Morgunblaðið - 10.02.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.02.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011 Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is „Við skulum bara vona að hann verði gæfuríkari en Presley. Hann verður kannski farsæll og flottur söngvari, eins og Elvis Costello,“ segir Ólafur Daði Helgason. Theódór Elvis er fyrsta barn hans og Olgu Möller, sambýliskonu hans, og fyrsti Íslendingurinn sem ber eiginnafnið Elvis. Mannanafnanefnd sam- þykkti nafnið á fundi sínum undir lok janúar og færði það á mannanafnaskrá sem eiginnafn. Elvis var skírður í Fríkirkjunni í Hafnarfirði fljótlega í kjölfar- ið, hinn 29. janúar síðastliðinn. Skráningin á manna- nafnaskrá var ekki auðsótt. Á meðal skilyrða þess að fá nýtt eiginnafn samþykkt er að það taki íslenskri beygingu í eignarfalli og brjóti ekki í bága við íslenskt málkerfi. Eignarfall eiginnafnsins Elvis er þannig Elvisar. Ólafur segir mannanafnanefnd ekki hafa hafnað skráningunni, en tekið sér góðan tíma til umfjöllunar. Fyrir utan eyðublöð og umsóknir hafi hann staðið í bréfaskriftum við nefndina og fært rök fyrir sínu máli. „Ég var farinn að ganga dálítið langt með þetta. Ég fékk til dæmis afa minn, sem er íslenskufræðingur, með mér í lið og spurði hvort hann þekkti einhverja prófessora við Árnastofnun. Mér skilst að ég hafi fengið aðstoð þaðan, þannig að það gæti verið að afi gamli hafi kippt í einhverja spotta,“ segir Ólafur. „Fíla ekki allir Elvis?“ „Það er okkar hugmynd að hann verði bara kall- aður Elvis Ólafsson,“ segir Ólafur. Foreldrarnir hafi sett Theódór fyrir framan til vara, ef ske kynni að Elvis yrði einungis samþykkt sem millinafn. „Okkur fannst það líklegra,“ bætir hann við. „Theódór er þá bara falið núna, en við notum það kannski „spari“ eða ef það þarf að skamma drenginn. Við hefðum ekki þurft þess, eftir á að hyggja, en við vorum búin að nefna hann það til þess að fá þetta í gegn. Hann ber þetta vonandi vel, en ef hann fílar kannski ekki Elvis getur hann náttúrlega notað Theódór.“ En af hverju Elvis? „Hvers vegna ekki Elvis?“ spyr Ólafur á móti. „Fíla ekki allir Elvis?“ Hann segir þau foreldrana þó ekki forfallna aðdáendur rokkgoðs- ins líkt og ætla mætti af nafngift frumburðarins. Gest- ir á heimili þeirra muni til dæmis ekki finna altari til minningar um Elvis, eins og hörðustu aðdáendurnir koma sér upp. „Persónulega er ég meiri Stones- aðdáandi,“ segir Ólafur. „En það er bara ekki jafnflott að heita Keith Ólafsson og að heita Elvis Ólafsson. Þetta er flott nafn og fellur líka vel að íslenskri tungu.“ Morgunblaðið/RAX Engan æsing! Ólafur Daði Helgason og Olga Möller virða frumburðinn fyrir sér. Elvis litli kippir sér ekkert upp við athyglina sem honum er sýnd og sefur værum svefni. Fyrsti Elvis Íslands  Theódór Elvis Ólafsson er fyrsti Íslendingurinn sem ber eiginnafnið Elvis  Theódór verður bara „spari“ Meiri niðurskurður er á Landspít- alanum en kemur fram í beinhörðum tölum, til dæmis með fækkun al- mennra lækna. Þetta segir Eyjólfur Þorkelsson, formaður Félags al- mennra lækna. Mikið álag er á starfsfólki spítalans sem kvartar undan streitu í starfi. „Út af því að við erum fljótandi vinnukraftur er mjög auðvelt að fækka okkar störfum án þess að það komi beint fram á blaði sem niður- skurður. Við erum öll ráðin tíma- bundið í hálft ár eða heilt, fæst leng- ur en það. Þegar læknir lýkur sínu ráðningartímabili er svo einfalt að ráða bara ekki nýjan í staðinn.