Morgunblaðið - 21.02.2011, Síða 12

Morgunblaðið - 21.02.2011, Síða 12
FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is „Þó að þetta séu að einhverju leyti nýir samningar er þetta að mörgu leyti sama málið. Ef annar lög- gjafinn sem hefur fjallað um það á nú einn að ráða niðurstöðu þess, í ljósi aðdragandans í þessu sér- staka máli, þá þarf að vera nokkuð víðtæk sátt í samfélaginu um það. Ég tel að svo sé ekki,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á blaða- mannafundi eftir að hann tilkynnti að hann hygðist ekki staðfesta lög um ríkisábyrgð Icesave-skuld- bindinga við Breta og Hollendinga. Í málflutningi sínum og rökstuðningi lagði for- setinn áherslu á „tvískiptingu“ löggjafarvaldsins, en með því að beita málskotsrétti sínum hleypti hann almenningi að borðinu sem löggjafa. Forset- inn vísaði margoft til þess að hinir nýju samningar væru betri en hinir eldri, munurinn gæti numið „risasvöxnum upphæðum“. Sú staðreynd hefði hins vegar ekki haft áhrif á endanlega ákvörðun hans um beitingu málskotsréttarins. Almenningur annar löggjafa Áhersla forsetans á áframhaldandi þátttöku þjóðarinnar gerði það að verkum að sá mikli meiri- hluti sem var fyrir samþykkt ríkisábyrgðarinnar á Alþingi hreyfði ekki við afstöðu hans. Hann benti í því samhengi á atkvæðagreiðslu um það hvort efna ætti til þjóðaratkvæðagreiðslu. „Í atkvæðagreiðslu á Alþingi kom það skýrt fram að það voru 30 þing- menn af 63, eða rétt tæpur helmingur þingmanna sem samsettur var af þingmönnum úr fjórum þing- flokkum, sem afdráttarlaust greiddu því atkvæði að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram. Það er stað- reynd sem ég horfi á,“ sagði Ólafur Ragnar. „Þetta eru tvö mál. Annars vegar efnisþættir málsins og svo réttur þjóðarinnar til þess að fá að tjá sig um málið og greiða um það atkvæði,“ bætti hann við og hafnaði því alfarið að hann hefði vegið að þingræð- inu með ákvörðun sinni. Vissulega hefði yfirgnæf- andi meirihluti þingsins talað fyrir efni samnings- ins, „en mjög tæpur meirhluti fyrir því að hafna því að þjóðin yrði áframhaldandi löggjafi í þessu máli“. Hrakspár ekki gengið eftir Töluverð óvissa er nú komin upp á ný, þar sem hæpið má telja að hægt sé að leiða Breta og Hol- lendinga enn einu sinni að samningaborðinu. Ólafur Ragnar segist hins vegar ekki óttast viðbrögð al- þjóðasamfélagsins. Margir hefðu lært sína lexíu frá því hann synjaði síðustu lögum staðfestingar, og þeir sem haft hefðu við mestu hrakspárnar um efnahagslegt hrun og einangrun Íslands hefðu haft algjörlega rangt fyrir sér. „Mér fannst ánægjulegt og merkilegt að lesa ágæta grein forsætisráðherra um þessa helgi þar sem hún er að lýsa hinni glæsi- legu þróun efnahagslífsins á síðasta ári, og hvað það standi vel. Það er önnur sýn en sett var fram, bæði af hennar hálfu og annarra, fyrir rúmu ári,“ sagði Ólafur Ragnar. Hann blés einnig á spár þess efnis að hann væri að kollvarpa stjórnskipan lands- ins með synjun sinni og vísaði til umræðunnar í kjölfar beitingar málskotsréttarins árið 2004 og aft- ur í fyrra. Mistekist að ná samstöðu Eftir að hafa metið alla þætti málsins, forsögu þess, breytingar á samningskjörum, tvíþætta með- ferð þess á þingi nú og loks skoðanakannanir og undirskriftasöfnun sagði Ólafur Ragnar það standa eftir sem grundvallaratriði, „hvað sem líður kostum hinna nýju samninga“, að þjóðin hefði farið með löggjafarvald í málinu og mistekist hefði að skapa um það sátt að Alþingi lyki því eitt. Af þessum orðum hans má ráða, og raunar allri framsetningu, að þrátt fyrir að telja samningana efnislega miklu betri en hina fyrri væri sú stað- reynd aukaatriði í málinu. „Ef ljúka á málinu með ákvörðun Alþingis einni yrði að mínu mati af lýð- ræðis- og stjórnskipulegum ástæðum að vera all- víðtæk samstaða meðal þjóðarinnar um að láta Al- þingi eitt um það og segja frá sér rétt sinn til að vera hinn löggjafinn.