Morgunblaðið - 10.02.2011, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 0. F E B R Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 34. tölublað 99. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
fylgir
með
Morgu
nblaði
nu í da
g
KVENFÓLKIÐ,
BRENNIVÍNIÐ
OG SIÐPRÝÐIN
FYNDIÐ FÓLK
SEM ER MEÐ
Á NÓTUNUM
LEIKIR ÞAR SEM
ÍMYNDUNARAFLIÐ
ER Í FYRIRRÚMI
VIÐSKIPTABLAÐ OG
FINNUR.IS HUGLEIKJAFÉLAG 28SAGA ÁFENGIS 10
„Skólastjórar í
Reykjavík eru
ekki að hafna
hugmyndum um
samrekstur eða
sameiningar en
það verður að
vinna þetta í
miklu víðtækara
samráði en hefur
verið gert. Það er verið að fara of
hratt í þessar breytingar. Grunn-
skólaárið er tilbúið fyrir 1. maí ár
hvert og það að ætla að fara að
sameina eða samreka grunnskóla
er miklu meiri vinna en til tveggja
mánaða,“ segir Sesselja Ingibjörg
Jósefsdóttir, skólastjóri Haga-
skóla. Hún lagði fram tillögu á
fundi menntaráðs í gær sem var
vísað áfram til borgarráðs þar
sem óskað var eftir því að hug-
myndin um sameiningu og sam-
rekstur í grunnskólum borg-
arinnar kæmi ekki til fram-
kvæmda 2011. »12
Borgarráð ákveður
hvort sameiningu
verði frestað um ár
Sesselja Ingibjörg
Jósefsdóttir
Frá Arion til dótturfélags
» Söluferli á kjölfestuhlut í
Högum hefur nú staðið yfir í
nokkra mánuði, en Arion banki
á félagið og hefur umsjón með
ferlinu. Dótturfélag Arion,
Stefnir, átti hæsta boð í Haga.
» Lágverðsverslunin Bónus
skilar meira en helmingi veltu
fyrirtækisins.
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Stefnir átti hæsta tilboðið í kjöl-
festuhlut í Högum, en Arion banki
hefur unnið að því að selja félagið
undanfarna mánuði. Nokkur kergja
er sögð í öðrum sem tóku þátt í sölu-
ferlinu vegna þessa, enda um að
ræða dótturfyrirtæki Arion banka.
Arion banki tók Haga yfir fyrir
rúmlega ári. Bankinn bauð síðan
kjölfestuhlut til sölu og nú er allt út-
lit fyrir að eitt dótturfélaga þessa
sama banka eignist félagið.
Vaxtaberandi skuldir Haga, sem
eru í formi kúlulána með gjalddaga
árið 2015, eru í dag um 12 milljarðar
króna. Tilboð Stefnis hljóðaði upp á
13-14 milljarða auk yfirtöku skulda,
sé miðað við verðlagningu á öllu
hlutafé félagsins. Heimildir Morg-
unblaðsins herma þó að Stefnir
hyggist aðeins kaupa um 20-25%
hlut í fyrirtækinu. Einnig hefur
blaðið heimildir fyrir því að bankinn
hafi hafnað tilboði í allt félagið, sem
hljóðaði upp á 20 milljarða, að yfir-
teknum skuldum meðtöldum. Sá
kaupendahópur hefði því lagt út um
átta milljarða króna, hefði bankinn
tekið boði hans.
10% frá fataverslunum
Velta Haga, sem rekur mikinn
fjölda fata- og matvöruverslana, var
um 65 milljarðar á síðasta ári. Heim-
ildamenn Morgunblaðsins herma að
innan við 10% þeirrar veltu eigi upp-
runa sinn í fataverslunum fyrirtæk-
isins. Um helmingur allrar veltu fyr-
irtækisins komi frá Bónusi.
