Morgunblaðið - 10.02.2011, Síða 28

Morgunblaðið - 10.02.2011, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011 Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur skrifað undir útgáfusamning við Record Records um útgáfu á væntanlegri breiðskífu þeirra. Sveit- in fer í hljóðver í lok mars, nánar til- tekið Stúdíó Sýrland, og tekur þar upp undir stjórn Arons Þórs Arnars- sonar. Blaðamaður hringdi í söngkonu sveitarinnar, Nönnu Bryndísi Hilm- arsdóttur, og óskaði henni til ham- ingju með saminginn. Eins og svo margir tónlistarmenn er hún líka með aðra vinnu en hún var í miðri af- greiðslu á lottómiða á myndbanda- leigunni sem hún vinnur hjá. Lukk- an er ef til vill með þessum miðaeiganda en það voru hæfileikar en ekki heppni sem færðu Of Mon- sters and Men sigur í Músíktil- raunum á síðasta ári. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og sveitin fengið mörg tæki- færi til spilamennsku og jafnt og þétt bæst í aðdáendahópinn. Hljóðversvinnan leggst vel í Nönnu Bryndísi. „Þetta er frábært, við erum öll virkilega spennt að fara að vinna með Record Records,“ seg- ir hún og útskýrir að sveitin hafi mikla trú á forsprakka útgáfunnar, Haraldi Leví Gunnarssyni. Lögin eru flestöll tilbúin en þau eru samt enn að bæta í sarpinn. „Við erum komin með svona ellefu lög en viljum vera með fleiri til að hafa nóg að velja úr. Við erum að æfa, útsetja og pæla heilmikið núna.“ Stefnt er að útgáfu í júní og verð- ur „sumarfílingur“ í plötunni að sögn söngkonunnar en tónlistinni hefur verið lýst í Morgunblaðinu sem melódísku nýþjóðlagapoppi, sem á áreiðanlega eftir að passa vel fyrir sumarið 2011. „Við erum mjög spennt fyrir framhaldinu,“ segir Nanna Bryndís. Of Monsters and Men tók upp tvö lög í Sundlauginni fyrir Músíktil- raunaverðlaunin, sem rötuðu á kynningardisk fyrir Iceland Air- waves-hátíðina. Annað lagið heitir „Little Talks“ og verður það gefið í tilefni samningsins á recordrecords.- is. Rokkað fyrir Pétur Kristján Sveitin er síðan að fara að spila á tónleikum á Faktórý á föstudags- kvöldið ásamt Retro Stefson og Who Knew. Hún ætlaði að vera í fríi frá spilamennsku en gerði undantekn- ingu því um er að ræða styrkt- artónleika fyrir Pétur Kristján Guð- mundsson, sem lenti í alvarlegu slysi í Austurríki á nýársnótt. Pétur er sem stendur í endurhæfingu á Grensási. Efri hæðin verður opnuð klukkan 22 og hefjast tónleikarnir klukku- stundu síðar og er aðgangseyrir 1.000 krónur. Sumarplata í vændum Ljósmynd/Megin Zondervan Útgáfusamningur í höfn Of Monsters and Men er á leið í hljóðver í lok mars.  Of Monsters and Men á leið í hljóðver  Sveitin gefur lag í tilefni útgáfusamnings við Record Records  Spilar á styrktartónleikum fyrir Pétur Kristján Guðmundsson á föstudagskvöld Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hugleikjafélag Reykjavíkur var stofnað 21. nóvember í fyrra og hefur það að markmiði að efla hugleiki í Reykjavík og stuðla að nýliðun innan hvers áhugamáls fyrir sig. Félagið hefur haldið leikjakvöld nær daglega allt frá stofnun, í húsnæði sínu að Hverfisgötu 102, og er eitt af mark- miðum þess að halda úti félags- heimili þannig að félagsmenn geti stundað þar áhugamál sitt en félaginu er skipt í fimm undirsvið: borðspil, her- kænskuspil, safn- kortaspil, spuna- spil og tölvuleiki. Helgi Már Friðgeirsson er formaður félagsins og fyrrverandi starfsmaður versl- unarinnar Nexus sem sérhæfir sig m.a. í slíkum leikjum. Helgi býr yfir áratuga reynslu af hugleikjum, að því er fram kemur á vef félagsins. Blaða- maður ræddi við nafna sinn um þetta forvitnilega félag og spurði hann fyrst hvaða leikir teldust hugleikir. „Hugleikir eru t.d. alls konar spil sem maður spilar ekki í tölvunni, borðspil, hlutverkaspil og svona kortaspil þar sem þú notar eitthvað annað en klassíska 52 spila stokkinn, safnkortaspil eins og þau eru oft köll- uð. Spil þar sem ímyndunaraflið og hugur þinn fær að ráða ferðinni,“ svarar Helgi. Hann segir félagið halda úti þéttri dagskrá, eitthvað sé um að vera nánast öll kvöld í félaginu, leikjakvöld eða aðrir viðburðir tengd- ir félagsstarfinu. Meðal þeirra leikja sem félagsmenn stunda eru