Morgunblaðið - 10.02.2011, Page 6

Morgunblaðið - 10.02.2011, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011 BAKSVIÐ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Það gengur ekki að fólki sé refsað fyrir ráðdeild- arsemi og sparsemi en það er gert,“ segir Helgi K. Hjálmsson, formaður Landssambands eldri borg- ara. „Velferðarkerfið er útjaskað.“ Morgunblaðið greindi í gær frá bréfi Kristínar H. Tryggvadóttur lífeyrisþega til forsætis-, fjár- mála-, velferðar- og innanríksiráðherra, þar sem hún spyr hvað hafi orðið um lífeyrissjóðinn sinn, sem hún hafi unnið sér inn á 40 árum. Hún spyr hvers vegna ríkið taki af henni um 120 þúsund kr. í skatt og um 240 þúsund kr. í gjöld til Hrafnistu, þar sem hún býr í litlu herbergi, en fyrir vikið haldi hún aðeins eftir um 65 þúsund kr. á mánuði. „Til hvers erum við yfirleitt að borga í lífeyrissjóð, þar sem ríkið tekur allt til baka?“ spyr hún. „Er það velferðarkerfið sem mismunar svona fólki?“ Á vef Tryggingastofnunar kemur fram að íbú- ar geti þurft að taka þátt í dvalarkostnaði sínum vegna varanlegrar búsetu á dvalar- eða hjúkr- unarheimili. Þátttakan sé tekjutengd og reiknuð út á grundvelli tekjuáætlunar. „Á árinu 2011 gildir að ef mánaðartekjur íbúa eru yfir 65.005 kr. á mánuði, eftir skatta, þá tekur hann þátt í dvalarkostnaði með þeim tekjum sem umfram eru. Greiðsluþátt- taka verður þó aldrei hærri en 293.247 kr. á mán- uði.“ Ekki eðlilegt Helgi segir þetta langt því frá að vera eðlilegt. „Við viljum að hver og einn gangi að sínum pakka vísum þegar hann hættir að vinna, að við fáum það sem við höfum borgað í lífeyrissjóð og Trygg- ingastofnun borgi okkur það sem við höfum borgað þangað í sambandi við grunnlífeyri og svo fram- vegis.“ Formaðurinn gerir líka athugasemdir við það að aðeins eitt hjúkrunarheimili, Sóltún, hafi gert samning við ríkið um vistunarmat og þjónustuna sem fólk eigi að fá. „Okkur finnst það skrýtið að ríkið skuli borga til þessara stofnana og það er ekki skilgreint hvaða þjónustu þær eigi að láta í stað- inn,“ segir Helgi. Í samkomulagi ríkisstjórnarinnar og Lands- samtaka lífeyrissjóðanna frá 30. desember 2010 segir að bætur almannatrygginga skuli ekki lækka frá 1. janúar 2011 til 31. desember 2013 „þrátt fyrir almennar hækkanir greiðslna frá lífeyrissjóðum“. Einnig kemur fram að á sama tíma muni lífeyr- issjóðir „ekki beita tekjuviðmiðun eftir úrskurð gagnvart nýjum örorkulífeyrisúrskurðum“. Þá er tiltekið að frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur ellilífeyrisþega gagnvart útreikningi bóta almannatrygginga skuli hækka í þremur áföngum, 1. janúar 2013, 1. janúar 2014 og 1. janúar 2015. Óánægja hjá lífeyrissjóðunum Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að lífeyrissjóð- irnir hafi alltaf verið mjög óánægðir með tekju- tengingu lífeyrissjóðsgreiðslna við bætur al- mannatryggingakerfisins og aðrar bætur. Þarna sé um að ræða persónulegan rétt. Fólk hafi lagt til hliðar og eigi að fá þessar greiðslur óskertar. Grunnlífeyrir hafi verið heilagur þar til 2009 og með því að skerða hann vegna ellilífeyris frá líf- eyrissjóðunum hafi verið farið inn á nýjar brautir varðandi samspil almannatrygginga og lífeyr- issjóða. Fram að því hafi tekjutrygging lækkað umtalsvert vegna lífeyrissjóðstekna og lífeyr- issjóðirnir hafa varað eindregið við óhóflegri skerðingu á tekjutryggingu almannatrygginga vegna lífeyris frá lífeyrissjóðunum. Hrafn segir að ekki megi einskorða bætur al- mannatrygginga einvörðungu við þá sem verst séu settir í þjóðfélaginu. Afleiðing slíks kerfis séu þær að velferðarkerfið sé svelt. „Því meira sem bætur eru lágtekjumiðaðar, því lægri verður upphæðin sem er til ráðstöfunar; því meiri áhersla sem lögð verður á að beina bótum aðeins til hinna fátækustu í samfélaginu, því minni árangri nær velferð- arríkið í því að draga úr ójöfnuði. Almannatrygg- ingar eiga að greiða öllum landsmönnum ótekju- tengdan grunnlífeyri, en mega alls ekki vera eins konar fátækrastofnun fyrir þá sem eru verst settir í þjóðfélaginu.