Morgunblaðið - 10.02.2011, Síða 26

Morgunblaðið - 10.02.2011, Síða 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011 –– Meira fyrir lesendur Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Tísku og förðun föstudaginn 18. febrúar 2011. Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna vorið 2011 í förðun, snyrtingu og fatnaði, fylgihlutir auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 14. febrúar. MEÐAL EFNIS: Förðunarvörur. Förðrun. Húðin,krem og meðferð. Snyrting. Neglur. Kventíska. Herratíska. Fylgihlutir. Skartgripir. Það heitasta í tísku fyrir árshátíðirnar. Hvað verður í tísku á vor- mánuðum. Tíska & Förðun sérblað AF SÖFNUN Örn Þórisson ornthor@mbl.is Nú var komið að því að skipu-leggja DVD-safnið á heim-ilinu. Undanfarin ár hafði hömlulaus söfnunarárátta og inn- byggð leti leitt til þess að diska- hrúgur voru út um allt, allar hillur fullar og gólfpláss einnig nýtt. Lík- lega eru um 400 diskar í DVD- safninu og ná yfir ólíkar kvik- myndastefnur, frá hryllingi til gam- anmynda og alvarlegra mynda til hreinnar afþreyingar. Söfnunar- áráttan er mjög erfið árátta sem ég hef glímt við alla ævi eins og hljóm- plötu-, diska- og bókasafnið ber glöggt vitni um. Á þessum tímamót- um höfðu framkvæmdir á heimilinu opnað tækifæri og neytt mann til að huga að flokkun og röðun diskanna. Og það er einmitt vanda- málið.    Hvernig á maður að raðaDVD-diskum? Í einfalda staf- rófsröð? Það klikkar fljótlega þeg- ar maður rekst á ólíka diska hlið við hlið, myndir sem eiga ekkert sameiginlegt. Mér fannst þess vegna lógískt að flokka myndir í tegundir, þ.e. stríðsmyndir saman, vestra, gamanmyndir, film-noir, sjónvarpsseríur, o.s.frv. Nú er mál- ið leyst, þegar mig langar að sjá vestra þá fer ég í vestrahilluna, ekki satt? Svoleiðis lagði ég af stað en lenti strax í ógöngum. Hvað með óflokkanlegar myndir, s.s. The Big Lebowski? Er þetta noir-mynd eða gamanmynd? Nú svo kom líka upp erfiðari spurning um höfunda, er ekki rétt að setja allar myndir Cop- pola saman, taka þar með God- father-seríuna úr glæpamynda- flokknum (nú eða fjölskyldu- myndum) og taka Apocalypse Now úr stríðsmyndaflokknum; saman ásamt fleiri Coppola-myndum fara þær í C-ið „Coppola myndir“. Auð- vitað í stafrófsröð eða jafnvel í tímaröð!! Já, nú er þetta farið að rúlla að ég hélt. Spurningin er auð- vitað hvaða leikstjórar flokkast undir að vera höfundar. Auðvelt að setja Coppola, Coen-bræður, Kuro- sawa, Fellini og Polanski (þó mér sé illa við að taka Chinatown úr film noir-flokknum) o.fl. saman. Upp koma erfiðari spurningar um t.d. Sam Raimi sem er vanmetinn leik- stjóri. Get ég tekið Spider Man- seríuna út úr sci-fi flokknum (und- irflokkur „ofurhetjur“) og sett með The Evil Dead, einhverri flottustu hryllingsóperu allra tíma? Einnig verður lítið eftir í vestraflokknum þegar maður tekur John Ford, Ser- gio Leone og Clint Eastwood og setur þá í höfundaflokkinn.    