“ Seg- ir Eyjólfur að almennum læknum hafi verið fækkað um í kringum 25 á einu ári og sé það um 20% fækkun. Margir með streitueinkenni Þegar eru farin að sjást merki um áhrif niðurskurðarins segir Eyjólf- ur. Í nýlegri könnun um líðan og álag í vinnu sem gerð var á spít- alanum kemur fram að hátt hlutfall lækna, sérstaklega almennra lækna og kandídata, er með líkamleg og andleg álagseinkenni. „Þeim finnst þeir ekki ná að ljúka þeim störfum sem þarf að ljúka, þeir eiga erfitt með að aðskilja vinnu og einkalíf, þeir vinna fram eftir, ólaunað jafn- vel, og eru með króníska þreytu og streitueinkenni. Þar er því mikið álag þarna.“ Þá segist margir þeirra ekki sjá framtíð sína á spítalanum. Viðbrögð spítalans hafa ekki verið nógu sannfærandi að mati Eyjólfs en starfsmönnum hafi þó verið boðið í hópviðtöl hjá sálfræðingi. kjartan@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Landspítali Mikið álag er á læknum við spítalann í kjölfar niðurskurðar. Falinn nið- urskurður á spítölum Könnun sýnir fram á mikið álag á lækna Embætti sérstaks saksóknara hefur fengið í hendur gögn sem lagt var hald á við húsleit í Banque Havill- and, áður Kaupþingi í Lúxemborg. Gögnin vega samtals um 150 kg. Þau varða rannsókn á viðskiptum með hlutabréf í bankanum sjálfum sem og viðskipti með skuldatrygg- ingar, sem ætlað var að hafa áhrif á skuldatryggingarálag. Gögn um Banque Havilland komin BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is Athugasemdakerfi netmiðla kunna að taka breytingum fari meiðyrða- mál fjölskyldu, sem býr við Aratún í Garðabæ, fyrir dómstóla. Fjöl- skyldan krafði sjö einstaklinga um opinbera afsökunarbeiðni og miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla sem þeir létu falla í at- hugasemdum við frétt sem birtist á fréttavefnum dv.is. Tveir þeirra hafa þegar beðist afsökunar og samþykkt bótakröfuna. Stefnur á hendur öðrum verða að öllum lík- indum birtar í næstu viku. Burtséð frá atvikum í ofan- greindu máli er athyglisvert að um er að ræða fyrstu mál sinnar teg- undar, þ.e. sem höfðuð eru á þess- um grundvelli. „Þarna verður bæði eiganda vefsvæðisins, þ.e. rétthafa lénsins sem er DV ehf., og við- komandi einstaklingum sem við- hafa ummælin stefnt,“ segir hæstaréttarlögmaðurinn Vilhjálm- ur H. Vilhjálmsson en hann gætir hagsmuna fjölskyldunnar. Þetta er því prófmál um þessi tilteknu atriði, þar sem menn viðhafa um- mæli undir fullu nafni í athuga- semdakerfi og á ákveðnum vef- miðli. Útbreiðslan sjálfstætt brot Taka ber fram að áður hafa ver- ið höfðuð mál vegna ærumeiðandi ummæla á bloggsíðum og dómar fallið. Eiganda vefsvæðis hefur hins vegar ekki áður verið stefnt fyrir birtingu slíkra ummæla. Vilhjálmur segir að ef málin fari fyrir dómstóla verði þau mjög áhugaverð út frá lögfræðilegu sjónarhorni. „Það er auðvitað refsivert að viðhafa ærumeiðandi aðdróttun og birta hana opinber- lega, en svo er þetta líka spurning um dreifingu og útbreiðslu æru- meiðinganna, sem er sjálfstætt brot.