Morgunblaðið - 21.02.2011, Side 5
Á VELLINUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Tuttugu ára bið KR-inga eftir bik-
armeistaratitlinum í körfuknattleik
karla lauk á laugardaginn þegar KR
vann sannfærandi sigur á Grindavík
94:72 í Laugardalshöll. Að loknum
skemmtilegum fyrri hálfleik var
staðan 40:39 fyrir KR en um miðjan
síðari hálfleik tókst KR-ingum að
slíta sig frá Grindvíkingum og gáfu
fá færi á sér eftir það. Báðir bik-
arúrslitaleikirnir þróuðust því ná-
kvæmlega eins.
Drakk í sig umhverfið
Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi
KR, lék sinn fyrsta bikarúrslitaleik.
Eftir að hafa átt frábært tímabil
með KR þá voru miklar væntingar
gerðar til hans fyrir þennan leik og
hann stóðst þær með glæsibrag.
„Ég reyndi að sannfæra mig um að
ég gæti komið í þennan leik eins og
hvern annan. Þegar ég mætti hins
vegar í Höllina, fór að hita upp og
sá allt fólkið þá áttaði ég mig á því
að þessi leikur er öðruvísi en aðrir.
Ég ákvað að njóta þess að spila því
þetta er sérstakur leikur. Í staðinn
fyrir að reyna að loka á umhverfið
þá ákvað ég að drekka umhverfið í
mig. Ég notaði sem sagt stemn-
inguna, umgjörðina og mikilvægi
leiksins til þess að spila betur og
það tókst,“ sagði Pavel þegar Morg-
unblaðið ræddi við hann að leiknum
loknum.
Pavel var maður leiksins
Pavel skoraði 21 stig, tók 11 frá-
köst og gaf 11 stoðsendingar. Fyrir
frammistöðu sína var hann valinn
maður leiksins. „Á svona degi áttar
maður sig á því af hverju maður er í
íþróttum. Það er ekki vegna ein-
staklingsverðlauna, eða samninga og
peninga, heldur þeirrar upplifunar
að vera hluti af hópi sem stefnir að
sama markmiði og nær því. Það er
afskaplega sérstök tilfinning,“ sagði
Pavel sem lengst af hefur búið á
Akranesi hérlendis en segist vera
orðinn mikill KR-ingur. „Þetta er
mitt lið hérna heima. Ég er kominn
inn í þessa vesturbæjarmenningu.
Það er ákveðinn karakter í þessum
vesturbæingum og maður er smám
saman að þróa hann með sér,“ sagði
Pavel ennfremur við Morgunblaðið.
Auk Pavels átti Brynjar Björns-
son stóran þátt í sigrinum. Þessi
mikla skytta hitnaði í síðari hálfleik
og setti þá niður þrjú þriggja stiga
skot og alls fimm í leiknum. Brynjar
skoraði 23 stig og var stigahæstur
KR-inga. Hreggviður Magnússon
sýndi einnig af hverju KR-ingar
fengu hann til liðs við sig og skoraði
mikilvægar körfur í seinni hálfleik.
Stóru strákarnir, Fannar Ólafsson,
Finnur Atli Magnússon og Jón Orri
Kristjánsson, tóku samtals 18 frá-
köst.
Horfið frá leikskipulagi
Leikurinn var kaflaskiptur hjá
Grindvíkingum. Fyrstu 25 mínútur
leiksins áttu þeir alveg jafna mögu-
leika á því að hirða bikarinn. Þeir
brotnuðu hins vegar um leið og þeir
misstu KR-ingana aðeins frá sér um
miðjan þriðja leikhluta. Af ein-
stökum leikmönnum voru Ólafur
Ólafsson og Ryan Pettinella mjög
góðir og létu KR-inga hafa fyrir
hlutunum. Þeir hættu aldrei að berj-
ast og sama má segja um Ómar Örn
Sævarsson. Hann komst vel frá
leiknum en missti margar mínútur
út af Mladen Soskic sem ekkert
sýndi í þessum leik. Helgi Jónas
Guðfinnsson, þjálfari Grindavíkur,
sagði við undirritaðan að hans menn
hefðu horfið frá leikskipulaginu þeg-
ar á móti blés. Slíkt hið sama sagði
þáverandi þjálfari Grindavíkur,
Friðrik Ragnarsson eftir úrslitaleik-
inn í fyrra og kannski er þetta eitt-
hvað sem Grindvíkingar þurfa að
skoða.
„Áttaði mig á því
að þessi er öðruvísi“
Maður leiksins hætti við að reyna að loka á umhverfið Pavel átti stórleik með KR
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011
ÞorleifurÓlafsson,
einn lykilmanna
Grindvíkinga,
varð fyrir
meiðslum undir
lok fyrri hálfleiks
í bikarúrslita-
leiknum gegn
KR. Þorleifur
sneri sig á ökkla þegar hann lenti of-
an á andstæðingi. Þorleifur kom
ekki meira við sögu í leiknum. Hann
hugðist láta reyna á meiðslin í síðari
hálfleik en reyndist ekki leikfær
þegar til kastanna kom.
