Morgunblaðið - 10.02.2011, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011
Greiðsluuppgjör á opinberum gjöldum einstaklinga og lögaðila sem eru og hafa verið í
atvinnurekstri
Alþingi samþykkti þann 18. desember 2010 lög sem breyta skilyrðum þess að einstaklingar og lög-
aðilar geti sótt um greiðsluuppgjör á opinberum gjöldum samkvæmt lögum nr. 24/2010. Sjá VI. kafla
laga nr. 165/2010.
Skilyrðum laganna hefur verið breytt á þann veg að nú geta lögaðilar og einstaklingar sem eru eða
hafa verið í atvinnurekstri sótt um greiðsluuppgjör á virðisaukaskatti, staðgreiðslu tryggingagjalds,
staðgreiðslu opinberra gjalda og þing- og sveitarsjóðsgjöldum sem gjaldféllu fyrir 1. janúar 2010.
Athygli skal vakin á því að umsækjandi greiðsluuppgjörs skal vera í skilum með skatta og gjöld sem
falla ekki undir greiðsluuppgjör.
Í greiðsluuppgjöri felst að gjaldandi fær frest til greiðslu þeirra gjalda sem undir greiðsluuppgjörið
falla til 1. júlí 2011. Gjöldin bera ekki dráttarvexti á freststímabilinu 1. janúar 2010 til 30. júní 2011.
Að uppfylltum skilyrðum, sem fram koma í lögunum, getur gjaldandi skuldbreytt vanskilum gjalda sem
undir greiðsluuppgjörið falla þann 1. júlí 2011, með því að gefa út skuldabréf til greiðslu vanskilanna.
Skuldabréfið er til 5 ára með mánaðarlegum afborgunum og verðtryggt miðað við vísitölu neysluverðs
en án vaxta. Fyrsta afborgun af skuldabréfinu er 1. júlí 2012.
Á vef Tollstjóra eru ítarlegar upplýsingar um reglur og skilyrði greiðsluuppgjörs ásamt umsóknareyðublaði.
http://www.tollur.is/greidsluuppgjor
GREIÐSLUUPPGJÖR OPINBERRA GJALDA
TOLLSTJÓRI, Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík, sími: 560 0300, fax: 551 6620, vefur: www.tollur.is
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þensluárið 2007 fór Sadad al-Husseini, jarð-
fræðingur og fv. yfirmaður olíuleitar hjá sádi-
arabíska olíurisanum Aramco, sem er í ríkis-
eigu, yfir horfurnar í olíuvinnslu hjá þessu
mesta olíuvinnsluríki sögunnar á fundi með
fulltrúum bandaríska sendiráðsins.
Við það tilefni fullyrti al-Husseini að Aramco
myndi ekki takast að auka olíuvinnsluna í 12,5
milljónir tunna á dag til að mæta vaxandi eftir-
spurn. Fremur væri raunhæft að miða við að
fyrirtækinu tækist að auka vinnsluna í 10 millj-
ónir tunna innan áratugar, eða fyrir 2017, að því
er fram kemur í skjölum lekavefjarins
WikiLeaks sem Guardian segir frá.
Hefur áhrif á orkustefnuna
Um tíundi hver olíudropi sem er fluttur
inn til Bandaríkjanna kemur frá Sádi--
Arabíu og fylgjast bandarísk stjórnvöld
því grannt með olíuvinnslunni í Persa-
flóaríkinu.
Reynist þessar upplýsingar réttar
kunna þær því að bregða birtu á þá
áherslu Bandaríkjastjórnar á síðustu ár-
um að draga úr þörfinni fyrir innflutta olíu, ekki
síst í ljósi þess mats al-Husseini að heimsvinnsl-
an kunni að ná hámarki þegar árið 2012 og dala
upp frá því. Olíuskjölin eru frá tíma-
bilinu 2007 til 2009 og er stöðumatið
því ekki byggt á augnabliksmati.
Taka stöðumatinu alvarlega
Tekið skal fram að í skjölunum er
haft eftir Abdallah al-Saif, aðstoðar-
forstjóra olíuleitar hjá Aramco, að
olíubirgðir fyrirtækisins séu um 716
milljarðar tunna og að þær verði
komnar í 900 milljarða tunna innan
20 ára. Telur al-Husseini fyrri töluna
ofmat um allt að 300 ma. tunna eða um 40%.
Fulltrúi bandaríska sendiráðsins bendir hins
vegar á að áðurnefndur al-Husseini sé enginn
dómsdagsspámaður, heldur virtur fræðimaður
sem beri að taka alvarlega.
