Morgunblaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
Ríkisstjórnin þarf ekki að kvartaundan Ríkisstjórnarútvarpinu
frekar en fyrri daginn. Í gær var
útvarpað viðtali Boga Ágústssonar
við Bjarna Benediktsson, formann
Sjálfstæðisflokksins.
Bogi spurðiBjarna um
stöðu rík-
isstjórnarinnar
eftir nýjustu
ákvörðun forsetans. Bjarni sagðist
telja stöðu stjórnarinnar veika, og
sagði svo:
„Það hljóta að teljast ótrúleg tíð-
indi í sjálfu sér að stjórnin skyldi
hafa setið áfram eftir fyrri þjóð-
aratkvæðagreiðsluna þar sem að
nær allir greiddu atkvæði gegn rík-
isstjórninni.“
Bogi: „En ríkisstjórnin beitti sér
ekkert í þeirri þjóðaratkvæða-
greiðslu. Forsætisráðherra kaus
ekki einu sinni sjálfur ef ég man
rétt.“
Bjarni: „Nei, sem er ótrúlegt,
sem er alveg ótrúlegt, og …“
Bogi [grípur inn í]: „Þannig að
ríkisstjórnin var ekkert að leggja
undir þar en í þessari þjóðar-
atkvæðagreiðslu er náttúrlega allt
undir.“
Þessi fráleita stjórnmálaskýringBoga er með ólíkindum.
Einnig er með ólíkindum hve
Ríkisstjórnarútvarpið sýndi kosn-
ingunni í fyrra lítinn áhuga og
hjálpaði ríkisstjórninni þannig að
reyna að draga úr þátttöku, sem þó
varð góð.
Helsta afrek RÚV í þeirri kosn-ingabaráttu var að láta það
nægja sem umfjöllun kvöldið fyrir
kjördag að leyfa Steingrími J. að
flytja einræðu um hörmungarnar
sem færu í hönd ef sagt yrði nei.
Mun RÚV framkvæma hlutleys-isstefnu sína með sama vand-
aða hætti að þessu sinni?
Ríkisstjórnarút-
varpið af stað á ný
STAKSTEINAR
Kirsubergjagarðurinn eftir Anton
Tsjekhov verður settur upp í Borg-
arleikhúsinu í haust í leikstjórn
Hilmis Snæs Guðnasonar. Áætlað er
að frumsýna verkið á stóra sviði
Borgarleikhússins í október nk.
Ekki hefur verið gengið frá hlut-
verkaskipan í Kirskuberjargarðinn
en það gerist á næstu vikum, að sögn
Magnúsar Geirs Þórðarsonar, leik-
hússtjóra Borgarleikhússins. „Við
hlökkum mikið til að takast á við
þetta dásamlega leikrit sem er í
uppáhaldi hjá mörgum leikhúsunn-
endum – þar á meðal mér. Og það
getur ekki verið í betri höndum en
hjá Hilmi sem er einn fremsti leik-
stjóri landsins og einstaklega sterk-
ur leikaraleikstjóri,“ segir Magnús
Geir Þórðarson.
Verkefnaval næsta leikárs er vel á
veg komið og verður kynnt þegar
nær dregur að sögn Magnúsar
Geirs. Þegar hefur verið tilkynnt að
Galdrakarlinn í Oz verður frum-
sýndur í september en nú standa yf-
ir áheyrnarprufur fyrir það. Bergur
Þór Ingólfsson leikstýrir. Þá er ljóst
að nokkrar vin-
sælar sýningar
þessa árs snúa
aftur. Fólkið í
kjallaranum eftir
Auði Jónsdóttur
mun snúa aftur
með haustinu og
sömu sögu er að
segja af Elsku
barni. Þá þarf nú
að hætta sýn-
ingum á Faust í bili, því senda þarf
leikmyndina til Rússlands þar sem
sýningin verður sýnd í apríl. Jón
Páll Eyjólfsson, Jón Atli Jónasson
og Hallur Ingólfsson munu setja upp
sýningu í haust en þeir gerðu sýn-
ingarnar Þú ert hér og Góðir Íslend-
ingar í Borgarleikhúsinu. Gengið
hefur verið frá samningi við leik-
stjórann Oskaras Korsunovas, sem
leikstýrði Ofviðrinu, um leikstjórn í
Borgarleikhúsinu á leikárinu 2012-
2013. Bragi Valdimar Skúlason vinn-
ur nú að handritaskrifum fyrir
Diskóeyjuna sem sett verður upp
2012. sisi@mbl.is
Kirsuberjagarð-
urinn settur upp
Hilmir Snær stýrir í Borgarleikhúsinu
Hilmir Snær
Guðnason
Öflugir TUDOR High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.
Veður víða um heim 20.2., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 4 léttskýjað
Egilsstaðir 7 rigning
Kirkjubæjarkl. 5 rigning
Nuuk -5 heiðskírt
Þórshöfn 6 þoka
Ósló -12 heiðskírt
Kaupmannahöfn -2 léttskýjað
Stokkhólmur -6 heiðskírt
Helsinki -13 léttskýjað
Lúxemborg 0 snjókoma
Brussel 2 þoka
Dublin 7 skýjað
Glasgow 6 skýjað
London 5 þoka
París 7 skýjað
Amsterdam 1 heiðskírt
Hamborg -2 skýjað
Berlín -2 skýjað
Vín -1 alskýjað
Moskva -11 snjóél
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 12 skýjað
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -25 léttskýjað
Montreal -11 skýjað
New York -2 heiðskírt
Chicago 1 skúrir
Orlando 22 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:04 18:20
ÍSAFJÖRÐUR 9:17 18:17
SIGLUFJÖRÐUR 9:00 17:59
DJÚPIVOGUR 8:35 17:47
Hátt í hundrað konur tóku þátt í
kvennatöltmótinu Bleikt tölt, í
Reiðhöllinni í Víðidal í gær, á sjálf-
um konudeginum.
Keppt var til styrktar Krabba-
meinsfélagi Íslands en öll skráning-
argjöld sem og annar ágóði af
mótinu runnu óskipt til félagsins.
Þá gáfu dómarar og aðrir starfs-
menn vinnu sína. Upphæð skrán-
ingargjalda var frjáls, en að lág-
marki 3.000 krónur. Margar
kvennanna greiddu tugi þúsunda í
skráningargjöld til að styrkja mál-
efnið. Morgunblaðið/Golli
Bleika töltmótið
Um 100 kon-
ur skráðar
til leiks