Morgunblaðið - 10.02.2011, Side 17

Morgunblaðið - 10.02.2011, Side 17
Eins og kunnugt er skildi Sjálfstæðisflokk- urinn í Kópavogi bæinn eftir í mikilli skulda- súpu eftir 20 ára valda- tíð. Stórar, illa und- irbúnar og fljótfærnislegar ákvarðanir eru meg- inorsökin. Lönd voru keypt og lóðum út- hlutað í gríð og erg, jafnvel á vatnsverndasvæðum. Risa- vaxnar hugmyndir um alþjóðlegt skrifstofu- og verslunarhverfi á Glað- heimasvæðinu voru á teikniborðinu, byggð höfn fyrir stór skip og hafinn undirbúningur að byggingu óp- eruhúss svo eitthvað sé nefnt. Millj- ónum, jafnvel milljörðum var mokað úr sjóðum bæjarins til að kaupa lönd, hesthús á okurverði og í ýmis gælu- verkefni Sjálfstæðisflokksins. Jafnvel eru skýrar vísbendingar um að bæj- arsjóður hafi verið látinn greiða reikninga vegna kynningarefnis í kosningabaráttu flokksins árið 2006. Sársaukafullar aðgerðir vegna óstjórnar Sjálfstæðisflokksins Eftir kosningar síðasta vor komst nýtt fólk til valda með aðrar áherslur og nýja sýn en við fengum jafnframt það erfiða verkefni að koma bænum upp úr skuldafeni Sjálfstæðisflokks- ins. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga var komin í bæinn skömmu fyrir kosningar, viðvör- unarbjöllur klingdu og hætta var á að stjórn fjármála yrði tekin frá bæj- arstjórn. Helsta verkefni nýja meiri- hlutans hefur því verið að ná utan um fjármálin og sér nú til lands í því. Rekstur bæjarins hefur verið færður í það sem bæjarsjóður ræður við. Störfum hefur verið fækkað, dregið úr þjónustu, laun sumra starfsmanna lækkuð, dregið úr yfirvinnu, gjald- skrár hækkaðar og reksturinn hvar- vetna skrúfaður niður. Sannarlega sársaukafullar aðgerðir. Þrátt fyrir þetta hefur tekist að verja kennslu í leik- og grunnskólum bæjarins sem sjá má af því að fjár- magn til kennslu er nánast óbreytt frá því sem var. Ármann vill ekki taka til eftir sig Meirihlutinn vildi að allir bæjarfulltrúar ynnu saman að gerð áætlunarinnar nú í haust, enda verkefnið erfitt og eðlilegt að þeir sem komu bænum í þessa stöðu tækju þátt í að taka til. Það var niðurstaðan en samstaðan innan Sjálfstæðisflokksins var þó ekki meiri en svo að einn fulltrúi þeirra treysti sér ekki í sam- starf við aðra en sjálfan sig. Sam- vinna tókst með tíu bæjarfulltrúum og rétt fyrir jól var samþykkt áætlun sem sátt virtist ríkja um og allir bæru ábyrgð á. Hver og einn þurfti vissu- lega að slá af sínum kröfum og sam- þykkja eitthvað með semingi. Það kom því á óvart þegar Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðis- flokksins, þvoði hendur sínar opin- berlega í byrjun janúar með fullyrð- ingum um að Sjálfstæðisflokknum hefði tekist að koma í veg fyrir t.d. að sparnaður í skólum kæmi niður á gæðum kennslunnar með fjölgun í bekkjum eða fækkun kennslustunda, að hann hefði komið því til leiðar að framlag til íþróttafélaga var hækkað á milli umræðna o.s.frv. Hvers konar samstaða er þetta hjá Ármanni? Á ég að benda á að þetta er ósatt og að Ár- mann vildi ganga lengra í niðurskurði í skólum og þrengja enn meira að menningarmálunum en raunin varð? Vandaðar aðgerðir meirihlut- ans Í kjölfar fjárhagsáætlunarinnar þurfti að ráðast í breytingar á skipu- riti bæjarins og fækkun nefnda og ráða. Það vissi Ármann jafnvel og aðrir bæjarfulltrúar. Meirihlutinn lagði fljótt fram tillögur sem fóru í tæplega þriggja vikna umræðuferli í bæjarstjórn. Það var þó ekki fyrr en á síðustu stundu sem Ármann lagði fram breytingartillögur úr ræðustól. Eftir Hafstein Karlsson »Á ég að benda á að þetta er ósatt og að Ármann vildi ganga lengra í niðurskurði í skólum og þrengja enn meira að menningarmál- unum en raunin varð? Hafsteinn Karlsson Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar. Þær voru ekki vandaðar og snerust þær að mestu um að verja óbreytta nefndaskipan. Því voru þær felldar. 