf verið
tregir í taumi og aldrei viljað
láta neitt. Stundum hefur
maður þó á tilfinningunni að
þeir vilji gera vel en þeir eru
rígbundnir Vinnuveitenda-
sambandinu sem helst vill berja
niður hverja þá kröfu sem
verkafólk setur fram.
— Eru vinnuveitendur hér þá
ekki sjálfráðir í gerðuin sínum?
— Nei. og í raun má segja
svipað um einstök verkalýðs-
félög. ASÍ forystan móðgaðist
t.d. við okkur hér í Eyjum
þegar við felldum samningana.
Þetta finnst mér sýna að stóru
samflotin. bæði innan verka-
lýðsfélaga og hjá samtökum
atvinnurekenda hafa gengið sér
til húðar.
— Heldurðu að verkafólk hér sé
ahnennt þessarar skoðunar?
— Eg get auðvitað ekkert um
það fullyrt en ég á erfitt með að
ímynda mér annað eftir þá
reynslu sem við höfum fengið
af þessum samflotum.
— Nú hefur þú fylgst vel nieð
bæjarinálunum um nokkurt
skeið. Hvað finnst þér einkenna
þau um þessar mundir?
— Glundroði. Sannleikurinn er
sá að sjálfstæðismenn náðu hér
meirihluta út á svik og pretti.
Þeir notuðu stóran blaðakost til
að blekkja fólk en auk þess
maður á mann aðferðina. Þeir
lofuðu bílskúr hér og barna-
heimilisplássi þar til þess að ná
árangri í kosningunum. Auð-
vitað hafa þeir síðan ekki getað
staðið við neitt af þessum lof-
orðum.
— Hvernig heldur þú að tónn-
inn sé almennt í fólki gagnvart
Sjálfstæðismeirihlutanum?
— Eg veit að æði margir sjá nú
eftir atkvæöum sínum. Það er
einkenni þeirra sem sjá eftir
einhverju slíku að þegja enda
vilja nú fáir kannast við að hafa
veitt Sjálfstæðisflokknum
brautargengi í síðustu kosn-
ingum. Sá er tónninn í bæjar-
Oddur Júlíusson
verkamaður
búum.
— Hefur breyting til hins betra
ekki orðið undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins?
— Nei. þar vantar mikið upp á.
nijög tnikið og má í þessu sam-
bandi benda á mörg dæmi sem
ganga í þveröfuga átt. Eitt
nýjasta dæmi um klaufaskap
þeirra sjálfstæðismanna er
stjórnun bæjarstjórnarfunda.
Klaufaskapurinn er svo ntikill
að meira að segja atkvæða-
greiðslur verða að einum alls-
herjar skrípaleik.
Sá meirihluti sem hér sat
fram til 1982 var auðvitað
gagnrýnisverður á margan hátt.
Hann var hins vegar ábyrgur
sem ekki er hægt að segja um
þann meirihluta sem nú situr.
—Viðtal: R.Ó.
Að undanförnu hefur félags-
málaráð kannað hugsanlega
möguleika á orlofsferð aldr-
aðra í sumar. Hér á eftir verða
nefndir möguleikar, sent fyrir
hensi eru.
FERÐf SKÁLHOLT
Rauða kross deildin í Vm.
hefur áhuga á því. í samvinnu
við félagsmálaráð. að efna til
4ra daga ferðar í Skálholt í júlí
eða ágúst. í þessari ferð yrði
dvalið á glæsilegu sumarhóteli
og síðan ferðast urn sveitirnar í
kring, en þar er mergt að skoða.
Á kvöldin yrði svo að sjálf-
sögðu reynt að halda uppi ein-
hverju fjöru. Hér er örugglega
um mjög skemmtilega ferð að
ræða og verður verði stillt mjög
í hóf.
Nánari upplýsingar utn frek-
ara fyrirkomulag ferðarinnar
gefur séra Kjartan Örn Sigur-
björnsson í síma 1607.
