Morgunblaðið - 10.02.2011, Page 20

Morgunblaðið - 10.02.2011, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011 ✝ Soffía Guð-mundsdóttir fæddist að Syðsta- Mó í Fljótum 23. nóvember 1918. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 31. janúar 2011. Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson, f. 17. júní 1877 á Vestarahóli í Fljótum, d. 2. apríl 1959, og kona hans Guðrún Magnúsdóttir, f. 14. sept. 1880 á Krakavöllum í Fljótum, d. 11. júní 1956. Soffía var yngst í átta barna hópi þeirra Guðrúnar og Guðmundar. Öll eru þau nú látin. Soffía kvæntist Frímanni Guð- mundssyni þann 11. maí 1940 í Siglufjarðarkirkju. Frímann Guðmundsson fæddist í Gunn- ólfsvík í N.-Múl. 24. ágúst 1917. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 15. apríl 2000. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónasson, f. 1. sept. 1865 að Sporðshúsum í Víðidal, d. 6. júní 1918, og kona hans Sigmunda Katrín Jóns- dóttir, f. 4. júní 1880 á Akri í jánsdóttir, f. 5. maí 1950. Dóttir: Dagný Björg, f. 2. jan. 1985. 4) Grettir Örn, f. 17. nóv. 1952, kjötiðnaðarmaður. K. Margrét Þórðardóttir, f. 9. maí 1952. Börn: a) Haukur, f. 30. sept. 1971. b) Axel, f. 8. sept. 1976. c) Jenný, f. 19. des. 1988. 5) Guð- rún, f. 7. maí 1956, félagsráð- gjafi. M. Jónas Sigurbjörnsson, f. 24. ágúst 1950, d. 7. júlí 1989. Börn: a) Eva, f. 1. sept. 1974. b) Grettir, f. 9. okt. 1988. Alls eru afkomendur Soffíu og Frímanns 52 talsins. Soffía naut hefðbundinnar skólagöngu í heimasveit sinni og síðar í barnaskóla á Siglufirði. Þaðan lá leiðin í Húsmæðraskól- ann á Ísafirði. Árið 1939 flutti Soffía til Akureyrar og þau Frí- mann stofnuðu heimili. Á Ak- ureyri vann Soffía ýmiskonar störf samhliða húsmóðurstörfum og barnauppeldi. Soffía starfaði með Bridsfélagi Akureyrar í áratugi og var þar heiðursfélagi allt frá árinu 1988. Spila- mennskan átti mjög stóran þátt í lífi Soffíu, allt fram á síðasta dag. Hún tók þátt í fjölda spila- móta hérlendis sem og erlendis, meðal annars í Evrópumóti landsliða á Ítalíu. Útför Soffíu fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 10. febrúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13.30. Öxarfirði, d. 24. maí 1950. Soffía bjó allt til æviloka að Eyr- arvegi 27, þar sem þau hjónin stofn- uðu heimili árið 1948. Frímann og Soffía eignuðust fimm börn; 1) Guð- mundur, f. 10. júlí 1940 á Akureyri, stýrimaður. K. Ingibjörg Eiríks- dóttir, f. 1. apríl 1942. Dætur Guðmundar a) Soffía, f. 9. ágúst 1959. b) Guð- björg, f. 1. jan. 1962. 2) Frí- mann, f. 9. júní 1944 á Akureyri, prentari. K. Sigríður G. Árna- dóttir, f. 6. feb. 1945. Börn: a) Ásdís Guðrún, f. 11. nóv. 1964. b) Frímann, f. 14. júní 1966. c) Soffía, f. 27. júlí 1973, d) Harpa, f. 13. jan. 1976. e) Hulda, f. 14. jan. 1983. 3) Gunnar, f. 25. jan. 1949 á Akureyri, rafvirki. K. 1. Hanna Gerður Haraldsdóttir, f. 16. maí 1949, d. 8. nóv. 1980. Börn a) Valgerður María, f. 8. mars 1969. b) Davíð Rúnar, f. 14. júní 1971. K. 2. Áslaug Krist- Í dag kveðjum við elskulega móður og tengdamóður, Soffíu Guðmunds- dóttur. Hún fæddist frostaveturinn mikla 1918 í einni snjóþyngstu sveit landsins, Fljótum í Skagafirði. Hún var yngst átta systkina, sem öll eru nú látin. Hún var í skóla í heimasveit- inni, en um níu ára aldur fluttist fjöl- skyldan til Siglufjarðar. Guðmundur faðir hennar var smiður og hagur bæði á járn og tré. Einnig var hann skipstjóri á Voninni. Vegna þess hve örðugt var að ná í vatn yfir veturinn leiddi hann læk í gegnum húsið og eftir það var enginn vatnsskortur. Unglingsárin liðu á Siglufirði og tók Soffía virkan þátt í hinum ýmsu íþróttum, svo sem skíðum. Eftir námsárin fór hún í Húsmæðraskól- ann á Ísafirði. Mamma var mjög ákveðin kona og hélt sínu stíft fram og hafði oft árangur. Það kom vel fram í aðaláhugamáli hennar, en það var spilamennska af ýmsu tagi. Að- allega átti bridge þó hug hennar all- an, en einnig félagsvist og allt sem tengdist spilum. Hún fór á fjölda- mörg Íslandsmót og auk þess spilaði hún bridge í keppnum út um allt land. Hún var í landsliði kvenna, sem spilaði á Ítalíu. Soffía var heiðurs- félagi í Bridgefélagi Akureyrar frá 1988. Þegar hún var 75 ára hélt hún opið tvímenningsmót, eitt það fjöl- mennasta og glæsilegasta, enda komu spilarar víðsvegar að af land- inu til þess að samgleðjast henni á þessum tímamótum. Í bridgedálki fyrir allmörgum árum er GPA að segja frá samskiptum sínum við Soffíu við spilaborðið þar sem hún fékk topp á móti honum og segir í lokin: „Þetta er kona sem spilar ávallt til sigurs.