Morgunblaðið - 10.02.2011, Síða 27

Morgunblaðið - 10.02.2011, Síða 27
MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011 Tónlist er gjarnan skipt íflokka; sígilda (klassík),popp, rokk, djass, blús …Svona mætti eflaust lengi telja. Fyrir einfaldan alþýðumann eins og mig duga tveir flokkar; ann- aðhvort er tónlist góð eða vond, lesist: skemmtileg eða leiðinleg. Góðrar tónlistar nýtur fólk en varla vondrar. Flokkunin er svo vitaskuld mat hvers og eins hverju sinni og ger- ir lífið skemmtilegra. Jafnvel hægt að rífast! Og smekkurinn getur breyst með auknum þroska eða minnkandi, eftir því hvernig á það er litið. Langt er síðan molna fór úr múr- um á milli tónlistarstefna og hér heima hafa listamenn, hver úr sinni áttinni, verið iðnir við að rugla saman reytum. Boðið var upp á vel heppnað dæmi um slíka samvinnu í Hofi um síðustu helgi þar sem hljómsveitin Dúndurfréttir og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fluttu eitt snilldarverka bresku rokksveitarinnar Pink Floyd, The Wall, í heild, ásamt Karlakór Dalvíkur og stúlknakór, sem að mestu var skipaður nemendum Tón- listarskólans á Akureyri. Dúndurfréttir sérhæfa sig í flutn- ingi gamalla meistaraverka helstu rokksveita heimsins og tekst jafnan svo vel upp að vart má á milli heyra hvorir eru betri, „okkar menn“ eða fyrirmyndirnar. Ef marka má viðtökur áhorfenda í Hofi – og vitaskuld má marka þær, hvað annað? – tókst frábærlega til. Múrinn, The Wall, samdi Roger Waters síðla á áttunda áratug síðustu aldar og Pink Floyd gaf út sam- nefnda plötu 1979. Þar er sögð saga Pinks, persónu sem byggð er á lífi Waters sjálfs að sögn; fjallað um upp- vaxtarár hans í Bretlandi á árunum eftir seinna stríð, en á tónleikum eins og í Hofi skiptir það í sjálfu sér ekki máli. Gamlir unnendur Pink Floyd hafa hugsanlega haft það á bak við eyrað og ugglaust borið saman í hug- anum jafnóðum flutning sveitarinnar sjálfrar og íslensku listamannanna. Hafi einhver heyrt verkið í fyrsta skipti á laugardaginn, hlýtur sá hinn sami að hafa hrifist. Útsetningin var afbragð. Vissulega óvenjulegt að heyra sinfónískan und- irleik við Múrinn en það var fallegt og áhrifamikið. Dúndurfréttir eru magnaður hóp- ur. Frábærir hljóðfæraleikarar þar á ferð og ótrúlegt samsafn úrvals- söngvara. Kaflar verksins eru afar misjafnir að gerð, styrk og lengd og erfitt að nefna einhvern sérstaklega. Þó verður vart hjá því komist að nefna Comfortably Numb; hafi þakið lyfst af Hofi við framíköll á fundi um sjávarútvegsmál á dögunum, eins og ónefndur þingmaður hélt fram, hafa akureyrskir smiðir unnið kraftaverk við að festa það á ný því ekki hagg- aðist það við flutning þess kraftmikla lags. Og þá kom vel í ljós að hljóð- kerfið í Hofi er alvöru. Þvílík snilld! Magnaður múr Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Heill ykkur! Meðlimir Dúndurfrétta, fremst á sviðinu, klappa hljómsveit og kór lof í lófa í lok magnaðra tónleika. Dúndur Hljómsveitin Dúndurfréttir lék við hvern sinn fingur í Hofi. Hof á Akureyri Dúndurfréttir og fleiri bbbbn Dúndurfréttir, Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands, Karlakór Dalvíkur og stúlkna- kór fluttu The Wall eftir Roger Waters (David Gilmour og Bob Ezrin). Stjórn- andi Guðmundur Óli Gunnarsson. Laug- ardagur 5. febrúar, fyrri tónleikar af tvennum. SKAPTI HALLGRÍMSSON TÓNLIST Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Hljómsveitin The Jimi Hendrix Project verður með