Morgunblaðið - 10.02.2011, Qupperneq 32
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 41. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Þórður Friðjónsson látinn
2. Tengdapabba þótti það skrýtið
3. Lést eftir fegrunaraðgerð
4. Heldur eftir 65.000 kr. af lífeyri
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Franska kvikmyndahátíðin 2011
sem haldin var 21. janúar til 3. febr-
úar í Háskólabíói í Reykjavík mun
halda áfram göngu sinni í Borgarbíói
á Akureyri 12. til 16. febrúar. Fimm
kvikmyndir verða sýndar.
Franskar kvikmyndir
sýndar í Borgarbíói
Tölvuleikjafyrir-
tækið CCP heldur
árlega aðdáenda-
hátíð sína, Fan-
fest, í Laugardals-
höll í mars og
lýkur henni með
miklu lokahófi og
tónleikum hljóm-
sveitanna Booka
Shade og FM Belfast þann 26. mars.
Booka Shade hefur leikið á mörgum
virtum tónlistarhátíðum, m.a.
Glastonbury og á Hróarskeldu.
Booka Shade í loka-
hófi Fanfest CCP
Útvarpsleikhúsið býður upp á for-
flutning í Bíó Paradís í dag kl. 17 á út-
varpsleikritinu Herbergi 408. Höf-
undar og leikstjórar verksins eru
Hrafnhildur Hagalín og
Steinunn Knútsdóttir en
Harpa Arnardóttir, Árni
Pétur Guðjónsson
og Aðalbjörg
Árnadóttir
leika. Verkið
verður frum-
flutt á Rás 1,
13. febrúar.
Útvarpsleikrit for-
flutt í Bíó Paradís
Á föstudag Suðaustan hvassviðri, jafnvel stormur, og rigning eða slydda, en úrkomulítið
norðanlands. Dregur úr vindi síðdegis. Hiti 0 til 7 stig, svalast norðaustanlands.
Á laugardag Ákveðin suðaustlæg átt og rigning eða slydda, en úrkomulítið norðan- og
austanlands. Kólnar lítið eitt.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustanátt, 13-18 m/s og rigning sunnan- og vestanlands, en
annars mun hægara og þurrt. Hvessir í kvöld. Hiti 1 til 6 stig.
VEÐUR
„Þetta er spennandi enda er
Wolfsburg toppklúbbur sem
ætlar sér stóra hluti. Það er
hins vegar að ýmsu að
hyggja. Við eigum eftir að
ræða marga hluti og ég þarf
svo að vega og meta hvort
þetta henti mér,“ sagði Eyj-
ólfur Sverrisson, þjálfari
U21 ára landsliðsins, við
Morgunblaðið en þýska
stórliðið Wolfsburg hefur
boðið honum starf aðstoð-
arþjálfara. »1
Þýskt stórlið vill
fá Eyjólf til starfa
Sverre Jakobsson, landsliðsmaður í
handknattleik, er bjartsýnn á að
sleppa við aðgerð vegna þeirra
meiðsla sem hrjáðu hann á HM í Sví-
þjóð á dögunum. Sverre varð
fyrir meiðslum í oln-
boga í deildaleik með
Grosswallstadt í
Þýskalandi fyrir ára-
mót og hafði ekki
jafnað sig þegar
HM hófst. Hon-
um versnaði
smátt og
smátt eftir
því sem á
mótið
leið. »3
Sverre er að hressast
eftir HM í Svíþjóð
Kvennalið Hamars gerði góða ferð í
vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöld
þegar það lagði KR í Iceland Express-
deildinni í körfuknattleik. Þetta var
16. sigur Hamarskvenna í röð og þær
náðu að hefna ófaranna frá því um
síðustu helgi þegar KR hafði betur í
rimmu liðanna í undanúrslitum bik-
arkeppninnar. »2
Hamarskonur náðu að
koma fram hefndum
ÍÞRÓTTIR
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Í gær voru Framadagar haldnir í
Háskólabíói en þeir eru árlegur við-
burður þar sem ýmis fyrirtæki
kynna nemendum á háskólastiginu
starfsemi sína. Dagarnir voru að
venju vel sóttir og var sérstaklega
margt um manninn í hádeginu þeg-
ar nemendur heimsóttu kynning-
arbása 25 fyrirtækja í matarhléi.