Nokkrir kunnir KR-ingar voru íLaugardalshöll og fögnuðu
fyrsta bikarsigri félagsins í 20 ár. Á
meðal þeirra voru til dæmis Páll
Kolbeinsson, sem var spilandi þjálf-
ari KR-liðsins sem vann 1991 og
Einar Bollason sem er eini mað-
urinn sem unnið hefur bikarinn með
bæði meistaraflokki karla og kvenna
sama árið. Hrafn Kristjánsson átti
möguleika á því að jafna það met en
það gekk ekki eftir.
Ítarlega varfjallað um
bikarúrslitaleik-
ina í körfubolt-
anum á mbl.is á
laugardaginn.
Auk lýsinga á
leikjunum tveim-
ur er þar að finna
myndskeið með
viðtölum við Hrafn Kristjánsson,
Helga Jónas Guðfinnsson, Hregg-
við Magnússon, Þorleif Ólafsson,
Brynjar Björnsson, Jón Halldór Eð-
valdsson, Bryndísi Guðmunds-
dóttur, Signýju Hermannsdóttur og
Birnu Valgarðsdóttur. Allt þetta er
að finna á mbl.is/sport/korfubolti.
Tuttugu mínútna töf varð á því aðbikarúrslitaleikurinn hæfist í
kvennaflokki. Þegar leikmenn voru
komnir út á völl og tilbúnir í slaginn
kom í ljós að önnur skotklukkan
virkaði ekki. Eftir nokkra athugun
voru aðrar klukkur notaðar í stað-
inn.
Helena Sverr-isdóttir
gerði 10 stig fyrir
lið sitt, TCU, í
bandaríska há-
skólakörfubolt-
anum þegar liðið
tapaði 70:60 fyrir
BYU. Þetta var
toppslagur í
Mountain West
riðlinum. BYA hefur aðeins tapað
einum leik en nú eru tapleikir TCU
orðnir þrír. Auk þess að skora tíu
stig gaf Helena fimm stoðsendingar,
tók fjögur fráköst og varði tvö skot.
Róbert Fannar Halldórsson sigr-aði á Allra Átta skvassmótinu
sem haldið var um helgina í Vegg-
sporti. Róbert Fannar lagði hinn
unga Þorbjörn Jónsson 3:0 í úrslita-
leik. Gunnar Þórðarson varð þriðji
með 3:1 sigri á Heimi Helgasyni. Í
A-flokki vann Dagný Ívarsdóttir,
lagði Erling Adolf Ágústsson 3:1 í
úrslitum.
Blake Griffin, leikmaður LA La-kers í NBA körfuknattleiknum,
sigraði í troðslukeppni NBA í fyrri-
nótt en stjörnuhelgi deildarinnar var
um helgina og lauk í nótt með sjálf-
um stjörnuleiknum. Griffin stökk yf-
ir húddið á fólksbíl og tróð með mikl-
um látum og það var sigurtroðslan.
JaVale McGee, sem leikur með
Washington, veitti honum harða
keppni og tróð meðal annars tveim-
ur boltum, sínum í hvora körfuna.
James Jones hjá Miami, kom á óvart
í þriggja stiga skotkeppninni og
hafði þar betur á móti þeim Ray Al-
len og Paul Pierce frá Boston.
Fólk sport@mbl.is
Morgunblaðið/hag
fyrir sér afraksturinn eftir verðlaunaafhendinguna á laugardaginn og ánægjan leynir sér ekki. Fyrsti bikarsigurinn í sjö ár orðinn staðreynd.
Laugardalshöll, Bikarkeppni KKÍ,
Poweradebikar karla, úrslitaleikur,
19. febrúar 2011.
Gangur leiksins: 6:6, 12:8, 14:14,
19:20, 24:28, 33:31, 36:36, 40:39,
42:42, 48:46, 61:49, 65:53, 75:59,
82:60, 88:65, 94:72.
KR: Brynjar Þór Björnsson 23/5
stoðsendingar, Pavel Ermolinskij
21/11 fráköst/11 stoðsendingar,
Hreggviður Magnússon 13/4 frá-
köst, Fannar Ólafsson 11/6 fráköst,
Marcus Walker 9/4 fráköst, Finnur
Atli Magnússon 8/6 fráköst, Jón
Orri Kristjánsson 5/6 fráköst,
Ágúst Angantýsson 3, Ólafur Már
Ægisson 1.
Fráköst: 29 í vörn, 12 í sókn
Grindavík: Kevin Sims 18/4 frá-
köst, Ólafur Ólafsson 17/9 fráköst,
Ryan Pettinella 12/6 fráköst, Ómar
Örn Sævarsson 10/7 fráköst/3 var-
in skot, Páll Axel Vilbergsson 8/5
fráköst, Björn S. Brynjólfsson 3,
Helgi B. Einarsson 2, Mladen Soskic
2/4 fráköst.
Fráköst: 23 í vörn, 13 í sókn
Dómarar: Sigmundur Már Her-
bertsson, Kristinn Óskarsson,
Björgvin Rúnarsson.
KR – Grindavík 94:72
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík. Hún átti
stórleik og lét til sín taka á mikilvægum
augnablikum. Sýndi fjölhæfni í vörn og sókn
eins og sjá má í tölfræðiþáttum leiksins. Einn
af leiðtogum Keflavíkurliðsins.
Moggamaður leiksins