tónleika í kvöld á Sódómu Reykjavík en eins og nafnið gefur til kynna spilar hún að- eins tónlist Jimi Hendrix. Sveitin samanstendur af fjórum strákum af Skaganum en sveitin var einmitt stofnuð fyrir tónleikahátíð á Akra- nesi í fyrra. „Mig hafði lengi langað að stofna svona hljómsveit og fékk félaga mína, sem ég hef verið að spila með í gegnum tíðina, með mér,“ segir Siggi Bach gítarleikari. Það sem hrífur Sigga mest við tónlist Hendrix er að hann var „drullufær gítarleikari“ og „braut- ryðjandi í rokkblústónlist“. Honum hefur fundist vanta um- fjöllun og spilun tónlistar Hendrix hérlendis og greip því sjálfur tæki- færið. „Við viljum vekja meiri áhuga á honum hér.“ Hann segir það góðan stökkpall til að koma sér á framfæri að spila Hendrix enda sé það ekki fyrir hvern sem er. „Ég treysti mér í það en það krefst mikilla æfinga. Ég er þannig gerður að ég vil fá áskor- un.“ Hann tekur þó fram að þeir fé- lagar leiti innblásturs frá tónlist Hendrix en ekki lífsstíl. Lofar stuði í stórborginni Hann lofar miklu stuði á Sódómu. „Við spiluðum síðast á blúshátíð á Akranesi og fengum góð viðbrögð. Það verður gaman að sjá hvernig stórborgarliðið tekur í þetta,“ segir hann og hvetur alla áhugasama til að mæta. Siggi segist ekki geta nefnt neitt eitt lag sem sitt uppáhalds með meistaranum en sú plata sem er í mestu uppáhaldi er Axis: Bold as Love. Flutt verða vel valin lög af þeirri plötu auk platnanna Are You Experienced og Electric Ladyland. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og kostar 1.000 krónur inn. Athygli er vakin á því að enginn posi verður á svæðinu og fólk því beðið um að taka reiðufé með sér. Þess skal jafn- framt getið að 18 ára aldurstakmark er á tónleikana. The Jimi Hendrix Project Meðlimir eru frá vinstri Bergur Líndal, Siggi Bach, Axel Freyr Gíslason og Björn Breiðfjörð. Verðug áskorun að spila meistarann  Fjórir strákar frá Akranesi spila tón- list Jimi Hendrix á Sódómu Reykjavík Meistarinn sjálfur Þeir félagar leita innblásturs frá tónlist Hendrix en ekki lífsstíl. BLACK SWAN KL. 5.40 - 8 - 10.30 16 BLACK SWAN LÚXUS KL. 5.40 - 8 - 10.30 16 MÚMÍNÁLFARNIR 3D KL. 3.40 L THE DILEMMA KL. 5.30 - 8 - 10.30 L THE GREEN HORNET 3D KL. 3.30 - 5.25 - 8 - 10.35 12 ALFA OG ÓMEGA 3D KL. 3.30 L THE TOURIST KL. 10.30 12 GULLIVER´S TRAVELS 3D KL. 3.30 - 5.50 L BLACK SWAN KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 LONDON BOULEVARD KL. 8 - 10.10 16 THE FIGHTER KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 BURLESQUE KL. 8 - 10.30 L GAURAGANGUR KL. 5.50 7 BARA HÚSMÓÐIR* KL. 6 ENSKUR TEXTI L *SÝND ÁFRAM Í NOKKRA DAGA SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5% 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS T.V. - KVIKMYNDIR.IS B. I., KVIKMYNDIR.COM -H.S.S.,MBL THE DILEMMA KL. 8 SÍÐASTA SÝNING L MÚMÍNÁLFARNIR 3D KL. 6 L DEVIL KL. 8 - 10.10 16 THE GREEN HORNET 3D KL. 10.10 SÍÐASTA SÝNING 12 ALFA OG ÓMEGA 2D KL. 6 L ÍSLENSKT TAL Í 3-D -H.S.S., MBL LAUGARÁSBÍÓ Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum Sýningartímar ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ ÓSKARS- VERÐLAUNAHAFANUM WILLIAM MONAHAN, HANDRITSHÖFUNDI “THE DEPARTED” THE FIGHTER Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:20 LITTLE FOCKERS Sýnd kl. 8 og 10 LONDON BOULEVARD Sýnd kl. 8 og 10:10 MÚMMÍNÁLFARNIR 3D Sýnd kl. 6 ísl. tal ALFA OG ÓMEGA 2D Sýnd kl. 6 ísl. tal -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.