Clint Eastwood setti mig í ann-an bobba. Framan af ferlinum var hann kunnur sem leikari, stór- stjarna sem seldi myndirnar ekki síður en leikstjórar. Svo fer hann að leikstýra eins og öllum er kunn- ugt um. Greinilega verðskuldar hann að vera settur í einhvers kon- ar ofurflokk (í tímaröð!!), tæplega einn hillumetri, svo hægt sé að skoða ferilinn frá a til ö eða 1960 til 2011. Stallone er að vinna að því að komast í ofurflokkinn, sem mundi rýra hnefaleikamyndaflokkinn og ég er vongóður um að Clooney komist þangað, þó svo ég viti ekk- ert hvað eigi þá að gera við O Brot- her, Where Art Thou? (úr Coen- flokknum) og Soderbergh-- myndirnar hans. Úff, þetta er ekki létt verk.    Tveimur vikum eftir að flokk-unarstarfið hófst er því ekki enn lokið, diskar eru út um allt og þolinmæðin á þrotum hjá eiginkon- unni. Alltaf bætast við myndir. Að ógleymdum nýjum vandamálum eins og Blu-ray-diskum. Varla setur maður þá í bland með DVD, verð- skulda þeir ekki nýja hillu, Blu-ray- hilluna? Og þá með sama flokk- unarkerfi? Sam Peckinpah-myndin The Wild Bunch skipar nú heið- ursflokk, en hana er að finna í Peckinpah-höfundaflokknum, eitt eintak er í vestraflokknum og nú er komið eintak í Blu-ray-hilluna. Mál- ið leyst! Flókið flokkunarstarf » Tveimur vikumeftir að flokkunar- starfið hófst er því ekki enn lokið, diskar eru út um allt og þolinmæðin á þrotum hjá eiginkon- unni. Eastwood Framan af ferlinum var hann kunnur sem leikari en fór svo að leikstýra. Eastwood á skilið að vera settur í einhvers konar ofurflokk svo hægt sé að skoða ferilinn frá a til ö, eða frá árinu 1960 til 2011. Three Parts Whole er heiti sýningar myndlistarmannanna Finnboga Pét- urssonar, Hrafnkels Sigurðssonar og Ívars Valgarðssonar sem verður opnuð í i8 galleríi klukkan 17 í dag. Sýningarstjóri er Bandaríkjamað- urinn Gregory Volk, en hann starfar í New York sem sýningarstjóri og gagnrýnandi, auk þess sem hann gegnir stöðu aðstoðarprófessors við listaháskóla í Virginíu-ríki. Á sýningunni eru ný verk eftir alla listamennina; stór vatnslitaskúlptúr á gólfi og bárur á veggjum eftir Ívar, ljósmyndaverk eftir Hrafnkel af snjómyndunum og Eyjafjallajökli, og veggteikning og sveiflandi myndavél eftir Finnboga. „Það var sérlega ánægjulegt að vinna með þessum ólíku en snjöllu listamönnum,“ segir Volk. „Ég vildi bara hafa ný verk hérna, rétt eins og þetta vatnslitaverk Ív- ars,“ segir hann og bendir á stóran kúlulaga pappírsskúlptúrinn sem vísar til hafs og himins. „Þessi verk tengjast öll í núinu.“ Tengingar verkanna eru ýmiss konar; blátt er gegnumgangandi og sveiflandi upptökuvélin kemur hreyfingu af stað í rýminu. „Þótt einstaklingseinkennin séu sterk þá eru mörg lög af tengingum, við sjáum bláa tóninn og línur í upp- setningunni,“ segir Volk. „Það er verið að fást við orkuna í landinu og náttúruna; sýningin er þó ekki um náttúru klandsins þótt hún sé með í verkunum. Ég er mjög spenntur fyrir sýn- ingum þar sem margskonar verk koma saman og mynda tímabundið og sérstakt samtal, eins og hér kviknar,“ segir hann. efi@mbl.is Morgunblaðið/Einar Falur Í sýningarsalnum Ívar Valgarðsson, Finnbogi Pétursson, Gregory Volk og Hrafnkell Sigurðsson. Listamennirnir og sýningarstjórinn. Tímabundið og sérstakt samtal  Finnbogi, Ívar og Hrafnkell sýna í i8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.