5. febrúar segir Ármann í grein í Morg- unblaðinu að meirihlutinn ráðist gegn atvinnu-, íþrótta-, lista-, menningar- og umhverfismálum. Hvorki meira né minna. Hann segir að meirihlutinn beri einn ábyrgð á því að atvinnu- málanefnd og lista- og menningarráð hafi verið lögð niður. Það er rétt en hann getur þess ekki að til er orðið öflugt menningar- og þróunarráð sem tekur yfir þessa málaflokka ásamt fleiru. Ármann segir að um- hverfismálin hafi misst sjálfstæði sitt og verið færð undir framkvæmda- hlutann. Það er alrangt, þessu er ein- mitt öfugt farið. Þá segir hann að tómstunda- og íþróttamálin hafi verið skilin að. Það er rétt og báðir mála- flokkar fá aukið vægi í nefndakerfi bæjarins. Þær breytingar sem gerð- ar hafa verið eru vandaðar, munu auka skilvirkni og lækka útgjöld bæj- arins um fast að 80 milljónum á ári. Ármann sá sjálfur um að slíta samstarfinu Ármann er lítið fyrir samstarf í bæjarstjórn Kópavogs. Hann vill ná sínum sjónarmiðum í gegn og er illa við málamiðlanir. Hann þvær hendur sínar af óþægilegum ákvörðunum og gasprar á torgum hvað hann vildi gera en hinir ekki og gildir einu hvort það er satt eða ekki. Framkoma af þessu tagi er ekki vænleg til að skapa það traust sem þarf að vera í sam- starfi. Það var ekki meirihlutinn sem sleit samstarfinu við Sjálfstæð- isflokkinn, Ármann sá um það sjálfur. Meirihlutinn í Kópavogi rífur bæinn upp úr skuldafeni Sjálfstæðisflokksins UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011 Fréttir af tíðum snjóflóðum sunnan Múlaganganna og af öðru flóði sem féll úr 800 m hæð í Skútu- dal við Siglufjörð áð- ur en það fór yfir veginn um 150 metra frá Héðinsfjarð- argöngunum vekja spurningar um hvort vegfarendur í Fjalla- byggð sem nú keyra í gegnum þrjú fjöll milli Siglu- fjarðar og Dalvíkur telji fulla ástæðu til að krefjast þess að haf- inn verði undirbúningur að upp- setningu snjóflóðavarnargarða í Skútudal, Héðinsfirði og fyrir ofan gangamunnann við Ólafsfjarð- arflugvöll. Þá er líka mikilvægt að Múlagöngin víki strax fyrir nýjum tvíbreiðum jarðgöngum sem ætti að grafa 3 km norðan Dalvíkur. Án þeirra tekst aldrei að tryggja örugga heilsárstengingu Fjalla- byggðar við Eyjafjörð. Um það ættu sveitarstjórnirnar og allir heimamenn í Dalvíkur- og Fjalla- byggð að sameinast. Fyrr verða þessi tvö sveitarfélög aldrei eitt atvinnu-, þjónustu-, samgöngu- og skólasvæði á meðan grjóthrun, aurskriður og snjóflóð halda áfram að hrella vegfarendur á svæðinu sunnan einbreiðu Múla- ganganna sem ekki uppfylla hert- ar öryggiskröfur ESB. Það geng- ur kraftaverki næst að ökumenn sem lent hafa í snjóflóðum sunnan Múlaganganna skuli hingað til hafa sloppið lifandi. Í stað þess að fara undan í flæmingi skulu allir þingmenn Norðausturkjördæmis svara því hvort það þurfi minnst 9 þúsund dauðaslys á sólarhring eða meira til að réttlæta tvíbreið jarðgöng 3 km norðan Dalvíkur. Fyrr sam- þykkir meirihluti Eyfirðinga aldr- ei sameininguna við Fjallabyggð. Þetta snýst líka um að einbreiðu Strákagöngin víki fljótlega fyrir tvíbreiðum jarðgöngum undir Siglufjarðarskarð til þess að heimamenn búsettir nyrst á Tröllaskaga og í ut- anverðum Skagafirði losni endanlega