“ Vilhjálmur segir löngu tíma- bært að dómstólar kveði upp úr í málum sem þessum enda kominn tími á að komið sé böndum á æru- meiðandi aðdróttanir og gífuryrði í almennri umræðu á vefnum. Hann er á þeirri skoðun að falli dómur skjólstæðingum hans í hag – fari málin fyrir dóm – geti það einnig breytt því hvernig athugasemdakerfi eru sett upp, og þá hugsan- lega tekin upp ein- hvers konar rit- skoðun á ummæl- um áður en þau eru birt. „Það á ekki síst við í þessu tilviki þar sem eig- andi vefsvæðisins hefur þann fyr- irvara að áskilja sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum. Út frá því hlýtur að mega gagnálykta, að þeir telji að þau ummæli sem fái að standa séu ekki ærumeið- andi.“ Hann segist telja að það breyti ekki máli hversu lengi æru- meiðandi ummæli fái að standa enda sé brotið framið um leið og þau birtist. Höfundum ummælanna verður stefnt á grundvelli almennra sönn- unarreglna og þurfa þeir að sýna fram á það með einhverjum hætti að þau stafi ekki frá þeim. Einnig verður DV ehf. stefnt og þá á grundvelli þess að það er eigandi vettvangsins þar sem ummælin voru látin falla og ber þar með ábyrgð á birtingu og dreifingu þeirra. Vilhjálmur segir að í stefnu verði gert ráð fyrir sameiginlegri ábyrgð og því er DV einnig stefnt. Prófmál um ummæli á netinu  Útlit er fyrir að fimm einstaklingum verði stefnt vegna ærumeiðandi ummæla í athugasemdakerfi  Eigandi vefsvæðisins talinn bera sameiginlega ábyrgð vegna birtingar og dreifingar ummælanna Héraðsdómur Reykjaness kveð- ur upp dóm eftir hádegi í dag í meiðyrðamáli sem höfðað var í kjölfar Lúkasarmáls- ins svonefnda sem vakti mikla athygli og umfjöllun árið 2007. Sá er sakaður var um að drepa hundinn Lúkas höfðaði málið á hendur konu vegna um- mæla sem hún viðhafði á bloggsvæði sínu. Hann krefst 500 þúsund króna í miskabætur. Dómsupp- saga í dag LÚKASARMÁLIÐ „Þetta er vorboði, heldur betur,“ sagði Sigurgeir Jónasson, ljós- myndari Morgunblaðsins og fugla- áhugamaður, í Vestmannaeyjum. Hann sá í gær að svartfuglinn var sestur upp í Ystakletti. Sigurgeir var búinn að fylgjast með fuglabæl- unum og í gær fylltust allir kórar og holur í Ystakletti. „Þetta er langmest langvía. Ég sá hann fyrst á litlum syllum ofan við við Klettshelli. Svo kíkti ég á aust- urhliðina á Ystakletti og þar var fugl í öllum fallegu stóru kórunum og koppunum. Búinn að koma sér fyrir á hverri einustu syllu.“ Sigurgeir sagði að samkvæmt sínum bókum hefði svartfuglinn sest upp á sama degi í fyrra, 9. febr- úar. Faðir hans, Jónas heitinn Sig- urðsson í Skuld, fylgdist einnig með svartfuglakomum. Einu sinni settist fuglinn upp 4. febrúar og er ekkert dæmi um að hann hafi sest fyrr upp. Sigurgeir sagði algengt að svartfuglinn settist upp í annarri viku febrúar og fram undir miðjan mánuð. Svo virðist sem svartfuglinn fylg- ist vel með loðnunni og taldi Sig- urgeir þetta gefa til kynna að stutt væri í að loðnugangan næði til Vestmannaeyja. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Langvíur Fuglabælin iða nú af lífi. Svartfuglinn settist upp í Eyjum í gær Kom sama dag í fyrra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.