Morgunblaðið - 10.02.2011, Side 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011
Sudoku
Frumstig
9
1 4 3 2
5 9 6 7
9 5
2 7 4 6
1 5
3 1 6 7
1
6 4 3
7 1
4 3
6 3 7 4
6 2 8 9 1
9 4 7 3 6
1
8 9
1 6 9
2 1
8
3 7 4
8 7 9
6 3
4
5 9 1
4 7 9 3
8 1 3
2 6
9 7 6 8 1 5 4 2 3
1 2 4 3 9 7 5 8 6
3 5 8 4 6 2 7 9 1
2 6 3 7 4 8 1 5 9
5 9 7 1 2 3 6 4 8
8 4 1 6 5 9 2 3 7
4 3 5 9 7 6 8 1 2
7 8 2 5 3 1 9 6 4
6 1 9 2 8 4 3 7 5
3 4 5 7 1 2 9 8 6
9 2 6 3 5 8 1 4 7
1 7 8 9 6 4 2 3 5
4 9 7 1 8 3 6 5 2
6 8 2 5 4 7 3 9 1
5 1 3 6 2 9 4 7 8
7 6 4 8 9 1 5 2 3
8 5 9 2 3 6 7 1 4
2 3 1 4 7 5 8 6 9
5 3 1 6 2 7 9 8 4
4 7 9 8 5 1 3 2 6
8 2 6 3 4 9 7 1 5
6 5 3 1 9 4 2 7 8
9 4 2 7 8 5 6 3 1
1 8 7 2 6 3 5 4 9
3 9 4 5 1 2 8 6 7
2 1 8 9 7 6 4 5 3
7 6 5 4 3 8 1 9 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 10. febrúar,
41. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Hvern þann sem kann-
ast við mig fyrir mönnum, mun og ég
við kannast fyrir föður mínum á
himnum. (Mt. 10, 32.)
Það gladdi Víkverja að lesa umátak lögreglu gegn „stefnulaus-
um“ ökumönnum. Íslenskir ökumenn
virðast hafa sérstaka óbeit á stefnu-
ljósum. Þeir virðast halda að stefnu-
ljós séu tilræði við friðhelgi einkalífs-
ins, fordæmalaus hnýsni, næsta
skref á undan eftirlitsmyndavél í
svefnherberginu. Nóg sé að þeir viti
sjálfir hvort þeir ætli að beygja,
skipta um akrein eða fara út úr
hringtorgi, öðrum ökumönnum komi
það ekki við.
x x x
Annar möguleiki er að þeir haldiað það sé meira spennandi í um-
ferðinni og hjálpi ökumönnum að
halda sér vakandi í umferðinni að
vita aldrei upp á hverju aðrir öku-
menn taki næst, hvort þeir ætli að
troða sér fyrir framan þig inn á ak-
reinina, sem þú ert á, eða skjótast
óforvarandis út úr hringtorgi. Þeir
gætu verið með kjörorðið Óvissa
skapar árvekni.
x x x
Einnig gætu hinir stefnuljósa-fælnu ökumenn verið haldnir
þeirri sannfæringu að aðrir ökumenn
haldi að þeir séu að láta uppi póli-
tíska sannfæringu sína með því að
gefa til kynna hvort þeir ætli að
beygja til hægri eða vinstri. Rétt er
að taka fram að það er misskilningur.
x x x
Víkverji dagsins getur látið þaðuppi hér og nú að það fer óum-
ræðilega í taugarnar á honum þegar
ökumenn gefa ekki stefnuljós. Hann
reynir að hemja þessa tilfinningu og
láta sér í léttu rúmi liggja, en það er
erfitt og stundum þarf hann að hafa
sig allan við að hleypa ekki inn á sína
akrein ökumanni, sem reynir að
troða sér án þess að gefa stefnuljós.
Víkverji er hins vegar fyrst og
fremst forvitinn að vita hvers vegna
svona margir ökumenn gefa ekki
stefnuljós. Er það leti? Sannfæring?
Eru þeir svo lengi að ákveða hvort
þeir eigi að beygja að þeir ná ekki að
gefa stefnuljós? Lögreglan gæti
kannski spurt að þessu í stefnuljósa-
herferðinni og birt niðurstöðuna í
dagbókinni hjá sér. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 29. ágústs, 8 vit-
laus, 9 kroppar, 10 sár, 11
virðir, 13 óhreinkaði, 15 sak-
leysi, 18 lýsisdreggja, 21
kyrr, 22 beri, 23 reyfið, 24
fýsilegt.
