Morgunblaðið - 21.02.2011, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 21.02.2011, Qupperneq 7
EHF-bikarinn 16-liða úrslit, fyrri leikir: Bjerringbro – Grosswallstadt ............22:22  Sverre Jakobsson gerði eitt mark fyrir Grosswallstadt. Evrópukeppni bikarhafa 16-liða úrslit, fyrri leikir: Krems – Drott.......................................31:29  Gunnar Steinn Jónsson gerði þrjú mörk fyrir Drott. Vardar Skopje – FIF............................33:20  Gísli Kristjánsson komst ekki á blað hjá FIF. Elverum – Kaustik Volgograd ...........30:28  Sigurður Ari Stefánsson gerði 6 mörk fyrir Elverum.  Elverum áfram, 60:58 samanlagt. Áskorendabikarinn 16-liða úrslit, fyrri leikir: Guif – Cimos Koper ..............................32:33  Haukur Andrésson leikur með Guif og Kristján Andrésson þjálfar liðið. Þýskaland A-DEILD: Melsungen – Füchse Berlín ................22:22  Alexander Petersson gerði 5 mörk fyrir Berlínarliðið og var markahæstur þar á bæ, Dagur Sigurðsson þjálfar Füchse. Friesenheim – Ahlen-Hamm ..............26:33  Einar Hólmgeirsson gerði 6 mörk fyrir Ahlen-Hamm Staðan: Hamburg 22 21 0 1 718:581 42 Kiel 22 18 1 3 713:546 37 Füchse Berlin 22 17 2 3 621:564 36 RN Löwen 22 15 3 4 701:633 33 Göppingen 22 15 2 5 620:578 32 Flensburg 22 15 0 7 695:601 30 Gummersbach 22 11 2 9 651:626 24 Magdeburg 22 11 2 9 643:614 24 Lemgo 21 9 4 8 589:568 22 Grosswallst. 22 10 2 10 575:597 22 Wetzlar 22 7 2 13 551:623 16 N-Lübbecke 22 6 2 14 608:648 14 Melsungen 22 5 3 14 577:646 13 Balingen 22 5 3 14 600:681 13 Friesenheim 22 4 3 15 598:682 11 Ahlen-Hamm 23 4 2 17 624:707 10 Burgdorf 22 4 1 17 576:666 9 Rheinland 22 4 0 18 552:651 8 B-DEILD NORÐUR: Emsdetten – Potsdam..........................29:30  Fannar Þór Friðgeirsson gerði 9 mörk fyrir Emsdetten. Hreiðar Levy Guðmunds- son ver mark Emsdetten og Patrekur Jó- hannesson þjálfar liðið. Varel – Nordhorn ................................25:27  Einar Ingi Hrafnsson gerði eitt marka Nordhorn. B-DEILD SUÐUR: Gross-Bieberau – Aue .........................25:26  Arnar Jón Agnarsson gerði 5 mörk fyrir Aue. Bittenfeld – Bergischen Löwen .........36:28  Arnór Þór Gunnarsson gerði 8 mörk fyr- ir Bittenfeld og var markahæstur þar á bæ og Árni Sigtryggsson gerði eitt mark.  Rúnar Kárason var með fjögur mörk fyrir Bergischer. Düsseldorf – Eisenach ........................31:23  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Eisenach. Danmörk A-DEILD KARLA: AG Köbenhavn – Mors-Thy ................38:32  Arnór Atlason gerði 9 mörk fyrir AG og Snorri Steinn Guðjónsson tvö.  Jón Þorbjörn Jóhannsson komst ekki á blað hjá Mors-Thy. Svíþjóð A-DEILD KVENNA: Spårvägen – Lugi .................................19:17  Harpa Sif Eyjólfsdóttir var ekki á meðal markaskorara hjá Spårvägen. H 43 – Heid............................................28:41  Þorgerður Anna Atladóttir gerði eitt marka H 43. Noregur A-DEILD KARLA: Viking – Follo .......................................26:31  Ingvar Árnason gerði eitt marka Viking. Oppsal – Haslum...................................19:24  Kristinn Björgúlfsson skoraði ekki fyrir Oppsal. ÍÞRÓTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011 Hádegisfundur ÍSÍ Föstudagur 25. feb. kl. 12.00-13.00 í E-sal Íþr.- miðstöðv. í Laugardal. David Jack, þekktur íþróttaþjálfari frá USA mun m.a. fjalla um hvatningu og skuldbindingu í íþróttum. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Uppl. í 460- 1467 og á vidar@isi.is Sjá nánar á www.isi.is Lionel Messi hélt upp á 250. leik sinn fyrir hönd Barcelona í gær með því að skora sigurmarkið í 2:1 sigri á Athletic Bilbao í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Real Madrid vann Levante á laugardag og því er Barcelona áfram með 5 stiga forskot á toppi deildarinnar. Messi náði með sigurmarki sínu, sem kom korteri fyrir leiks- lok, að jafna Cristiano Ronaldo á toppi listans yfir markahæstu menn deildarinnar en hvor um sig hefur gert 25 mörk. David Villa kom Börsungum yfir í leiknum en gest- irnir jöfnuðu með marki úr víti. sindris@mbl.is Mark í tímamótaleik Lionel Messi Kristján Bernburg í Belgíu sport@mbl.is Peter Maes, þjálfari belgíska knattspyrnuliðsins Lokeren, hældi Alfreð Finnbogasyni í hástert eft- ir leik liðsins við Cercle Brugge í 1. deildinni á laugardagskvöldið. Alfreð kom þá inná sem vara- maður í hálfleik og skoraði mark liðsins í 2:1 ósigri þegar 8 mínútur voru til leiksloka. „Alfreð hefur allt til að verða klassa leikmaður og núna er hann að venjast hraðanum og strang- ari gæslu. Hann er leikmaður sem verður enn betri og ég lít á hann sem mikilvægan framtíð- arleikmann fyrir Lokeren,“ sagði Maes á blaða- mannafundi eftir leikinn. Alfreð skoraði þarna í öðrum leik sínum í röð en hann mátti ekki spila síðasta leik Lokeren, þar sem það var frestaður leikur frá því fyrir áramót. Mark hans var mjög vel gert, Alfreð fékk stungusendingu innfyrir vörn Club Brugge og með varnarmann á hælunum hélt hann ró sinni, fór hann lag- lega framhjá markverðinum og skoraði með vinstra fæti. Leikur Lokeren breyttist mjög til hins betra þegar Alfreð og Donovan Deekman var skipt inná í upphafi seinni hálfleiks. „Framtíðarleikmaður fyrir Lokeren“ Alfreð Finnbogason ENSKI BIKARINN Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Jonathan Téhoué er knatt- spyrnumaður sem fáir vita deili á, tja, alla vega þar til í gær. Nú er þessi 26 ára Frakki í ónáðinni hjá stuðningsmönnum Arsenal en hetja í augum allra sem tengjast C- deildarliðinu Leyton Orient því hann gerði laglegt og dýrmætt jöfnunarmark fyrir liðið í uppbót- artíma gegn Arsenal í 16 liða úr- slitum enska bikarsins í gær. Þar með þurfa liðin að mætast að nýju á Emirates-vellinum, sem skilar mikilvægum tekjum í vasa Orient auk þess að gefa liðinu ef- laust byr undir báða vængi í bar- áttunni um að komast upp í næst- efstu deild. Það ætti alla vega að efla sjálfstraust venjulegra knatt- spyrnumanna að ná jafntefli við lið (þó alls ekki væri það skipað ná- kvæmlega sömu mönnum) sem nokkrum dögum áður lagði eitt besta lið sögunnar, Barcelona, að velli. Það vantaði alla vega ekki gorgeirinn í stuðningsmenn Orient sem sungu hástöfum „við erum betri en Barcelona,“ eftir leikinn. Téhoué hefur spilað víða um Evrópu en hann kom til Englands í janúar fyrir rúmu ári. Honum hef- ur lítið gengið að festa sig í sessi í liði Orient, og alla jafna komið inná sem varamaður líkt og gegn Arsen- al í gær. Markið gegn Arsenal sem og sigurmark gegn MK Dons í síð- asta deildarleik ættu hins vegar að veita honum tækifæri í byrj- unarliði. Man. Utd í vandræðum með utandeildarliðið Fyrir menn sem spila á rúmlega 9.000 manna heimavelli, eins og leikmenn Leyton Orient gera, er það sannkallaður draumur að fá að spila á Emirates. Annar drauma- leikur er jafnframt í boði fyrir Téhoué og félaga því ef þeim tekst hið „ómögulega“, að vinna Arsenal á útivelli, fara þeir á Old Trafford til að etja kappi við Manchester United í 8 liða úrslitunum. Öllu lík- legra verður að teljast að í 8 liða úrslitunum mætist United og Ars- enal, tvö efstu lið úrvalsdeild- arinnar, og það yrði jafnframt draumaleikur, en í þetta sinn fyrir hinn almenna knattspyrnuáhuga- mann. United var nálægt því að lenda í sömu vandræðum og Arsen- al því sigur liðsins á utandeildarlið- inu Crawley Town á laugardaginn var allt annað en öruggur. Wes Brown gerði eina mark leiksins