“ Báðir aðilar löggjaf- ar skeri úr um málið  Lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinga synjað staðfestingar  Hagstæðari samningskjör og mikill þingmeirihluti koma ekki í stað sáttar 12 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011 Í stjórnskipun Íslands fer Al- þingi með löggjafarvaldið nema þjóðin hafi fyrir tilstuðlan for- seta fengið mál í sínar hendur. Þá fara Alþingi og þjóðin saman með löggjafarvaldið og er ákvörðun þjóðarinnar end- anleg. Í þessum efnum er stjórnarskrá lýðveldisins skýr. Með ákvörðun forseta 5. janúar 2010 og þjóðaratkvæðagreiðsl- unni sama ár varð þjóðin lög- gjafi í Icesave-málinu eins og það lá þá fyrir. Niðurstaðan var afdráttarlaus. Í kjölfar löggjaf- arvaldsákvörðunar þjóðarinnar 6. mars 2010 var á ný samið um málið. Þótt hinir nýju samn- ingar feli í sér töluverða óvissu eru þeir annarrar gerðar en hinir fyrri, hagstæðari á marg- an hátt og fjárhagslegar skuld- bindingar svo miklu minni að munurinn nemur risavöxnum upphæðum; hin erlendu aðild- arríki gangast einnig við ábyrgð. Ríflegur meirihluti þingmanna úr þremur stærstu flokkum Alþingis hefur nú sam- þykkt að hinir nýju samningar skuli fullgiltir. Varðandi samn- ingana að öðru leyti skulu ítrek- uð þau sjónarmið sem forseti setti fram í yfirlýsingu hér á Bessastöðum 5. janúar 2010 og í yfirlýsingu 2. september 2009. Þegar meta skal hvort forseti staðfesti sem lög hið nýja frum- varp um Icesave er grundvall- aratriði að horfa til þess að Al- þingi og þjóðin hafa saman farið með löggjafarvaldið í þessu máli. Það Alþingi sem 16. febr- úar afgreiddi málið er eins skip- að og áður; þjóðin hefur ekki endurnýjað umboð þess í al- mennum kosningum. Annar löggjafi málsins, Alþingi, er hinn sami og spurningin er því hvort sá löggjafi eigi einn að ljúka málinu án aðkomu hins löggjafans, þjóðarinnar, sem áður réð lokaniðurstöðu. Hinn lýðræðislegi aðdragandi, hlut- deild þjóðarinnar í löggjaf- arvaldinu, felur ótvírætt í sér að eigi afgreiðsla Alþingis á hinum nýju samningum að vera lok málsins þarf víðtæk samstaða að vera um að málinu ljúki með atkvæðagreiðslunni á Alþingi. Það er nú hins vegar ljóst að slík samstaða er ekki fyrir hendi; stuðningur er við að þjóðin verði eins og áður ásamt Alþingi löggjafinn í málinu. Í fyrsta lagi hlutu tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu veru- legt fylgi á Alþingi, tæplega helmingur þingmanna úr fjór- um stjórnmálaflokkum greiddi þeim atkvæði. Í öðru lagi hafa rúmlega 40.000 kjósendur formlega óskað eftir að þjóð- aratkvæðagreiðsla fari fram um hið nýja frumvarp eða um fimmtungur kosningabærra manna. Í þriðja lagi benda skoðanakannanir til að meiri- hluti þjóðarinnar vilji að hún komi að endanlegri afgreiðslu málsins. Grundvallaratriðið sem hlýtur að ráða niðurstöðu forseta, hvað sem líður kostum hinna nýju samninga, er að þjóðin fór með löggjafarvald í Icesave-málinu og ekki hefur tekist að skapa víðtæka sátt um að Alþingi ráði nú eitt niður- stöðu málsins. Ég hef því ákveðið í samræmi við 26. grein stjórnarskrárinnar að vísa hinu nýja frumvarpi í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Það er einlæg von mín að sem flestir lands- menn, bæði stuðningsmenn frumvarpsins og aðrir, nýti lýð- ræðislegan rétt sinn í þjóð- aratkvæðagreiðslunni sem fara mun fram svo fljótt sem auðið er. Yfirlýsing forseta í heild Forseti Íslands synjar Icesave-lögum staðfestingar Hefði styrkst í kosningum UMBOÐ ALÞINGIS „Ég tel að alþingiskosningar séu ekki bara form, heldur aðferð þjóðarinnar til að veita umboð. Ef nýtt Alþingi hefði komið að málinu að þingkosningum loknum væri það tvímælalaust þáttur sem ég tel að hefði skipt máli,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á blaðamanna- fundi eftir að hann las upp yfirlýsingu sína. Forsetinn vísaði til þess í yfirlýsingu sinni að Alþingi væri eins skipað og það var þegar síðasta ríkisábyrgð vegna síð- ustu Icesave-samninga var samþykkt á þingi en hafnað af þjóðinni. Þjóðin hefði ekki endurnýjað umboð þingsins í millitíð- inni og kosið nýtt þing. Þetta væri ein af ástæðum þess að hann synjaði lögunum staðfestingar að þessu sinni. Spurður að því hvort hann teldi að æskilegt væri að nýtt þing kæmi að málinu sagði Ólafur Ragnar það hins vegar ekki endilega vera skoðun sína.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.