Lóðrétt | 2 gjafmild, 3 alda,
4 dútla, 5 hlýða, 6 hóta, 7
vaxi, 12 elska, 14 hreinn, 15
bráðum, 16 bogni, 17 eld-
stæði, 18 heilabrot, 19 land-
ræk, 20 hljómur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 útför, 4 kjóll, 7 látum, 8 öfugt, 9 Týr, 11 tóra, 13 Oddi,
14 seigt,
15 hólk, 17 akir, 20 Ægi, 22 gómar, 23 lufsu, 24 aukið, 25 iðrun.
Lóðrétt: 1 útlit, 2 fótur, 3 rúmt, 4 kjör, 5 ólund, 6 látni, 10 ýring,
12 ask, 13 ota, 15 hegna, 16 lúmsk, 18 kofar, 19 rausn, 20 ærið,
21 ildi.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Be3 e6 5.
Rd2 Rd7 6. Rgf3 Bg6 7. Be2 Re7 8.
Rh4 c5 9. c3 Rc6 10. Rxg6 hxg6 11. Rf3
Hc8 12. O-O a6 13. g3 Be7 14. h4 b5 15.
a4 Db6 16. axb5 axb5 17. Kg2 c4 18.
Rg5 Dd8 19. Bg4 Bxg5 20. Bxg5 Dc7
21. Hh1 Rb6 22. h5 gxh5 23. Bxh5 Ra4
Staðan kom upp í A-flokki Tata Steel
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Stigahæsti skákmaður heims, Norð-
maðurinn Magnus Carlsen (2814),
hafði hvítt gegn hinum kínverska Hao
Wang (2731). 24. Bxf7+! Kxf7 25.
Df3+ Kg8 26. Hxh8+ Kxh8 27. Hh1+
Kg8 28. Dh5 Hf8 29. Bf6! og svartur
gafst upp enda fátt til varna eftir t.d.
29… Hxf6 30. exf6.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Skot í myrkri. S-Allir.
Norður
♠--
♥D10984
♦D7432
♣Á106
Vestur Austur
♠52 ♠G74
♥K532 ♥Á7
♦K9 ♦ÁG865
♣KG873 ♣942
Suður
♠ÁKD109863
♥G6
♦10
♣D5
Suður spilar 4♠.
Líttu sem snöggvast í vestur. Suður
opnar á 4♠ og allir passa. Hvar viltu
koma út?
Spilið er frá sveitakeppni Bridshátíð-
ar. Á 60 borðum var samningurinn 4♠,
vannst í 39 skipti, tapaðist í 21 skipti.
Útspilin voru fjölbreytt: tromp (17),
hjarta (14), ♦K (17) og lítið lauf (12).
Lauf frá kóngnum gefur samninginn
strax, en best vegnaði vörninni með ♦K
út. Austur kallaði og þegar sagnhafi
trompaði næsta tígulslag var staðan í
þeim lit á hreinu. Þar með var auðvelt
fyrir austur að spila laufi á síðari stig-
um. Vörnin er á lífi eftir útspil í hjarta
og trompi, en í reynd var spilið víða gef-
ið eftir þá byrjun þegar austur fann
ekki laufið til baka. Almennt borgar sig
að taka afstöðu í útspilinu – ekki
trompa út bara af því annað er frá-
hrindandi.
10. febrúar 1943
Orlofslög voru samþykkt á Al-
þingi. „Stórkostleg réttarbót
handa verkalýðnum,“ sagði
Alþýðublaðið. Lögin tryggðu
einn frídag fyrir hvern unninn
mánuð. Síðan hefur orlofstím-
inn verið lengdur um helming.
10. febrúar 1944
Þrjár þýskar flugvélar vörp-
uðu sprengjum að olíuskipinu
El Grillo sem lá á Seyðisfirði
og sökk það. Þetta var tíu þús-
und tonna skip. Lengi hefur
verið glímt við olíuleka úr
flakinu.
10. febrúar 1962
Togarinn Elliði frá Siglufirði
sökk undan Öndverðarnesi.
Tuttugu og sex skipverjum
var bjargað á síðustu stundu
um borð í Júpíter en tveir fór-
ust.
10. febrúar 1966
Byggingarnefnd Reykjavíkur
samþykkti 85 ný götuheiti í
Fossvogi (lönd), Breiðholts-
hverfi (bakkar og stekkir) og
Ártúnshöfðahverfi (höfðar).
10. febrúar 1966
Níunda sinfónía Beethovens
var flutt í fyrsta sinn hér á
landi. Sinfóníuhljómsveitin og
Söngsveitin Fílharmonía
fluttu verkið undir stjórn Ró-
berts Abrahams Ottóssonar.