sk. her- kænskuleikir en leikmenn þurfa m.a. að mála módel og koma sér upp her sem þeir nota gegn andstæðingum sínum í leiknum. Sem dæmi um slík- an herkænskuleik má nefna War- hammer en sem dæmi um þekktan hlutverkaleik má nefna Dungeons & Dragons. „Nörd“ ekki ljótt orð -Það hlýtur að vera dálítið erfitt að setja sig inn í þessa leiki, að læra þá? „Nei, nei. Þetta er svo opið sam- félag hjá okkur að það eina sem þú þarft er að koma í heimsókn. Yfirleitt er einhver tilbúinn til þess að ganga með þér í gegnum fyrstu sporin og lána þér það sem þú þarft, til að prófa. Eitt af gildum fé- lagsins er að það eru allir velkomnir hjá okkur,“ segir Helgi. Félagsmenn voru 93 í byrjun vikunnar og segist Helgi eiga von á því að þeim fjölgi, góðir hlutir gerist hægt. -Nú hafa menn sem hafa brennandi áhuga á svona leikjum, t.d. hlutverka- og her- kænskuleikjum, fengið á sig þennan leiðinlega og heldur nei- kvæða nörda-stimpil … „Okkur finnst „nörd“ ekkert ljótt orð en okkur finnst „lúði“ frekar ljótt orð. En „nörd“ er- um við farnir að nota sjálfir,“ svarar Helgi án umhugsunar. „Til dæmis finnst okkur marg- ir af þessum Formúlu 1- strákum vera miklu meiri nördar en við, á sínu sviði, og fótbolta- áhugamenn.“ -Nörda-stimpillinn er kannski til- kominn vegna einhverrar öfundsýki? „Já, sennilega. Ég vorkenni þeim sem hefur ekki áhugamál sem hann getur helgað sig nógu mikið til að vera kallaður nörd.“ Leikir fyrir ímyndunaraflið  Hugleikjafélag Reykjavíkur heldur leikjakvöld þar sem menn spreyta sig m.a. í hlutverka- og herkænskuleikjum  Óreyndir fá leiðsögn frá þeim reyndari Heilabrot Félagsmenn spá í spil með líkönum og tindátum í húsakynnum Hugleikjafélags Reykjavíkur. Helgi Már Friðgeirsson Gildi Hugleikjafélags Reykjavíkur má finna á heima- síðu þess og eru þau eftirfarandi: Virðing Við erum ekki öll eins. Við erum ekki öll að spila sama spilið. Berum virðingu hvert fyrir öðru. Jákvæðni Mætum með bros á vör og förum einn- ig með bros á vör. Mætum félögum okkar í Hug- leikjafélaginu af jákvæðni. Hjálpsemi Tökum vel á móti öllum. Tökum höndum saman um að gera spilasalinn skemmtilegan. Hjálp- um nýliðum að stíga sín fyrstu skref í áhugamálum sínum. Tökum til saman. Hjálpumst að! SamkenndVið erum félag og þar af leiðir félagar. Við stöndum saman og sýnum hvert öðru skilning og stuðning. Hugleikjafélagið er með heimasíðu á slóðinni hugleikjafelagid.wordpress.com og það má einnig finna á Facebook. Þeir sem hafa áhuga á því að ganga í félag- ið geta sent póst á hugleikjafelagreykjavikur@gmail.com. Einnig má sækja sér fróðleik um hina ýmsu gerðir hugleikja á vef Nexus, nexus.is. Jákvætt hugarfar FARIÐ EFTIR GÓÐUM GILDUM Persóna úr Dungeons & Dragons, Pathfinder Barbarian.  Vefur Paste Magazine segir frá nýrri heimildarmynd kvikmynda- fyrirtækisins Serious Feather um íslensku tónlistarsenuna og ber myndin heitið Beyond Sigur Rós, eða Handan Sigur Rósar. Í mynd- inni má sjá tónlistarflutning ýmissa íslenskra hljómsveita og tónlistar- manna sem njóta vinsælda og virð- ingar hér á landi, m.a. Seabear, DJ Musician, Ólafs Arnalds, Hafdísar Huldar, Berndsen, Mugison, Láru Rúnars, Bloodgroup, For A Minor Reflection, Sykurs og Severed Crotch. Auk þess rætt er við menn í plötuútgáfu og annarri tónlistar- tengdri starfsemi. Hægt er að hlaða myndinni niður á vef Serious Feat- her, seriousfeather.com. Leikstjóri hennar er Brett Gregory. Heimildarmynd til heið- urs íslenskri tónlist  Hljómsveitin Ensími hélt fyrstu tónleika sína utan höfuðborgar- svæðisins í ein tíu ár í gær, á Höfn í Hornafirði, en sveitin gaf fyrir nokkrum mánuðum út breiðskífuna Gæludýr. Næsti viðkomustaður er Selfoss, þann 18. febrúar, og degi síðar verður spilað á Egilsstöðum. Þá spilar Ensími í Reykjanesbæ 24. feb., á Akranesi 25. feb., Akureyri 25. mars og Húsavík 26. mars. Sérlegir útgáfutónleikar vegna nýju plötunnar verða haldnir í Reykjavík, á skemmti- og tónleika- staðnum Nasa, 26. febrúar. 16. apríl mun hljómsveitin svo halda tón- leika á Sódómu Reykjavík en ekk- ert aldurstakmark er á þá tónleika. Ensími heldur tónleika víða um land

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.