Stefnir bauð hæst í Haga
Dótturfélag Arion banka átti hæsta boð í kjölfestuhlut í smásölurisanum Högum
Kergja í öðrum sem buðu í félagið Rúmlega helmingur af veltu fer um Bónus
MViðskipti
Dæmi um nýja
skatta frá 2007
Auðlegðarskattur 1,50%
Skattur á rafmagn 0,12 kr.
Skattur á heitt vatn 2%
Bankaskattur 0,04%
Afdráttarskattur á
vaxtagreiðslur 10%
Skattlagning gengis-
innlánsreikninga 20%
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Á síðustu tveimur árum hafa ríflega
eitt hundrað efnisbreytingar verið
gerðar á skattalögum, bæði í álagn-
ingu nýrra skatta og hækkun ann-
arra. Þessum breytingum er ætlað
að hjálpa til við að brúa bilið í rekstri
ríkissjóðs, en áhrif þeirra á hegðun
fólks getur verið önnur en að er
stefnt.
Alexander G. Eðvardsson, sviðs-
stjóri skattasviðs KPMG, segir að
auðveldlega sé hægt að sjá að auð-
legðarskattur, hækkanir á bensín-
og áfengisgjöldum og svokallaður af-
dráttarskattur á vaxtagreiðslur hafi
haft umtalsverð áhrif á hegðun fólks
og fyrirtækja.
„Ég þekki þess dæmi að fólk hafi
gripið til ýmissa ráða til þess ann-
aðhvort að minnka greiðslu auðlegð-
arskatts eða jafnvel að komast hjá
henni. Í sumum tilfellum hefur fólk
flutt úr landi, en eftir aðstæðum get-
ur það með þeim hætti komist alfarið
hjá greiðslu auðlegðarskatts, eigna-
skattar af þessu tagi eru nú fátíðir í
löndunum í kringum okkur.“
Alexander segir að þessi leið sé
þeim einkum fær sem eigi töluvert af
erlendum verðbréfum. Málið sé
flóknara þegar eignirnar eru á Ís-
landi. „Fólk þarf alltaf að borga
skatt af tekjum, sem eignir búa til og
fólk sem flytur út kemst ekki hjá því
að greiða fjármagnstekjuskatt af ís-
lenskum verðbréfum, svo dæmi sé
tekið. Hins vegar þarf það ekki að
greiða auðlegðarskattinn, ef það býr
ekki hér á landi, nema það hafi fjár-
magnstekjur hér á landi og eigi eign-
ir á Íslandi umfram skattleysis-
mörk.“ »Viðskipti
Flytja úr landi til að forðast skatta
Yfir hundrað efnisbreytingar hafa verið gerðar á skattalögum á tveimur árum
Það var mikill kærleikur í félagsmiðstöðinni
Þróttheimum í gær þar sem unglingar úr Laug-
ardalnum skemmtu sér saman á tónleikum með
Retro Stefson. Um kvöldið var svo blásið til
dansleiks í Vogaskóla.
Skemmtanirnar voru hluti af hinum árlegu
Kærleikum sem eru samstarfsverkefni unglinga
úr félagsmiðstöðvunum Laugó, Þróttheimum og
Buskanum.
Kærleikur hjá unglingunum í Laugardalnum
Morgunblaðið/Golli
„Það kemur
ekki til greina að
hætta alveg sorp-
brennslu,“ segir
Eygló Kristjáns-
dóttir, sveitar-
stjóri Skaft-
árhrepps, um ósk
umhverfisráðherra um að sveitar-
stjórnir Skaftárhrepps, Horna-
fjarðar og Vestmannaeyja skoði
alla möguleika til að hætta eða
draga verulega úr sorpbrennslu. Á
Hornafirði er verið að skoða hversu
mikið hægt er að draga úr sorp-
brennslu eða hvort hægt sé að
hætta starfsemi í bili. Bæjarstjóri
Eyja segir að ef ríkið sé tilbúið til
að mæta þeim kostnaði sem mynd-
ast við það að koma til móts við ósk
ráðherra standi ekki á þeim. »6, 14
Íhuga að draga
úr brennslu