Morgunblaðið - 21.02.2011, Page 6

Morgunblaðið - 21.02.2011, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011 Forseti Íslands synjar Icesave-lögum staðfestingar Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Síðastliðinn föstudag fékk hluti þeirra viðskiptavina SP-fjármögn- unar sem hafa bíla á kaupleigu og sótt hafa um greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara sent bréf í ábyrgðarpósti þar sem samningnum er rift og hann beðinn að skila bif- reiðinni innan fimm virkra daga. Í lögum um greiðsluaðlögun einstak- linga er ekki gert ráð fyrir að þeir sem sótt hafa um greiðsluaðlögun geti greitt af kaupleigusamningum en að sögn Kjartans Georgs Gunn- arssonar, framkvæmdastjóra SP- fjármögnunar, er það galli á lögun- um sem verður að leiðrétta. „Um leið og einstaklingur sækir um greiðsluaðlögun er hann kominn í greiðsluskjól og má ekki borga af bílnum,“ segir Kjartan og bendir á að greiða megi af húsaleigusamning- um þar sem húsaleiga teljist til nauð- þurfta en það sama eigi ekki við um bílana. „Það skýtur skökku við, því samkvæmt nýjum neysluviðmiðum er bíll talinn nauðsyn.“ Kjartan bendir á að bílar falli í verði um 20% á ári og augljóslega þurfi fólk að geta greitt viðgerðir og viðhald ef halda á bílunum í horfinu. Hins vegar sé í lögunum ekki gert ráð fyrir því að fólk megi greiða nema af tryggingum og opinberum gjöldum. Það sé útilokað að fólk hafi umráð yfir bifreiðum í marga mánuði án þess að borga af þeim né megi það greiða fyrir að halda þeim í horfinu. Kjartan segist hafa komið sjónar- miðum fyrirtækisins á framfæri við embætti umboðsmanns skuldara en erfiðara hafi reynst að fá svör frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Að sögn Svanborgar Sigmarsdótt- ur, upplýsingafulltrúa umboðs- manns skuldara, hefur umboðsmað- ur bent á þennan ágalla og að það þurfi að gera ákveðnar breytingar á lögum ef það á að gera fólki kleift að greiða af kaupleigusamningunum. Að hennar sögn er unnið að málinu og var það síðast rætt á fundi um- boðsmanns og ráðherra fyrir helgi. Kjartan segir SP-fjármögnun ekki hafa nokkurn hag af því að sitja uppi með fleiri hundruð bíla og vonar að lausn finnist á málinu. „Það stendur ekki á okkur að finna lausnir. Við höfum m.a. stungið upp á því að fólk fái að borga einhverja lágmarks- greiðslu, t.d. myndu 17.500 krónur af hverri milljón á mánuði létta greiðslubyrði hjá nánast öllum. Við viljum semja og fólkið vill borga og halda bílunum. En eins og lögin eru í dag þá er það ekki hægt.“ Samningum rift – fólk beðið um að skila bílnum  Einstaklingar í greiðsluaðlögun mega ekki borga af kaupleigusamningum Morgunblaðið/Kristinn Bíllinn Samkvæmt nýjum neyslu- viðmiðum telst bíll til nauðsynja. Riftun samninga » Hluti þeirra sem hafa bíl á kaupleigu hjá SP-Fjármögnun og sótt hafa um greiðsluaðlög- un fékk sent bréf fyrir helgi þar sem samningnum er rift. » Fólk hefur fimm virka daga til að skila bílunum. FRÉTTASKÝRING Pétur Blöndal pebl@mbl.is Óhætt er að segja að ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar um að synja lögunum um Icesave staðfestingar hafi valdið vonbrigðum í stjórnar- ráðinu. Það kom fram í máli Stein- gríms J. Sigfússonar fjármálaráð- herra að hann væri „forundrandi“ og verulega hugsi um þýðingu ákvörð- unarinnar fyrir þingræðið á Íslandi. Og samkvæmt heimildum blaðsins átti Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra samtal við forsetann þegar ljóst varð að samningurinn færi fyrir þingið. Mun hún hafa gert forsetan- um ljóst, að það gæti haft alvarlegar afleiðingar ef hann skrifaði ekki und- ir. Forsetinn sagði raunar í Silfri Eg- ils fyrir viku, að hann væri í erfiðri stöðu: „Ég tel auðvitað æskilegast að við finnum eitthvert form þá þar sem þessi ákvörðun hvílir ekki bara á ein- um manni. Þetta er ekkert létt byrði að bera, að láta öll spjót standa á sér, láta ráðherra hóta sér að segja af sér, eða ríkisstjórnin fari frá, og svo fram- vegis og ég veit ekki hvað og hvað, og stefna þjóðinni í efnahagslegar ógöngur og allt þetta sem sagt er við forsetann ef hann taki þessa ákvörð- un.