Morgunblaðið - 10.02.2011, Síða 10
sem frygðarlyf en konur eru ekki að
drekka áfengi til þess að fá slík
áhrif, þær eru bara að skemmta
sér.“
Erfitt að hafa stjórn á áfeng-
isdrykkju og kynlífi
Erlingur hefur skoðað áfengis-
drykkju allt aftur til Egypta til
forna. „Í fornaldarsamfélögum voru
minni fordómar gagnvart víni yfir-
leitt og líka gagnvart konum sem
drukku. En afstaðan harðnaði þegar
fram liðu tímar, með ólíkum lífn-
aðarháttum og trúarbrögðum. Alkó-
hólismi er nú algengastur í löndum
þar sem búa kristnir, hvítir mót-
mælendur í iðnaðarsamfélögum.
Það er erfitt að hafa stjórn á trúar-
brögðum og sama er að segja um
áfengi og kynlíf. En trúarbrögðin
eru samt alltaf að róta í kynlífi og
víni, þau eru að reyna að bjóða upp
á leiðir til að hafa stjórn á þessu,
sem gengur ekkert. Biblían er
ákaflega ströng þegar kemur
að áfengisnotkun, sérstaklega í
gamla testamentinu, þar er
áfengisnotkun algerlega for-
dæmd. Versta fordæmingin er
í Babílon þar sem talað er
um frygðarvín hórunnar
miklu, sem hlýtur að hafa
verið öflugur drykkur mið-
að við hvað menn sóttu í
það.“
Siðprýðisímynd
Erlingur segir að
tvær leiðir séu til að
nota áfengi, önnur er að
drekka það, hin er að
taka afstöðu á móti því í
pólitískum tilgangi,
berja sér á brjóst og
segja: Ég er ábyrgur
borgari, ég bragða ekki
áfengi. „Þetta gerðu
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ígegnum tíðina hefur veriðlitið niður á áfengisnotkunkvenna og af einhverjumástæðum þykir það enn
miklu verra að kona fái sér í glas en
karlmaður,“ segir Erlingur Brynj-
ólfsson sagnfræðingur sem hefur
verið að skoða og velta fyrir sér
sögu áfengis. „Lengi vel snertu kon-
ur nánast ekki áfengi en þær sem
gerðu það voru álitnar fordæmdar
gálur. Þess vegna drukku konur
ákaflega mikið í felum. Þetta var
svo strangt að ef boðið var upp á
brennivín út í kaffi þá var reglan sú
að karlar fengu ómælt magn á með-
an konum var skammtað aðeins ein
matskeið af áfengi út í sinn bolla.“
Það mátti semsagt alls ekki hætta á
að þær yrðu ölvaðar. Það er æv-
inlega litið á ölvaða konu sem sjálf-
sagða bráð. „Óttinn við áfeng-
isnotkun kvenna var því tengdur
óttanum um ótímabæra þungun.
Menn líta nefnilega margir á áfengi
Um kvenfólk og b
Frygðarvín hórunnar
miklu í Babílon var gör-
óttur drykkur enda sóttu
karlmenn stíft í hann.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011
Þegar enn er dimmur vetur hér heima
á Íslandi er gaman að plana sumarfrí,
nú eða vetrarfrí, vor eða haustfrí og
láta sig hlakka til ferðalags. Og á
þeim tímum sem buddan hefur látið
á sjá er um að gera að leita að sem
ódýrustum gistingum. Á heimasíð-
unni only-apartments.com er hægt
að leita sér að íbúðum sem fólk leigir
út fyrir gesti og margar þeirra eru á
mun betra verði en hótelgistingar.
Fyrirtæki þetta hefur aðsetur í
spænsku borginni Barcelona og hef-
ur á sinni skrá rúmlega 20.000 íbúðir
á ólíkustu stöðum um víða veröld.
Vefurinn er aðgengilegur og fólk get-
ur skoðað myndir af íbúðunum og
fundið sér íbúð í því hverfi sem það
vill vera í, í þeirri borg sem það er að
fara til og bókað sjálft. Fullyrt er að
verðið sé það lægsta á netinu.
Vefsíðan www.only-apartments.com
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Íbúðir til leigu
í útlandinu
Gott er að njóta menningar hvenær
sem hún er á borð borin og í kvöld er
ekki úr vegi að bregða sér á tónleika í
Salnum í Kópavogi þar sem tríóið
Delizie Italiane ætlar að leika lög af
nýja diskinum sínum „La vita con te -
Lífð með þér“ en hann inniheldur lög
eins og Bláu augun þín, Komdu í
kvöld, Nína, Braggablús, Það er gott
að elska og Tvær stjörnur. Tríóið
skipa Leone Tinganelli, Jón Elvar Haf-
steinsson og Jón Rafnsson. Að auki
koma fram Ragnar Bjarnason, Gissur
Páll Gissurarson, Sigurður Flosason,
Kjartan Valdemarsson, Einar Valur
Scheving og Kristín Inga Jónsdóttir.
Endilega …
… njótið
tríósins
Delizie Italiane
Sólþurrkuðu tómatarnir eru lykillinn
að bragðinu í þessari þykku og
bragðgóðu pastasósu.
Hráefni 4-500 g kjúklingalundir
eða kjúklingabringur
15 sólþurrkaðir tómatar í olíu
2 dl hvítvín
1 dl kjúklingasoð
2-3 dl matreiðslurjómi
1 stór laukur
2 geirlausir hvítlaukar
væn lúka af basillaufum
klípa af rauðum chiliflögum
500 g pasta, t.d. penne
Aðferð:1. Skerið kjúklinginn í litla
bita. Saxið sólþurrkuðu tómatana,
laukinn, hvítlaukinn og basillaufin.
2. Hitið olíu á pönnu og steikið
kjúklingabitana í um fimm mínútur.
Saltið og piprið. Takið af pönnunni
og geymið. Steikið laukinn og hvít-
laukinn í 2-3 mínútur. Bætið tómöt-
unum út á pönnuna og chiliflög-
unum.
3. Bætið víninu á pönnuna,
hreinsið upp skófirnar og sjóðið nið-
ur um helming.
4. Bætið kjúklingasoðinu út á
pönnuna. Leyfið suðu að koma upp.
5. Bætið kjúklingabitunum aftur
út á ásamt safa sem hefur lekið af
þeim. Hellið rjóma á pönnuna og
bætið basillaufunum saman við.
Hrærið öllu vel saman og látið malla
á vægum hita í 7-8 mínútur.
6. Hitið pasta samkvæmt leið-
beiningum.
7. Blandið pasta og kjúklingasós-
unni saman í stórri skál og berið
strax fram með nýrifnum parmes-
anosti og grænu salati.
Uppskriftin
Kjúklinga-pasta með
sólþurrkuðum tómötum
Fleiri uppskriftir má finna á Matur
og vín-vef Morgunblaðsins: mbl.is/
matur og á www.vinotek.is
Kaupmannsþjóð með klæði fín
körlum selur brennivín
sem aumra manna eykur pín
og eyðir snauðra mála.
Þegjandi ganga þorskarnir í ála.
Oft þótt vínið ylji blóð
og ýmsum þyki að skemmtan góð
ei þess neyta íslensk fljóð
utan fordæmd gála.
Þegjandi ganga þorskarnir í ála.
Öll erum við
menn
VÍSUR HELGU HALLDÓRSDÓTTUR