“ Útjaskað velferðarkerfi  Fulltrúi eldri borgara gagnrýnir að fólki sé refsað fyrir ráðdeildarsemi og sparsemi  Lífeyrissjóðsgreiðslur eiga að vera óskertar að mati lífeyrissjóðanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Kostnaður Íbúi má halda eftir um 65.000 kr. eftir skatt áður en til þátttöku í dvalarkostnaði kemur. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Svandís Svavarsdóttir umhverfisráð- herra beindi þeirri ósk til sveitar- stjórna Skaftárhrepps, Hornafjarðar og Vestmannaeyja í gær að þær skoði alla möguleika til að hætta eða draga verulega úr sorpbrennslu þar til nið- urstöður frekari rannsókna á dioxín- mengun liggja fyrir. Óskin er sett fram í kjölfar mælinga á díoxíni úr bú- fjárafurðum og fóðri sem gerðar voru á Vestfjörðum og í Öræfum. „Það kemur ekki til greina að hætta alveg sorpbrennslu en sú ákvörðun verður rædd á sveitarstjórnarfundi á mánudaginn. Það eru allir að vinna að lausnum,“ segir Eygló Kristjánsdótt- ir sveitarstjóri í Skaftárhreppi. Sorp- brennsla á Kirkjubæjarklaustri hefst nú ekki fyrr en klukkan fjögur á dag- inn eftir að beiðni barst sveitarstjórn- inni frá foreldrafélagi grunnskólans um að brenna ekki sorp á skólatíma. Umhverfisráðherra leitaði einnig álits Umhverfisstofnunar á því hvort stofnunin hefði heimild samkvæmt lögum til að stöðva starfsemi um- ræddra sorpbrennslustöðva þangað til Sóttvarnalæknir hefur lokið við heilsufarsrannsókn á íbúum sveitar- félaganna. Var það álit stofnunarinn- ar að ekki væri um bráðahættu að ræða og því væru skilyrði laga um heimild til skyndilokunar ekki upp- fyllt. Í ljósi þess hefur ráðherra ákveðið að hefja könnun á því með hvaða hætti setja megi lagaákvæði sem heimili stjórnvöldum að grípa til skyndiráðstafana ef óvissa er um mengun og áhrif hennar á lífríkið. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Hornafirði, segir ósk Svandísar að mörgu leyti eðlilega og þau hafi verið mjög hugsi yfir framtíð sorpbrennsl- unnar á Svínafelli í Öræfum. „Við er- um að skoða hversu mikið við getum dregið úr sorpbrennslu eða hvort við getum hætt starfsemi í bili þar til frek- ari niðurstöður og greiningar liggja fyrir. Við erum búin að fá sýni úr nær- liggjandi mjólkurbúi og höfum ekki áhyggjur af þeim niðurstöðum en við erum enn að bíða eftir sýnum hvað varðar díoxínmengunina sjálfa.“ Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest- manneyjum, segir að þau hafi áhyggj- ur af þessu máli líkt og umhverfisráð- herra. „Ef að ríkið er tilbúið til að mæta okkur í þeim kostnaði sem myndast við það að hætta allri sorp- brennslu eða draga verulega úr henni þangað til eitthver framtíðarlausn liggur fyrir þá skal ekki standa á okk- ur,“ segir Elliði Ráðherra vill að sorp- brennslu verði hætt  Kemur ekki til greina að hætta sorpbrennslu á Klaustri Geðhjálp hyggst senda þeim fimm- tán þjónustu- samlögum sem hafa tekið til starfa eftir flutn- ing málefna fatl- aðra frá ríki til sveitarfélaga um áramótin bréf til þess að kanna muninn á þjón- ustunni fyrir og eftir breytingarnar. Sigursteinn Másson, formaður stjórnar Geðhjálpar, segir að enginn vafi sé á að flutningur málaflokksins til sveitarfélaganna hafi verið fram- faraspor. „Núna er skylda sveitarfé- laganna miklu skýrari. Nú viljum við bara fylgjast með því hvað það tekur langan tíma að koma þessu öllu al- mennilega í gang,“ segir