“ Foreldrar mínir byrjuðu sinn búskap í Oddeyrargöt- unni, en fluttust 1948 á Eyrarveg 27. Og þar átti Soffía heima alla sína ævi enda vildi hún hvergi annars staðar vera. Það var gott að alast upp á Eyr- inni, gestagangur var mikill og mikið spjallað. Ekki var alltaf auðvelt fyrir mömmu að vera með fjóra fyrirferð- armikla stráka og eina stúlku. Það var farið á hverju sumri til Herdísar systur hennar og Páls á Siglufirði, en þar saltaði mamma síld en pabbi vann á plani. Það vantaði oft fjórða mann í bridge, þegar ég var að alast upp og var maður þá drifinn að borð- inu. Hinir voru oftast Angantýr og Mikki og þarna lærði ég að spila bridge. Elsku mamma og tengdamamma, þín verður sárt saknað og ber að þakka fyrir góð tengsl við okkur, börnin okkar og barnabörn. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (Vald. Briem) Þinn sonur og tengdadóttir, Frímann og Sigríður. Komið er að kveðjustund, elsku- leg amma mín hefur kvatt þessa jarðvist. Ég hef undanfarna daga verið föst í flaumi minninganna, hlátur og grátur yfir yndislegum stundum sem ég geymi í hjarta mínu. Fyrirmynd mín í 37 ár, ómet- anleg gagnkvæm vinátta, virðing, hlýleiki, ást og umhyggja. Þegar horft er yfir farinn veg er margt sem kemur upp í hugann en ömmu var mjög umhugað um að halda stórfjölskyldunni saman en í tugi ára var mjólkurgrautur og tilheyr- andi í hverju laugardagshádegi á Eyrinni hjá ömmu og afa en með þessu bundumst við systkinabörnin sterkum böndum. Amma var einstaklega áhugasöm um litlu barnabarnabörnin sín og gott dæmi um það er þegar hún mætti á LSP þegar ég var búin að eiga Hrannar Hólm og Diljá á af- mælisdegi hennar 23. nóv. 2005, og tveim dögum seinna kom amma arkandi eftir ganginum og sagðist vera komin að sjá afmælispakkann sinn eins og hún kallaði þau gjarn- an. Eldri dóttir mín, Thelma Rut, sem einnig á afmæli í nóvember nefndi það við langömmu sína á síð- asta afmæli hvort hún gæti ekki fært afmælisdaginn sinn til 23. nóv. því tvíburarnir væru mjög heppnir því amma Sossa hefur ávallt sent þeim fallega merkta tertu á afmæl- isdaginn. Söknuður barnanna er mikill enda var amma barngóð með ein- dæmum en þeim finnst það huggun gegn harmi að Kisu-afi sé búinn að hitta konuna sína aftur og eru viss um að þau séu með kisuna Píu hjá sér og sá gamli bjóði henni á hest- bak á Þyt eða Laugu. Amma var skemmtileg kona og hafði ákveðnar skoðanir á hlutun- um og það gerði hana að þeirri merkiskonu sem hún var, hvort sem það var þjóðfélagsumræðan, stjórn- mál, fjölskyldan eða íþróttir. Það var aldrei legið á skoðunum sínum og málin rædd í þaula. Orðið kyn- slóðabil var ekki til í hennar orða- forða, og til marks um það er sam- eiginlegur áhugi okkar á sápuþáttum, en við horfðum saman á Leiðarljós til margra ára og síðan á Glæstar vonir sem við ræddum um daglega, jafnvel í síma á meðan á þættinum stóð. Amma átti sína vini og óvini í þáttunum og hafði sterkar skoðanir á hlutunum sem þar gerðust, hótaði stundum að hætta að horfa ef henni mislíkaði leikfléttan. Innlifunin var slík að oft fannst mér að við amma værum hluti af Forrester-fjölskyldunni. Einnig verð ég að nefna að þegar hún var áskrifandi að Séð og Heyrt las hún upp það markverðasta í blaðinu hverju sinni ásamt brönd- urunum, og við gátum hlegið og hlegið, ógleymanlegt. Nú þegar komið er að kveðjustund hugsum við um gleði og sorg. Því meiri gleði, því