við 70 cm jarðsig sem skapar mikla slysahættu á veginum í Almenn- ingum. Engin spurn- ing er hvort aur- skriður vestan Strákaganga og sunn- an Múlaganganna muni eyðileggja allar vegasamgöngur Fjallabyggðar við Skagafjörð og Eyjafjörð, heldur hvenær þessir hættulegu vegir sópast af klöppinni niður í fjörurn- ar með ófyrirséðum afleiðingum. Til Akureyrar geta Siglfirðingar og Ólafsfirðingar aldrei keyrt allt árið um kring í gegnum Skaga- fjörð og Öxnadal ef vegurinn á Lágheiði verður endanlega afskrif- aður. Þingmenn Norðausturkjör- dæmis og talsmenn Vegagerð- arinnar skulu frekar kynna sér þetta vandamál í stað þess að ergja Húnvetninga og Skagfirð- inga með kröfunni um að öll um- ferðin á hringveginum fari fram hjá Blönduósi og Varmahlíð. Nú hafa margir fyrrverandi lands- byggðarþingmenn viðurkennt að jarðgangagerð um Héðinsfjörð hafi verið vitlaus hönnun sem menn munu brátt iðrast án þess að haft væri í huga hvort uppsetn- ing varnargarða fyrir ofan báða gangamunnanna á þessu snjó- þunga og illviðrasama svæði í Fjallabyggð myndi hleypa kostn- aðinum upp í 15 milljarða króna. Viðurkennt er að forsendurnar fyrir því að þessi jarðgöng milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar myndu hafa mikil áhrif á byggðir Eyjafjarðar og Skagafjarðar séu nú brostnar. Þarna hefði kostn- aðurinn við þessa jarðgangagerð orðið mun minni með því að setja upp aðeins einn varnargarð við Ólafsfjarðarflugvöll. Meira en 93% Norðlendinga sem snerust gegn þessari ganga- gerð á norðanverðum Tröllaskaga var brugðið þegar þeir heyrðu fréttir um að kostnaðurinn við þessa framkvæmd hefði nálgast 13 milljarða kr. Árangurslaust voru fyrrverandi þingmenn Norður- lands eystra og vestra sem sam- þykktu kjördæmabreytinguna á fölskum forsendum spurðir að því hvers vegna þeim var það þvert um geð að fjárveitingar til at- vinnuskapandi verkefna hefðu for- gang áður en ráðist yrði í þessa umdeildu jarðgangagerð í Héðins- firði. Hluta af heildarupphæðinni sem þessi veggöng í Fjallabyggð munu kosta hefði fyrst átt að verja í tvíbreið jarðgöng í stað Múlaganganna og undir Siglu- fjarðarskarð. Öllum hugmyndum um að tengja saman þessi tvö litlu sjávarpláss við utanverðan Eyja- fjörð með veggöngum úr botni Hólsdals sunnan Siglufjarðar sem komið hefðu út aðeins innar í Ólafsfirði án þess að farið væri inn á snjóflóðasvæðið í Héðinsfirði svöruðu fyrrverandi þingmenn Norðlendinga og talsmenn Vega- gerðarinnar með útúrsnúningi og hnútuköstum. Héðinsfjarðargöng á snjóflóðasvæði Eftir Guðmund Karl Jónsson Guðmundur Karl Jónsson » Það gengur krafta- verki næst að öku- menn sem lent hafa í snjóflóðum sunnan Múlaganganna skuli hingað til hafa sloppið lifandi. Höfundur er farandverkamaður. Sæll Bjarni, var að koma af fundi í Valhöll, þakka þér fyrir að skýra út málið um Icesave. Það er aðeins tvennt sem ég geri athugasemdir við í útskýringum þínum. Í fyrsta lagi talar þú um að vera sam- kvæmur sjálfum þér að vilja fara samningaleiðina, gott og vel, en þú sagðir líka að í upphafi samning- anna hefðir þú sagt að það væri úti- lokað að tala um við þig að semja um óbreyttan höfuðstól. Hvað fékk þig til að vera ósam- kvæmur sjálfum þér í þeim hluta samningsins? Í öðru lagi: Þegar þú talar um að hagsmunum Ís- lands sé betur borgið með því að semja núna ertu væntanlega að tala um að fyrirtækjum á Íslandi sé bet- ur borgið með því ef ég skildi þig rétt, en hvernig á þetta að vera betra fyrir okkur sauðsvartan al- múgann? Við sitjum eftir sem