Æfingar höfðu staðið í fjóra
mánuði. „Tímamót í tónlist-
arflutningi á Íslandi,“ sagði
Morgunblaðið. „Mikill menn-
ingarviðburður,“ sagði Al-
þýðublaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég ætla að vera með fjölskyldunni og verði opið í
Bláfjöllum ætla ég að reyna að fara á skíði,“ segir
Einar Lyng Hjaltason, PGA-golfkennari með
meiru, sem er 40 ára í dag. Rakel Árnadóttir, kona
hans, verður fertug síðar á árinu og ætla þau að
halda upp á áfangana saman í sumar. „Við ætlum
að fara í útilegu, grilla og halda tjaldpartí með
vinum og vandamönnum til að fagna áfanganum.“
Tímasetningin liggur samt ekki fyrir því auk þess
að kenna golf ætlar Einar að reyna að keppa í
sumar og er að bíða eftir að mótaskrá Golf-
sambandsins komi út.
Einar segist oft hafa boðið fjölskyldunni í kaffi og kökur á þessum
degi en ekki í ár. „Dóttir mín á afmæli 11 dögum á eftir mér og henn-
ar afmæli er eiginlega jafnframt orðið mitt kaffiboð í leyni.“
Einar kennir golf á daginn og kvöldin en þegar snjór er reynir hann
að vera sem mest á skíðum. „Mér finnst skemmtilegra á skíðum en í
golfi vegna þess að ef ég dett hristi ég það af mér og stend upp en ef
ég slæ vont högg verð ég svo niðurlútur og er lengi að ná mér eftir
það. Gleðitilfinningin er meiri á skíðunum. Maður dettur sjaldnar en
maður slær reglulega vond högg.“ steinthor@mbl.is
Einar Lyng Hjaltason PGA-golfkennari 40 ára
Tjaldpartí í sumar
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
10. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.22 1,1 10.31 3,1 16.45 1,1 23.02 3,1 9.41 17.44
Ísafjörður 0.10 1,6 6.24 0,6 12.26 1,6 18.52 0,5 9.58 17.37
Siglufjörður 2.56 1,0 8.57 0,4 15.24 1,0 21.10 0,4 9.41 17.19
Djúpivogur 1.35 0,5 7.27 1,5 13.47 0,5 20.00 1,5 9.13 17.11
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Taktu það sem þú ætlar að fram-
kvæma í áföngum. Einn kafli endar og annar
hefst. Ef einhver biður þig skaltu segja allt af
létta.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert í hálfgerðu maraþoni í lífinu. Sér-
staklega skaltu láta athugasemdir vinnu-
félaga sem vind um eyru þjóta. Sýndu þol-
inmæði, hlutirnir eiga eftir að róast.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú stendur á tímamótum svo nú er
nauðsynlegt að þú gerir hreint fyrir þínum
dyrum. Hikaðu hvergi og taktu áhættu því þá
koma ýmsir duldir hæfileikar þínir í ljós.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nú er tilvalið að strengja ný heit um
að bæta heilsuna. Kynntu þér vandlega þá
kosti sem í boði eru og veldu eitthvað sem
hentar þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Farðu sérlega varlega í umferðinni í dag
hvort sem þú ert akandi, gangandi eða á hjóli
því þér er óvenju hætt við óhöppum. Farðu
þér hægt og vertu ekki með neinar kúnstir.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Hvað sem þú gerir, ertu í skapi til að
gera allt með stæl. Þér fer vel að sýna
ákveðni.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vertu opin/n fyrir öllu þegar þú tekur
mikilvæga ákvörðun. Stuðningur vina getur
reynst drjúg hjálp.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Í dag skaltu losa þig við óþarfa.
Reyndu að senda fólkinu í kringum þig skýr
skilaboð.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Áttu gæludýr? Ef ekki þá hvetja
stjörnurnar þig til að opna heimili þitt fyrir
einhverjum slíkum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ekki bregðast harkalega við, þótt
þér þyki tilboð vinnufélaga þíns út í hött. Hin-
ir skynsömu bæta og breyta á leiðinni og þú
ert eins klár og hugsast getur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Einfaldasta upplifun getur orðið
upphaf mikilla tíma. Gættu þess að þú fáir þá
viðurkenningu sem þú átt skilið.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú leitast við að láta alla njóta rétt-
lætis. Leitaðu leiða til þess að vera jákvæðari
gagnvart þeim sem þú ert að rembast við að
tengjast.
Stjörnuspá