“ Röksemdir forsetans Grundvallarröksemdin í máli for- setans lýtur að því, að það sé ekki hans að taka ákvörðun út frá efni málsins, heldur lýðræðislegum bún- ingi þess. Þar sem þjóðin hafi fellt fyrri samninga með yfirgnæfandi meirihluta og ekki hafi farið fram al- þingiskosningar í millitíðinni, þar sem þingið endurnýjaði umboð sitt, þá sé það þjóðarinnar að eiga síðasta orðið. Hann fór í gegnum það að tæpur helmingur þingmanna úr fjórum stjórnmálaflokkum hefði viljað vísa málinu til þjóðaratkvæðagreiðslu, þá hefði fimmtungur kosningabærra manna tekið þátt í undirskriftasöfnun þar að lútandi og meirihluti þjóðar- innar lýst sig fylgjandi þjóðarat- kvæðagreiðslu í skoðanakönnun. Þó að forsetinn segðist ekki taka ákvörðun sína út frá efni samning- anna sagði hann engu að síður að þeir væru „tvímælalaust hagstæðari og á margan hátt betri“ en þeir fyrri, það munaði „risavöxnum upphæðum“ og einnig væri mikilvægt að hin ríkin viðurkenndu ábyrgð. Asinn fullmikill? Ljóst er að það var ekki að ósk for- setans að málið barst honum svo fljótt til undirskriftar. Og heimildir herma að honum hafi fundist asinn fullmikill á málinu. Flýtirinn var hins vegar skýrður af stjórnarþingmanni með því, að frestur Alþingis til að samþykkja samningana hefði runnið út um áramót, og því hefðu Bretar og Hollendingar þegar sýnt biðlund. Óhætt er að segja að dagurinn í gær hafi verið undirlagður í samsær- iskenningum og segir sína sögu að stjórnarþingmenn veðjuðu sín á milli um niðurstöðuna. Sumir vildu halda því fram, að fyrst forsetinn hefði ósk- að eftir að hitta forsvarsmenn undir- skriftasöfnunarinnar strax klukkan 10 að morgni fimmtudags, en lögin bárust honum daginn áður til undir- skriftar, bæri það með sér að hann vildi ljúka málinu sem fyrst, áður en fleiri söfnuðust á listann. Afhending undirskriftalistans fór fram á föstu- degi. Einnig var dregin sú ályktun, að þar sem forsetinn hefði flýtt ákvörð- un sinni, ríkisstjórnin hafði búist við að hann tilkynnti hana í dag eða á morgun, þá bæri það með sér að hann vildi ljúka málinu sem fyrst. Og víst var það rétt, að forsetinn vildi ljúka málinu, en af öðrum ástæð- um en kenningasmiðirnir höfðu lagt upp með. Formenn flokkanna fengu umslag með ákvörðuninni og rök- stuðningi fyrir henni kortéri áður en blaðamannafundurinn hófst í gær. Hringdi í trúnaðarmenn Og forsetinn var ekki aðgerðalaus í liðinni viku. Heimildir blaðsins herma að Ólafur Ragnar hafi tekið púlsinn á ýmsum trúnaðarmönnum sínum und- ir lok vikunnar til að kanna hvernig hljóðið væri í þeim. Þá kom fram á blaðamannafundinum í gær, að hringt hefði verið frá forsetaembætt- inu í slembiúrtak af undirskriftalist- anum til að sannreyna að fólk hefði í raun lagt nafn sitt við hana. Niður- staðan hefði verið sú, að 99% þeirra sem hringt var í hefðu staðið við und- irskriftina. Menn eru ekki á einu máli um hvaða þýðingu þessi ákvörðun hefur fyrir feril forsetans. „Það er ekki hægt að segja annað en að hann sé samkvæmur sjálfum sér,“ sagði einn viðmælenda í gær. Sumir telja að hann hafi fyrst og fremst verið að hugsa um dóm sögunnar um sína for- setatíð. Guðni Th. Jóhannesson sagn- fræðingur sagðist telja að þetta þýddi að forsetinn hygðist sitja áfram á Bessastöðum. Svo eru þeir sem segja að hann hafi hug á því að bjóða sig aft- ur fram til þings og leiða vinstri- stjórn. En það er ekki aðeins forsetinn sem er á krossgötum. Eins og áður sagði nefndi hann það sem rök fyrir máli sínu, að þingið hefði ekki end- urnýjað umboð sitt. Í stjórnarskránni segir að þing geti ákveðið með ¾ at- kvæða að víkja forseta frá. Skal þá fara fram þjóðaratkvæði og sé tillag- an felld er gengið til kosninga. Einn af viðmælendum blaðsins velti því upp, hvort ekki ætti svipað við ef þjóðin greiddi ítrekað atkvæði gegn meirihluta þingsins. Þjóðin eigi síðasta orðið Morgunblaðið/hag Viðbrögð Steingrímur og Jóhanna ræddu við fréttamenn fyrir utan Stjórnarráðið eftir að forsetinn hafði skýrt frá ákvörðun sinni.  Forsætisráðherra átti alvarlegt samtal við forsetann áður en Icesave málið fór fyrir þingið  Formenn flokkanna fengu umslag með ákvörðuninni kortéri áður en blaðamannafundurinn hófst ’ Ljóst er að það var ekki að ósk forsetans að málið barst honum svo fljótt til undirskriftar. Og heimildir herma að honum hafi fundist asinn fullmikill á málinu. Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.