JÚGÓSLAVÍA
Möguleiki er að komast í
ódýra 3 vikna ferð til Portoroz í
Júgóslavíu í sumar. Er þar
dvalið á finu hóteli, en á
Portoroz eru ágætis strendur og
boðið er upp á margar skoð-
unarferðir, m.a. til Feneyja á
Ítalíu. Verð ferðarinnar er 23
þús. kr. og er hálft fæði inni-
falið. Brottfarardagar eru 29.
maí og 28. ágúst.
SUMARHÚS
—DANMÖRK
Einnig hefur verið félags-
málaráð ákveðið að kanna
áhuga fyrir Danmerkurferð.
Væri þá meiningin að dvelja í
sumarhúsum í Danmörku, en
eins og allir vita hafa slíkar
ferðir orðið mjög vinsælar.
Hér eru sem sagt nefndir þrír
möguleikar, ein stutt ferð innan
lands, sem verður mjög ódýr og
svo möguleiki á tveimur utan-
landsferður. Félagsmálaráð vill
kanna áhuga fyrir þessum ferð-
um.
Nauðsynlegt er, að hafa sam-
bandfyrir 15. apríl n.k. efáhugi
er fyrir hendi.
Vinsamlegast hafið samband
við Sigurð Jónsson, í Ráðhús-
inu. í síma 1088.
Vetrarstarf
aldraðra
Fimmtudaginn 29. mars
1984 verður spilavist á
Hraunbúðum kl. 20.
Það er Knattspyrnufélag-
ið Týr sem sér um kvöldið.
Eldri borgarar eru hvattir
til að mæta og skemmta sér
eina kvöldstund á Hraun-
búðum.
w
Iþróttir Umsjón: Þorsteinn Gunnarsson
Fyrsta túrnering í
úrslitum 2. deildar
karla
S.l. helgi fór fram fyrsta úr-
slitatúrneringin af fjórum í 2.
deildinni hér í Eyjum. Fjögur
lið taka þátt í keppninni um 1.
deildarsætin tvö og var staðan
þannig fyrir úrslitakeppnina:
Þór 26 stig. UBK 22 stig. Frant
19 stig og Grótta 17 stig.
Það er skemmst að segja frá
því að yfirburðir Þórs og UBK
voru algjörir og er það nærri
öruggt að þessi Iið taki sæti.
sennilega KA og Hauka í 1.
deildinni næsta keppnistímabil.
en hinum frábæra árangri Þórs
má þakka frábæru samstarfi og
samheldni leikmannanna í
liðinu. Mörkin skiptust þannig
á milli leikmanna Þórs:
Gylfi 18
Þorbergur 17 (3 víti)
Páll 1 r
Ragnar 7
Sigbjörn 3
Þór 3
Óskar 2
Karl 1
Herbert 1
Sigmar Þröstur 1 (víti).
Þá varði Sigmar Þröstur 53
skot alls (3 víti) og Viðar
Einarsson 2 skot.
Staðan er þá þannig eftir
inn var í járnum allan tímann.
mikil spenna og var jafnt þegar
tíu mín. voru til leiksloka. En
þá hrökk allt í baklás hjá Tý, og
sigruðu Þórsarar leikinn örugg-
lega 22-17. Eini möguleikinn
fyrir Tý að komast upp í 2. deild
var að vinna efsta liðið. Ár-
menninga. á laugardeginum.
Ekki sóttu Týrarar gull í
greipar þeirra því Ármenn-
ingar sigruðu án nokkurra
vandkvæða.
Á sunnudeginum Iéku Týr
við ÍA. Þessi leikur bar
nokkurn keim af því að liðin
höfðu að engu að keppa, en Týr
vann Ieikinn með miklum yfir-
burðum 32-22.
Birminghani-Aston Villa 2
Villamenn eru að verða
óstöðvandi.