hann. Ýmsir hafi lýst áhyggjum af því að sveitarfélögin væru of veikburða til að taka málaflokkinn yfir. Sigur- steinn segir ríkið ekki hafa sinnt honum utan höfuðborgarsvæðisins og reynsla Geðhjálpar sé sú að ástandið sé best þar sem sveitar- félögin hafi annast hann eins og til dæmis á Akureyri, Norðurþingi, Vestmannaeyjum og Höfn í Horna- firði. kjartan@mbl.is Kanna breytta þjónustu Sigursteinn Másson Ánægja með flutning til sveitarfélaganna Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu fylgdist áfram í gær með stefnu- ljósanotkun. Um 80 ökumenn voru stöðvaðir á Vest- urlandsvegi í gær, eða álíka margir og voru teknir í vesturbæ Reykjavíkur í fyrradag. Ökumennirnir sem voru stöðvaðir gáfu ekki stefnuljós þegar ekið var út úr hringtorgi og fá nú sekt. Dýrt spaug að sleppa stefnu- ljósunum Of margir gefa ekki stefnuljós. Daggjald á dvalar- eða hjúkrunarheimili er um 21.000 kr. og mánaðargjaldið um 615 þúsund krónur. Tryggingastofnun greiðir ákveðinn hluta og íbúi afganginn, sem er tekjutengdur. Viðkomandi stofnun þarf að innheimta mis- muninn hjá viðkomandi íbúa eða ættingjum hans. Gísli Páll Pálsson, forstjóri Markar hjúkrunarheimilis við Suðurlandsbraut og formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðis- þjónustu, segir að þess séu dæmi að ekki gangi að innheimta þessa greiðslu og þá sitji viðkomandi stofnun uppi með tapið. „Ríkið setur okkur í innheimtustörf sem okkur finnst algerlega óþolandi,“ segir hann. Gísli Páll áréttar að greiðslur íbúanna séu ekki viðbót við greiðslur ríkisins heldur mismunur. Morgunblaðið áréttaði spurningar Kristínar H. Tryggvadóttur í tölvu- pósti til viðkomandi ráð- herra í gær en ekki barst svar frá þeim. Óþolandi innheimta DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIMILI Gísli Páll Pálsson Þórður Friðjónsson forstjóri lést á þriðju- dag á sjúkrahúsi í Friedrichshafen í Þýskalandi, 59 ára að aldri. Þórður fæddist í Reykjavík 2. janúar ár- ið 1952. Foreldrar hans voru Kristín Sigurð- ardóttir og Friðjón Þórðarson, alþingis- maður og ráðherra. Þórður gegndi starfi forstjóra NASDAQ OMX á Íslandi frá því í febrúar 2002. Þar áður var hann forstjóri Þjóðhagsstofn- unar um 15 ára skeið en á því tíma- bili gegndi Þórður einnig stöðu ráðuneytisstjóra í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu frá apríl 1998 til september 1999. Hann gegndi jafnframt stöðu efnahagsráðgjafa forsætisráðherra í stjórnartíð Gunnars Thoroddsen og Steingríms Hermannssonar. Hann var stunda- kennari og aðjunkt við viðskipta- og hagfræðideild HÍ til fjölda ára. Þórður sat í stjórn Viðskiptaráðs frá árinu 2008. Hann var enn frem- ur stjórnarformaður Framkvæmdasjóðs Ís- lands til margra ára. Þá ritaði hann fjöl- margar greinar í dag- blöð, sérrit og bækur. Þórður sat fyrir Ís- lands hönd m.a. í hagstjórnarnefnd OECD og í bankaráði Evrópubankans. Jafn- framt var Þórður stjórnarformaður Nordic Project Fund. Þórður var með MA-gráðu í hagfræði frá Queen’s háskóla í Kanada og cand.oecon-gráðu frá viðskiptadeild Háskóla Íslands. Enn fremur sótti Þórður stjórn- endanám við Harvard-háskóla í Boston. Þórður var kvæntur Ragnheiði Agnarsdóttur og áttu þau saman Auði Ólöfu og Óliver sem Ragn- heiður á úr fyrra sambandi. Þórður lætur einnig eftir sig fjögur uppkomin börn, Sigríði, Steinunni Kristínu, Friðjón og Har- ald og 11 barnabörn. Þórður var áð- ur kvæntur Þrúði G. Haraldsdóttur. Andlát Þórður Friðjónsson Innkalla kjöt » Vegna hugsanlegrar díóxín- mengunar ákvað KS að inn- kalla í varúðarskyni fersk lambalæri með pökkunardags- setningu 29.09.2010 sem fóru í Bónus. Einnig innkölluðu Ferskar kjötvörur nautakjöt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.