Í sal 1 var boðið upp á for-
vitnilega örfyrirlestra auk þess sem
kennarar við Háskóla Íslands og
Háskólann í Reykjavík öttu kappi í
spurningakeppni síðdegis. Í ávarpi
sínu í tilefni dagsins tók Gunnar
Ingi Valdimarsson, framkvæmda-
stjóri Framadaga, tilgang þeirra
saman í eina spurningu: „Hvað ætl-
ar þú að verða þegar þú verður
stór?“
Brúa bilið
„Það er oft þannig að í skólanum
les maður misskemmtilegar fræði-
bækur og greinar og á kannski erf-
itt með að tengja það við hvað mað-
ur ætlar svo að gera í atvinnulífinu
seinna,“ segir Gunnar. Hann segir
námsfólk í mismiklum tengslum við
atvinnulífið og að Framadagar séu
viðleitni til að brúa bilið milli skóla
og vinnumarkaðarins.
Þetta er í sautjánda skiptið sem
Framadagar eru haldnir en það eru
alþjóðlegu stúdentasamtökin AIE-
SEC sem hafa veg og vanda af við-
burðinum. Samtökin eru starfandi
í 1.600 háskólum í 107 löndum og
er fyrirmynd Framadaga svokall-
aður „career day“ sem haldinn er
víða erlendis.
Líka fjör og læti
Gunnar segir marga nýútskrif-
aða nema nýta sér Framadaga
til að kynna sér þá at-
vinnumöguleika sem í
boði eru og ennfremur
séu margir sem leiti eftir því að
komast í verkefnavinnu í tengslum
við lokaverkefnin sín. Meðfram full-
orðinslegum framtíðarhugleiðing-
unum hefur þó verið passað upp á
að hafa nett kæruleysi með í bland.
„Við erum með skemmtidagskrá
líka,“ segir Gunnar. „Fyrirtæki sem
vinna að nýjum hugmyndum eða
eru í miklum vexti buðu upp á
skemmtilega örfyrirlestra og svo
vorum við með lukkuhjól og voru 80
vinningar í boði. Dr. Gunni stjórnaði
síðan spurningakeppni milli kenn-
ara HÍ og HR af mikilli snilld en
það var HÍ sem fór með sigur af
hólmi. Fær hann í verðlaun vegleg-
an farandbikar.“
Hvað ætlar þú að verða?
Yfir 2.000
manns sækja
Framadaga
Morgunblaðið/Golli
Framadagar Básar fyrirtækjanna voru með veglegasta móti og margt fyrir háskólanemana að sjá og heyra.
Steindór Hjartarson, nemi í
verkfræði, og Dagný Björk
Stefánsdóttir, nemi í tölv-
unarfræði, voru meðal þeirra
fjölmörgu sem kíktu inn í
Háskólabíó á Frama-
dögum.
„Ég verð í námi í
sumar en langaði
að koma og for-
vitnast um það
hvort fyrirtækin
væru með einhver störf í boði,“
sagði Steindór. Dagný Björk út-
skrifast hins vegar í vor og hafði
áhuga á að kynna sér starfsemi
tveggja fyrirtækja sem tóku þátt í
deginum.
Þau voru sammála um að þau
hefðu hagnast á því að koma og
skoða sig um á Framadögum. „Já,
þetta er búið að vera fróðlegt,“
sagði Dagný. „Við erum búin að fá
ýmsum spurningum svarað.“
Nemar kynna sér störf í boði
FORVITNILEGIR FRAMADAGAR
MMeira á mbl.is