meiri sorg. Því meiri kærleikur því meiri söknuður. En í dag erum við sorgmædd vegna þeirrar gleði sem amma gaf okkur öllum sem elskuðum hana af öllu hjarta. Ég kveð ömmu mína og vinkonu með orðunum sem hún kvaddi mig með á hverju kvöldi: Guð veri með þér og góða nótt, elskan mín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín sonardóttir, Soffía Frímannsdóttir. Minningarnar eru margar og góð- ar um elskulega ömmu mína, Soffíu Guðmundsdóttur. Ferðirnar sem ég hljóp niður á Eyri til ykkar afa í mjólkurgrautinn á laugardögum þar sem öll fjölskyldan var saman komin til þess að borða mjólkurgraut, borða slátur, sem tekið var hvert haust við mismikla hrifningu okkar barnanna og sviðalappirnar sem afi var búinn að svíða á bárujárnsplötu fyrir utan húsið. Eyrin var sannar- lega samkomustaður fjölskyldunn- ar, við spiluðum oft yatzy og ólsen, það var erfitt að vinna þig enda margfaldur Íslandmeistari í bridge á ferð. Það var yndislegt að koma til þín, í nýbakaðar kleinur, snúða og pönnukökur sem kláruðust um leið, enda gestagangurinn mikill, allir vildu vera í kringum þig elsku amma enda hjartahlýja þín og góðmennska einstök. Aðfangadagur á Eyrinni var alltaf hátíðlegur og þar var gott að vera, margar skondnar minning- ar rifjast upp enda margt um mann- inn. Þú varst mikil selskapsmann- eskja og hafðir gaman af fólki og öllu því sem var að gerast í þjóð- félaginu. Þú varst eins og fréttamið- ill, við ræddum um það sem var efst á baugi og þú hafðir sannarlega þín- ar skoðanir á hlutunum eins og öllu öðru. Þú hafðir gaman af öllu glensi og gríni enda hlógum við mikið sam- an. Amma var áskrifandi að Séð og Heyrt og þegar blaðið kom í hús var eins og forsetinn væri mættur, við ræddum um það sem var í blaðinu og ef ég var ekki á staðnum þá last þú upp úr blaðinu fyrir mig, þá helst brandarana. Gott var að leita ráða hjá þér og oftar en ekki var ég með þig á lín- unni þegar ég var að baka eða stússa eitthvað, það þótti okkur báð- um skemmtilegt. Að hafa átt þig að í öll þessi ár voru forréttindi, virð- ingin, áhuginn, hvatningin og um- hyggjan var ómetanlegur stuðning- ur fyrir mig. Kærleikurinn okkar á milli var einstakur, mér þótti óend- Soffía Guðmundsdóttir ✝ Ástkær frændi okkar og vinur, JÓN FRIÐRIKSSON frá Seldal í Norðfirði, lést á hjúkrunardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað fimmtudaginn 3. febrúar. Útför hans verður gerð frá Norðfjarðarkirkju föstudaginn 11. febrúar kl. 14.00. Jarðsett verður á Skorrastað. Seldalsfjölskyldan. ✝ Ástkær móðir mín, amma og langamma, RAGNHILDUR DAGBJARTSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 11. febrúar kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Garðar Bjarnar Sigvaldason, Hildur Garðarsdóttir, Jón Viðar Sigurgeirsson og langömmubörn. ✝ Okkar ástkæra INGVELDUR ALBERTSDÓTTIR BACHMANN, Bólstaðarhlíð 58, Reykjavík, lést mánudaginn 7. febrúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 16. febrúar kl. 13.00. Rúnar Bachmann, Guðrún B. Hauksdóttir, Petrína Bachmann, Sigríður Bachmann og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, AALTJE BAKKER, Atie, andaðist sunnudaginn 30. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðfinnur Jakobsson. ✝ ÞÓRUNN STEFANÍA SAMÚELSDÓTTIR frá Bíldudal, til heimilis að Arahólum 4, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 3. febrúar. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 11. febrúar og hefst kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Eirar. Árni Konráðsson, Anna Aradóttir, Alda Konráðsdóttir, Ólafur Ólafsson, Stefán Konráðsson, Margrét Unnur Kjartansdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Móðir okkar, HELGA SIGRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR frá Bessastöðum, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga mánudaginn 7. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Börn hinnar látnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.