en gestirnir áttu meðal annars skalla í þverslá í uppbótartíma! Eiður Smári fórnarlamb tæknilegra mistaka Eiður Smári Guðjohnsen gat ekki leikið með Fulham gegn sínu gamla liði Bolton vegna tæknilegra mistaka, en ekki var gengið löglega frá skráningu hans í bikarkeppnina eftir félagaskiptin frá Stoke þó Eiður hafi ekkert leikið í keppninni fyrir Stoke. Hann gat því lítið gert í því að Bolton ynni 1:0 sigur í gær. Ásamt Bolton og Man. Utd eru Birmingham og Stoke komin í 8 liða úrslit. Fjögur einvígi eru því sumsé óútkljáð en Everton og Man. City komust áfram í 16 liða úrslitin um helgina. Everton sló út ríkjandi bikarmeistara Chelsea í víta- spyrnukeppni og City vann 5:0 sig- ur á Notts County. Everton mætir Reading í 16 liða úrslitum, Man. City mætir Aston Villa, og loks mætast West Ham og Burnley. Í 8 liða úrslitunum eru svo eft- irfarandi viðureignir: Stoke - West Ham/Burnley Man. City/Aston Villa - Everton/ Reading Birmingham - Bolton Man. United - Orient/Arsenal Betri en Barcelona?  Sannkallaður draumaleikur í augsýn í 8 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar  Lítt þekktur Frakki setti strik í reikning Arsenal  Everton sló meistarana út Reuters Hetja Jonathan Téhoué var fagnað af samherjum og lukkudýri Leyton Ori- ent eftir að hann skoraði jöfnunarmarkið dýrmæta gegn Arsenal í gær. Svarfdæling-urinn Heiðar Helguson skor- aði eina mark QPR í jafn- teflisleik við Pre- ston North End á útivelli í ensku B- deildinni um helgina. Heiðar átti sömuleiðis skalla í þverslá í leiknum áður en honum var skipt af velli korteri fyrir leikslok. QPR er eftir sem áður á toppi deildarinnar og hefur þar 5 stiga forskot á Nott- ingham Forest, sem þó á leik til góða, og Swansea.    Íslensku U21-landsliðs- mennirnir Kol- beinn Sigþórs- son og Jóhann Berg Guðmunds- son, sem hafa reyndar líka verið að gera sig gild- andi með A- landsliði Íslands, voru báðir í liði AZ Alkmaar sem vann 2:0 útisigur á Heerenveen um helgina. Kolbeinn átti sinn þátt í seinna markinu en hann átti þá þrumuskot í kjölfar aukaspyrnu sem markvörður heima- manna varði. Héctor Moreno fylgdi skotinu eftir og skoraði auðveldlega fyrir AZ sem er í 6. sæti með 40 stig, 13 stigum á eftir toppliði PSV. Liðin í 4.-7. sæti fara í umspil um sæti í Evrópudeildinni og er AZ 4 stigum fyrir ofan liðið í 8. sæti.    Dirk Kuyt, hollenski knatt-spyrnumaðurinn, sagði um helgina að hann væri langt kominn með að ganga frá nýjum samningi við Liverpool. Hann virðist því ætla að framlengja dvöl sína hjá félaginu en þangað kom hann árið 2006. Hann á hálft annað ár eftir af núver- andi samningi sínum.    Sænski kylf-ingurinn Henrik Stenson fær tækifæri til að keppa á heims- mótinu í holu- keppni sem hefst á miðvikudaginn. Þar mæta 64 efstu kylfingar heimslistans til leiks en Stenson er í 65. sæti. Jap- aninn Toru Taniguchi forfallaðist og mun Stenson taka sæti hans og mæta efsta manni heimslistans í fyrstu umferð, Englendingnum Lee Westwood. Fólk sport@mbl.is HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, N1-deildin: Kaplakriki: FH – Akureyri.................. 18.30 Digranes: HK – Valur .......................... 19.30 Framhús: Fram – Afturelding ............ 19.30 Selfoss: Selfoss – Haukar .................... 19.30 1. deild karla Ármann – Skallagrímur........................72:91 Staðan: Þór Þ. 16 16 0 1583:1218 32 Þór A. 16 11 5 1386:1251 22 Skallagrímur 16 11 5 1371:1251 22 Breiðablik 16 10 6 1344:1183 20 Valur 16 10 6 1538:1336 20 FSu 16 8 8 1325:1293 16 Höttur 16 5 11 1225:1388 10 Laugdælir 16 4 12 1192:1406 8 Leiknir R. 16 3 13 1091:1420 6 Ármann 16 2 14 1179:1488 4 KÖRFUBOLTI Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.