Þór Valtýsson (3) spáir:
Coventry-Ársenal 2
Með tilkomu Mariner er
Arsenal-liðið ekki auðsigrað.
Karl Jónsson spáir:
Everton-Southampton 2
The Saints mega ekki láta
L'pool og Utd. stinga alveg af.
Sigurður Ingi Ingólfsson
spáir:
Ipswich-Luton 1
Ipswich verða að sigra til að
forðast fall í 2. deild.
Jónas Sigurðsson spáir:
Leicester-Norwich 1
Af því bara.
Leikir helgarinnar fóru þannig: fyrstu túrneringuna. Þór 32 stig Lokastaðan í 3 varð þá þessi: . deildinni Þorsteinn Hallgrímsson spáir:
UBK-Grótta 28-25 UBK 26 stig Ármann 39 stig Notts Co.-Nott. Forest 2
Þór-Fram 23-16 Grótta 19 stig Þór Ak, 31 stig ..No comment".
UBK-Fram 22-20 Fram 19 stig Tvr 29 stig Gylfi Guðlaugsson spáir:
Þór-Grótta 22-18 Næsta túrnering fer fram á ÍÁ 26 stig Watford-Liverpool 2
Grótta-Fram 20-17 Seltjarnarnesi núna um helg- Þórsarar komust í 2. deild því L'pool er einfaldlega miklu
Leik Þórs og UBK var beöið ina. Vantar Þórurum 5 stiti til þeir fengu tleiri stig en Tvrarar í betra lið.
með mikilli eftirvæntingu. að gulltryggja fyrstudeildarsæti úrslitunum. Kári Þorleifsson (3) spáir:
UBK byrjaði leikinn af miklum
krafti og komust í 3-0. en smáni
saman höfðu Þórarar að vinna
upp þetta forskot og höfðu þeir
jafnað í háltleik. 8-8. í seinni
hálfleik náði Þór tveggja marka
forskoti sem þeir héldu út allan
seinni hálfleikinn og urðu loka-
tölur 19-17. Þór í vil. Sigmar
Þröstur og Páll Scheving fóru á
kostum í þessum leik eins og
reyndar í öllum leikjum Þórs í
túrneringunni og voru þeir
jafnbestu menn Þórs. Þá stóðu
Gylfi og Þorbergur einnig fyrir
sínu sem og allir leikmenn Þórs.
sitt og hafa þeir 9 Ieiki til þess.
eða m.ö.o. þeir þurfa 5 stig af
18 mögulegum.
Seinni túrnering í
úrslitum 3. deildar
karla
S.l. helgi fór fram seinni
túrneringin í úrslitum 3. deildar
karla. Mjög tvísýnt var hvaða
lið kæmust upp í 2. deild. en
það má segja að það það hafi
ráðist í leik Þórs Ak. og Týs
strax á föstudeginum. Leikur-
Tipp
Fjórir tipparar komust áfram
í síðustu keppni. þeir Kári.
Viktor. Páll og Þór.
Nú eru tveir mánuðir eftir af
keppnistímabilinu í Englandi.
þannig að nú fer hver að verða
síðastur að jafna met Gylfa
Birgissonar og Jóns Ólafs Jó-
hannssonar (5 sinnum). Það er
athvglisvert að sjá að átta spá
útisigri. einn jafntefli en aðeins
tveir heimasigri.
Grímur Gíslason spáir:
WBA-Man. Utd. 2
Bæði liðin hafa verið í góðu
formi að undanförnu. en Utd.
má ekki missa stig í baráttunni
um meistaratitilinn við Liver-
pool.
Viktor Scheving (3) spáir:
Cardiff-Chelsea 2
Chelsea verða að vinna ætli
þeir upp.
Auðunn Jörgensen spáir:
Leeds-Sheff. Wed. 2
Bannister verður í banastuði
og líður ekki það að Leeds taki
stig af miðvikudagsliðinu.
—Þo.Gu.