áður uppi með forhertan skattheimtu- mann sem yfirmann í fjármálaráðu- neytinu og það er alveg sama hvað hann hækkar skattprósentuna um mörg hundruð prósent á fyrirtæki; við vitum að fyrirtæki sem rekið er á núlli borgar litla sem enga skatta en við skrælingjarnir, launafólkið, verðum að taka á okkur auknar skattbyrðar vegna þessa samnings. Ég skil vel að fyrirtækjaeigendur séu ánægðir með samninginn en hvernig eiga almennir launamenn að klóra sig fram úr þessu? Gleymdu því ekki að fólkið í land- inu setur = á milli þín og fyr- irtækja! GUÐMUNDUR KARL BERGMANN húsasmíðameistari. Opið bréf til Bjarna Benediktssonar Frá Guðmundi Karli Bergmann Guðmundur Karl Bergmann Ískalt órökstutt hagsmunamat B. Benediktssonar er röksemda- færsla hans fyrir því að það eigi að borga Icesave. Rök Steingríms eru að Icesave fari ekki fyrr en búið er að borga. Vandinn við þetta hjal er að þetta eru ekki rök, heldur órökstuddar fullyrð- ingar. Það eru hinsvegar til mörg rök fyrir því að við eigum ekki að borga og margir skynsamir menn og virtir, erlendir og innlendir, styðja þau rök. Núverandi stjórnvöld hafa gefist upp á að halda því fram að okkur beri að borga og þess í stað sagt að það verði að borga. Nú hefur þinglið Sjálfstæðisflokksins tekið undir með stjórnvöldum og ef allt væri með felldu þá ætti að setja þessa hjörð í einangrun til að forðast frekara smit. Það er bara ekki allt með felldu frek- ar en í drengsmálinu forðum. Stöðugleiki og traust skiptir máli. Það getur verið að sátt við Breta auð- veldi peningamönnum lífið og að sjálfsögðu er það ein af forsendunum fyrir því að þeir geti smalað okkur inn í Evrópusambandið og er það aug- ljósasta ástæðan fyrir því að B. Ben leggur af stað núna til að losa sig og varaformanninn við þessa hindrun sem búin hefur verið til úr Icesave. B. Ben segist vera kjarkmaður, mér sýnist hann frekar hafa verið ráðvilltur og spar hefur hann verið á Ískalt órökstutt hagsmunamat B. Benediktssonar Frá Hrólfi Hraundal Hrólfur Hraundal skoðanir sínar varðandi Icesave og ESB-mál. En nú allt í einu poppar hann upp eins og skrattinn úr sauð- arleggnum og segir það ískalt mat sitt að samþykkja eigi ríkisábyrgð við Icesave. Af vissri ástæðu þá er engin ríkisábyrgð á Icesave, en hann segist hafa kjark til að koma henni á. Hann hefur haft meira en tvö ár til að tala hreint út um skoðanir sínar að þessu leyti, en hafði ljóslega ekki þor til, fyrr en allt í einu núna. Hvar skyldi B. Ben hafa fundið kjarkinn, eða var honum troðið upp á hann? Ekki veit ég, en það hefur ver- ið sæmileg samstaða um það á Vest- urlöndum að greiða ekki hryðju- verkamönnum kröfur þeirra, vegna fordæmisgildis. Við eigum að senda Bretum vel orðað bréf á vandaðri ís- lensku, þess efnis að við ætlum ekki að samþykkja neina ríkisábyrgð á þetta svokallaða Icesave. Með þessu bréfi á að fylgja rökstuðningur fyrir þessari ákvörðun okkar. Ríkisábyrgð eiga þeir aldrei að fá og það hefur enginn heimild til að klína þeirri ábyrgð á okkur Íslendinga nema við samþykkjum það sjálf. Lík- lega hafa þeir Bretar aldrei verið krafðir um rök fyrir máli sínu, þvílíkur hefur héraháttur Steingríms verið í þessu máli. Sök þess þjóðarbrots sem kaus hann er þó ekki önnur en að hafa látið hann komast upp með að ljúga að sér. Sök okkar sjálfstæðismanna er sú varðandi B. Ben. að hafa ekki krafið hann skýrari svara áður en við fórum að treysta honum. HRÓLFUR HRAUNDAL, rekur vélsmiðju á landsbyggðinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.