Þetta er undirstrikað í skýrslu sendiráðsins í
Riyadh til Bandaríkjastjórnar þar sem lýst er
yfir efasemdum um að Sádi-Arabar muni áfram
geta þrýst olíuverðinu niður með aukinni
vinnslu. Rímar sú greining við það mat al-Huss-
eini að þegar olíuvinnslan í Sádi-Arabíu nái há-
marki muni vinnslan haldast stöðug í 15 ár en
síðan minnka. Miðað við áætlun hans fyrir
nokkrum misserum mun vinnslan byrja að
dragast saman fyrir árið 2030. Þá var bent á að
Sádi-Arabar þyrftu að tvöfalda orkuframleiðslu
sína á árunum 2009-18 til að anna eftirspurn
heima fyrir. Það geti líka haft áhrif á útflutning.
Olíubirgðirnar stórlega ofmetnar
Bandaríkjastjórn óttast að Sádi-Arabar geti ekki annað eftirspurn eftir olíu Sérfræðingur á vegum
olíurisans Aramco telur birgðirnar hátt í 40% minni en áætlað er Kemur fram í skjölum WikiLeaks
Olíuvinnsla
í Sádi-Arabíu
Bresk samtök
sem sérhæfa sig í
óháðri
rannsóknar-
blaðamennsku,
Bureau for Inve-
stigative Journal-
ism, hafa birt töl-
ur yfir stuðning
fjármálageirans í
Bretlandi við
Íhaldsflokkinn, flokk Davids Came-
rons forsætisráðherra.
Samantektin hefur vakið athygli í
Bretlandi en hún leiðir í ljós að
flokkurinn fékk 11,4 milljónir punda
í styrk frá fjármálageiranum í fyrra,
eða 2.130 milljónir króna á núver-
andi gengi. Til samanburðar nam
stuðningurinn 2,7 milljónum punda,
eða 504 millj. kr., árið 2005, þegar
Cameron varð leiðtogi flokksins.
Aðalstign fyrir stuðninginn?
Tveir þeirra sem létu mest fé af
hendi rakna, Stanley Fink og
George Magan, voru sæmdir aðals-
tign í fyrra, en alls styrktu 57 efna-
menn flokkinn um 50.000 pund eða
meira í fyrra og áttu því kost á fundi
með forsætisráðherranum.
Hlutur fjármálalífsins í stuðningi
við Íhaldsflokkinn hefur vaxið hratt í
leiðtogatíð Camerons en fram kem-
ur á vef áðurnefndra samtaka að í
fyrra hafi 50,8% af fjárstuðningi til
flokksins komið úr þeirri hátt. Var
hlutfallið 25% fimm árum áður.
Á vef samtakanna er stuðning-
urinn sagður vekja spurningar um
áhrif efnamanna á flokkinn, nú þeg-
ar skattar og kjör fjármálafólks séu
til umræðu á breska þinginu.
Bankar
jusu fé í
Cameron
Íhaldsflokkurinn fékk
2 milljarða kr. í fyrra
David Cameron
Peter Chan, forstjóri taílenska
flugfélagsins PC Air, kann að koma
félaginu á framfæri, áður en það
hefur formlega starfsemi í apríl.
Sú stefna félagsins að ráða trans-
fólk hefur þannig vakið heims-
athygli og skýrir Chan þá stefnu
svo, að fyrirtækið vilji leggja lóð á
vogarskálar réttindabaráttu
„þriðja kynsins“, eins og transfólk
er kallað í Taílandi.
Chan segir margt transfólk
dreyma um að verða flugfreyjur og
flugþjónar og að með skrefinu sé
hann að gera transfólki kleift að
láta drauma sína rætast.
„Ég er frumkvöðull og er sann-
færður um að aðrar stofnanir og
fyrirtæki muni fylgja fordæmi
mínu,“ sagði Chan.
Á annað hundrað transmenn og
-konur sóttust eftir starfi hjá PC
Air og leynir ánægjan og stoltið sér
ekki í augum þessara fjögurra
transkvenna sem komust í gegnum
nálaraugað. Stefnir félagið á að
ráða fleiri þegar flotinn stækkar.
Reuters
Á þrítugsaldri Þrjár transkvennanna eru 24 ára en sú fjórða 26 ára. Veggmyndin sýnir hæð þeirra.
Líka fyrir
þriðja kynið
Mótmælendur í Egyptalandi þóttu
ná frumkvæðinu aftur úr höndum
stjórnar Hosni
Mubarak forseta
í gær er þeim
tókst að virkja
andstæðinga
hans langt út fyr-
ir Tahrir-torgið í
Kaíró, miðdepil
mótmælanna, á
16. degi þeirra í
gær. Stjórnar-
andstæðingar
hafa víða lagt nið-
ur vinnu og tók hluti þeirra sig til í
gær og lokaði fyrir aðgang að þing-
húsinu í Kaíró. Fréttaskýrandi New
York Times túlkaði stöðuna svo að
stjórnin hefði einangrast enn frekar
eftir atburði gærdagsins.
Verkföll í
Egyptalandi
Á Tahrir-torgi
í gærkvöldi.